Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stakk sér í sjóinn á stuttbuxunum Hafsögubátur frá Reykjavíkurhöfn bjargaði karlmanni úr sjónum rétt utan við Snorrabraut í gærkvöldi, en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu sáu sjónarvottar manninn koma hlaupandi yfir Sæbraut á stuttbuxum einum fata og hlaupa í átt til hafs. 24.1.2013 11:50
Rannsókn líkamsárásarmáls komin 227 daga fram yfir viðmiðunartíma Mikill málafjöldi og mannekla hjá embætti ríkissaksóknara hefur orðið til þess að rannsókn á alvarlegri líkamsárás á Hólum í Hjaltadal fyrir tæpu ári er ekki enn lokið. Þó liggur fyrir játning í málinu. 24.1.2013 11:44
Þriggja ára barn höfuðkúpubrotnaði þegar hilla féll á höfuð þess Þriggja ára barn höfuðkúpubrotnaði þegar hillusamstæða féll á höfuð þess á þriðjudaginn. Atvik voru þannig að í hillusamstæðunni eru skúffur þar sem börnin geyma þá hluti sem þau hafa með sér í leikskólann. Börnin voru að reyna að draga eina skúffuna fram þegar atvikið varð en hún stóð á sér. Þá var togað með nokkru afli í skúffuna sem var til þess að hillusamstæðan hrundi á höfuðið á barninu. Vegna þess hve viðkvæmt málið er hefur Vísir ákveðið að greina ekki frá því hvaða leikskóli á þarna í hlut, að öðru leyti en því að hann er staðsettur í úthverfi Reykjavíkurborgar. 24.1.2013 11:34
78 ára skólabílstjóri fór í ökuhæfnispróf að eigin frumkvæði Sæmundur Sigmundsson, skólabílstjóri á Vesturlandi, fór að eigin frumkvæði í ökuhæfnispróf í kjölfar gagnrýni við störf sín. Sæmundur stóðst prófið athugasemdalaust. 24.1.2013 11:08
Hækkanir á opinberri þjónustu valda verðbólgu Opinber þjónusta hefur hækkað um ríflega 35% frá árinu 2008 auk þess sem auknar álögur á eldsneyti, áfengi og tóbak hafa valdið um þriðjungs hækkun á þessum vörum á tímabilinu. Áætla má að hækkanir á opinberum álögum hafi á síðustu árum hækkað verðlag hér á landi um 5-6%. Þetta kemur fram í greinargerð frá ASÍ. 24.1.2013 11:04
Hlutfallslega fleiri konur látast af völdum reykinga Miklu meiri líkur eru á að konur sem reykja nú til dags látist af völdum reykinganna en var fyrir fjörutíu árum síðan. Þetta sýna niðurstöður rannsóknar sem birtust í blaðinu New England Journal of Medicine. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar er núna jafn líklegt að konur látist af völdum reykinga og karlar. Í rannsókninni voru skoðuð gögn sem fengin voru frá um tveimur milljónum kvenna í Bandaríkjunum. Læknaskýrslur frá árunum 2000-2010 sýna að konur sem reykja eru 25 falt líklegri til að deyja úr lungnakrabba en konur sem ekki reykja. 24.1.2013 09:53
Netníðingarnir sem þykjast betri en konur meðal annars frá Húsavík Búið er að finna þá einstaklinga sem stóðu að baki Facebook-síðunni "Karlar eru betri en konur". Samkvæmt norðlenska fréttablaðinu, Akureyri vikublað, þá fann Þórlaug Ágústsdóttr með aðstoð félaga sinna, þá sem stóðu að baki síðunni, sem miðaði að því að gera lítið úr konum. 24.1.2013 09:51
Fjölgar í félagi íslenskra misfætlinga Færst hefur í aukana að íslenskir misfætlingar taki sig saman, arki út í skóbúð og velji sér saman skó í tveimur stærðum. 24.1.2013 09:35
