Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Brynjar er búinn undir fjaðrafok vegna umsóknarinnar Brynjar Níelsson, hæstaréttarlögmaður, er undir það búinn að umræða blossi upp í samfélaginu um mögulega skipun hans í embætti Hæstaréttardómara. Menn muni kalla hann umdeildan og hafa áhyggjur af að með skipun hans verði traust dómstóla fyrir borð borið. 7.8.2012 23:00
Þyrla sækir mann út í skip Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út fyrr í kvöld vegna veikinda um borð í erlendu farþegaskipi. Skipið er staðsett út fyrir Langanesi. Samkvæmt frétt mbl.is var fékk áhafnarmeðlimur á skipinu hjartaáfall. Þyrla gæslunnar mun að öllum líkindum koma að skipinu laust fyrir miðnætti í kvöld. 7.8.2012 23:15
Áttu flottustu innkomuna á Þjóðhátíð í fallhlíf Menn eru misjafnlega töff á Þjóðhátíð. Flestir eru reyndar ekki sérlega töff, í asnalegum búningum eða klæddir í pollagalla. Tveir einstaklingar áttu þó óumdeilanlega vinninginn í töffarakeppni hátíðarinnar því þeir mættu á Þjóðhátíð í fallhlíf, svifu tígulega inn í Herjólfsdal. 7.8.2012 21:47
Ætla að enda í Vík í kvöld Hjólatúr Róberts Þórhallssonar hringinn í kringum landið fer vel af stað, sagði Baldvin Sigurðsson félagi hans í kvöld. Hjólreiðatúrinn er farinn til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. Þeir Róbert og Baldvin voru búnir að vera á ferðinni í fjóra klukkutíma þegar Vísir náði tali af Baldvin og voru komnir að Markarfljóti. “Þetta gengur bara mjög vel,” sagði Baldvin 7.8.2012 22:12
Samráðshópur ráðherra fundaði í fyrsta sinn Fyrsti fundur samráðshóps ráðherra og ráðuneyta til að fara yfir álitamál tengd erlendri fjárfestingu á Grímsstöðum á Fjöllum fór fram í dag. Enn liggur ekki fyrir hve lengi hópurinn mun starfa. 7.8.2012 21:34
Framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng hófust Framkvæmdir hófust við Vaðlaheiðargöng í morgun. Undirbúningsvinnan er farin af stað en talið er að byrjað verði að sprengja um áramótin. 7.8.2012 20:49
Lyfjanotkun getur orsakað minnistap Aukaverkanir lyfja eru ein algengasta orsökin fyrir minnistapi. Þetta segir Dr. Sigmundur Guðbjarnason hjá Saga Medica í viðtali við Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag. 7.8.2012 20:30
Kynna bókmenntir sem tengjast samkynhneigð Hinsegin bókmenntaganga mun fara fram föstudaginn næstkomandi. Þar munu bókmenntafræðingurinn Úlfhildur Dagsdóttir og leikarinn Darren Foreman kynna fyrir gestum og gangandi íslenskar bókmenntir sem fléttast á einhvern hátt um samkynhneigð. 7.8.2012 19:46
Sárt að framlög til menningarmála fari í að halda uppi steinsteypu Það er sárt að horfa upp á að framlög hins opinbera til menningarmála fari í "að halda uppi steinsteypu". Þetta segir Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskóla Íslands, og er sannfærður um að dýr rekstur Hörpunnar bitni einna helst á menningarstarfsemi í landinu. 7.8.2012 19:44
Sundgestir tóku ekki eftir drukknandi dreng í um þrjár mínútur Tveir tólf ára drengir björguðu sex ára dreng naumlega frá drukknun á föstudag. Þeir eru sannfærðir um að atburðinum muni þeir aldrei gleyma. Forstöðumaður sundlaugarinnar segir að drengurinn hafi barist við að ná andanum í um þrjár mínútur með fólk allt í kringum sig sem tók ekki eftir því að eitthvað hvað amaði að. 7.8.2012 18:42
Lögregla hafði aðrar áherslur við eftirlitið Lögreglan í Vestmannaeyjum hafði aðrar áherslur en áður við eftirlitsstarf sitt á Þjóðhátíð yfir helgina. Jóhannes Ólafsson, yfirlögregluþjónn í Eyjum, segir að það sé alla vega ein af ástæðum þess að fleiri fíkniefnamál komu upp í ár en nokkurntíma áður á hátíðinni. 7.8.2012 18:00
