Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Báðu Tryggva afsökunar á árás Andri Jóhannesson og tveir félagar hans sem réðust á Tryggva Gunnlaugsson, fyrrum útigangsmann og öryrkja, og tóku upp á myndband, hittu Tryggva í gær og báðu hann afsökunar. Tryggvi segist feginn. 28.11.2005 12:17
Stefna öryrkja þingfest á morgun Mál Öryrkjabandalags Íslands á hendur ríkisstjórn Íslands vegna meintra brota á samkomulagi um hækkun grunnlífeyris frá árinu 2003, verður þingfest í héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Forysta Öryrkjabandalagsins segir að enn vanti fimm hundruð milljónir í sjóði öryrkja svo samkomulag sem þáverandi formaður Öryrkjabandalagsins og heilbrigðisráðherra undirrituðu fyrir síðustu kosningar 28.11.2005 12:14
Öðrum drengjanna sem brenndist illa er enn haldið sofandi Öðrum drengjanna sem brenndist illa fyrir rúmri viku síðan er enn haldið sofandi á gjörgæslu Landspítalans-háskólasjúkrahúss. Líðan hans er óbreytt. Hinn drengurinn, sem brenndist ekki eins mikið, er á Barnadeild Hringsins en þangað var hann fluttur frá gjörgæslu um miðja síðustu viku. 28.11.2005 11:44
Lítið í forvarnir Íslendingar eyða hlutfallslega mun minna í forvarnir í heilbrigðismálum en flestar þjóðir innan OECD. Aðeins rúmlega eitt og hálft prósent allra útgjalda Íslendinga í heilbrigðismálum fer í forvarnir, en meðaltalið innan OECD er um þrjú prósent. 28.11.2005 11:24
Vill rannsóknarnefnd Hægt verður að skipa sérstakar rannsóknarnefndir á vegum Alþingis sem falið verður að rannsaka eða kanna betur einstaka ákvarðanir eða athafnir stjórnvalda eða einstaka mál á þeirra vegum betur, nái tillaga Ágústs Ólafs Ágústssonar og fleiri samflokksmanna hans fram að ganga. Ágúst segir mýmörg ný dæmi sýna fram á nauðsyn slíkrar nefndar. 28.11.2005 11:15
Heildartekjur kúabúa og sauðfjárbúa aukast milli ára Heildartekjur á sérhæfðum kúabúum og sauðfjárbúum jókst nokkuð á síðasta ári frá árinu 2003. Sama má segja um innlögn afurða, þrátt fyrir að bústofn haldist nánast óbreyttur. 28.11.2005 11:11
Krefjast notendaábyrgðar í lögum Forsvarsmenn Samiðnar hafa beint þeim tilmælum til félagsmálaráðherra að í frumvarpi að fyrirhuguðum lögum um starfsmannaleigur verði að vera ákvæði um ábyrgð fyrirtækja sem norfæri sér þjónustu starfsmannaleigna. Félagsmálaráðherra hafði áður fengið samskonar tillögu frá ASÍ en allt kom fyrir ekki. 28.11.2005 10:11
22% skiluðu auðum eða alröngum úrlausnum Tuttugu og tvö prósent þeirra sem tóku samræmt stúdentspróf í stærðfræði síðastliðið vor skiluðu auðum eða alröngum úrlausnum. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Af þeim 653 sem þreyttu prófið skiluðu 83 nemendur auðum prófheftum og 148 fengu lægstu mögulegu einkunn. 28.11.2005 07:46
Mannskæð sprenging í kolanámu í Kína Meira en fimmtíu manns létust og rúmlega hundrað eru innilokaðir eftir öfluga sprengingu í kolanámu í Kína í gær. Rúmlega tvö hundruð starfsmenn voru inni í námunni þegar sprengingin varð, en aðeins fjörutíu komust strax út. 28.11.2005 07:45
Þjóðkirkjan nýtur sérstöðu "Framsetning Hjartar Magna veldur ákveðnum misskilningi," segir Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, upplýsingafulltrúi hjá Þjóðkirkjunni. Hjörtur Magni Jóhannsson fríkirkjuprestur sagði það hróplega mismunun að þjóðkirkjan fengi hátt á fjórða milljarð frá ríkinu meðan trúfélög fengju aðeins sóknargjöld. 28.11.2005 07:45
Fjórir handteknir fyrir vörslu fíkniefna í nótt Lögreglan í Reykjavík handtók fjóra menn í nótt, eftir að hafa stöðvað bíl þeirra á Sæbraut, en rétt áður en til þess kom, flugu fíkniefnaskammtar út úr bílnum á ferð. 28.11.2005 07:29
