Fleiri fréttir Fékk ekki færi á andmælum Dómsmálaráðuneytið á að taka aftur fyrir mál karlmanns frá Venesúela sem Útlendingastofnun vísaði úr landi eftir að hann hafði lokið afplánum dóms fyrir líkamsárás. 7.4.2009 06:15 Einna lægst hlutfall hér Ungbarnadauði hefur verið lágur hér á landi miðað við önnur lönd undanfarinn áratug. Í fyrra dóu ellefu börn á fyrsta ári hér á landi. Það þýðir að af hverjum þúsund lifandi fæddum börnum dóu að meðaltali 2,5 börn. Þetta kemur fram hjá Hagstofunni. 7.4.2009 05:30 Einhliða upptaka ekki rædd Alþingi Íslensk stjórnvöld hafa ekki rætt um það við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn að taka einhliða upp evru hér á landi. Þetta sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra á Alþingi í gær. 7.4.2009 05:15 Eftirför á fjölda lögreglubíla Fjöldi lögreglubíla veitti í gærkvöld ökumanni á fólksbíl eftirför frá Bústaðavegi upp á Vesturlandsveg ofan við Grafarvog. 7.4.2009 05:00 Býður samstarf við starfsfólkið Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra átti í gær fundi með trúnaðarmönnum verkalýðsfélaga innan heilbrigðisþjónustunnar, BSRB og SGS, til að ræða stöðu hennar og framtíðarhorfur. Ráðherrann bauð samvinnu við stéttarfélögin. 7.4.2009 04:45 Ákærður fyrir að smána Kína Ríkissaksóknari hefur ákært 27 ára gamlan Tékka, Jan Jirícek, fyrir að sletta rauðri málningu á tröppur kínverska sendiráðsins fyrir rúmu ári. 7.4.2009 04:30 Mikil verðmæti geta glatast á töfum Hlynur Jónsson, formaður skilanefndar SPRON, segir mikil verðmæti í uppnámi, gangi salan á SPRON til MP Banka ekki eftir. 7.4.2009 03:00 Hvaða mál eru í forgangi? 7.4.2009 00:01
Sjá næstu 50 fréttir
Fékk ekki færi á andmælum Dómsmálaráðuneytið á að taka aftur fyrir mál karlmanns frá Venesúela sem Útlendingastofnun vísaði úr landi eftir að hann hafði lokið afplánum dóms fyrir líkamsárás. 7.4.2009 06:15
Einna lægst hlutfall hér Ungbarnadauði hefur verið lágur hér á landi miðað við önnur lönd undanfarinn áratug. Í fyrra dóu ellefu börn á fyrsta ári hér á landi. Það þýðir að af hverjum þúsund lifandi fæddum börnum dóu að meðaltali 2,5 börn. Þetta kemur fram hjá Hagstofunni. 7.4.2009 05:30
Einhliða upptaka ekki rædd Alþingi Íslensk stjórnvöld hafa ekki rætt um það við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn að taka einhliða upp evru hér á landi. Þetta sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra á Alþingi í gær. 7.4.2009 05:15
Eftirför á fjölda lögreglubíla Fjöldi lögreglubíla veitti í gærkvöld ökumanni á fólksbíl eftirför frá Bústaðavegi upp á Vesturlandsveg ofan við Grafarvog. 7.4.2009 05:00
Býður samstarf við starfsfólkið Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra átti í gær fundi með trúnaðarmönnum verkalýðsfélaga innan heilbrigðisþjónustunnar, BSRB og SGS, til að ræða stöðu hennar og framtíðarhorfur. Ráðherrann bauð samvinnu við stéttarfélögin. 7.4.2009 04:45
Ákærður fyrir að smána Kína Ríkissaksóknari hefur ákært 27 ára gamlan Tékka, Jan Jirícek, fyrir að sletta rauðri málningu á tröppur kínverska sendiráðsins fyrir rúmu ári. 7.4.2009 04:30
Mikil verðmæti geta glatast á töfum Hlynur Jónsson, formaður skilanefndar SPRON, segir mikil verðmæti í uppnámi, gangi salan á SPRON til MP Banka ekki eftir. 7.4.2009 03:00
