Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ungur piltur dæmdur fyrir kynferðisbrot Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi í dag ungan pilt í fimm ára skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn þriggja ára frænda sínum. Pilturinn var ákærður fyrir brot gegn þremur ungum frændum sínum. Hann var ósakhæfur í tveimur tilvikanna. 18.6.2007 16:35
Handteknir vegna framleiðslu á fíkniefnum Lögreglan á Hvolsvelli handtók tvo menn vegna framleiðslu á 52 kanabisplöntum í sveitinni í nágrenni Hellu í síðustu viku. Leit var gerð samkvæmt úrskurði og fundust þá þessar plöntur. Annar mannanna hefur viðurkennt framleiðsluna og hefur mönnunum verið sleppt. Akstur undir áhrifum fíkniefna tengist málinu og er það til rannsóknar. 18.6.2007 15:55
Enn engin vitni Enn hafa engar ábendingar borist lögreglu vegna nauðgunartilraunar sem átti sér stað í Traðarkotssundi við Þjóðleikhúsið á laugardagsmorgun þann 9. júní. Engin vitni hafa gefið sig fram. Stúlkan sem ráðist var á komst undan með harðfylgi. 18.6.2007 15:45
Vitavörður verðlaunaður Vitaverðinum Óskari J. Sigurðssyni verða á morgun veitt virt verðlaun sem kallast Hetjur umhverfisins. Það er úthafs- og loftslagsstofnun Bandaríkjanna sem stendur að verðlaununum sem afhent verða við hátíðlega athöfn í sendiráðsbústað Bandaríkjanna á Laufásvegi. 18.6.2007 15:45
Karl Ágúst Úlfsson er bæjarlistamaður Garðabæjar Karl Ágúst Úlfsson, leikstjóri, leikari og rithöfundur, er bæjarlistamaður Garðabæjar 2007. Gunnar Einarsson bæjarstjóri afhenti Karli Ágústi starfsstyrk listamanna árið 2007 við hátíðlega athöfn í Vídalínskirkju á þjóðhátíðardaginn 17. júní. 18.6.2007 15:14
Engar ábendingar borist lögreglunni Engar ábendingar hafa borist kynferðisafbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna aþjóðlega barnaklámhringsins sem greint var frá á Visi.is í morgun. Alþjóðadeild ríkislögreglustjóra hefur heldur ekki fengið ábendingar. 18.6.2007 14:49
Ferðaþjónustan blómlegust á Íslandi Hlutfall ferðaþjónustu af landsframleiðslu er langhæst á Íslandi af öllum Norðurlöndunum. Þetta kom fram á norrænu ársþingi hótel- og veitingamanna, sem haldið var 14-17. júní síðastliðinn á Íslandi. Hlutfallið er 4.5% á Íslandi, 3.1% í Noregi, 2.8% í Svíþjóð og 2,4% í Finnlandi og Danmörku. 18.6.2007 14:32
Bjóða upp á námskeið í afstungum Á heimasíðu mótorhjólaklúbbsins HSL hefur verið sett upp auglýsing um námskeið þar sem nemendum er kennt að stinga lögregluna af. Í auglýsingunni kemur fram að vegna hækkandi hraðasekta og hertra viðurlaga við ofsaakstri hafi klúbburinn ákveðið að grípa til róttækra aðgerða. 18.6.2007 14:31
Hraðakstur er dýrt spaug Sektir vegna hraðaksturs hækkuðu verulega um síðustu mánaðamót. Til dæmis þarf ökumaður sem staðinn er að því að aka á 101 km/klst að greiða þrjátíu þúsund krónur í sekt. Nítján ökumenn voru kærðir vegna hraðaksturs í umdæmi lögreglunnar á Akranesi í síðustu viku. 18.6.2007 14:27
Norræni menningarsjóðurinn styrkir útgáfu finnskrar þjóðlagatónlistar Norræni menningasjóðurinn hefur ákveðið að styrkja bókarútgáfu á finnskri þjóðlagatónlist með 85.000 dönskum krónum. 18.6.2007 14:13
