Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Magnús segi sig úr bankaráði Seðlabankans Hallur Magnússon, einn af forystumönnum Framsóknarflokksins í Reykjavík, vill að Magnús Árni Skúlason, fulltrúi flokksins í bankaráði Seðlabankans, segi af sér. Ekki sé hægt að kenna Framsóknarflokknum um mistök Magnúsar. 12.9.2009 11:28
200 manns taka þátt í flugslysaæfingu Rúmlega 200 manns taka þátt í flugslysaæfingu sem fer fram á Egilsstaðaflugvelli þegar kveikt verður í flugvélaflaki. Markmiðið með flugslysaæfingum er að leiða saman þá viðbragðsaðila sem hafa hlutverki að gegna við hópslys. Æfingin í dag verður sú þriðja sem fram hefur farið í ár. 12.9.2009 11:13
Íslandsmeistaramótið í póker hefst í hádeginu Íslandsmeistaramótið í póker hefst klukkan 12 á eftir en það fer fram á Hilton Hótel Nordica. 180 þátttakendur eru skráðir til leiks. Áhorfendur geta mætt og fylgst með. 12.9.2009 10:56
Formaður Borgarahreyfingarinnar: Við gerðum byrjendamistök Baldvin Jónsson, formaður Borgarahreyfingarinnar, telur flokkinn hafa gert byrjendamistök eftir að hafa náð frábærum árangri í kosningunum í vor. Þetta kom fram í skýrslu stjórnar sem Baldvin flutti eftir að landsfundur Borgarahreyfingarinnar hófst í morgun. Hann sagði núveranandi ríkisstjórn í litlu sem engu hafa breytt út frá stefnu fyrri ríkisstjórnar. 12.9.2009 10:17
Ítrekar að greiðslur Landsvirkjunar runnu til sveitarstjórnarmanna Sigurður Jónsson, fyrrverandi sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps, ítrekar fyrri orð sín um að Landsvirkjun hafi greitt sveitarstjórnarmönnum í hreppnum fyrir skipulagsvinnu. Í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag kveðst hann vera undrandi á því að núverandi oddviti hreppsins skuli blákalt halda öðru fram. 12.9.2009 09:51
Ný stjórn Borgarahreyfingarinnar kjörin í dag Landsfundur Borgarahreyfingarinnar hófst klukkan níu í morgun en hann fer fram á Grand Hótel í Reykjavík. Á eftir verða skipulags- og lagabreytingar ræddar sem og skýrslur stjórnar og þingmanna. Stjórnarkjör fer fram klukkan fjögur í dag en tveir hópar hafa tilkynnt um framboð í stjórn flokksins. 12.9.2009 09:24
Róleg nótt hjá lögreglu Nóttin virðist víðast hvar hafa verið afar róleg hjá lögreglumönnum. Lögregla þurfti að hafa lítil afskipti af fólki í miðbæ Reykjavíkur en sinnti nokkrum hávaðaútköllum víðsvegar um borgina. Tveir gistu fangageymslur lögreglu. 12.9.2009 09:04
Vilja að ríkið nýti nýja tekjumöguleika Talsmenn stjórnarandstöðunnar vilja að ríkissjóður leiti nýrra tekna frekar en að hækka skatta um 28-30 milljarða króna á næsta ári eins og stefnt er að. Auk hærri skatta hyggur ríkisstjórnin á 33-35 milljarða niðurskurð. 12.9.2009 08:15
Rúmlega þúsund með svínaflensu Á annað þúsund manns hafa nú veikst af svínaflensu hér á landi að því er talið er. Frá 29. júní til 6. september voru skráð samtals 1.078 tilfelli með inflúensulík einkenni, eða staðfesta inflúensu, í rafrænan gagnagrunn heilbrigðiskerfisins. Þar af voru 492 karlar og 586 konur. Flest tilfellin eru í aldurshópnum 15 til 34 ára. Flest eru skráð á Vesturlandi og á höfuðborgarsvæðinu en fæst í Vestmannaeyjum. Svo virðist sem faraldurinn sé fyrr á ferðinni á höfuðborgarsvæðinu og hann berist seinna út á land, að Vesturlandi frátöldu. 12.9.2009 07:00
Segir hund hafa étið læri af lifandi lambi „Lambið hefur áreiðanlega verið lifandi þar til búið var að éta helminginn af lærinu,“ segir Hreinn Ólafsson, fjárbóndi í Helgadal ofan við Mosfellsdal. Tvö lömb fundust dauð á þriðjudag við ána Köldukvísl, um fimm hundruð metra fyrir ofan Gljúfrastein. Talið er öruggt að þau hafi verið drepin af hundi. Að sögn Hreins er aðeins einn og hálfur mánuður frá því sex ær fundust drepnar af hundum í Seljadal ofan við Helgadal. 12.9.2009 06:00
