Kristjón Þorkelsson látinn 23. janúar 2013 19:31 Kristjón að störfum fyrir Rauða kross Íslands
Kristjón Þorkelsson, sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi, varð bráðkvaddur í Síerra Leóne sunnudaginn 20. janúar. Kristjón hafði starfað að neyðaraðgerðum fyrir Rauða krossinn vegna kólerufaraldurs í Síerra Leóne síðan í ágúst. Kristjón var fæddur 20. desember árið 1955 og var til heimilis að Þórufelli 8, Reykjavík. Kristjón var pípulagningarmeistari og starfaði sem sérfræðingur í vatns- og hreinlætismálum fyrir Rauða krossinn á Íslandi og Alþjóða Rauða krossinn. Hann var einn reyndasti sendifulltrúi félagsins. Kristjón hóf störf með Rauða krossinum árið 1991 þegar hann var ráðinn við vatnsveitugerð í Írak. Ári seinna hélt hann aftur til Íraks sem sérfræðingur í vatns- og hreinlætismálum við byggingu sjúkrahúsa. Árið 2003 var hann svo aftur fenginn til Íraks til að vinna að enduruppbyggingu sjúkrahúsa þar vegna sérþekkingar sinnar. Frá 2004-2006 vann Kristjón að vatnsveituverkefnum í Darfur í Súdan og í Eþíópíu. Árið 2009 fór hann til Sýrlands þar sem hann starfaði með alþjóðlegum neyðarhópi sem sérfræðingur í vatns- og hreinlætismálum vegna kólerufaraldurs. Kristjón var fenginn til að stýra vatns- og hreinlætisverkefnum fyrir Alþjóða Rauða krossinn eftir jarðskjálftann mikla á Haítí árið 2010, og nýttist þekking hans sérlega vel þegar kólera kom þar upp nokkrum mánuðum síðar. Kristjón var við störf fyrir Rauða krossinn í Síerra Leóne þegar hann lést. Þar vann hann að fyrirbyggjandi aðgerðum ásamt því að greina hver voru upptök kólerufaraldurs sem blossaði upp í landinu í ágúst í fyrra. Kristjón starfaði einnig á vegum friðargæslu utanríkisráðuneytisins í Kosovo frá 2001-2002. Hann var sjálfstætt starfandi sem pípulagningameistari milli verkefna hjá Rauða krossinum, og tók að sér fjölmörg verkefni fyrir sjúkrahús og heilsugæslustöðvar hér á landi. Kristjón var giftur Ásdísi Leifsdóttur. Þau eiga eina dóttur, Halldóru St. Kristjónsdóttur, fædda 1979.
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Fleiri fréttir Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Sjá meira