Boða til mótmæla gegn Rauða Krossinum Hópur aðgerðasinna hafa efnt til mótmæla við höfuðstöðvar Rauða Krossins við Efstaleitið á miðvikudaginn klukkan hálf tólf. Þetta má sjá á vefsvæði á Facebook. Þar er því haldið fram að Rauði Krossinn standi aðgerðarlaus hjá gagnvart þeim flóttamönnum sem beðið hafa um hæli hér á landi. Þá er einnig spurt hversvegna Rauði Krossinn sinni ekki hlutverki sínu. 6.4.2009 22:00
Össur Skarphéðinsson: Orkulindir geta ekki tapast Iðnaðarráðherrann Össur Skarphéðinsson skrifar á bloggsíðu sína nú um kvöldmatarleytið að orkulindir geti ekki tapast hér á landi, skýr lög verndi þær. 6.4.2009 19:33
Ákærður fyrir eignarspjöll við kínverska sendiráðið Ákæru á hendur hugsjónamannins Jan Jiricek var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag en hann hellti rauðri málningu á tröppur kínverska sendiráðsins í mars á síðasta ári. 6.4.2009 18:14
Réttlætanlegt að takmarka mótmæli við einkaheimili Þegar mótmælendur safnast saman fyrir utan einkaheimili er talið réttlætanlegt að takmarka fundarfrelsi og tjáningarfrelsi með aðgerðum lögreglu, segir lagaprófessor við Háskóla Íslands. Sjö manns voru handteknir í gær við mótmæli fyrir utan heimili forstjóra Útlendingastofnunar. 6.4.2009 19:18
Álrisar beðnir um álit á stjórnarskrá Íslands Stjórnarskrárnefnd óskaði eftir því að fulltrúar þriggja erlendra stórfyrirtækja veittu umsögn um stjórnarskrá Íslands. Fróðir menn minnast þess ekki að slíkt hafi áður verið gert. 6.4.2009 19:10
Össur áhyggjufullur vegna eldflaugaskots Utanríkisráðherrann, Össur Skarphéðinsson, lýsir yfir alvarlegum áhyggjum yfir tilraunaskoti stjórnvalda Norður-Kóreu en ríkið skaut eldflaug á loft þann fimmta apríl síðastliðinn. Í tilkynningu sem Össur sendi frá sér segir eftirfarandi: 6.4.2009 18:45
Landsbankinn býður upp á óverðtryggð íbúðalán Landsbankinn tilkynnti á blaðamannafundi nú síðdegis að hann hyggst bjóða upp á óverðtryggð íbúðalán og er það liður í lausn bankans til þess að aðstoða heimili í greiðsluerfiðleikum. 6.4.2009 17:17
Rimlahliði og fartölvu stolið Aðfaranótt síðastliðins föstudags var brotist inn í þrjú fyrirtæki í Þorlákshöfn. Þessi fyrirtæki voru verslun Olís við Óseyrarbraut, veitingastaðurinn Svarti sauðurinn við Unubakka og Þjónustustöðin sem einnig er við Unubakka. Úr Olís var stolið skiptimynt og eitthvað af bílahreinsivörum. Úr Svarta sauðnum var stolið skiptimynt og fjórum kössum af Viking bjór. Einskis var saknað úr Þjónustustöðinni nema hugsanlega lítilræðis af skiptimynnt. Sömu aðferð var beitt við að komast inn í fyrirtækin það er með því að spenna upp hurð með einhvers konar áhaldi. 6.4.2009 16:17
Yfir 40% verðmunur á matarkörfunni 41% verðmunur reyndist á matvörukörfunni þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í 8 verslunum 2.apríl. Vörukarfan var ódýrust í Bónus þar sem hún kostaði 15.158 krónur en dýrust í Samkaup Úrval 21.402 krónur, en verðmunurinn er 6.244 krónur. 6.4.2009 15:56
„Hættum nú þessum kjánaskap góðir þingmenn“ Þingmenn Sjálfstæðisflokksins vildu vita þegar þingfundur hófst að nýju klukkan þrjú hversu lengi fundurinn ætti að standa. Sturla Böðvarsson óskaði eftir því að hlé yrði gert á fundinum á meðan sjónvarpsútsending með frambjóðendum í Norðvesturkjördæmi fer fram á Ísafirði kvöld. Mörður Árnason, varaþingmaður Samfylkingarinnar, bað þingmenn um að hætta því sem hann kallaði kjánaskap. 6.4.2009 15:49