Færð á vegum Hítardalsvegur 539 verður lokaður við Melsá í dag og næstu daga vegna ræsagerðar. Fært er um vað á ánni á meðan á framkvæmdum stendur. Þá verður Vatnsfjarðarvegur, vegur númer 633, lokaður við Eyrarfjallsafleggjara í Ísafirði frá kl 14.00 í dag til kl. 20.00 á fimmtudag vegna framkvæmda. Vegna aurbleytu og hættu á vegaskemmdum er allur akstur bannaður á mörgum hálendisleiðum sem að jafnaði eru ekki færar nema að sumarlagi. Annars er góð færð um land allt. 18.6.2007 14:01
Verktakafyrirtæki sakar Eyþór Arnalds um að fara með rangt mál Fyrirtækið SR-Verktakar hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla Eyþórs Arnalds, bæjarfulltrúa í Árborg í Kastljósi síðastliðið föstudagskvöld. Þeir segja Eyþór hafa farið vísvitandi með rangt mál í þættinum þegar hann sagði verktakann rífa hús á Selfossi í heimildarleysi. 18.6.2007 13:38
Vegabætur draga úr slysum Tveir Íslendingar hafa látist í bílslysum á þessu ári. Á sama tíma í fyrra höfðu sjö látist í umferðarslysum. Lögregla telur að vegabætur hafi dregið úr slysum. 18.6.2007 13:14
Landhelgisgæslan æfði með lögreglusérsveitum Landhelgisgæslan æfði nýlega með sérsveit Ríkislögreglustjórans og Delta sveit norsku lögreglunnar. Þessi viðamikla æfing var haldin í Hvalfirði. 18.6.2007 13:12
Þjóðhátíðardeginum fagnað í kæfandi hita Íslendingar í Torrevieja á Spáni stormuðu í skrúðgöngu í kæfandi hita í gær og fögnuðu afmæli lýðveldisins. 18.6.2007 13:08
Stuðmenn á útitónleikum við Barnaspítalann á morgun Barnaspítali Hringsins fagnar 50 ára afmæli á morgun með því að bjóða að bjóða börnum í afmælisveislu frá kl. 12 til 15 á lóðinni við Barnaspítala Hringsins. Þar verður boðið upp á Stuðmanna-tónleika og önnur skemmtiatriði, pylsur, drykki og afmælistertu. Yngstu börnunum býðst að koma með veika bangsa og dúkkur til læknis. 18.6.2007 13:08
Ræða um framtíðaruppbyggingu Alcan hér á landi Tveir af æðstu yfirmönnum Alcan eru að koma til landsins til að ræða við ráðamenn um framtíðaruppbyggingu fyrirtækisins hér á landi. Enn er til skoðunar að reisa nýtt álver fyrirtækisins í Þorlákshöfn. 18.6.2007 12:45
Búið að opna Sæbraut Lögregla er að ljúka störfum á vettvangi og Sæbraut/Reykjanesbraut hefur verið opnuð fyrir almenna umferð. 18.6.2007 12:37
Ræða veiðiráðgjöf Hafró við sjávarútvegsráðherra Forystumenn samtaka sjómanna gengu á fund Einars K. Guðfinnssonar, sjávarútvegsráðherra nú laust fyrir hádegi til þess að ræða veiðiráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar sem felur í sér uggvænlegan niðurskurð. Harðnandi gagnrýni er á kvótakerfið í röðum Sjálfstæðismanna. 18.6.2007 12:26
Vegabréfsáritanir til Íslands gefnar út í Bejing Deild til útgáfu vegabréfsáritana tók til starfa í sendiráði Íslands í Beijing 15. júní sl. Átján manna kínversk sendinefnd fékk fyrstu áritanirnar, en hún er á leið til Íslands vegna viðræðna um fríverslun landanna. Jóhann Jóhannsson veitir deildinni forstöðu í umboði dóms- og kirkjumálaráðuneytisins. 18.6.2007 12:19
Mildi að ekki urðu alvarleg slys á fólki Mildi þykir að ekki urðu alvarleg slys á fólki þegar fullhlaðinn steypubíll valt nærri gatnamótum Sæbrautar og Miklubrautar í morgun. Loka þurfti hluta Sæbrautar vegna slyssins. 18.6.2007 12:13
Geir sýnilegastur Á tímabilinu 1. janúar - 24. maí síðastliðinn mældist Geir H. Haarde sýnilegastur í fréttum ljósvakamiðla en Geir hafði áður ekki mælst neitt sérstaklega virkur sem viðmælandi í fréttum. 18.6.2007 11:43