Hundrað verksmiðjur Volkswagen Volkswagen opnaði sína hundruðustu verksmiðju nýlega í Mexíkó. Í henni verða framleiddar 330.000 vélar í Volkswagen bíla. Þetta er langt frá því eins verksmiðja Volkswagen í Mexíkó því það í landi er nú smíðaðir 600.000 Volkswagen bílar á ári. Volkswagen er þó ekki hætt að fjárfesta í N-Ameríku því áætlanir fyrirtækisins hljóða uppá frekari fjárfestingar fyrir 645 milljarða króna á næstu 5 árum þar. Starfsfólk Volkswagen í heiminum öllum er nú rétt um 500.000 talsins, ríflega helmingi fleiri en allir vinnufærir Íslendingar. 24.1.2013 09:15
Aðalmeðferð hefst í nauðgunarmálinu Aðalmeðferð í máli fimm manna sem sakaðir eru um að hafa nauðgað ungri konu í strætisvagni í Nýju Delí á Indlandi í desember síðastliðnum hófst í dag. 24.1.2013 08:58
Alelda bíll við Frakkastíg Slökkviliðið var kallað út um klukkan hálf sjö í morgun þar sem vegfarandi hafði tilkynnt um logandi fólksbíl neðarlega við Frakkastíg. 24.1.2013 07:55
Íbúðalánasjóður stofnar leigufélag Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur gengið frá stofnun sjálfstæðs leigufélags, sem yfirtekur og rekur rúmlega 520 fasteignir sjóðsins um land allt. 24.1.2013 07:53
Assange: Kvikmyndin um WikiLeaks hluti af áróðursherferð Julian Assange, stofnandi upplýsingaveitunnar WikiLeaks, segir að væntanleg kvikmynd sem byggð er á upphafsárum WikiLeaks sé liður í stórfelldri áróðursherferð gegn uppljóstrunarsamtökum víða um heim. 24.1.2013 07:51
Jöklar í Andesfjöllum bráðna hratt Mælingar gefa til kynna að bráðnun jökla í Andesfjöllum hafi náð nýjum hæðum á síðustu árum. Niðurstöður rannsóknarinnar voru birtar í vísindatímaritinu Cryosphere, eða Freðhvolf, á dögunum en hún var framkvæmd af alþjóðlegum hópi jöklafræðinga. Nær helmingur allra jökla í Andesfjöllum var rannsakaður. Í niðurstöðunum kemur fram að jöklar í Andesfjöllunum í Suður-Ameríku hafi rýrnað verulega frá því að formlegar mælingar hófust á áttunda áratugnum. 24.1.2013 07:49
Jákvæðir gagnvart aðild Kínverja Mikilvægi norðurslóða endurspeglast í áhuga fjölmargra þjóða á áheyrnaraðild að Norðurskautsráðinu. Utanríkisráðherrar Svíþjóðar og Noregs eru jávæðir gagnvart beiðni Kínverja. 24.1.2013 07:00
Netanjahú reynir að mynda breiða stjórn Yair Lapid, óvæntur sigurvegari þingkosninganna í Ísrael, verður í lykilstöðu við stjórnarmyndun. Stjórnarflokkarnir misstu meirihlutann en Benjamín Netanjahú forsætisráðherra reynir nú að mynda breiða stjórn hægri og vinstri flokka. 24.1.2013 07:00
Boðar endurskoðun og þjóðaratkvæði David Cameron boðaði í ræðu í gær að aðild landsins að ESB yrði endurskoðuð á næsta kjörtímabili. Þjóðin ákveði í framhaldinu hvort landið verði áfram í ESB. Leiðtogar ESB-ríkja segja ekki hægt að velja og hafna úr sáttmála sambandsins. 24.1.2013 07:00
Brást sem fyrirmynd Framferði brottrekins bæjarritara á Akranesi hlaut að hafa alvarlegar afleiðingar ítrekar einróma bæjarstjórn í nýrri bókun. Jón Pálmi Pálsson vildi halda starfinu og fá yfirlýsingu um að skoðun hafi sýnt að ekki væri tilefni til frekari aðgerða. 24.1.2013 07:00
Segir nýtt framboð ekki útilokað Jón Bjarnason, sem sagði sig úr þingflokki Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs (VG) í gær, útilokar ekki að bjóða sig fram undir merkjum nýs flokks í komandi kosningum. 24.1.2013 07:00
Sjá ekki eftir mótmælunum Þær Nadezhda Tolokonnikova og Anna Alekhina, meðlimir í rússnesku pönkhljómsveitinni Pussy Riot, segjast ekki láta erfiðar aðstæður í vinnubúðunum hafa mikil áhrif á sig. 24.1.2013 07:00