Framkvæmdum hraðað við ofanflóðavarnir Í kjölfar tillögu Kolbrúnar Halldórsdóttur umhverfisráðherra sem samþykkt var í ríkisstjórn um að framkvæmdum við ofanflóðavarnir verði hraðað, hefur ofanflóðanefnd óskað eftir heimild fjármálaráðuneytisins til að bjóða út framkvæmdir við varnargarða í Neskaupstað og í Ólafsfirði. Umhverfisráðherra lagði til við ríkisstjórn að tæpum 1.100 milljónum króna yrði varið í ofanflóðavarnir til viðbótar við þær tæpar 700 milljónir sem ákveðið var að veita í málaflokkinn samkvæmt fjárlögum. 6.4.2009 15:37
Erfiðara að nálgast harðari efni Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir á Vogi segist eiga vona á aðgerðir lögreglu er varða upprætingu á kannabisræktunum muni skila sér á næstunni í minna framboði á markaði. Samkvæmt nýjustu verðkönnun SÁÁ hefur grammið af kannabis staðið í stað síðustu þrjá mánuði og kostar um 3.400 krónur en amfetamín hefur snarhækkað í verði. Þórarinn segir að amfetamínið hafi hækkað í janúar sem sé óeðlilegt þar sem yfirleitt hafi það gerst í kringum jólin. 6.4.2009 15:13
Yfir 900 umsóknir vegna greiðsluerfiðleika Fyrstu þrjá mánuði þessa árs hafa 942 umsóknir vegna greiðsluerfiðleika borist til Íbúðalánasjóðs. Úrræði vegna greiðsluvanda geta verið af ýmsum toga, t.d. skuldbreyting vanskila, frestun á greiðslum og lenging lána, að fram kemur í tilkynningu frá sjóðnum. 6.4.2009 14:57
Ólafur Ragnar sendir forseta Ítalíu samúðarkveðjur Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson hefur í dag sent forseta Ítalíu Giorgio Napolitano samúðarkveðjur sínar og íslensku þjóðarinnar vegna hörmunganna sem orðið hafa í kjölfar jarðskjálftanna í Abruzzo. 6.4.2009 13:56
Tillögu Þorgerðar hafnað Tillaga Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, um að stjórnarskrárfrumvarpið yrði sett aftur fyrir mikilvægari mál á dagskrá Alþingis var felld í dag. Þorgerður taldi brýnt að ræða frumvarp Össur Skarphéðinssonar, iðnaðarráðherra, um heimild til samninga um fyrirhugað álver í Helguvík. 31 þingmenn voru andsnúnir tillögu Þorgerðar en 20 greiddu atkvæði með henni. 12 voru fjarstaddir. 6.4.2009 13:36
Landsbjörg í viðbragðsstöðu vegna jarðskjálftans á Ítalíu Rétt fyrir klukkan 2 í nótt bárust boð frá jarðvísindastofnun Bandaríkjanna um að jarðskjálfti upp á 6.3 á Richter hefði riðið yfir miðhluta Ítalíu. Jarðskjálftinn var mjög grunnt undir borginni L‘Aquila sem er um 90 km norðaustur af Róm. Stjórnendur Íslensku Alþjóðasveitarinnar vöktuðu ástandið frá fyrstu mínútum og öfluðu upplýsinga í gegnum fjölmiðla og tengiliði innan Sameinuðu þjóðanna. 6.4.2009 13:24
Kókaín og sterar í húsleit á Akureyri Í gærmorgun framkvæmdi lögreglan á Akureyri húsleit í íbúð hjá karlmanni á fimmtugsaldri og fundust þar um 15 grömm af kókaíni og lítilræði af sterum. Manninum var sleppt og lokinni yfirheyrslu og telst málið upplýst. Einn karlmaður á þrítugsaldri sem var gestkomandi í íbúðinni reyndist svo hafa einn neysluskammt af fíkniefnum á sér. 6.4.2009 13:18
Nagladekkjum fækkað um fjórðung frá 2001 42% bifreiða í Reykjavík voru á nagladekkjum í marsmánuði. Svifryk fór fjórum sinnum yfir heilsuverndarmörk í marsmánuði. Notkun nagla er bönnuð eftir 15. apríl. 6.4.2009 12:51
Allir nema Álfheiður eiga hlut í Smugunni Allir þingmenn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs fyrir utan Álfheiði Ingadóttur eiga hlut í vefmiðlinum Smugunni. Meirihluti þeirra á hlut í Friðarhúsi, húsnæði Samtaka hernaðarandstæðinga. Formaður flokksins á 200 þúsund krónu hlut í Efnalaug Suðurlands. 6.4.2009 12:51
