Ingibjörg Sólrún í opinberri heimsókn í Noregi 20. júní 2007 13:23 MYND/Hari
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, og eiginmaður hennar, Hjörleifur Sveinbjörnsson, hófu í dag tveggja daga opinbera heimsókn til Noregs í boði Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs. Heimsóknin hefst með áheyrn hjá Haraldi Noregskonungi í höll konungs í Osló. Þá mun utanríkisráðherra eiga hádegisverðarfund með varnarmálaráðherra Noregs, Anne-Grete Ström-Erichsen, þar sem rædd verða öryggis- og varnarmál. Þá mun utanríkisráðherra einnig hitta fulltrúa í utanríkis- og EES-nefndum norska Stórþingsins. Ingibjörg mun svo eiga fund með norska starfsbróður sínum, Jonas Gahr Støre, síðdegis í dag þar sem ræða á samskipti landanna á breiðum grundvelli, „meðal annars um málefni norðurslóða, samstarf ríkjanna á sviði varnar- og öryggismála, þróun mála innan Evrópusambandsins og stöðu EES-samningsins. Ennfremur munu ráðherrarnir ræða ástandið fyrir botni Miðjarðarhafsins og önnur þau málefni sem efst eru á baugi á alþjóðavettvangi um þessar mundir verða reifuð," að því er fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.Á morgun mun utanríkisráðherra síðan eiga fund með Torbjørn Jagland, forseta Stórþingsins. Að þeim fundi loknum mun utanríkisráðherra halda til Trömsö og heimsækja þar Heimskautastofnunina og Sjávarútvegsskólann í Tromsö. Heimsókninni lýkur á föstudaginn með fundi utanríkisráðherra með Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs.
Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Lífið Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Innlent Baunað á Jónas Má þvert á flokka Innlent Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Innlent Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Innlent Fleiri fréttir Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Sjá meira