Netsíur ólíklegar til árangurs gegn klámi "Tækniútfærslan bak við netsíur sem þessar er illframkvæmanleg,“ segir Þröstur Jónasson hjá Félagi um stafrænt frelsi á Íslandi, spurður út í hugmyndir Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra um aðgerðir og lagasetningu til höfuðs klámvæðingu. 24.1.2013 07:00
Buðu pólfaranum í mat í Síle Þegar Suðurskautsfarinn Vilborg Anna Gissurardóttir kom á miðvikudagskvöld til Punta Arenas, syðst í Síle, hitti hún þar fyrir áhöfnina á íslenska rannsóknarskipinu Poseidon. 24.1.2013 07:00
Réðst á hótelstarfsmann í Hafnarfirði Maður réðst á starfsmann hótels í Hafnarfirði upp úr klukkan þrjú í nótt og var lögreglu tilkynnt um málið. 24.1.2013 06:57
Töluvert dregur úr blæðingum á þjóðvegum Töluvert dró úr blæðingum á þjóðvegum vestanlands og norðan í gær, sérstaklega þar sem verst var í Húnavatnssýslunum, að sögn Vegagerðarinnar. 24.1.2013 06:54
Norður-Kóreumenn munu sprengja kjarnorkusprengju Fjölmiðlar í Norður-Kóreu greindu frá því í morgun að stjórnvöld þar í landi hyggðust sprengja kjarnorkusprengju. 24.1.2013 06:51
Stúlkubarn slapp naumlega Rússneskt myndband fer nú sem eldur um sinu á veraldarvefnum. Þar má sjá þegar eins árs gömul stúlka slapp með undraverðum hætti eftir að hún kastaðist út úr fólksbifreið á fjölförnum vegi. 24.1.2013 06:47
Tilraunir með fuglaflensu hafnar á ný Tilraunir með H5N1 fuglaflensuna eru hafnar á ný í Hollandi og í Bandaríkjunum. Þar reyna vísindamenn að stjórna stökkbreytingum veirunnar svo að hún geti smitast milli manna. 24.1.2013 06:44
Athugasemd við HB-Granda dregin til baka Fiskistofa hefur dregið til baka athugasemd, sem hún gerði nýverið við HB-Granda, vegna þess að aflahlutdeild fyrirtækisins í heildarkvótanum væri komin yfir 12 prósenta leyfilegt hámark. 24.1.2013 06:40
Konur berjast í fremstu víglínu Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna hefur aflétt nítján ára gömlu banni við því að konur fái að berjast á fremstu víglínu. 24.1.2013 06:37
Töluvert meiri afli í norska loðnuskipinu en gefið var upp Töluvert meiri loðnuafli reyndist vera um borð í norsku loðnuskipi en skipstjórinn hafði gefið upp, þegar landað var úr skipinu á Eskifirði í gærkvöldi. 24.1.2013 06:36
Ekki víst að fanginn hafi verið myrtur Ekki er víst að dauðdagi Sigurðar Hólm Sigurðssonar, fanga á Litla-Hrauni, hafi verið af mannavöldum. Þetta kemur fram í krufningarskýrslu sem dagsett er 26. nóvember 2012. 24.1.2013 06:00
Bjargað úr ísköldum sjónum Karlmanni var bjargað úr sjónum, rétt utan við Snorrabraut í Reykjavík, um klukkan tíuleytið í kvöld. 23.1.2013 23:29
Sigur Rós í beinni línu á Reddit Meðlimir íslensku hljómsveitarinnar Sigur Rósar munu svara spurningum aðdáenda á vefsíðunni reddit.com á morgun. Hljómsvein mun svara spurningum beint úr stúdíói í Los Angeles þar sem þeir vinna nú að nýju efni. Á heimasíðu Sigur Rósar segir að aðdáendum sé frjáls að spyrja að því sem þeim dettur í hug. 23.1.2013 22:33
Eldur á fjórðu hæð Eldur kom upp í íbúð á fjórðu hæð að Garðastræti 11 í miðborg Reykjavíkur á tíunda tímanum í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu voru allar stöðvar sendar á staðinn en eftir að fyrstu reykkafarar fóru inn var þeim snúið við þar sem eldurinn var minniháttar. Vel gekk að slökkva eldinn og er nú unnið að reykræstingu. Ekki er vitað hvort að einhver hafi verið í íbúðinni þegar eldurinn kom upp. 23.1.2013 21:42
