Fleiri fréttir

Evrópusambandið hvetur til 30 prósenta samdráttar

„Hvernig er hægt að hafa mismunandi samninga um útblástur í þróuðu ríkjunum sem stýrast af pólitík?“ Svo spurði Stavros Dimas, framkvæmdastjóri umhverfismála hjá Evrópusambandinu, á blaðamannafundi í gær. Það duldist engum að hann beindi spjótum sínum að Bandaríkjunum og hann fórnaði höndum um leið og dæsti. Slík þreytumerki eru farin að sjást á ýmsum fulltrúum hér, en allt er enn á huldu með samninga.

Maðurinn laus úr öndunarvél

Maðurinn sem slasaðist alvarlega þegar hann féll niður í húsgrunn við sumarbústað í nágrenni Flúða var fluttur af gjörgæslu og á almenna deild á Landspítala í gær, að sögn sérfræðings á spítalanum.

Ekki löglegt að birta öll nöfnin

Ólafur Elíasson, einn forsvarsmanna In Defence hópsins, segir að fólki verði gefinn kostur á því að kanna hvort einhver hafi skráð kennitölu þeirra án heimildar undir netáskorun samtakanna til forseta Íslands um að synja IceSave lögum staðfestingar. Enn sé þó eftir að útfæra hvernig það verði gert. Nú er einungis hægt að sjá á vefsíðunni nöfn þeirra hundrað manna sem síðast skráðu sig.

Samanburður nýju íbúðunum í óhag

Húsaleiga í nýjum íbúðum sem velferðarsvið Reykjavíkurborgar býður eldri borgurum til leigu er rúmlega 150 prósentum hærri en í ódýrustu þjónustuíbúðunum sem borgin leigir út.

Áréttaði ákvörðunarvald bankans

Í Umsátrinu, bók Styrmis Gunnarssonar um hrun efnahagskerfisins, segir frá skiptum skoðunum í Seðlabanka Íslands og hjá AGS varðandi stefnu í peningamálum og æskilegt stýrivaxtastig, en sjóðurinn hafi viljað halda hærra vaxtastigi. Bein afskipti forstjóra AGS af vaxtamálum seint í janúar segir Styrmir hafa komið í kjölfar tveggja tíma langs „harðs“ símtals milli Davíðs Oddssonar, sem þá var seðlabankastjóri og Marks Flanagan, yfirmanns sendinefndar AGS.

Barnaklámsmaður ákærður

Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann á sjötugsaldri fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir að hafa barnaklám í vörslum sínum.

Borgin niðurgreiði íbúðir fyrir aldraða

Leiguverð á nýjum þjónustuíbúðum fyrir aldraða í Reykjavík er allt of hátt, og fullkomlega eðlilegt að borgin niðurgreiði leigu fyrir þennan hóp, segir Helgi K. Hjálmarsson, formaður Landssambands eldri borgara.

Lækkar fram á þarnæsta ár

Vísitala mun að öllum líkindum hækka um 0,6 prósentustig í desember og verðbólga fara úr 8,6 í 7,7 prósent í mánuðinum, samkvæmt nýjustu verðbólguspá Greiningar Íslandsbanka. Gangi þetta eftir hefur verðbólga ekki verið lægri síðan í kringum mars í fyrra.

Bandaríkin segjast ekki munu gefa meira eftir

Bandaríkin áréttuðu enn í gær afstöðu sína í loftslagsmálum og að þau ætluðu ekki að ganga lengra en lýst hefur verið yfir í samdrætti útblásturs. Eiga í viðræðum við Kína. Skotin ganga á milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins.

Safna saman útflytjendum

viðskipti Skráning í Útflytjendahandbókina, Iceland Trade Directory, hefur staðið yfir undanfarið og eru allir þeir sem stunda viðskipti við útlönd hvattir til að nýta sér þessa leið til kynningar á erlendum mörkuðum.

Andvíg sameiningu ráðuneyta

Stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda mótmælir fyrirhugaðri sameiningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis og iðnaðarráðuneytis. Tvær ástæður búa að baki, segir í ályktun.

Þorgerður enn á sömu skoðun

„Ég er enn algjörlega á því að menn eigi að athuga þetta,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Landspítalinn naut ekki útgjaldaþenslu

Landspítalinn hefur setið eftir í fjárveitingum borið saman við þróun heildarútgjalda til annarrar heilbrigðisþjónustu í landinu á undanförnum árum. Framlög til Landspítalans hafa dregist saman um þrjú prósent frá árinu 2001, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Á sama tíma hækkaði framlag til heilbrigðismála í heild, reiknað án Landspítalans, um tæp sextán prósent.