Samningar við Breta vegna hryðjuverkalaganna í góðum farvegi Utanríkisráðherra segir að samningar við Breta vegna hryðjuverkalaganna séu í góðum farvegi og vonandi þurfi Íslendingar ekki að taka á sig neinn skell vegna Icesave. Þingmaður Framsóknarflokksins segir utanríkisstefnu Samfylkingarinnar bara felast í því að mala. 6.4.2009 12:15
Algjörlega gjörsamlega óskiljanlegt Illugi Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagði það algjörlega gjörsamlega óskiljanlegt hvernig ríkisstjórnin þráast við. Þessi orð lét Illugi falla í umræðum um fundarstjórn forseta sem nú fer fram á Alþingi. Hart er tekist á og vilja sjálfstæðismenn fresta umræðum um stjórnarskrá og afgreiða mál er snerta fyrirtæki og heimili í landinu eins og þeir orða það. 6.4.2009 11:45
Belginn skilaði af sér seint í gærkvöldi Gilles Romain Chaterine Classens, 21 árs gamall Belgi sem gripinn var í Leifsstöð í síðustu viku er búinn að skila af sér fíkniefnum sem hann hafði innvortis. Efnunum skilaði Belginn af sér seint í gærkvöldi en hann notaði meðal annars laxerolíu til þess að auðvelda sér verkið. Ekki liggur fyrir hversu mikið af efnum maðurinn hafði innvortis, en það mun liggja fyrir seinna í dag. 6.4.2009 10:40
Lægstu launin í iðnaði - hæst í fjármálaþjónustu Regluleg laun á almennum vinnumarkaði voru að meðaltali 324 þúsund krónur á mánuði árið 2008. Regluleg laun fullvinnandi launamanna voru 355 þúsund krónur að meðaltali og regluleg heildarlaun, það er regluleg laun ásamt yfirvinnu, voru 393 þúsund krónur. Greiddar stundir fullvinnandi launamanna voru að meðaltali 44,7 stundir á viku. Heildarlaun fullvinnandi launamanna voru 454 þúsund krónur að meðaltali á mánuði. Í heildarlaunum eru regluleg heildarlaun að viðbættum ýmsum greiðslum sem ekki eru gerðar upp á hverju útborgunartímabili svo sem desemberuppbót og afkomutengdar greiðslur. 6.4.2009 10:23
Segir álver í Helguvík vinna gegn fjölbreyttri atvinnustefnu Álfheiður Ingadóttir þingmaður Vinstri grænna leggst eindregið gegn samþykkt frumvarps um heimild til samninga um álver í Helguvík. Í nefndaráliti Álfheiðar í iðnaðarnefnd bendir hún meðal annars á óvissu um efnahaglseg áhrif þess sem og umhverfisáhrifin. Hún segir þau hvorki hafa verið mtein fyrir tengdar framkvæmdir né fyrir þá 360 þúsund tonna framleiðslu sem samningurinn gerir ráð fyrir, heldur aðeins fyrir 250 þúsund tonna álver. Þá segir Álfheiður að aðeins liggi fyrir heimildir fyrir losun sem svarar 150 þúsund tonna framleiðslu þannig að væntingar um fjölda nýrra starfa og arðsemi framkvæmdarinnar séu ekki byggðar á raunhæfum forsendum. 6.4.2009 10:10
Skíðamenn streyma til Akureyrar um páskana Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli á Akureyri er opið í dag frá klukkan 10 til sjö. Gott veður er í fjallinu, logn og hiti við frostmark. Fjöldi fólks er komið í bæinn til þess að stunda skíðin um páskana að því er segir í tilkynningu frá reksrtraraðila fjallsins. 6.4.2009 10:06
Íslenskir karlmenn verða elstir í heiminum Árið 2008 dóu 1.986 einstaklingar með lögheimili á Íslandi, 981 karl og 1.005 konur. Dánartíðni var því 6,2 látnir á hverja 1.000 íbúa. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands. Eins og annars staðar í heiminum er meðalævilengd íslenskra karla styttri en kvenna. Íslenskir karlar geta nú vænst þess að verða 79,6 ára gamlir en konur 83,0 ára. 6.4.2009 09:12