KB banki ætlar að stofna banka í Noregi KB banki ætlar að stofna banka í Noregi undir eigin nafni í náinni framtíð, að því er Hreiðar Már Sigurðsson segir í viðtali við Aftenposten. Hann segir það vænlegri kost en að kaupa einhvern norskan banka til að auka umsvið KB banka í Noregi, því vænleg kauptækifæri liggi ekki fyrir. 28.11.2005 07:28
Vegagerðin bótaskyld vegna Héðinsfjarðaganga Vegagerðin stendur frammi fyrir því að þurfa að greiða Íslenskum aðalverktökum og erlendnu verktakafyrirtæki, sem áttu saman lægsta tilboð í Héðinsfjarðargöng, nokkur hundruð milljónir króna í skaðabætur vegna þess að ákveðið var að hætta við verkið. 28.11.2005 07:27
Hugsanlega á leið í framboð Ásthildur Helgadóttir, fyrirliði kvennalandsliðsins í knattspyrnu, mun hugsanlega taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í Kópavogi í vor. 28.11.2005 07:00
Búið að finna nafn mannsins Lögreglunni í Reykjavík tókst í gærkvöldi að komast að nafni mannsins, sem stór slasaðist þegar ekið var á hann á Miklubraut í fyrrinótt. Hann er 51 árs og einhleypur. Honum hefur verið haldið sofandi á gjörgæsludeild frá því að slysið varð, en verður væntanlega vakinn í dag. Læknum tókst fljótt að stöðva alvarlegar innvortis blæðingar en ljóst er að hann verður að dvelja á sjúkrahúsi í nokkrar vikur, því hann er meðal annars mjaðmargrindarbrotinn. 28.11.2005 06:48
Thelma er maður ársins Thelma Ásdísardóttir er maður ársins að mati Karls Sigurbjörnssonar, biskups Íslands. Karl gerði hugrekki Thelmu að umtalsefni í predikun í Hallgrímskirkju í gær, á fyrsta degi aðventu. Thelma Ásdísardóttir ætti að vera maður ársins vegna hugrekkis síns að segja sögu sína, sögu af ólýsanlegum hryllingi bernsku sinnar, misnotkun og ofbeldi, sagði Karl. 28.11.2005 06:30
Ókunnur maður á gjörgæslu Ekið var á gangandi vegfaranda á Miklubraut um hálf þrjú leytið í fyrrinótt. Slysið varð rétt austan við gatnamótin á Rauðarárstíg. Bíll á vesturleið keyrði á vegfaranda sem slasaðist alvarlega og var fluttur á sjúkrahús. Maðurinn er meðvitundarlaus og liggur nú á gjörgæslu. Sá slasaði hafi engin skilríki á sér og því er ekki vitað hvert nafn mannsins er eða hvar hann er búsettur. 28.11.2005 06:45
Nafn manns sem ekið var á í nótt á huldu Enn er nafn gangandi vegfaranda sem ekið var á í nótt á huldu. Maðurinn, sem er á miðjum aldri, liggur mikið slasaður og meðvitundarlaus á gjörgæsludeild Landspítala Háskólasjúkrahúss. Atvikið átti sér stað á Miklubraut um hálf þrjú leytið í nótt. Maðurinn var skilríkjalaus og biður lögreglan þá sem telja sig geta veitt einhverjar upplýsingar um manninn að hafa samband. 27.11.2005 16:23
BSRB vill að ríkisstjórn Íslands stöðvi GATS samninginn BSRB mun beita sér fyrir því að ríkisstjórn Íslands stöðvi GATS samninginn, segir Ögmundur Jónasson, formaður BSRB. Á fundi Alþjóðlegra samtaka launafólks í almannaþjónustu, PSI, í síðustu viku var rætt um vaxandi áherslu Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar á einkavæðingu almannaþjónustu. 27.11.2005 14:30
Útboð á nýju varðskipi er að hefjast Útboð á nýju varðskipi fyrir Landhelgisgæsluna er að hefjast. Ákveðið hefur verið að útboðið verði lokað. Frestur til að taka þátt í lokuðu útboði er til 12. janúar, en útboðsgögn verða síðan afhent rúmum mánuði síðar. 27.11.2005 14:15
Sænskur hermaður þungt haldinn eftir árás í Afganistan Sænskur hermaður er enn þungt haldinn eftir árás á friðargæsluliða í Afganistan. Annar hermaður lést í árásinni en tveir til viðbótar, auk tveggja óbreyttra borgara, hlutu minniháttar meiðsl. Aukinn þungi hefur verið að færast í mótspyrnu gegn erlendum herjum í landinu en á sama tíma búa evrópskar sveitir sig undir að taka við hlutverki bandarísku herjanna í landinu. 27.11.2005 14:15
Biskup leggur til að Thelma Ásdísardóttir verði valin maður ársins Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, þakkaði popptónlistarfólki og lagði til að Thelma Ásdísardóttir yrði valin maður ársins í predikun í dag. Messan í dag markar upphaf jólaaðventunnar og jólasöfnunar Hjálparstarfs kirkjunnar. 27.11.2005 14:01
