Fleiri fréttir

Íslendingur rændur í Kaupmannahöfn

Íslenskum karlmanni, Guðjóni Inga Eiríkssyni kennara, var ógnað af vopnuðum ræningja í anddyri á Ansgar hótelinu í Colbjoernsensgade í Kaupmannahöfn í gær. Guðjón var staddur í anddyri hótelsins ásamt afgreiðslumanni þegar grímuklæddur maður kom inn.

Vilhjálmur landaði fjögurra punda laxi

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri krækti í fyrsta laxinn í Elliðaánum þetta sumarið laust fyrir klukkan eitt í dag, skömmu áður en hann hætti veiðum í ánni. Vilhjálmur opnaði Elliðaárnar snemma í morgun og fékk einn urriða klukkan átta.

Ingibjörg Sólrún í opinberri heimsókn í Noregi

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, og eiginmaður hennar, Hjörleifur Sveinbjörnsson, hófu í dag tveggja daga opinbera heimsókn til Noregs í boði Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs. Heimsóknin hefst með áheyrn hjá Haraldi Noregskonungi í höll konungs í Osló.

Mikið um eiturlyfjaakstur í Skagafirði

Lögreglan á Sauðárkróki hafði í nógu að snúast vegna fíkniefna- og umferðarlagabrota um og eftir helgi. Fimm mál hafa komið upp síðan á föstudag þar sem fólk hefur verið tekið fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna á ýmsum farartækjum.

Formúlubíll í Smáralind

Formúluökumaðurinn Nico Rosberg kemur til Íslands þann 26.júní og mun spyrna Williams keppnisbíl sínum á bílaplaninu við Smáralind.

Eiturlyfjasalar á Landspítalanum

Sjúkrahússyfirvöld hafa engin tök á að stöðva eiturlyfjasölu inni á Landspítala háskólasjúkrahúsi, að mati lækningaforstjóra spítalans. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú lát konu á þrítugsaldri á Landspítalanum í fyrrinótt.

Landhelgisbrjótur á Ísafjarðardjúpi

Landhelgisgæslan stóð skipstjóra á tíu tonna línubát að ólöglegum veiðum við mynni Ísafjarðardjúps á lokuðu hafsvæði um hádegið í gær. Afar sjaldgæft er að menn brjóti lokanir Hafrannsóknarstofnunar með þessum hætti.

Oddvitar Árborgar ósáttir við Miðbæjarfélagið

Oddvitar meirihlutans í bæjarstjórn Árborgar eru ósátt við auglýsingu Miðbæjarfélagsins vegna fundar sem félagið stendur að um skipulag á Selfossi. Í auglýsingunni eru oddvitarnir kynntir til leiks sem frummælendur á fundinum. Þeir hafi hins vegar aldrei verið beðnir um að mæta á fundinn og gera því alvarlegar athugasemdir við fyrirkomulag og boðun fundarins og ætla ekki að mæta.

Bæjarstjórinn kominn út úr skápnum

Talsmaður Sólar í Straumi segir bæjarstjórann í Hafnarfirði kominn út úr skápnum með stuðningi sínum við að álverið í Straumsvík geti mögulega stækkað t.d. með byggingu á landfyllingu. Hann segir kosningarnar í vetur ekki hafa snúist um skipulag lóðar álversins, heldur öll þau áhrif sem stækkað álver hefði á fjölmörgum sviðum.

Velferðarsvið segist vinna markvisst að málefnum aldraðra

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem lýst er, að fregnum af því að ekki hafi verið brugðist við hjálparbeiðni vegna aldraðra hjóna fyrr en sex dögum eftir að beiðnin var upphaflega lögð fram, sé tekið alvarlega. Velferðarsvið leggi metnað sinn í að veita öldruðum jafnt og öðrum borgarbúum góða þjónustu.

Norrænir ráðherrar leggja á ráðin um varnir gegn kynferðisglæpamönnum á Netinu

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra hitti norræna kollega sína í Koli í Finnlandi í dag. Málefni tengd vernd barna og efni refsireglna í því skyni voru helsta umræðuefnið á fundinum. Sérstaklega var rætt um leiðir til að hindra, að netið sé notað til að lokka börn til kynferðislegs sambands og hvernig unnt sé að bregðast við hættum af þessum toga með refsireglum.

Alvarlega slasaður eftir vélhjólaslys í Vestmannaeyjum

Ökumaður vélhjóls liggur alvarlega slasaður á gjörgæsludeild eftir að hann féll af hjóli sínu á Höfðavegi í Vestmannaeyjum laust fyrir miðnætti. Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum var maðurinn, sem er á þrítugsaldri, aftastur hópi vélhjólamanna sem voru á leið frá Stórhöfða.

Þjóðarátak gegn vændi

Þjóðarátak þarf gegn vændi og mansali á Íslandi, bæði af hálfu stjórnvalda og almennings. Þetta er skoðun Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, þingmanns og borgarfulltrúa, sem raunar lét af því embætti í dag.

Ráðherra íhugar lög um kynjakvóta

Konur reikna með að konur sætti sig við lægri laun en karlar og konur bjóða körlum hærri laun en konum. Þetta er meðal þess sem viðamikil rannsókn á launamun kynjanna leiðir í ljós.

Ráðstefna um ábyrga fiskveiðistjórnun

Sendiráð Íslands í London stóð í samvinnu við Landssamband íslenskra útvegsmanna fyrir ráðstefnu um ábyrga fiskveiðistjórnun. Ráðstefnan fór fram í byrjun júní. Markmið hennar var að kynna íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið og ástand fiskistofna við Íslandsstrendur fyrir breskum innflytjendum og seljendum íslenskra sjávarafurða.

Alcan skoðar Keilisnes

Ráðamenn Alcan í Straumsvík hafa fundað með sveitarfélaginu Vogum um hvort Keilisnes standi enn til boða undir álver. Bæjarstjórn hefur í framhaldinu boðað til borgarafundar í Vogum annaðkvöld til að heyra sjónarmið íbúanna til málsins.

Umfjöllun RÚV um Jónínu Bjartmarz alvarlegt brot á siðareglum

Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands hefur kveðið upp þann úrskurð að Ríkisútvarpið og fréttamaður þess, Helgi Seljan, hafi brotið alvarlega gegn siðareglum blaðamanna með umfjöllun sinni um Jónínu Bjartmarz, þáverandi umhverfisráðherra, og um veitingu ríkisborgararéttar til sambýliskonu sonar hennar.

750 manna byggð

Fleiri umsóknir hafa borist í íbúðir á nýja háskólasvæðinu á varnarsvæðinu en til stóð að ráðstafa í haust. Undir lok ágúst mun 750 manna samfélag verða þar til á skömmum tíma og er það væntanlega fordæmalaust dæmi um tilflutninga íslendinga án þess að hamfarir komi til.

Kastljós sendir frá sér athugasemdir vegna úrskurðar siðanefndar

Kastljós hefur sent frá sér athugasemdir vegna úrskurðar Siðanefndar fyrr í dag og fara þær hér á eftir: Siðanefnd Blaðamannafélagsins sendi frá sér úrskurð í dag þar sem hún kemst að þeirri niðurstöðu að umfjöllun Kastljóss um veitingu ríkisborgararéttar til unnustu sonar Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra hafi verið

Jafnréttisskóli í burðarliðnum

Tillaga frá borgarfulltrúum Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs um undirbúning að stofnun Jafnréttisskóla var samþykkt samhljóða í borgarstjórn í dag, 19. maí. Í tillögunni segir að borgarstjórn Reykjavíkur samþykki að setja á stofn samráðshóp sem hafi það verkefni að kanna kosti þess að stofna Jafnréttisskóla.

Samfylkingin skipar talsmenn

Borgarstjórnarflokkur Samfylkingarinnar hefur skipað talsmenn í einstökum málaflokkum. Flokkurinn segir þetta vera nýmæli sem miði að því stuðla að markvissum málflutningi Samfylkingarinnar í öllum málaflokkum.

Ástand bílstjóranna stöðugt að sögn læknis

Bílstjórarnir sem lentu í árekstri í Hörgárdal eftir hádegið í dag eru ekki i lífshættu. Bílstjórarnir, tvær konur, voru fluttar á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri með sjúkrabíl. Önnur þeirra hefur verið lögð inn til frekari rannsókna. Ekki var búið að taka ákvörðun um hvort hin konan yrði lögð inn.

Hlaut verðlaun fyrir uppfinningu sína

Þuríður Guðmundsdóttir, grasalæknir og ilmolíufræðingur, hlaut nýlega árleg verðlaun European Union Women Inventors & Innovators Network AWARDS (EUWIIN). Þrjátíu og fimm verðlaun eru veitt konum víðs vegar að úr Evrópu í fimm flokkum, fyrir vísindi, tækni, hönnun, margmiðlun og heilsu. Fjórar konur voru tilnefndir frá Íslandi.

Bleiku steinarnir afhentir þingmönnum NV kjördæmis

Bleiku steinarnir, hvatningarverðlaun Femístafélags Íslands, voru afhentir á Austurvelli í morgun. Að þessu sinni voru steinarnir afhentir þingmönnum Norðvesturkjördæmis, en ástæðan fyrir valinu er sú að engin kona situr nú á þingi fyrir kjördæmið.

Hálendiskort vegagerðarinnar

Kjalvegur og Uxahryggjaleið eru færir umferð en Kaldidalur er ófær. Sprengjusandsleið er ennþá lokuð og Fjallabaksleiðir nyrðri og syðri eru ófærar. Leiðin í Herðubreiðalindir og í Öskju hafa verið opnaðar.

