Hernaðarlegt gildi varnarstöðvarinnar í Keflavík er ekkert! 26. nóvember 2005 19:30
Hernaðargildi varnarstöðvarinnar í Keflavík er ekkert. Henni ber að breyta í "volga stöð", herstöð þar sem nánast ekkert herlið er en sem hægt sé að nota verði þörf á. Þetta er ein af meginniðurstöðum bandarískrar nefndar sem fjallaði um breytingar á herstöðvum Bandaríkjanna erlendis. Skýrslan var tekin saman fyrir Bandaríkjaforseta og lögð fyrir hann og þingið. Átta megintillögur að breytingum á fyrirkomulagi varnarstöðva Bandaríkjanna erlendis eru kynntar í skýrslunni og aðeins tvær stöðvar nefndar á nafn: umdeild varnarstöð í Okinawa í Bandaríkjunum og Keflavíkurstöðin, þar sem lagt er til að varnarsamningurinn sé tekinn til endurskoðunar og uppfærður til að taka hliðsjón af ástandinu eftir lok kalda stríðsins. Skoða þurfi hvort og þá hversu mikil þörfin fyrir herlið á vegum sjó- og flughers Bandaríkjanna í Keflavík sé. Gildi herstöðvarinnar í hernaðaraðgerðum sé ekkert og hættan af Rússum engin, og því engin ástæða til að viðhalda stöðinni í núverandi mynd. Í skýrslunni kemur einnig fram að samþykkt hafi verið að flugherinn taki við stöðinni af sjóhernum, eins og fram hefur komið í fréttum okkar, og jafnframt að stöðinni verði breytt í svokallaða FOS-stöð. FOS stendur fyrir Forward Operating Sites, en slíkar stöðvar eru "volgar stöðvar" eins og það er kallað þar sem er lítill sem enginn mannskapur á vegum hersins og lítill búnaður. Þar sé mannskapur sendur í stuttar tímabundnar ferðir en enginn hafi þar fast aðsetur. Stöðin verði miðstöð tvíhliða æfinga sem hægt verði að blása meira lífi í verði þess einhvern tíma þörf.
Fréttir Innlent Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Velja Viljandi villt Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Fleiri fréttir Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Sjá meira