Sex ungmenni slösuð eftir árekstur í nótt Sex ungmenni á aldrinum fimmtán til átján ára slösuðust þegar fólksbíll keyrði útaf vegi í hálku fyrir ofan Laugavatn í nótt. Þrír voru fluttir beint á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi en þrír til aðhlynnslu á heilsugæslustöðinni á Selfossi. Ekki er grunur um ölvun og eru farþegarnir ekki taldir í lífshættu. 27.11.2005 13:00
Sjávarsíki að danskri fyrirmynd Miðbæ Akureyrar verður umbylt á næstu árum í því augnamiði að glæða hann lífi. Verkefnið í heild mun taka mörg ár en fyrstu sýnilegu framkvæmdirnar verða við sjávarsíki sem ekki á sér hliðstæðu á Íslandi. 27.11.2005 10:00
Lognið í auga Stormsins Sigurður Þórður Ragnarsson veðurfræðingur eða Siggi Stormur eins og hann er stundum kallaður er ekki maður sem gustar af; hann stormar ekki gegnum lífið með bægslagangi. Hann er þvert á móti rólegur og yfirvegaður. Samt er engin lognmolla kringum hann því maðurinn er glettinn og glaðsinna og það er stutt í brosið. 27.11.2005 09:30
Ungir karlar löghlýðnari Ungum ökumönnum á aldrinum 17-18 ára, sem eiga aðild að slysum, hefur fækkað mjög mikið á síðustu sex árum, um tæp 27 prósent. Ungar konur eiga hins vegar jafn oft aðild að slysum og áður. 27.11.2005 09:15
Í eina sæng eftir árs aðlögun "Markmiðið er að félögin sameinist eftir eins árs trúlofunartímabil. Þetta er þó þannig að það er hægt að bakka út ef mönnum líkar ekki sambúðin, ef svo má að orði komast," segir Gunnar Páll Pálsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur, um fyrirhugaða sameiningu VR og Verslunarmannafélags Hafnarfjarðar. 27.11.2005 09:15
Betri vinnukraftar Um 140 starfsmenn í landvinnslu Brims á Akureyri hafa undanfarna daga tekið þátt í sérstöku heilsuátaki með það að markmiði að efla heilsuvitund starfsfólksins og stuðla að bættri líðan. 27.11.2005 09:00
Þjóðkirkjan nýtur sérstöðu "Framsetning Hjartar Magna veldur ákveðnum misskilningi," segir Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir upplýsingafulltrúi hjá Þjóðkirkjunni. Hjörtur Magni Jóhannsson fríkirkjuprestur sagði það hróplega mismunun að þjókirkjan fengi hátt á fjórða milljarð frá ríkinu meðan trúfélög fengju aðeins sóknargjöld. 27.11.2005 08:45
Nefndarmaður sat báðum megin borðs Nefndarmaður í skipulagsnefnd Garðabæjar gæti hafa verið vanhæfur til að taka þátt í breytingu á aðalskipulagi í Urriðaholti, sem er í eigu sjóðs Oddfellow-reglunnar. Um það er þó ekki hægt að fullyrða, þó hann sitji í stjórn sjóðsins. 27.11.2005 08:30
Yfir 200 eldri borgarar funda Fimm Alþingismenn sátu undir kraftmiklum ádeilum eldri borgara á afar fjölmennum fundi um kjara- og hagsmunamál eftirlaunaþega í Reykjavík gær. 27.11.2005 08:00
Vikið frá hundabanni Hundar viðruðu mannfólkið sitt í gær þegar Hundaræktarfélag Íslands stóð fyrir árlegri gönguferð niður Laugaveginn. Hundar eru yfirleitt bannaðir á Laugaveginum en einu sinni á ári fá þeir undanþágu til að skoða jólaljósin. 27.11.2005 07:00
Einfalt að minnka svifryk Með því að þrífa götur borgarinnar oftar væri hægt að koma í veg fyrir að dögum saman sé mengun í Reykjavík langt yfir mörkum, eins og nú er. 26.11.2005 21:43
Eldri borgarar krefjast betri kjara Eldri borgarar vilja betri kjör, stytta biðlista á hjúkrunarheimili og geta búið lengur heima. Þetta kom fram á fundi sem eldri borgarar héldu í dag þar sem meðal annars fulltrúar allra stjórnmálaflokkanna voru krafðir um framtíðarsýn síns flokks í málefnum eldri borgara. 26.11.2005 21:00
Blendin afstaða til hjónabanda samkynhneigðra innan kirkjunnar Kirkjunnar menn skiptast í tvö horn í afstöðunni til hjónavígslu samkynhneigðra. Þetta kemur fram í könnun sem guðfræðinemi gerði meðal vígðra presta og djákna. 26.11.2005 20:30
Níðingsverk Þrír piltar réðust á útigangsmann í Reykjavík, helltu yfir hann vatni og hveiti, og höfðu gaman af. Myndband af árásinni var svo sett á Netið öðrum til skemmtunar - að sögn eins forsprakkanna. 26.11.2005 20:15
Hernaðarlegt gildi varnarstöðvarinnar í Keflavík er ekkert! Hernaðargildi varnarstöðvarinnar í Keflavík er ekkert. Henni ber að breyta í "volga stöð", herstöð þar sem nánast ekkert herlið er en sem hægt sé að nota verði þörf á. Þetta er ein af meginniðurstöðum bandarískrar nefndar sem fjallaði um breytingar á herstöðvum Bandaríkjanna erlendis. 26.11.2005 19:30
Landamærastöðin í Rafah opnuð í morgun Mikil gleði ríkti þegar Palestínumenn fóru yfir landamærin frá Gaza til Egyptalands, í fyrsta sinn eftir að palestínska heimastjórnin tók við stjórn landamærastöðvarinnar í Rafah. 26.11.2005 18:15
Alls kyns raftæki jólagjöfin í ár Jólaverslunin er nú hafin fyrir alvöru í Bandaríkjunum með hefðbundinni útsölu að lokinni þakkargjörðarhátíð. Raftæki eru í tísku í ár. 26.11.2005 16:30
Forval VG í Kópavogi Ólafur Þór Gunnarsson og Þorleifur Friðriksson börðust um fyrsta sætið í forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Kópavogi í dag, en kjörfundi lauk klukkan fjögur. Kosið var um fjögur efstu sætin en kosningarétt í forvalinu hafa fullgildir flokksmenn í VGK. 26.11.2005 16:15
Bílastæðahúsið á Stjörnubíósreitnum opnað í dag Bílastæðahúsið á Stjörnubíósreitnum á Laugavegi var opnað nú í hádeginu.Það var Alfreð Þorsteinsson forseti borgarstjórnar sem það gerði. Húsið rúmar tæplega tvöhundruð bíla, en kostnaður við húsið er áætlaður tæplega sexhundruð milljónir króna. Bílastæðasjóður efnir nú til samkeppni um nafn á nýja bílahúsið að Laugavegi 86-94. Tillögum um nafn má skila til og með 23. desember 2005. Í verðlaun eru Miðborgargjafakort að verðmæti 50.000 krónur. 26.11.2005 16:15
Sex mánaða fangelsi fyrir illa meðferð á líki Bandaríkjamaður sem er í haldi dönsku lögreglunnar getur að hámarki verið dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að sundurbúta lík af dönskum leigubílstjóra. Líkið fannst í miðborg Kaupmannahafnar um síðustu páska. Bandaríkjamaðurinn gaf sig sjálfur fram og hefur viðurkennt að hafa tekið þátt í því að búta líkið í sundur en neitar að hafa framið morðið. Lögreglan hefur árangurslaust leitað súdansks karlmanns, sem maðurinn segir hafa ógnað sér og skipað sér að aðstoða við að búta líkið í sundur. Lögregla getur ekki sannað að maðurinn hafi framið morðið og því verður hann ákærður fyrir ósæmilega meðferð á líki. 26.11.2005 15:54
Palestínumenn flykkjast til Egyptalands Hundruð Palestínumanna flykktust að landamærastöðinni við Egyptaland á fyrsta degi opnunar hennar undir stjórn Palestínumanna. Þeir Palestínumenn sem fóru yfir til Egyptalands í morgun létu vel af þessu nýja fyrirkomulagi. 26.11.2005 15:38
Flugmálafélag Íslands vill flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni Félagsmenn í Flugmálafélagi Íslands segja óviðunandi að leggja niður innanlandsflugvöll á höfuðborgarsvæðinu og enn fráleitara er að flytja starfsemi Reykjavíkurflugvallar til Keflavíkur. Þetta kemur fram í samþykkt félagsins frá síðasta ársfundi. Þeir benda einnig á að þrátt fyrir að flugstarfsemi Reykjavíkurflugvallar taki nokkurt landrými þá sé þjónustan og starfsemin sem flugvöllurinn veitir nauðsynleg höfuðborgarsvæðinu og ekki síður landsbyggðinni. 26.11.2005 14:00
Stórflótti úr sjómannastéttinni hafinn Umræður á nýafstöðnu þingi Farmanna og fiskimannasambandsins voru nær eingöngu lagðar undir það alvarlega ástand sem ríkir í sjávarútvegi. Stærsta dýfan í sjávarútvegi til þess segir endurkjörinn forseti sambands Farmanna og fiskimanna. 26.11.2005 13:34