Nefndarmaður sat báðum megin borðs 27. nóvember 2005 08:30 Tryggvi Felixson framkvæmdastjóri Landverndar, sendi kæru til félagsmálaráðuneytisins vegna svæðis á náttúruminjaskrá. Úrskurður liggur nú fyrir.
Félagsmálaráðuneytið hefur úrskurðað að ekki sé hægt að staðhæfa að Jón Ottó Guðmundsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í skipulagsnefnd Garðabæjar, hafi verið vanhæfur til að taka þátt í breytingu á aðalskipulagi í Urriðaholti, landi í eigu styrktar- og líknarsjóðs Oddfellow-reglunnar, í vor þó að hann sé virkur félagi í Oddfellow og hafi gegnt þar efstu embættum, meðal annars í umræddum sjóði. Ráðuneytið segir jafnframt að hagsmunir reglunnar tengist afgreiðslu skipulagstillögunnar. Það sé hlutverk skipulagsnefndar að meta hvort seta mannsins í Oddfellow-reglunni og þátttaka hans í ákvörðunum skipulagsnefndar um Urriðaholt rekist á. Skipulagsnefndin hefði á fundi sínum átt að úrskurða um hæfi mannsins til að taka þátt í ákvörðuninni áður en hún var tekin. Skipulagi í Urriðaholti var breytt með skömmum fyrirvara í vor þannig að bæjarvernd var felld niður og 27 hektara svæði, sem fram að þessu hafði notið bæjarverndar og verið skráð á náttúruminjaskrá, var breytt í þjónustusvæði. Tryggvi Felixson, framkvæmdastjóri Landverndar, telur að afstaða Jóns Ottós hafi getað ráðið úrslitum í málinu en afgreiðsla málsins hafi mikil fjárhagsleg áhrif á styrktar- og líknarsjóðs Oddfellow-reglunnar. Þetta kemur fram í kæru Tryggva til félagsmálaráðuneytisins. Þar kemur einnig fram að skipulagið hafi verið afgreitt í bæjarstjórn Garðabæjar tveimur dögum eftir fund skipulagsnefndar. Tryggvi telur því að bæjarstjórn hafi ætlað sér skamman tíma til að setja sig inn í þær efnislegu athugasemdir sem hafi komið fram og því hafi öll efnisleg umfjöllun um málið verið á forræði skipulagsnefndar ef marka megi fundargerð. Í Urriðaholti er fyrirhugað að reisa byggingar fyrir sex til sjö stórverslanir, þar á meðal Ikea-verslun og stærstu byggingavöruverslun landsins, tólf þúsund fermetrar að stærð. Talið er að samningar við Byko séu á lokastigi en áður hafði verið gert ráð fyrir að þýska byggingavöruverslunin Bauhaus yrði þarna með starfsemi sína.
Innlent Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Fleiri fréttir ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Sjá meira