Óperuhús í Kópavogi slegið af „Ef þetta gengur eftir þá liggur fyrir að óperuhúsið verður slegið af,“ segir Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri Kópavogs, um samþykkt bæjarráðs frá því á fimmtudag um að leggja niður undirbúningsnefnd um byggingu óperuhúss í Kópavogi. 12.9.2009 06:00
Fór inn á sjúkraskrár sjúklinga Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Blönduóss hefur orðið uppvís að því að fara inn á sjúkraskrár fólks sem leitað hefur til lækna stofnunarinnar. Þetta staðfestir Matthías Halldórsson landlæknir. 12.9.2009 06:00
Skoða leiguhúsnæði fyrir yfirfull fangelsi Dómsmálaráðherra og yfirvöld fangelsismála hafa nú til athugunar að leigja húsnæði þar sem vista megi afplánunarfanga. Ýmsir kostir eru í þeirri stöðu. 12.9.2009 05:45
Fær skrifstofu til að flokka skjöl sín Eiríkur Guðnason, sem lét af störfum sem seðlabankastjóri í lok febrúar, er nú snúinn aftur í bankann. 12.9.2009 05:00
Færeyingar þurfa líka að ákveða sig Fari Íslendingar inn í ESB líður ekki á löngu þar til við Færeyingar þurfum að gera upp hug okkar. Spurningin vaknar strax: hvað gerum við? Þetta mál er svo stórt að við eigum ekki að leyfa að það verði að pólitísku leikfangi. Við eigum að gera þetta upp við okkur sjálf. 12.9.2009 04:00
Stóru háskólarnir ræða um samstarf Rektorar Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík hafa átt samtöl um sameiningu eða víðtækt samstarf háskólanna. Þetta staðfestir Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, í samtali við Fréttablaðið. Ekki er þó um formlegar viðræður að ræða. Háskólarnir í landinu eru sjö talsins og víðtækt samstarf þeirra á milli hefur verið rætt. 12.9.2009 04:00
Reykingar kosta 100.000 á hvern mann Samfélagslegur kostnaður vegna reykinga á ári svarar til þess að allir Íslendingar greiði um 94 þúsund krónur úr eigin vasa. Sígarettupakkinn þyrfti að kosta um 3.000 krónur ef reykingamenn ættu sjálfir að bera allan kostnað sem fellur á samfélagið árlega. 12.9.2009 03:00
Tóku tuttugu kókaínskammta Lögregla lagði hald á tuttugu skammta af hvítu efni sem talið er vera kókaín, auk lauss efnis og íblöndunarefnis í tveimur íbúðum í Reykjavík á miðvikudagskvöld. Tveir karlmenn og ein kona voru handtekin á staðnum og færð til skýrslutöku. Þeim var sleppt að því loknu. 12.9.2009 02:30
Telur tölvuútboð ekki svara kostnaði Óvíst er hvort tölvuþjónusta Akraneskaupstaðar verður boðin út, líkt og bæjarráð fól bæjarstjóra að undirbúa fyrr í sumar. Fulltrúar minnihlutans gagnrýna þetta og segja eðlilegt að þjónustan sé boðin út. 12.9.2009 01:30
Stúlkur máttu þola illa meðferð á Bjargi Vistheimilanefnd segir að meiri líkur en minni séu á að sumar viststúlkur á stúlknaheimilinu Bjargi hafi mátt þola illa meðferð í formi tiltekinna líkamlegra athafna og kynferðislegrar áreitni af hálfu einhverra starfskvenna heimilisins. 12.9.2009 01:00
Þrír handteknir með þjófa-þjófavörn Þrír Litháar með heimatilbúna þjófa-þjófavörn voru handteknir í Borgarnesi í dag samkvæmt lögreglunni. Mennirnir voru að versla í Hagkaup þegar árvökult starfsfólk veitti þeim eftirtekt. 11.9.2009 23:15
Algjört hrun gistinátta Íslendinga í Kaupmannahöfn Gistinóttum Íslendinga í Kaupmannahöfn hafa stórfækkað síðan árið 2007 eða um 73 prósent. Samkvæmt vef Danska tölfræðibankans þá hafa gistinóttunum fækkað um 32 þúsund það sem af er ári samanborið við sama tímabil árið 2007 en það var turisti.is sem tók upplýsingarnar saman. 11.9.2009 20:31
