Jafnréttisskóli í burðarliðnum 19. júní 2007 16:36 MYND/Pjetur
Tillaga frá borgarfulltrúum Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs um undirbúning að stofnun Jafnréttisskóla var samþykkt samhljóða í borgarstjórn í dag, 19. maí. Í tillögunni segir að borgarstjórn Reykjavíkur samþykki að setja á stofn samráðshóp sem hafi það verkefni að kanna kosti þess að stofna Jafnréttisskóla. Jafnréttisskólinn á að hafa það að markmiði að efla þekkingu og vitund barna og ungmenna á jafnréttismálum í samstarfi við þau félagasamtök og stofnanir sem starfa að jafnréttismálum. Samráðshópurinn á að skila niðurstöðum eigi síðar en 1. janúar 2008, enda skuli stefnt að því að Jafnréttisskólinn hefji störf á haustmánuðum 2008. Í greinargerð frá borgarfulltrúum VG segir að Jafnréttisskólinn hafi fyrst og fremst það hlutverk að „skapa vettvang fyrir heilsteypt jafnréttisstarf í skólum og frístundastarfi í anda mannréttindastefnu borgarinnar," Einnig skal stefnt að því að efla tengsl meðal kennara og styrkja þá jafnréttisfræðslu sem þegar er til staðar bæði í skólakerfinu og í frístundastarfi barna og ungmenna í borginni. „Lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla gera ráð fyrir að fræðsla um jafnréttismál fari fram á öllum skólastigum, en námsefni og tæki til verksins eru af skornum skammti. Stofnun Jafnréttisskólans væri því mikill fengur fyrir kennara og myndi styrkja grunnskóla Reykjavíkur enn frekar. Jafnframt væri þetta skref enn eitt merki þess að Reykjavíkurborg er í fararbroddi sveitarfélaga á sviði mannréttinda," segir ennfremur. Greinargerðinni lýkur síðan á eftirfarandi orðum: „Það er vel við hæfi að 19. júní sé lögð fram tillaga af þessu tagi og þar með undirstrikað mikilvægi þess að halda áfram öflugri uppbyggingu jafnréttissjónarmiða á öllum sviðum í þjónustu og stjórnsýslu borgarinnar. Það er jafnframt við hæfi að samþykkja slíka stefnumótandi tillögu nú á þessum degi og væri borgarstjórn Reykjavíkur til sóma."
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira