Innlent

Gerir ráð fyrir mjúkri lendingu

MYND/Stöð 2

Búist er við því að landsframleiðslan dragist saman um 0,1 prósent í ár þrátt fyrir stóraukinn útflutning áls í endurskoðaðri þjóðhagsspá sem birt var í morgun. Starfandi forsætisráðherra gerir ráð fyrir mjúkri lendingu í efnahagsmálum.

Hugsanlegar stóriðjuframkvæmdir, gengi krónunnar og kvótaúthlutun fyrir næsta ár eru meðal þess sem veldur óvissu í þjóðhagsspánni.

Í henni er bent á að hagkerfið sé að ná jafnvægi samfara samdrætti í fjárfestingum við lok stóriðjuframkvæmda. Einkaneysla fari einnig minnkandi. Reiknað er með að slaki myndist í íslenska hagkerfinu í ár en að hann verði horfinn eftir tvö ár.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, starfandi forsætisráðherra, segir að mjúk lending sé augljóslega að nást í efnahagslífinu. Það séu reyndar fram undan stórar ákvarðanir í efnahagslífinu vegna þorskkvótans en til lengri tíma litið verði lendingin mjúk.

Í spánni er tiltekið að viðskiptahallinn dragist hratt saman í ár og verði 16 prósent af landsframleiðslu, en hann var rúm 27 prósent í fyrra. Enn fremur er búist við að hallinn verði kominn í átta prósent af landsframleiðslu árið 2009.

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segir hagkerfið hafa það mikla sveigju að jafnvel þó að menn myndu á næstu árum ráðast í stórframkvæmdir myndi hagkerfið þola það.

Fjármálaráðuneytið gerir ráð fyrir um tveggja prósenta hagvexti á næstu tveimur árum. Fjármálaráðuneytið segir að verðbólga hafi minnkað hratt á árinu meðal annars vegna lækkunar á matarverði 1. mars. Á móti hafi fasteignaverð hækkað nokkuð umfram aðra liði og aukið verðbólgu.

Fjármálaráðuneytið spáir að 2,5 prósenta verðbólgumarkmið Seðlabankans náist síðar á þessu ári og að verðbólgan verði nálægt markmiðinu á næstu tveimur árum. Samhliða því er gert ráð fyrir auknu atvinnuleysi, 3,9 prósenta atvinnuleysi á næsta ári og 4,5 árið 2009.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×