Óku á járnplötur á Hellisheiði Tveir bílar skemmdust nokkuð á Hellisheiðinni í gærkvöldi þegar þeir óku á stórar járnplötur sem virðast hafa dottið af flutningabíl. Bílarnir óku á plöturnar með þeim afleiðingum að þeir rispuðust töluvert en enginn slasaðist í ákeyrslunum. 6.4.2009 07:19
Össur neitaði að vera á ljósmynd með Brown Össur Skarphéðinsson neitaði að láta mynda sig með Gordon Brown forsætisráðherra Breta á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem lauk í gær. Á bloggsíðu sinni lýsir Össur því þegar hann gekk í flasið á Brown þar sem hann var að láta mynda sig með Sarkozy Frakklandsforseta og Steve Harper, forsætisráðherra Kanadamanna. 6.4.2009 07:18
Eldur í gaskút í Breiðholti Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að Asparfelli á níunda tímanum í gærkvöldi vegna elds á fimmtu hæð. Svo virðist vera sem kviknað hafi í gaskút á svölum hússins. 6.4.2009 07:15
Amfetamínverð snarhækkar en kannabis stendur í stað Þrátt fyrir tíðar fréttir af því að lögregla hafi verið að uppræta kannabisverksmiðjur síðustu vikurnar hefur verðið á grammi af maríjuana ekki hækkað að neinu marki samkvæmt verðkönnun SÁÁ en þar er verð á algengustu fíkniefnum kannað mánaðarlega hjá þeim sem skrá sig í áfengis- og fíkniefnameðferð. 6.4.2009 07:07
Framsóknarmenn styðja ekki frumvarp fjármálaráðherra Framsóknarmenn ætla ekki að styðja frumvarp fjármálaráðherra um stofnun sérstaks hlutafélags sem á að taka yfir og endurskipuleggja gjaldþrota fyrirtæki. Þeir segja frumvarpið vera meingallað og auki hættu á spillingu. 5.4.2009 18:27
Líkamsárás í Lækjargötu: Karlmaður handtekinn Karlmaður er í haldi lögreglunnar, grunaður um að hafa ráðist á mann í Lækjargötunni í morgun, með þeim afleiðingum að honum var haldið sofandi í öndunarvél um stund. Árásarþolinn er nú kominn úr öndunarvél en er á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi til eftirlits. Lögreglan segir að vitni hafi gefið sig fram til lögreglunnar og það hafi leitt til þess að meintur árásarmaður fannst. 5.4.2009 17:19
Obama og Össur ræddu um jarðhitavinnslu Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Barack Obama Bandaríkjaforseti ræddu um nánara samstarf ríkjanna tveggja á sviði jarðhitavinnslu á leiðtogafundi NATO um helgina. 5.4.2009 17:34
Vinnsla á Drekasvæðinu hugsanlega öll neðansjávar Olía- og gasvinnsla af Drekasvæðinu yrði hugsanlega öll neðansjávar og fjarstýrt úr landi og án borpalla á yfirborði sjávar. 5.4.2009 19:16
Kærir RÚV til lögreglunnar Ástþór Magnússon hefur kært fréttastofu og yfirstjórn Ríkisútvarpsins til lögreglunnar fyrir kosningaspjöll gegn Lýðræðishreyfingunni, stjórnmálaflokki Ástþórs. Segir Ástþór að RÚV hafi logið um og afskræmt svar Lýðræðishreyfingarinnar með vísvitandi og meiðandi hætti þegar flutt var frétt undir fyrirsögninni „Skattahækkanir líklegar". 5.4.2009 16:49
Harðar deilur um hagsmunatengsl í Framsóknarflokknum Hart var deilt um tengsl Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar við fyrirtækið Kögun í þættinum Sprengisandi í morgun. Þar ræddu þau Sigmundur Davíð, Tryggvi Þór Herbertsson og Ólína Þorvarðardóttir um 20% flata niðurfellingu á skuldum. Ólína sagði að tortryggni gætti í samfélaginu vegna 5.4.2009 16:25
Árás í Lækjargötu: Maðurinn úr öndunarvél Maðurinn sem ráðist var á í Lækjargötu á fimmta tímanum í nótt er kominn úr öndunarvél en er ennþá til eftirlits á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. 5.4.2009 13:43