Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hækka um allt að fimmtung Allt tilbúið fiskafóður hjá Fóðurblöndunni hækkar um tíu til tuttugu prósent, samkvæmt tilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér í gær. Hækkunin, sem er mismikil eftir tegundum, tekur gildi í dag, miðvikudaginn 16. desember. 17.12.2009 01:30
Nýir mannbroddar í pakkann Neytendasamtökin hafa á vef sínum, ns.is, tekið saman nokkrar jólagjafir sem þau mæla með. 17.12.2009 01:00
Alþingi samþykkir opna heimild sparisjóðir. Alþingi samþykkti í gær að veita ríkisstjórninni opna heimild til að kaupa og selja hluti í innlendum sparisjóðum í tengslum við endurskipulagningu sparisjóðakerfisins. 17.12.2009 01:00
KPMG styrkir Geðhjálp KPMG á Íslandi og Geðhjálp hafa undirritað styrktarsamning um að KPMG gerist aðalstyrktaraðili Geðhjálpar næstu tvö árin. Styrkur KPMG nemur samtals þrem milljónum króna og vill félagið með því stuðla að eflingu geðheilbrigðis og gera Geðhjálp kleift að auka aðstoð við þá er kljást við geðræn vandamál. Geðhjálp gætir hagsmuna þeirra sem þurfa eða hafa þurft aðstoð vegna geðrænna vandamála, aðstandenda þeirra og annarra sem láta sig geðheilbrigðismál varða.- shá 17.12.2009 00:45
Fólksfækkunin vítahringur í Skaftárhreppi Kreppan fyrir sunnan hefur ekki enn megnað að stöðva fólksflóttann úr sveitunum, ferðaþjónustan er að mestu aðeins sumarvinna og fjölbreyttari störf vantar. Fréttastofa Stöðvar 2 heldur áfram að fjalla um ískyggilega byggðaþróun í Skaftafellssýslum. 16.12.2009 18:45
Ávíttur stjórnarmaður VR ætlar að halda aðra ræðu á kröfufundi Stjórnarmaður VR og fyrrverandi varaformaður félagsins, Bjarki Steingrímsson, hefur verið boðið að halda ræðu á kröfufundi sem haldin verður á Austurvelli næstu helgi - og hefur þegið það boð samkvæmt tilkynningu sem hann hefur sent frá sér. 16.12.2009 17:45
Lóðaúthlutanir hafa raskað samkeppni Samkeppniseftirlitið beinir því til stjórnvalda að huga að samkeppnisjónarmiðum í tengslum við skipulagsmál og úthlutun lóða. Á heimasíðu þeirra segir að dæmi eru um að skipulagsákvarðanir og lóðaúthlutanir hafi raskað samkeppni og það sé nauðsynlegt að grípa til aðgerða til að sporna við því. 16.12.2009 17:27
Tveggja og hálfsárs fangelsi fyrir smygl á eiturlyfjum Tveir Pólverjar voru í dag dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi hvor um sig, fyrir að smygla tæplega sex þúsund töflum sem innihalda metamphetamín og PCP til landsins. Töflurnar voru faldar í niðursuðudósum en mennirnir voru að koma með flugi frá Póllandi þegar þeir voru gripnir. Annar þeirra sagðist hafa verið neyddur til þess að smygla dósunum en hinn sagðist hafa keypt þær á markaði í Varsjá og að hann hafi staðið í þeirri trú að í þeim væri aðeins kjötbúðingur. 16.12.2009 16:24
Minna heimilissorp eftir hrun Óflokkað heimilissorp í Reykjavík dróst saman um 14% fyrstu níu mánuði ársins 2009 í samanburði við árið 2008. Þá hefur magn í grenndargáma og bláu tunnuna fyrir pappír dregist saman um helming á tveimur árum. Þetta kemur fram í frétt á vef umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar. 16.12.2009 16:24
ASÍ harmar áformuð svik ríkisstjórnarinnar Miðstjórn Alþýðusambands Íslands mótmælir harðlega þeim vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar að virða ekki gerða samninga. Í ályktun miðstjórnar segir að samkvæmt stjórnarfrumvarpi um breytingar tekjuskattskerfinu þá áformi stjórnvöld að afnema verðtryggingu persónuafsláttar sem ASÍ samdi um við þáverandi ríkisstjórn í tengslum við endurskoðun kjarasamninga 2006. 16.12.2009 16:17