Vegaframkvæmdir á morgun Malbikunarframkvæmdir eru fyrirhugaðar á Nýbýlavegi í Kópavogi í fyrramálið. Framkvæmdirnar verða á kaflanum milli Túnbrekku og Álfabrekku. Gatan verður lokuð til austurs en hjáleiðir verða um Túnbrekku og Álfhólsveg. Vegna þess má búast við minniháttar umferðartöfum á þeim vegarkafla. 7.8.2012 17:21
Á fjórða tug manna tekinn fyrir ölvunarakstur Þrjátíu og fjórir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um verslunarmannahelgina. Tuttugu og níu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, fjórir í Kópavogi og einn í Hafnarfirði. 7.8.2012 16:55
Veiðiþjófur villti á sér heimildir Varðskipið Þór stóð nýverið rækjubát að meintum ólöglegum togveiðum í Kolluál undan Svörtuloftum á Snæfellsnesi. Við nánari eftirlit varðskipsmanna kom í ljós að skráður skipverji var ekki staddur um borð og reyndi óþekktur maður að villa á sér heimildir, eftir því sem fram kemur á vef Landhelgisgæslunnar. Athæfið er litið mjög alvarlegum augum. Varðskipsmenn vísuðu bátnum til hafnar þar sem lögreglan af höfuðborgarsvæðinu tók á móti skipstjóranum og yfirheyrði hann. Lögreglan mun síðan taka ákvörðun um áframhald málsins. 7.8.2012 16:23
Fjögur ung börn slösuðust í nágrenni við Selfoss Tilkynnt var um átta slys um helgina í umdæmi lögreglunnar á Selfossi, öll í sumarbústaðabyggðum eða nágrenni þeirra. Í fjórum tilvikum var um ung börn að ræða. Tveggja ára barn féll aftur fyrir sig á hnakkann og annað á sama aldri slasaðist á róluvelli, fimm ára barn féll tvo metra úr koju niður á gólf í sumarbústað, ekið var á sjö ára dreng á Flúðum og 11 ára stúlka fótbrotnaði eftir stökk úr 3ja metra hæð ofan í Litlu Laxá við Flúðir. 7.8.2012 13:59
Hrafnhildur úr landi eftir frumsýningu á mynd Ragnhildar Steinunnar Heimildarmyndin "Hrafnhildur“ verður frumsýnd í Bíó Paradís í kvöld. Eins og Vísir hefur áður greint frá er fylgst með kynleiðréttingaferli Hrafnhildar, allt frá því að hún er strákur og heitir Halldór. Hrafnhildur hefur sjálf ekki séð myndin og segist í samtali við Vísi vera pínu kvíðin. "Það er pínu kvíði og ég er búin að koma því þannig fyrir að ég er á leiðinni til Spánar strax um nóttina. Þannig að ég horfi bara á myndina og fer síðan til Spánar,“ segir hún. 7.8.2012 13:44
Hjónin Brynjar og Arnfríður sækja um stöðu hæstaréttardómara Hjónin Arnfríður Einarsdóttir héraðsdómari og Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður eru bæði á meðal umsækjenda um embætti tveggja dómara við Hæstarétt Íslands, sem auglýst voru laus til umsóknar í byrjun júlí. Alls bárust sjö umsóknir um embættin en umsóknarfrestur rann út 1. ágúst. Auk hjónanna eru á meðal umsækjenda þeir Benedikt Bogason og Helgi I. Jónsson, en þeir eru báðir settir hæstaréttardómarar. 7.8.2012 13:19
Fólk gengur kaupum og sölum Mansalsglæpir eru glæpir sem eru "okkur öllum til skammar" að mati Sameinuðu þjóðanna. Margt hefur áunnist í baráttunni gegn þeim á alþjóðavísu, en betur má ef duga skal. Magnús Halldórsson kynnti sér gögn sem UNODC, stofnun Sameinuðu þjóðanna sem berst gegn skipulagðri glæpastarfsemi, hefur tekið saman um mansal. 7.8.2012 11:40
Grunur um íkveikju í Arnari Grunur leikur á að kveikt hafi verið í Arnari ÁR-55 í Þorlákshöfn í gærmorgun. Lögreglan á Selfossi sem rannsakar brunann leitaðið til tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og leiddi sú rannsókn í ljós að um íkveikju væri að ræða. Eldurinn kom upp í svampdýnu sem staðsett var í vinnslurými bátsins. Allir þeir sem orðið hafa varir mannaferða á bryggjum hafnarinnar, fótgangandi á bílum eða á annan máta, eða annars staðar í Þorlákshöfn á tímabilinu frá kl. 04:00 til 07:30 í gærmorgun eru beðnir að hafa samband við lögreglu í síma 480 1010. 7.8.2012 11:24