Afli minnkar nokkuð milli ára

sjávarútvegur Sjávarafli í síðasta mánuði var 85.690 tonn samanborið við 117.837 tonn í sama mánuði árið 2008. Botnfiskafli dróst saman um 3.600 tonn frá nóvember 2008 og nam tæpum 37.600 tonnum. Þar af nam þorskaflinn rúmum 16.200 tonnum, sem er um 1.000 tonnum meira en árið áður.

Ískyggileg fækkun barnafólks í Skaftafellssýslum

Börnum og barnafjölskyldum í sveitunum frá Mýrdalssandi og til Hornafjarðarfljóts hefur fækkað svo ískyggilega á undanförnum árum að íbúar þar spyrja sig hvort heilsársbyggð muni leggjast af. Stöð 2 byrjar nú fréttaröð þar sem þessi þróun mála er skoðuð og spurt hvaða tækfæri eru til endurreisnar.

100 fjölskyldur fá gefins hamborgarhrygg

Hjónin Benedikt Eyjólfsson og Margrét Beta Gunnarsdóttir, eigendur fyrirtækisins Bílabúð Benna, afhentu í morgun 100 hamborgarhryggi til sameiginlegrar jólaaðstoðar Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, Hjálparstarfs kirkjunnar og Reykjavíkurdeildar RKÍ.

Göturnar í Reykjavík þvegnar í nótt

Í nótt verða nokkrar götur í Reykjavík þvegnar og sópaðar. Er það gert til að minnka líkur á svifryksmengun næstu daga en spáð er hægum vindi og þurrviðri í vikunni. Vatnsbíll mun úða saltpækli á götuna og götusópur fylgir í kjölfarið til að ná upp rykinu sem spænst hefur upp að undanförnu.

Vegfarendur björguðu nautgripum og kindum úr brennandi fjárhúsi

Tveir eldsvoðar urðu í síðustu viku á Vestfjörðum sanmkvæmt lögregunni. Á þriðjudeginum 8. desember kom upp eldur á bænum Neðri-Tungu í Örlygshöfn, þar var eldur í verkstæðisskúr og gömlu mjólkurhúsi. Húsin eru sambyggð hlöðu, fjósi og fjárhúsi.

Varðhaldsúrskurður Catalinu stendur

Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjaness þar sem Miðbaugsmaddömunni Catalinu Ncogo er gert að sitja í gæsluvarðhaldi til 22. desember.

Svifryk yfir mörkum í borginni

Líkur eru á að styrkur svifryks verði yfir mörkum í Reykjavík í dag. Áfram er spáð hægum vindi og þurrviðri í vikunni og líkur eru á svifryksmengun næstu daga. Sökum hlýviðris er ekki hægt að rykbinda umferðagötur, að fram kemur á vef umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar. Þeir sem eru með viðkvæm öndunarfæri er ráðlagt að taka tillit til þessa og forðast helstu umferðargötur.

RÚV rannsakar ekki bullundirskriftir

Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ríkisútvarpsins, segir að ljósi þess að þrjár eða fjórar „bullundirskriftir“ á undirskriftalista Indefence gegn Icesave frumvarpinu komu frá IP-tölum stofnunarinnar sjái RÚV ekki ástæðu til að aðhafast í málinu.

Geir Sveinsson vill annað sætið

Geir Sveinsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í handbolta, hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavik. Geir sem er tengdasonur Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sækist eftir 2. sæti listans.

Á fjórða tug fiskvinnslufólks sagt upp

Fiskverkunarfyrirtækið Tor ehf. í Hafnarfirði hefur ákveðið að segja upp 35 manns frá og með áramótum. Um er að ræða sérhæft fiskvinnslufólk. „Fyrirtækið mun ekki hætta en spurning hvort við förum niður það að vera 6 til 8 manna fyrirtæki," segir Aðalsteinn Finsen, forstjóri Tor.

Vilja ódýrari frístundastarf

Samfylkingin lagði til á fundi borgarstjórnar í dag að gengið verði til viðræðna um að ná niður kostnaði fjölskyldna og barna við íþróttir, listir og ýmis konar frístundir. Að mati borgarfulltrúa flokksins er um að ræða stóra kostnaðarliði í heimilisbókhaldi barnamargra fjölskyldna. Lagt er til að allt að hundrað milljónir verði nýttar til þessa af liðinum ófyrirséð.