Ítreka beiðni um Icesave skjöl Þingmenn Hreyfingarinnar ítreka fyrri beiðni þeirra um að trúnaði verði aflétt af skjölum vegna Icesave málsins og fara auk þess fram á málefnaleg rök verði færð fyrir leyndinni. 16.12.2009 16:11
Ætlar að sitja áfram í stjórn VR Bjarki Steingrímsson hefur látið af störfum sem varaformaður VR eftir að stjórn félagsins samþykkti tillögu um vantraust á fundi sínum fyrr í dag. Þrátt fyrir það ætlar hann að sitja áfram í stjórn VR. 16.12.2009 16:00
Meindýraeyðir olli misskilningi - fólkinu sleppt Manninum sem handtekinn var fyrr í dag í Bústaðahverfi hefur verið sleppt. Svo virðist sem um miskilning hafi verið að ræða en maðurinn og sambýliskona hans voru handtekinn. 16.12.2009 15:07
Leit að manninum hætt Leit hefur verið hætt að manni sem saknað er eftir að bátur hans fékk á sig brot og hvolfdi við Skrúð í Fáskrúðsfirði í morgun. Leitað hefur verið á svæðinu þar sem báturinn fórst. Björgunarsveitir af Austurlandi, nærstaddir bátar og þyrla Landhelgisgæslunnar hafa tekið þátt í leitinni auk kafara. 16.12.2009 15:01
Landsbankamaður kveðst vera saklaus Haukur Þór Haraldsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Landsbankans, segist vera saklaus af ákærum um fjárdátt. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Haukur gerir launakröfu upp á 148 milljónir í þrotabú bankans. 16.12.2009 15:00
Með hálft kíló af kókaíni í endaþarminum Rúmenskur karlmaður var tekinn með rúmt hálft kíló af kókaíni við komuna til landsins um helgina. Maðurinn sem talar ungversku var að koma hingað til lands frá Kaupmannahöfn en hann var með efnin innvortis.Þau munu hafa skilað sér tiltölulega hratt niður. 16.12.2009 14:46
Vinningshafar í Lottóinu hafa gefið sig fram Annar þeirra sem var með allar tölur réttar í Lottóinu um síðustu helgi og fékk rúmar 30 milljónir í sinn hlut, hefur gefið sig fram hjá Íslenskri getspá. Um er að ræða hjón með tvö börn og voru þau í sumarbústað á Flúðum, þar sem miðinn góði var keyptur. 16.12.2009 14:44
Ögmundur vill kjósa strax um Icesave Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, segir að það sé staðreynd að flestir, ef ekki allir, þingmenn hafi komist að niðurstöðu í Icesave málinu. Hann vill því kjósa strax um málið því frekari tafir á Alþingi þjóni engum sýnilegum tilgangi. 16.12.2009 14:29
Stjórn VR lýsir vantrausti á eigin varaformann Stjórn VR samþykkti tillögu um vantraust á Bjarka Steingrímsson sem varaformann stjórnar félagsins á fundi í hádeginu í dag. Ástæðurnar eru trúnaðarbrestur og samstarfsörðugleikar. Ásta Rut Jónasdóttir var kjörin nýr varaformaður á fundinum. 16.12.2009 14:03
Leitin hefur ekki borið árangur Leit að manni sem er saknað eftir að bát hvolfdi í Fáskrúðsfirði í morgun hefur ekki borið árangur. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu taka sjö björgunarskip og sjö kafarar þátt í leitinni auk þyrlu Landhelgisgæslunnar. 16.12.2009 13:37
Viðbúnaður í Bústaðahverfi: Húsleit framkvæmd Húsleit stendur nú yfir hjá manninum sem handtekinn var fyrr í dag, grunaður um að hafa verið vopnaður. Maðurinn og sambýliskona hans voru handtekinn og hefur hún verið flutt á brott en maðurinn, áður hefur komið við sögu lögreglu, er enn í húsinu á meðan húsleitin er framkvæmd. 16.12.2009 13:20
Kristján Þór: Bankarnir seldir án heimildar Ríkisendurskoðun telur að stjórnvöld séu að láta hlut sinn í Arion banka og Íslandsbanka af hendi án heimildar. Fulltrúi Sjálfstæðisflokks í fjárlaganefnd segir furðulegt að Vinstri grænir standi fyrir þessum vinnubrögðum, í ljósi gagnrýni þeirra á einkavæðingu bankanna á sínum tíma. 16.12.2009 13:19
