Netníðingarnir sem þykjast betri en konur meðal annars frá Húsavík 24. janúar 2013 09:51 Myndin sem piltarnir breyttu.
Búið er að finna þá einstaklinga sem stóðu að baki Facebook-síðunni "Karlar eru betri en konur". Samkvæmt norðlenska fréttablaðinu, Akureyri vikublað, þá fann Þórlaug Ágústsdóttir með aðstoð félaga sinna, þá sem stóðu að baki síðunni, sem miðaði að því að gera lítið úr konum. Í ljós kom að þeir sem standa að baki síðunni eru ungmenni á aldrinum 15-20 ára. Flestir eru þeir búsettir í heimahúsi á Norðurlandi, en Þórlaug hefur gert barnaverndaryfirvöldum á Húsavík viðvart vegna málsins. Þórlaug segir í viðtali við Akureyri Vikublað að hún hafi ekki kært drengina, sem eru þó rafrænir "góðkunningjar lögreglunnar" eins og hún orðar það, heldur hafi hún tilkynnt málið til barnaverndaryfirvalda. Sömu piltar eiga að hafa orðið til þess að Facebook-aðgangi Hildar Lilliendahl hefur verið lokað reglulega síðustu mánuði. Málið komst í fjölmiðla eftir að piltarnir breyttu mynd af Þórlaugu með þeim hætti að hún virtist vera með áverka á andliti. Myndina birtu þeir á fyrrnefndri síðu. Á myndinni stóð svo stórum stöfum "Konur eru eins og gras, það þarf að slá þær reglulega." Málið vakti athygli út fyrir landsteinana en Þórlaug er búsett í Danmörku þar sem hún stundar nám. Meðal annars baðst talsmaður Facebook á Norðurlöndum afsökunar á því að myndin var ekki fjarlægð þegar eftir því var leitað. Þá hefur þýska blaðið Der Spigel fjallað um baráttu femínistanna við Facebook.
Tengdar fréttir Facebook segir mistök að hafa ekki fjarlægt mynd af Þórlaugu Talsmaður Facebook á Norðurlöndum, Jan Frederiksson, viðurkenndi í danska ríkissjónvarpinu síðasta sunnudag að það hefðu verið mistök að fjarlægja ekki mynd af Þórlaugu Ágústsdóttur, sem óprúttinn aðili hafði breytt með þeim hætti að hún virtist vera með áverka eftir ofbeldi. 9. janúar 2013 14:50 Hefur svarað 200 fyrirspurnum vegna hótana á netinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur svarað um 200 fyrirspurnum um hótanir á netinu á síðastliðnum mánuðum, samkvæmt viðtali við Þórir Ingvarsson rannsóknarlögreglumann, sem rætt var við í morgunútvarpi Rásar 2 í dag. 4. janúar 2013 09:48 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Myrtu fjörutíu manns í kirkju Erlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira
Facebook segir mistök að hafa ekki fjarlægt mynd af Þórlaugu Talsmaður Facebook á Norðurlöndum, Jan Frederiksson, viðurkenndi í danska ríkissjónvarpinu síðasta sunnudag að það hefðu verið mistök að fjarlægja ekki mynd af Þórlaugu Ágústsdóttur, sem óprúttinn aðili hafði breytt með þeim hætti að hún virtist vera með áverka eftir ofbeldi. 9. janúar 2013 14:50
Hefur svarað 200 fyrirspurnum vegna hótana á netinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur svarað um 200 fyrirspurnum um hótanir á netinu á síðastliðnum mánuðum, samkvæmt viðtali við Þórir Ingvarsson rannsóknarlögreglumann, sem rætt var við í morgunútvarpi Rásar 2 í dag. 4. janúar 2013 09:48