Magnús segi sig úr bankaráði Seðlabankans 12. september 2009 11:28 Hallur var kosningastjóri Framsóknarflokksins í Reykjavík í þingkosningunum í vor. Hann gegnir ýmsum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn og er til að mynda varaformaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar. Mynd/Róbert
Hallur Magnússon, einn af forystumönnum Framsóknarflokksins í Reykjavík, vill að Magnús Árni Skúlason, fulltrúi flokksins í bankaráði Seðlabankans, segi af sér. Hallur segir að ekki sé hægt að kenna Framsóknarflokknum um mistök Magnúsar Í Morgunblaðinu í dag er greint frá því að Magnús hafði samband við hluthafa í Actavis og Össuri með það fyrir augum að benda þeim á heppilegan viðskiptaaðila með gjaldeyri erlendis. Áður hafði Seðlabankinn beðið fyrirtækin um að láta af slíkum viðskiptum og því vann Magnús gegn markmiðum bankans. „Mér þykir miður að vinur minn hagfræðingurinn Magnús Árni hafi sýnt þetta dómgreindarleysi og gert þessi mistök. Ég hef hvatt hann til þess að segja af sér vegna málsins - sem mér þykir einnig miður - því ég batt miklar vonir við hann í bankaráði Seðlabankans vegna góðrar þekkingar hans og reynslu," segir Hallur í pistli á vefsíðu sinni. Hallur var kosningastjóri Framsóknarflokksins í Reykjavík í þingkosningunum í vor. Hann gegnir ýmsum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn og er til að mynda varaformaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar. Hallur segir að ekki sé hægt að kenna Framsóknarflokknum um mistök Magnúsar. „Við skulum halda því til haga að Magnús Árni er nýgenginn í Framsóknarflokkinn eftir áratugastarf innan Sjálfstæðisflokksins. Framsóknarmenn í Reykjavík höfnuðu því að Magnús Árni tæki annað sæti á framboðslista Framsóknarflokksins - nýgenginn úr Sjálfstæðisflokknum." Ekki náðist í Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Framsóknarflokksins, vegna málsins, en hann er staddur erlendis.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Fleiri fréttir Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ Sjá meira