Viðbúnaður á Bústaðavegi: Par handtekið Lögreglan hefur handtekið tvo einstaklinga í heimahúsi við Byggðarenda í Bústaðahverfi. Tilkynnt var um vopnaðan mann og fór sérsveit lögreglunnar á staðinn. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu liggur ekki fyrir hvort fólkið, sem er par hafi í raun verið vopnað. Maðurinn veitti nokkra mótspyrnu við handtökuna að sögn lögreglu. Parið, sem býr í húsinu hefur komið við sögu lögreglu áður. Í tilkynningu frá lögreglu segir að lögreglumenn sem voru að vakta húsið eftir að tilkynningin um vopnaðan mann barst hafi talið sig heyra skothvell og því hafi verið ákveðið að handtaka manninn. 16.12.2009 12:01
Manns saknað eftir að bát hvolfdi Manns er saknað eftir að bátur strandaði í Fáskrúðsfirði í morgun. Björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Austurlandi voru kallaðar út og Líf, þyrla Landhelgisgæslunnar, sótti kafara á Höfn í Hornafirði. Leit stendur yfir á svæðinu. 16.12.2009 11:31
Ráðherra óheimilt að framlengja úthlutun byggðakvóta Sjávarútvegsráðherra var óheimilt að framlengja úthlutunartímabil byggðakvóta fiskveiðiársins 2006-2007 til 31. desember 2007 - og þar með inn á nýtt fiskveiðiár - með útgáfu sérstakrar reglugerðar. Ákvörðunin átti sér ekki lagastoð og var því brot á lögmætisreglunni. Þetta kemur fram í nýlegu áliti umboðsmanns Alþingis. 16.12.2009 11:30
Allsherjarnefnd fjalli um mál Álfheiðar Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, vill að allsherjarnefnd fjalli um mál Álfheiðar Ingadóttur, heilbrigðisráðherra. Í umræðum á Alþingi á mánudag sagðist Álfheiður ekki sjá ástæðu til að biðjast afsökunar á þátttöku sinni í mótmælunum síðasta vetur eða ummælum sem hún lét falla um framgöngu lögreglu í þeim. 16.12.2009 11:22
Vilja ræða Arion, Íslandsbanka og Byr Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í viðskiptanefnd hafa farið þess á leit við formann nefndarinnar Lilju Mósesdóttir að nefndin ræði hið fyrsta einkavæðingu Arion banka og Íslandsbanka. Í bréfi sem Guðlaugur sendir Lilju er bent á að beiðni þar að lútandi hafi borist þann 3. desember. 16.12.2009 10:43
Samstarf Tollstjóra og Gæslunnar Tollstjóra og Landhelgisgæslan hafa gert með sér samstarfssamning, sem meðal annars nær til samnýtingar á tækjabúnaði, samstarf á vettvangi og sameiginlegra eftirlitsverkefna. 16.12.2009 10:02
Átján í prófkjöri sjálfstæðismanna Framboðsfrestur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík vegna borgarstjórnarkosninganna 2010 rann út í gær. Alls bárust 18 framboð, þar á meðal frá öllum sitjandi borgarfulltrúum flokksins nema Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, á skrifstofu flokksins í Valhöll áður en fresturinn rann út. 16.12.2009 09:49
Rúm 6% borgarbúa kusu Netkosningu um forgangsröðun fjármuna til nýframkvæmda og viðhaldsverkefna í hverfum Reykjavíkurborgar er lokið. Alls kusu 5876 Reykvíkingar í netkosningunni eða 6,2% kosningabærra sem voru allir Reykvíkingar á 16. aldursári og eldri, að fram kemur í tilkynningu. Borgarstjóri er ánægður með þátttökuna. 16.12.2009 09:20
Fjáraukalög samþykkt Fjáraukalög fyrir þetta ár voru samþykkt á Alþingi í gærkvöldi með 29 atkvæðum stjórnarliða, en 20 stjórnarandstæðingar sátu hjá. Þeir gagnrýndu meðal annars að enn ríkti óvissa um tekjuhlið frumvarpsins sem gerir ráð fyrir 158 milljarða halla á ríkissjóði í ár. 16.12.2009 07:20
Mótmæla sameiningu ráðuneyta Landssamtök sauðfjárbænda og Landssamband smábátaeigenda mótmæla bæði fyrirhugaðri sameiningu landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytis og iðnaðarráðuneytisins í eitt atvinnuvegaráðuneyti. 16.12.2009 07:16
Ryk hreinsað af götum borgarinnar Vatnsbílar og götusópar voru í nótt notaðir til að hreinsa ryk af nokkrum götum í höfuðborginni, þar sem umferð er hvað mest á daginn. Þetta var gert til að draga úr svifryksmengun, en áfram er spáð þurru og kyrru veðri. 16.12.2009 07:14
Fíkniefnamál á Akureyri Lögreglan á Akureyri fann í gærkvöldi 120 grömm af hassi og smáræði af hvítu efni, auk kannabisplöntu og fræja, þegar hún gerði húsleit hjá manni um tvítugt. 16.12.2009 07:11
Bíræfið gjaldeyrisrán við Súðarvog Tveir grímuklæddir menn rændu í gærkvöldi um það bil tíu þúsund evrum, eða tæpum tveimur milljónum króna, af manni þegar maðurinn taldi sig vera að fara að selja evrurnar á svörtum markaði. 16.12.2009 07:03
Yrði svartur blettur á stéttinni „Þetta er mjög slæmt mál og við vonum að þessi einstaklingur finnist sem fyrst, hvort sem hann er löglegur í stéttinni eða ekki. Samkvæmt lýsingu lögreglu liggur fullt af mönnum undir grun.“ 16.12.2009 06:00
Brotið á Klæðningu Héraðsdómur Reykjaness hefur fellt úr gildi árangurslaus fjárnám sem gerð voru hjá Klæðningu að kvöldi 12. október síðastliðinn. Fjárnámin voru alls 24 og hafa sextán þeirra þegar verið úrskurðuð ólögmæt vegna vinnubragða sýslumannsfulltrúans sem þau framkvæmdi. 16.12.2009 06:00
Hækka framfærslustyrki um tíu þúsund „Við verðum að ýta undir dugnaðinn og metnaðinn sem einkennir þjóðarsálina," sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri í gær við aðra umræðu um frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar. 16.12.2009 06:00
Segist starfa fyrir mann Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjaness þess efnis að Catalina Mikue Ncogo sæti áfram gæsluvarðhaldi og einangrun til 22. desember. 16.12.2009 06:00
Stjórnskipulag LSH skorið upp Haldnir hafa verið fjórir sérstakir sparnaðarfundir á hinum ýmsu deildum Landspítalans að undanförnu. 16.12.2009 05:45
Útkoman ræðst á morgun Connie Hedegård, forseti loftslagsráðstefnunnar, þykir hafa haldið vel á spilum þegar hún náði samkomulagi um vinnuáætlun næstu daga. Afríkuríkin höfðu uppi mikla gagnrýni og Connie var sökuð um að draga taum iðnríkjanna. Hún fullvissaði þó alla um að ekkert yrði ákveðið fyrr en á föstudag og eru flestir sammála um að hún hafi staðið sig vel. 16.12.2009 05:45
Hvít jól á Norður- og Austurlandi Útlit er fyrir hvít jól á Norður- og Austurlandi, að sögn Óla Þórs Árnasonar veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Óljósara er hvernig veður íbúar Suður- og Vesturlands hreppa, hvort jólin þar verði hvít eða rauð. Óli Þór segir líta út fyrir að lægð verði undir landinu á Þorláksmessu eða jafnvel á aðfangadag, henni fylgi úrkoma sem erfitt sé að fullyrða sem sakir standa hvort það verði snjór eða rigning. Helmingslíkur eru því á hvítum jólum á höfuðborgarsvæðinu nú þegar átta dagar eru til jóla. 16.12.2009 05:30
Nokkurra daga vinna enn eftir Annarri umræðu um fjárlagafrumvarpið lauk á Alþingi í gær og gengur það á ný til fjárlaganefndar. 16.12.2009 05:15
Helmingi fleiri þiggja aðstoð Jólaúthlutun Fjölskylduhjálpar Íslands hefur sett af stað símasöfnun sem fer fram með SMS-skilaboðum. 16.12.2009 05:00
Geir og Ingibjörg veiti skrifleg álit Utanríkismálanefnd Alþingis ákvað á fundi um Icesave-málið í gær að óska eftir því að Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, geri nefndinni skriflega grein fyrir viðhorfum sínum til forsenda Brussel-viðmiðanna svokölluðu, sem og til misræmis í túlkun forsætisráðherra Íslands og Bretlands á tilteknum efnisatriðum málsins. 16.12.2009 04:30