Lamaðist eftir fyllerí Héraðsdómur sýknaði fyrir helgi eigendur húsnæðisins að Laugarvegi 22 og Reykjavíkurborg vegna slyss sem átti sér stað þegar ungur maður féll niður stiga á skemmtistaðnum 22 með þeim afleiðingum að hann lamaðist. 18.6.2007 11:22
Ölvaður ökumaður með barn í bílnum Ökumaður var stöðvaður fyrir meinta ölvun við akstur á Ísafirði. Sá var stöðvaður um fjögurleytið á föstudeginum og var þá að koma frá því að sækja barn sitt á leikskólann. Þá sluppu kona og tvö börn vel þegar bifreið valt út af veginum til Bíldudals 18.6.2007 11:00
Brennandi bíll í Heiðmörk Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um klukkan sjö í kvöld eftir að eldur kviknaði í bifreið í Heiðmörk. Engan sakaði. 17.6.2007 20:18
Hátíðarhöld í blíðviðri Víðast hvar um landið viðraði vel til hátíðarhalda en í Reykjavík hafa hátíðarhöldin staðið yfir frá því í morgun og halda áfram fram undir miðnætti. Sautjándi júní heilsaði víðast hvar með blíðskaparveðri. Um það bil 20 þúsund manns lögðu leið sína í miðborg Reykjavíkur í tilefni dagsins. 17.6.2007 19:09
Klessukeyrði ofursportbíl Ökumaður sem ók útaf vegi og endaði á umferðarskilti þurfti á áfallahjálp að halda þrátt fyrir að bílinn sé lítið skemmdur og engin meiðsl orðið á fólki. Ástæðan; bíllinn sem hann ók er 550 hestafla ofursportbíll sem kostaði einar 30 milljónir króna. Aðeins 4000 slíkir kaggar eru til í heiminum og þessi var sérsmíðaður fyrir Brimborg. 17.6.2007 19:03
Mótmælendur handteknir við Þjóðleikhúsið Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók um klukkan hálf fimm í dag fimm einstaklinga fyrir brot á fánalögum. Hópurinn var búinn að setja upp stóra eftirmynd af íslenska þjóðfánanum á Þjóðleikhúsið þar sem stjóriðjustefnu stjórnvalda var mótmælt. Á fánanum var skjöldur með merkjum fyrirtækjanna Alcoa, Alcan og Norðuráls. 17.6.2007 18:54
Hærri sektir draga ekki enn úr hraða Þrátt fyrir hert viðurlög við hraðakstri hafði lögreglan í nógu að snúast við að stöðva ökumenn á ofsahraða um helgina. Þótt ökumenn geti átt á hættu að ökutæki þeirra verði gerð upptæk er hraðinn enn mikill. 17.6.2007 18:30
Eldveggur kom í veg fyrir enn meira tjón Milljónatjón varð í eldsvoða í iðnaðarhúsi á Selfossi í gærkvöldi en gríðarlegar skemmdir urðu á bifreiðaverkstæði sem starfrækt var húsinu. Smurstofa í sama húsi slapp hins vegar að mestu leyti. Eldveggur í húsinu kom í veg fyrir enn stærra tjón. 17.6.2007 18:30
Íslendingar vel í stakk búnir að mæta áföllum Í hátíðarræðu sinni í dag ræddi Geir H Haarde forsætisráðherra dökka skýrslu Hafrannsóknarstofnunar sem leggur til verulegan samdrátt í þorskveiðum á næsta ári og það var að heyra á honum að ríkisstjórnin ætli að hlusta á sérfræðingana, vegna þess að ráðherrann sagði Íslendinga þola áföll nú betur en oft áður. 17.6.2007 18:30
Sólveig Arnarsdóttir var fjallkonan Hátíðarhöldin hófust með hefðbundnum hætti í höfuðborginni í morgun, þegar forseti borgarstjórnar lagði blómsveig að leiði sjálfstæðishetjunnar Jóns Sigurðssonar í gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu. 17.6.2007 18:30
Raggi Bjarna er borgarlistamaður Reykjavíkur Stórsöngvarinn Ragnar Bjarnason var í dag útnefndur Borgarlistamaður Reykjavíkur. Útnefningin fór fram í Höfða og við það tækifæri tók Ragnar gamlan slagara við góðar undirtektir Borgarstjóra og annarra gesta. 17.6.2007 18:30