Ritstjóraskipti á Vísi með haustinu

Ritstjóraskipti verða á Vísi með haustinu þegar Óskar Hrafn Þorvaldsson verður ritstjóri Vísis og Þórir Guðmundsson tekur við starfi varafréttastjóra Stöðvar tvö.

Landsbankinn í samstarf við Alþjóðahúsið

Alþjóðahúsið og Landsbankinn hafa gert með sér samning sem meðal annars felur í sér að bankinn styrkir húsið um tíu milljónir á þessu ári. Eftir því sem segir í tilkynningu frá bankanum og Alþjóðahúsinu hyggst bankinn einnig bjóða viðskiptavinum sínum sem eru af erlendu bergi brotnir upp á íslensku- og fjármálakennslu í samstarfi við Alþjóðahúsið.

Hjallastefnan rekur leikskóla í Reykjanesbæ

Í dag skrifa bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ undir samning við Hjallastefnuna ehf. um rekstur leikskólans Akurs við Tjarnabraut sem er nýr 6 deilda leikskóli fyrir 140 börn. Skólinn mun taka til starfa í september og mun hann starfa eftir hugmyndafræði Hjallastefnunnar.

Gerir ráð fyrir mjúkri lendingu

Búist er við því að landsframleiðslan dragist saman um 0,1 prósent í ár þrátt fyrir stóraukinn útflutning áls í endurskoðaðri þjóðhagsspá sem birt var í morgun. Starfandi forsætisráðherra gerir ráð fyrir mjúkri lendingu í efnahagsmálum.

Vestfirðingum verði komið til bjargar

Össur Skarphéðinsson, ráðherra byggðamála, segir að Vestfirðingum verði komið til bjargar. Hörð orð gagna á víxl á milli áhrifamanna í Sjálfstæðisflokknum vegna gagnrýni á kvótakerfið.

50 milljarða eignir

Eignir Samvinnutrygginga, aðallega í verðbréfum, nema ríflega fimmtíu milljörðum króna. Helsta eignin er hlutur í Exista uppá 20 milljarða.

Kanna hvort Keilisnes standi til boða undir álver

Ráðamenn Alcan í Straumsvík hafa fundað með sveitarfélaginu Vogum um hvort Keilisnes standi enn til boða undir álver. Bæjarstjórn hefur í framhaldinu boðað til borgarafundar í Vogum annað kvöld til að heyra sjónarmið íbúanna til málsins.

Rannsakar haglabyssuárás sem tilraun til manndráps

Lögregla rannsakar mál karlmanns, sem skaut af haglabyssu að eiginkonu sinni í Hnífsdal fyrir tíu dögum, sem tilraun til manndráps. Við slíkum brotum liggur allt að 16 ára fangelsi. Hæstiréttur staðfesti í gær áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manninum til 3. júlí á grundvelli almannahagsmuna.

Varað við hruni í íshellinum í Kverkfjöllum

Viðvörunarskilti hefur verið sett upp við íshellinn í Kverkfjöllum eftir að fregnir bárust af hruni úr honum. Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að skemmst sé að minnast þess þegar erlendur ferðamaður lést í íshellinum við Hrafntinnusker fyrir um ári síðan þegar hann varð undir hruni úr hellinum.

Búist við samdrætti í landsframleiðslu í ár

Búist er við því að landsframleiðslan dragist saman um 0,1 prósent í ár þrátt fyrir stóraukinn útflutning áls í endurskoðaðri þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins sem birt var í dag. Stóriðjuframkvæmdir og kvótaúthlutun fyrir næsta ár eru meðal þess sem veldur óvissu í spánni.

Þvaglekar kvenna

Þvagleki er ekki uppáhalds umræðuefni fólks en hann hrjáir marga, sérstaklega konur, og er skilgreindur þannig: Ástand þar sem ósjálfráður og sannanlegur leki á þvagi orsakar bæði félagsleg og hreinlætisleg vandamál fyrir viðkomandi einstakling.

Sömdu við einkaaðila vegna biðraða

Langar biðraðir við leiktæki í Hljómskálagarðinum urðu til þess að borgin ákvað að semja við einkaaðila um að starfrækja leiktæki í Lækjargötu.

Einkatímar hjá reyndum hryðjuverkamönnum í umferðinni

Ökuníðingum er boðið uppá námskeið, til að læra að komast undan laganna vörðum, á vefsíðunni HLS.is. Þar kemur fram að tilefnið sé hærri sektir og hert viðurlög við hraðakstri vélhjóla. Boðið er upp á hópnámskeið sem og einkatíma hjá reyndum hryðjuverkamönnum í umferðinni.

Sjá næstu 50 fréttir