Frekari breytingar stjórnarskrárfrumvarpinu nauðsynlegar Frekari breytingar á stjórnarskrárfrumvarpinu eru nauðsynlegar áður en hægt er að samþykkja frumvarpið sem stjórnskipunarlög. Þetta er mat laganefndar Lögmannafélags Íslands. Nefndin gerir margar athugasemdir við efni frumvarpsins. 23.1.2013 21:14
Karlmenn prófa að "fæða barn“ Tveir hollenskir karlmenn fetuðu nýjar slóðir í þarlendum sjónvarpsþætti á dögunum. Þá fengu þeir að kynnast sársauka sem fylgir hríðum rétt fyrir fæðingu barns. 23.1.2013 21:00
Mamma, afhverju ertu svona feit? Þetta byrjaði þegar dóttir mín spurði; ,,Mamma, afhverju ertu svona feit?". Þetta segir Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir sem hefur ásamt manninum sínum misst 60 kíló og frá því að spurningin var borin upp og stofnuðu á dögunum heimasíðu til að hjálpa fólki við að gera slíkt hið sama. 23.1.2013 20:17
Stjúpfaðir Eiríks Guðbergs: "DV drap ekki Gísla, hann drap sig sjálfur" „Ísafjörður er góður bær og það er alveg æðislegt að búa þar. Ég vildi óska þess að einhver hefði sagt eitthvað við mig, ef einhver hefði vitað af þessu - en hvers vegna enginn gerði það, það getur enginn svarað því held ég," segir Stefán Torfi Sigurðsson, stjúpfaðir Eiríks Guðbergs Stefánssonar, sem er annar af þeim tveimur sem kærðu Gísla Hjartarson fyrir kynferðisbrot í desember árið 2005. 23.1.2013 20:14
Kristjón Þorkelsson látinn Kristjón Þorkelsson, sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi, varð bráðkvaddur í Síerra Leóne sunnudaginn 20. janúar. Kristjón hafði starfað að neyðaraðgerðum fyrir Rauða krossinn vegna kólerufaraldurs í Síerra Leóne síðan í ágúst. 23.1.2013 19:31
Hver er sjónvarpsmaður ársins 2012? Lesendum Vísis gefst nú kostur á að velja þann sjónvarpsmann sem þeir telja hafa skarað fram úr á síðasta ári. Hafin er forkosning til Edduverðlauna í flokknum Sjónvarpsmaður ársins og stendur hún til 6. febrúar. 23.1.2013 18:00
Lögreglan lýstir eftir konunum sem komu Guðjóni til aðstoðar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af tveimur konum sem komu Guðjóni Guðjónssyni til aðstoðar á Nýbýlavegi í Kópavogi laugardaginn 12. janúar sl. í kjölfar þess að bíl hans, svörtum Mercedes Benz með skráningarnúmerinu B 747, var stolið. 23.1.2013 17:55
Ólafur Ragnar lét Gordon Brown heyra það Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, lét Gordon Brown, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, heyra það á ráðstefnu um efnahagsmál sem stendur nú yfir í Davos í Sviss. 23.1.2013 17:37
„Þingflokkurinn vill ekki að ég starfi fyrir sig“ Jón Bjarnason fyrrverandi ráðherra hefur sagt skilið við þingflokk Vinstri grænna. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, fyrsti varaforseti Alþingis, las upp yfirlýsingu frá Jóni í upphafi þingstarfa í dag. 23.1.2013 16:53
Blær fær stuðning úr vestri Stúlku sem berst fyrir nafni sínu barst skrifleg stuðningsyfirlýsing. 23.1.2013 16:31
„Ritstjórinn spurði hvort ég væri byrjaður að drekka“ Að kvöldi 23. janúar 1973 hafði fréttamaðurinn Árni Johnsen nýlokið vakt á Morgunblaðinu þegar síminn hringdi. 23.1.2013 16:21