Brotið á Klæðningu 16. desember 2009 06:00 Íshella 7 Skráð fasteignamat þessarar eignar, sem hýsir Klæðningu, er 12,3 milljónir króna. Á henni hvíla hins vegar 210 milljóna króna skuldir.Fréttablaðið/stefán
Héraðsdómur Reykjaness hefur fellt úr gildi árangurslaus fjárnám sem gerð voru hjá Klæðningu að kvöldi 12. október síðastliðinn. Fjárnámin voru alls 24 og hafa sextán þeirra þegar verið úrskurðuð ólögmæt vegna vinnubragða sýslumannsfulltrúans sem þau framkvæmdi. Fulltrúi Sýslumannsins í Kópavogi bankaði upp á hjá stjórnarformanni Klæðningar kvöldið 12. október vegna þess að hann hafði ekki sinnt ítrekuðum boðum um að mæta á skrifstofu sýslumanns til fjárnámsins, vegna samtals sextíu milljóna króna skulda. Óskaði fulltrúinn eftir að stjórnarformaðurinn benti á eignir til að gera fjárnámið í. Stjórnarformaðurinn vísaði á fasteign að Íshellu í Hafnarfirði, sem hýsir höfuðstöðvar fyrirtækisins, og 62 milljóna kröfu sem Klæðning átti á nýlegan kaupanda að fasteigninni. Það taldi stjórnarformaðurinn nóg. Fulltrúinn var ósammála og taldi eignina einskis virði, enda væri skráð fasteignamat hússins aðeins 12,3 milljónir en áhvílandi skuldir á því hins vegar 210 milljónir króna. Fulltrúinn lauk síðan fjárnáminu sem árangurslausu, sem þýðir að innan þriggja mánaða geta þeir sem kröfu eiga á félagið krafist þess að það verði tekið til gjaldþrotaskipta. Lögmaður Klæðningar kærði framgöngu fulltrúans með þeim rökum að honum hafi í fyrsta lagi borið að láta fara fram mat á eigninni, í stað þess að styðjast við gögn annars staðar frá, og í öðru lagi hafi átt að gefa stjórnarformanninum kost á að benda á aðrar eignir til að gera fjárnám í. Á þessi rök féllst héraðsdómur, jafnvel þótt sýslumaður hafi mótmælt þeim og bent á að lögum samkvæmt skuli sýslumannsembættið meta virði eignarinnar ef vafi er um það, og að fulltrúinn sem fór á staðinn hafi búið yfir nægri þekkingu og hæfni til að framkvæma það mat. Héraðsdómur felldi fimm fjárnámanna úr gildi fyrir helgi og ellefu til viðbótar í gær. Ekki fór fram munnlegur málflutningur í afgangi málanna og verður þeim lokið á næstunni. Magnús Guðlaugsson, lögmaður Klæðningar, segir ljóst að niðurstaðan þar verði sú sama. Magnús á von á að menn reyni í kjölfarið ný fjárnám hjá félaginu. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Erlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Fleiri fréttir Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Sjá meira