Erlent

Aðalmeðferð hefst í nauðgunarmálinu

MYND/AFP
Aðalmeðferð í máli fimm manna sem sakaðir eru um að hafa nauðgað ungri konu í strætisvagni í Nýju Delí á Indlandi í desember síðastliðnum hófst í dag.

Málið hefur vakið athygli víða um heim en konan lést af sárum sínum stuttu fyrir áramót.

Gríðarleg öryggisgæsla er við dómshúsið. Við þingfestingu málsins fyrr í vikunni ákvað dómari að dómþingið yrði lokað. Mennirnir eru ákærðir fyrir morð, mannrán, nauðgun og rán. Þeir eiga dauðarefsingu yfir höfði sér verði þeir fundnir sekir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×