Hundrað fjölskyldur fá gefins hamborgarhrygg

Hjónin Benedikt Eyjólfsson og Margrét Beta Gunnarsdóttir, eigendur fyrirtækisins Bílabúð Benna, afhentu í morgun 100 hamborgarhryggi til sameiginlegrar jólaaðstoðar Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, Hjálparstarfs kirkjunnar og Reykjavíkurdeildar RKÍ. Hryggjunum verður úthlutað til fjölskyldna á næstu dögum í aðstöðu jólaaðstoðarinnar á Norðlingabraut 12.

Sýna almenningi fingurinn

„Það er með öllu óþolandi að útrásarvíkingar og tengd fyrirtæki fái afskriftir skulda sinna þegar bílalántakendum er boðið að súpa höfuðstólshækkanir fjármálafyrirtækjanna. Krafa er um ríflegar leiðréttingar eða stuðst verði við undirritaða greiðsluyfirlit lánanna, að öðrum kosti verði bílamótmælum haldið áfram um ókomna tíð,“ segir Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, hjá samtökunum Nýtt Ísland, í tilkynningu. Hún segir stjórnvöld sýna almenningi í landinu fingurinn.

Varað við hálku

Umferðarstofa vill vara ökumenn á höfuðborgarsvæðinu við hálku sem að er víða á götum. Ökumenn í Fossvogi, Breiðholti og í efri byggðum höfuðborgarsvæðisins hafa orðið varir við hættulegar aðstæður vegna hálku.

Skattleggjum okkur ekki útúr kreppunni

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, segir að íslenskt samfélag muni ekki skattleggja sig út úr kreppunni. Síðari umræða um frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010 fer fram í borgarstjórn í dag.

Björn Herbert kjörinn í bankaráð Seðlabankans

Björn Herbert Guðbjörnsson var í dag kjörinn í bankaráð Seðlabanka Íslands í stað Ágústs Einarssonar sem hætt hefur í ráðinu. Björn Herbert var áður varamaður og í hans stað var Gunnar Svavarsson kjörinn varamaður.

Flautað á Íslandsbanka

Á fjórða tug bifreiðaeigenda tók þátt í mótmælum sem hófust fyrir utan höfuðstöðvar Íslandsbanka við Kirkjusand í hádeginu. Safnast verður saman fyrir utan fjögur önnur fyrirtæki sem lána til bifreiðakaupa og flautað stanslaust í þrjár mínútur.

Lögreglan leitar að vitnum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Birkimel við Hringbraut í Reykjavík fimmtudagskvöldið 10. desember síðastliðinn. Ekið var á gangandi vegfaranda á fyrrnefndum stað þetta áðurnefnda kvöld klukkan 22.37. Lögreglan biður þá sem urðu vitni að slysinu vinsamlegast um að hafa samband í síma 444-1000.

Samfylking vill banna innihaldslaus yfirboð

Borgarstjórnarflokkur Samfylkingarinnar hefur lagt fram tillögu þess efnis að bann verði lagt við „innihaldslausum yfirboðum“ í aðdraganda kosninganna í vor.

Átak gegn ölvunarakstri: Rúmlega 500 stöðvaðir

Rúmlega fimm hundruð ökumenn voru stöðvaðir á ýmsum stöðum á höfuðborgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu. Í tilkynningu frá lögreglu segir að ökumenn hafi almennt tekið þessum afskiptum mjög vel en öflug sveit lögreglumanna var á vettvangi og því gekk eftirlitið að mestu snuðrulaust fyrir sig.

Gamlir farsímar nýtast í hjálparstarfi

Græn framtíð og Síminn hvetja fólk til að styðja Hjálparstarf kirkjunnar fyrir jólin með því að koma með gamla og notaða GSM síma í verslanir Símans. GSM símarnir verða sendir í endurnýtingu og mun andvirði þeirra renna til innanlandsaðstoðar Hjálparstarfs kirkjunnar, að fram kemur í tilkynningu.

Færri sjúkraflutningar skýra breytingarnar

Færri sjúkraflutningar fyrstu átta mánuði þessa árs borið saman við sömu mánuði undanfarin ár skýrir af hverju stöðugildum sjúkraflutningamanna á Suðurlandi er fækkað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands vegna sjúkraflutninga í Árnessýslu en sjúkraflutningamenn hafa gagnrýnt fyrirhugaðan niðurskurð.

Eymdarvísitala Moody's: Ísland í sjöunda sæti

Lánsmatsfyrirtækið hefur tekið upp á því að birta vísitölu sem þeir kalla „Misery Index“ sem þýða mætti sem Eymdarvísitölu. Þar er fjárlagahalli ríkis lagður saman við atvinnuleysi í viðkomandi landi og ríkjum raðað eftir því. Ísland lendir samkvæmt þessu viðmiði í sjöunda sæti með eymdarvísitölu upp á rúmlega tuttugu prósent.

Ágúst hættir í bankaráði Seðlabankans

Alþingi kýs nýjan aðalmann í bankaráð Seðlabankans í stað Ágústs Einarssonar, rektors Háskólans á Bifröst, á þingfundi í dag. Fimm bankaráðsmenn auk Ágústs hafa sagt af sér frá bankahruninu.

Kviknaði í ofni á Flókagötu

Eldur kom upp í íbúð við Flókagötu á tíunda tímanum í dag. Slökkviliðið mætti á vettvang og í ljós kom að kviknað hafði í bakaraofni. Eldurinn var slökktur og er nú unnið að reykræstingu. Íbúum varð ekki meint af.

Síðari umræða um fjárhagáætlun borgarinnar

Síðari umræða um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010 fer fram á fundi borgarstjórnar í dag. Áætlunin var lögð fram í byrjun mánaðarins en til stendur að spara yfir þrjá milljarða króna. Í áætluninni er gert ráð áframhaldandi samdrætti í tekjum borgarinnar. Meirihluti Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks segir að honum verði mætt með hagræðingu í stjórnsýslu og rekstri, en skattar og gjöld fyrir grunnþjónustu verði ekki hækkuð. Fundur borgarstjórnar hefst klukkan tíu.

Þrír stútar teknir í nótt

Þrír menn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu í nótt vegna ölvunaraksturs. Þetta er óvenju mikið í upphafi viku og með tilliti til þess að lögregla var ekki með sérstakt átak við eftirlit í nótt. Enginn þeirra reyndi að komast undan þegar lögregla gaf þeim stöðvunarmerki.

Datt af mótorhjóli

Ökumaður bifhjóls meiddist, en þó ekki alvarlega, þegar hann féll á hjóli sínu í Hafnarfirði í gærkvöldi. Hann var í hópi vélhjólamanna þegar hann féllog er óhappið ekki rakið til hraðaksturs. Margir vélhjólamenn hafa dustað rykið af vélfákum sínum síðustu dagana, enda ákjósanlegt færi í blíðviðrinu.

Miklar hækkanir á fóðri

Verð á fóðri til fiskeldis er að hækka um allt að tuttugu prósent og aðrar fóðurblöndur, með fiskimjöli, eru líka að hækka umtalsvert. Hækkunin er rakin til mikillar hækkunar á fiskimjöli hér innanlands, sem hækkar í takt við fiskimjöl á heimsmarkaði. Það hefur hækkað um tugi prósenta það sem af er árinu, sem meðal annars má rekja til lítilla loðnuveiða hér við land og aflabrests á ansjóvetuveiðum í Suður Ameríku. Vaxandi fiskeldi í heiminum hefur líka aukið spurn eftir fiskimjöli.-

Fiskvinnslufólk fær ríflega jólabónusa

Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum ætlar að greiða hverjum starfsmanni 150 þúsund krónur til viðbótar desemberuppbótinni, Ísfélagið í Vestmannaeyjum ætlar að tvöfalda jólabónusinn til sinna starfsmanna og Samherji ætlar að greiða sínu landverkafólki hundrað þúsund krónur aukalega nú í desember. Þetta kemur fram á heimasíðum fyrirætkjanna og öll skýra fyrirtækin þetta með góðri rekstrarafkomu , meðal annars vegna lágs gengis krónunnar.

Lögreglan náði innbrotsþjófum á hlaupum

Tveir sautján ára piltar voru handteknir í nótt eftir að þeir höfðu brotist inn í bílasölu við Nethyl í Reykjavík. Athugull vegfarandi sá til þeirra þegar þeir voru þar innandyra. Þegar lögregla kom á vettvang tóku þeir til fótanna, en lögreglumenn hlupu þá uppi og gista piltarnir nú fangageymslur.

Sjá næstu 50 fréttir