Mikið um hættulega framúrakstra Mikil umferð er á þjóðveginum milli Akureyrar og Reykjavíkur og hefur lögreglan í Borgarnesi tekið fjölmarga fyrir hraðakstur. Einn var tekinn á 146 kílómetra hraða fyrir norðan Borgarnes laust fyrir klukkan fimm í dag. Að sögn lögreglunnar er mikið um framúrakstra á hættulegum stöðum. 17.6.2007 17:59
Góð þátttaka í þjóðhátíðarfagnaði á Hvanneyri Stór hluti íbúa Hvanneyris tók þátt í þjóðhátíðardagskrá sem ungmennafélagið Íslendingur stóð fyrir þar í bæ. Hápunktur hátíðarhaldanna var þegar flugvél flaug yfir svæðið og kastaði niður sælgæti til barnanna. 17.6.2007 16:56
Mikill mannfjöldi í miðbæ Reykjavíkur Mörg þúsund manns eru nú saman komin í miðbæ Reykjavíkur til að fagna þjóðhátíðardegi landsmanna. Allt hefur gengið slysalaust fyrir sig að sögn lögreglu. 17.6.2007 16:41
Tíu hlutu heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu Forseti Íslands sæmdi tíu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkorðu í dag. Athöfnin fór fram á Bessastöðum. 17.6.2007 15:07
Ragnar Bjarnason kjörinn borgarlistarmaður Reykjavíkur Ragnar Bjarnason, tónlistarmaður, var í dag kjörinn borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2007. Það var Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri, sem afhenti Ragnari heiðursviðurkenninguna í Höfða. 17.6.2007 14:56
Ástandið að róast á Akureyri Allt það lögreglulið sem sérstaklega var kallað út á Akureyri í gærkvöldi vegna aukins viðbúnaðar lögregluyfirvalda var sent heim í morgun. Rólegt hefur verið í bænum í dag en þar hófst fyrir skömmu þjóðhátíðardagskrá á Ráðhústorginu. 17.6.2007 14:39
Umferð í átt að miðbæ Reykjavíkur tekin að þyngjast Höfuðborgarbúar streyma nú í átt að miðbæ Reykjavíkur en þar er að hefjast fjölskyldu- og hátíðardagskrá. Lögreglan gerir ráð fyrir að þúsundir manna muni taka þátt í hátíðarhöldunum. 17.6.2007 14:19
Vatnsfjarðarvegur lokaður við Eyrarfjallsafleggjara Vatnsfjarðarvegur, númer 633, verður lokaður við Eyrarfjallsafleggjara frá morgundeginum til næstkomandi fimmtudags vegna framkvæmda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 17.6.2007 12:59
Mikið tjón í bruna á Selfossi Mikið eignatjón varð þegar kviknaði í verksmiðjuhúsnæði við Gagnheiði á Selfossi um hálf níuleytið í gærkvöldi. Allt tiltækt slökkvilið Selfoss var kallað út og naut það einnig aðstoðar slökkviliðsmanna frá Hveragerði. 17.6.2007 12:25
Steinunn Valdís Óskarsdóttir hættir í borgarstjórn Steinunn Valdís Óskarsdóttir fyrrverandi borgarstjóri og borgarfulltrúi Samfylkingarinnar hefur sagt af sér sem borgarfulltrúi og ætlar að alfarið að helga sig þingmennsku. 17.6.2007 12:22
Hátíðarhöld í blíðskaparveðri í Reykjavík Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði í ávarpi á Austurvelli í morgun að íslenska þjóðin væri nú betur í stakk búin en áður til að takast á við áföll í efnahagslífinu og vísaði þar til tillaga Hafrannsóknarstofnunar um verulegan samdrátt í þorskveiðum á næsta ári. 17.6.2007 12:16
Forsætisráðherra boðar niðurskurð í aflaheimildum í þjóðhátíðarræðu Geir H. Haarde, forsætisráðherra, talaði um kvótakerfið og úthlutun aflaheimilda í þjóðhátíðarræðu sinni á Austurvelli. Sagði hann nauðsynlegt að fundin yrði leið til að sætta sjónarmið fiskifræðinga og útgerðarmanna. 17.6.2007 11:14