Borgaði Baugi 50 milljónir fyrir upplýsingar um eigið félag Skilanefnd Landsbankans greiddi Baug group fimmtíu milljónir króna fyrir aðgang að bókhaldsgögnum félagsins BG Holdings yfir eignir þess í Bretlandi. 11.9.2009 20:04
Verkalýðsleiðtogi í Tortola-félagi Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, sat í stjórn fjárfestingarfélags í Lúxemborg sem var stofnað í gegnum tvö skúffufélög í skattaparadísinni Tortola. Það var aldrei nein starfsemi í félaginu segir Gylfi sem segist ekki hafa vitað að Tortola hafi blandast inn í stofnun félagsins. 11.9.2009 19:51
Gæludýr grafin í óleyfi Gæludýr hafa verið grafin í Heiðmörk þrátt fyrir að slíkt sé stranglega bannað. Vatnsból höfuðborgarbúa eru á svæðinu. 11.9.2009 18:45
Óvissa um orku fyrir Helguvík Óvissa er um hvort næg orka verður til fyrir álver Norðuráls í Helguvík, þegar það á að taka til starfa árið 2011. Norðurál tilkynnti í dag um samninga við þrjá erlenda banka sem ætla að útvega framkvæmdafé. 11.9.2009 19:48
Ófært inn í Þórsmörk Lögreglan á Hvolsvelli varar vegfarendur sem ætla að leggja á hálendisleiðir nú í kvöld og um helgina við færð á svæðinu. 11.9.2009 19:29
Veislunni er lokið - hrun í kampavínssölu Áfengissala fer vaxandi og hefur aukist töluvert frá í fyrra. Mest eykst sala á bjór, en sala á kampavíni hefur hrunið. Viðbúið er að áfengisverð eigi eftir að hækka mikið á næstu misserum; vegna hærra áfengisgjalds. 11.9.2009 18:44
Rebekka fékk styrk frá Ásbirni Lionsklúbburinn Ásbjörn í Hafnarfirði færði Rebekku Maríu Jóhannesdóttur 200 þúsund króna styrk í dag. Vísir og Stöð 2 hafa sagt frá málefnum Rebekku í vikunni. Hún missti móður sína í síðasta mánuði og föður sinn fyrir tveimur árum síðan. Rebekka, sem á sjálf von á barni eftir um það bil tvo mánuði, hyggst ala bræður sína upp hjá sér. Bræður hennar eru sjö ára og tæplega tveggja ára og saman búa þau í íbúð í Hafnarfirði ásamt ömmu sinni. 11.9.2009 17:11
Ráðuneytisstjóri verður sendiherra Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur skipað Einar Gunnarsson ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu frá 1. október næstkomandi samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytinu. 11.9.2009 18:00
Fjórum sleppt og einn í haldi vegna gruns um stórfelldan sófaþjófnað Karl á þrítugsaldri er nú í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn hennar á þjófnaði úr gámi í Reykjavík fyrr í vikunni. 11.9.2009 17:43
Grunaðir um innflutning á amfetamíni í kílóavís Fjórir karlar hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 24. september að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 11.9.2009 15:21
Engar vísbendingar fundist um falsað nautahakk Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur- Matvælaeftirlit segist ekki hafa fundið neinar vísbendingar sem renna stoðum undir fullyrðingu nautabóndans Þórarins Jónssonar á Hálsi um að nautahakk sé drýgt með öðru kjöti en nautakjöti og svo selt ómerkt í verslunum. 11.9.2009 17:36
Fimm Íslendingar yfirheyrðir vegna þjófnaðar á 17 sófasettum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er þessa stundina að yfirheyra fimm Íslendinga sem grunaðir eru um þjófnað á 17 sófasettum í Dugguvogi. Sófasettunum var rænt í fyrri nótt og nóttina þar áður. Þórarinn Hávarðsson sölustjóri hjá fyrirtækinu Patta í Dugguvogi, sagði í samtali við Vísi í gær að verðmæti sófasettanna væri um fjórar milljónir króna. 11.9.2009 16:07
