Innlent

Salmonella Enteritidis greinist í fyrsta skiptið í búfénaði hérlendis

Svín. Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Svín. Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Salmonella Enteritidis greindist í stoksýni sem tekið var af svínaskrokki. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi tegund salmonellu greinist í búfé hérlendis samkvæmt tilkynningu á heimasíðu Matvælastofnunnar.

Salmonella Enteritidis getur valdið alvarlegum matarsýkingum í fólki. Litlar líkur eru þó á, að S. Enteritidis berist í fólk með svínakjöti enda fylgist Matvælastofnun með salmonellumengun í svínarækt og við svínaslátrun með þrenns konar sýnatökum.

Það er með kjötsafasýnum þar sem fylgst er með mótefnum í kjötsafa gegn salmonellu allt árið. Stroksýnum af skrokkum þar sem leitað er að salmonellu á yfirborði svínaskrokka við hverja slátrun og saursýnum þar sem leitað er að salmonellu einu sinni á ári á svínabúum í fyrsta flokki.

Tekin eru stroksýni af a.m.k. 10 sláturskrokkum frá hverju búi í hverri slátrun en fjöldi sýna fer eftir fjölda sláturgrísa. Ef jákvætt eða jákvæð sýni greinist í hraðprófi, eru tekin sýni af öllum skrokkum frá viðkomandi búi í næstu slátrun og skrokkarnir geymdir þar til niðurstöður liggja fyrir.

Ef stroksýni greinist jákvætt, er viðkomandi skrokkur stimplaður með heilbrigðisstimpli 2 og má aðeins fara á markað eftir hitameðhöndlun. Þannig er komið í veg fyrir að smitefnið geti borist í fólk því salmonella þolir ekki hitameðhöndlun.

Þetta eftirlitskerfi er sett upp með það að markmiði að vernda neytendur gegn hugsanlegum matarsýkingum sem borist gætu með svínakjöti. Hið mengaða kjöt sem hér um ræðir fór í hitameðhöndlun áður en það fór á markað og stafar neytendum ekki hætta af neyslu þess.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×