Segir álver í Helguvík vinna gegn fjölbreyttri atvinnustefnu 6. apríl 2009 10:10 Álfheiður Ingadóttir þingmaður VG.
Álfheiður Ingadóttir þingmaður Vinstri grænna leggst eindregið gegn samþykkt frumvarps um heimild til samninga um álver í Helguvík. Í nefndaráliti Álfheiðar í iðnaðarnefnd bendir hún meðal annars á óvissu um efnahaglseg áhrif þess sem og umhverfisáhrifin. Hún segir þau hvorki hafa verið mtein fyrir tengdar framkvæmdir né fyrir þá 360 þúsund tonna framleiðslu sem samningurinn gerir ráð fyrir, heldur aðeins fyrir 250 þúsund tonna álver. Þá segir Álfheiður að aðeins liggi fyrir heimildir fyrir losun sem svarar 150 þúsund tonna framleiðslu þannig að væntingar um fjölda nýrra starfa og arðsemi framkvæmdarinnar séu ekki byggðar á raunhæfum forsendum. „Í álitinu er einnig bent á mikið verðfall og minnkandi eftirpurn eftir áli, erfiða fjárhagsstöðu móðurfélags Norðuráls og þá staðreynd að samningurinn gæti endað í höndum kröfuhafa Century Aluminium ef bréf þess halda áfram að falla. Þá skilar fjárfesting í álverum hlutfallslega mjög fáum störfum auk þess sem annar efnahagslegur ávinningur Íslands af álverum hefur verið stórlega ofmetinn. Samningurinn felur í sér ríkisstyrk sem nemur 16,2 milljónum bandaríkjadala í formi afslátta frá sköttum og gjöldum. Þannig er álverinu tryggð vörn gegn hækkun frá 15% tekjuskatti í 20 ár. Gildir þá einu hvort tekjuskattar yrðu hækkaðir á allan annan iðnað í landinu, þ.m.t. önnur álver. Þetta skattaskjól er óverjandi miðað við efnahagsástandið og þann skuldaklafa sem hvílir á þjóðinni og því mun ég leggja til - ef frumvarpið kemur til afgreiðslu á þessu þingi - að hámark tekjuskattshlutfallsins verði hækkað í 18% til samræmis við önnur álver á landinu. Mikil óvissa ríkir um orkuöflun til álversins. Orkuvinnsla á Hellisheiði verður ágeng en ekki sjálfbær og aðeins 10-12% orkunnar verður nýtt. Orkuflutningur til álversins er einnig í uppnámi, en sveitarstjórn Ölfuss hefur hafnað því að leggja raflínur til Helguvíkur um sveitarfélagið. Þá er lánsfjáröflun vegna framkvæmda við virkjanir og línulagnir erfið og lánsfjármagn dýrt. Niðurstaða mín er sú að samningurinn sé óverjandi. Hann gengur þvert á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar og vinnur gegn fjölbreyttri atvinnustefnu. Ég tel einnig mjög vafasamt að það sé réttlætanlegt á viðskiptalegum og þjóðhagslegum forsendum að ráðast í uppbyggingu fleiri álvera á Íslandi," segir í nefndaráliti Álfheiðar.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Fleiri fréttir Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum Sjá meira