Vildi Helga ekki um borð í þyrlu Gæslunnar „Þú ryðst ekki um borð í þyrlu Landhelgigæslunnar þegar þú ert ekki velkominn, það er bara þannig," segir Þórhallur Gunnarsson ritstjóri Kastljóssins. Til stóð að Helga Seljan fréttamaður færi um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar í dag til þess að fylgjast með æfingu Landsbjargar. Þegar leggja átti í hann tjáði forstjóri Gæslunnar Helga og tökumanni hans að þeir væru ekki velkomnir um borð að sögn Þórhalls. Georg segist hinsvegar hafa sagt að það væri sér ekki sérstök ánægja að þeir færu um borð. 11.9.2009 15:31
Gísli tekur við umhverfis- og samgöngumálunum Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi hefur verið kjörinn formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar. Gísli tekur við af Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur og segist vera himinlifandi með að vera kominn aftur í stólinn sem hann hefur vermt tvívegis áður. „Enda er mesta gerjunin í umhverfis- og samgöngumálum í borgum heimsins þessi misseri," segir Gísli á heimasíðu borgarinnar. 11.9.2009 15:17
Átta í gæsluvarðhaldi vegna innbrota - 25 handteknir Átta karlar á þrítugsaldri sitja nú í gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á innbrotum og þjófnuðum í umdæminu. Alls hafa 25 manns verið handteknir vegna rannsóknarinnar en fólkið er allt af erlendum uppruna. 11.9.2009 15:00
Heldur enn í vonina um að AGS svari fyrir mánaðamót Ekki liggur enn fyrir hvenær Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn mun taka fyrir endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands og Íslendingar fái þau gjaldeyrislán sem samið hefur verið um. 11.9.2009 14:25
Brotist inn í MS og FÁ í nótt Brotist var inn í húsnæði tveggja framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Um er að ræða Menntaskólann við Sund og Fjölbrautarskólann við Ármúla. 11.9.2009 13:58
Stjórn Meistarafélags kjötiðnaðarmanna kölluð saman Kristján Kristjánsson formaður Meistarafélags kjötiðnaðarmanna hefur boðað til fundar í stjórn félagsins í kjölfar frétta um að nautahakk hafi í einhverjum tilvikum verið blandað hrossakjöti og öðru. Fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gær að Neytendasamtökin kanna mál af þessu tagi. Þá hefur nautakjötsbóndi í Kjós lýst slíkum vinnubrögðum. 11.9.2009 13:37
Telur samdráttinn verða minni en spáð var Fjármálaráðherra vonast til þess að samdráttur í landsframleiðslu verði undir átta prósentum á þessu ári. Þess í stað gerir hann ráð fyrir áframhaldandi samdrætti á næsta ári. Þetta kom fram í máli Steingríms J. Sigfússonar á ríkisstjórnarfundi í morgun. Í upphaflegum áætlunum stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins var gert ráð fyrir að samdrátturinn yrði yfir tíu prósent á árinu, en á fyrri helmingi ársins mældist hann 5,5 prósent. 11.9.2009 13:27
Hátt í hundrað manns hringja daglega í Rauða krossinn Hátt í hundrað manns hringja daglega í Hjálparsíma Rauða krossins. Vaxandi örvænting er hjá þeim sem hringja þangað. Fólk kvíðir vetrinum og finnst það þurfa að velja á milli þess að gefa börnum sínum að borða eða greiða af lánum. 11.9.2009 12:20
Rúmlega þúsund Pólverjar atvinnulausir hér á landi Rúmlega eittþúsund Pólverjar eru atvinnulausir af þeim rúmlega tíu þúsund sem dvelja hér á landi. Langflestir þeirra voru starfandi í byggingariðnaði. 11.9.2009 12:14
Fótbrotinn karlmaður og ófrísk kona staðin að innbroti Fótbrotinn karlmaður og ófrísk kona, sem bæði voru undir áhrifum fíkniefna, voru staðin að verki við stórfelldan þjófnað í verslun N-1, við Hrísmýri á Selfossi í nótt, og kom til átaka við lögreglu á vettvangi. 11.9.2009 12:09
Mótmælendur hittu formann skipulagsráðs í dag Að minnsta kosti tvö þúsund manns hafa sent skipulagsyfirvöldum í Reykjavík athugasemdir vegna nýs deiliskipulags við Ingólfstorg, en frestur til að skila inn athugasemdum rennur út á miðnætti í kvöld. 11.9.2009 11:52