Ekki tímabært að ræða hækkun á leigu "Ég held að það sé ekki tímabært að ræða hækkun á leigu," segir Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra um þær hugmyndir sem reifaðar eru í Fréttablaðinu í dag um að Íslenska óperan og Sinfóníuhljómsveit Íslands greiði hærri leigu fyrir afnot af Hörpu. Þannig sé hægt að bregðast við rekstrarvanda Hörpunnar en eins og komið hefur fram í fréttum er gert ráð fyrir að rekstrartap Hörpu verði 407 milljónir á árinu. 7.8.2012 10:58
Íslendingar eru hæstir á ÓL Samkvæmt breska tímaritinu The Guardian eru íslensku Ólympíufararnir hæstir allra en meðalhæð þeirra 1.9 metrar. Vafalaust má þakka handboltalandsliðinu fyrir þann heiður. 7.8.2012 10:51
Crowe ekki hrifinn af brennivíni Tökur á stórmyndinni um Nóa og örkina hans fara fram í Reynisfjöru í dag. Leikstjóri myndarinnar birti í gær mynd sem tekin var í fjöruborðinu. 7.8.2012 10:18
Fara fram á þriggja ára fangelsi Saksóknarar í Rússlandi hafa farið fram á að þrír meðlimir pönkhljómsveitarinnar Pussy Riot verði dæmdir í þriggja ára fangelsi fyrir guðlast. 7.8.2012 10:01
Loughner fyrir dómara í dag Talið er að hinn 23 ára gamli Jared Loughner muni taka afstöðu til ákæra á hendur sér í dag. Loughner er grunaður um að hafa myrt sex á götuhorni í Tuscon í Bandaríkjunum á síðasta ári. 7.8.2012 09:42
Curiosity streymir myndum frá Mars Fyrstu myndir frá snjalljeppanum Curiosity sem nú situr á yfirborði Mars hafa verið birtar. Um er að ræða 300 ljósmyndir sem sýna lendingu farsins í Gale-gígnum, nokkuð suður af miðbaug plánetunnar. Á næstu dögum mun Curiosity senda nákvæmari myndir af lendingarstað sínum. 7.8.2012 09:10
Harmleikur í Nígeríu Að minnsta kosti 15 létust þegar vígamenn hófu skotárás á kirkju í Nígeríu í nótt. Árásin átti sér stað í miðju bænahaldi. Líkleg þykir að múslímskir liðsmenn samtakanna Boko Haram hafi staðið að baki voðaverkinu. 7.8.2012 09:06
Eldur af völdum flugeldatertu í Heiðmörk Eldur kviknaði í gróðri í Heiðmörk í gærkvöldi, af völdum flugeldatertu. Eldurinn logaði nokkuð langt frá veginum þannig að slökkviliðsmenn þurftu að leggja langar slöngur til að koma vatni á vettvang, en úr því gekk slökkvistarf vel. 7.8.2012 09:03
Hljóp að vígamanni með bitlausum hníf Stjórnandi bænahúss Síka í Wisconsin í Bandaríkjunum bjargaði lífi fjölda barna og kvenna þegar Wade Michael Page hóf skotárás á hofið. 7.8.2012 08:59
Ólíklegt að Rice verði varaforsetaefni Leiðtogar Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum tilkynntu í gær Condoleezza Rice, sem áður gegndi embætti utanríkisráðherra í ríkisstjórn Georg W. Bush, myndi ávarpa fundargesti á ráðstefnu flokksins í Flórída seinna í þessum mánuði. 7.8.2012 08:28
Þúsundir flýja heimili sín í Manila Tugþúsundir hafa þurft að yfirgefa heimili sín í Manila, höfuðborg Filippseyja, í kjölfar mikilla flóða. Öllum skólum og verslunum í borginni hefur verið lokað. 7.8.2012 08:15
Fyrirmynd Mount Doom gýs Miklar tafir hafa orðið á flugi og öðrum samgöngum eftir að eldgos hófst í fjallinu Tongariro á Nýja-Sjálandi í nótt. Rúm öld er liðin síðan eldfjallið gaus síðast. 7.8.2012 07:53
Fall Assads tímaspursmál Dagar Bashar al-Assads, forseta Sýrlands, á valdastóli eru taldir að mati stjórnvalda í Bandaríkjunum. Talsmaður ríkisstjórnar Barack Obama sagði í gær að flótti forsætisráðherra landsins úr landi beri vitni um vanhæfni forsetans til að stjórna landinu. 7.8.2012 07:32
Margir héldu til veiða í nótt Mörg fiskiskip héldu til veiða í nótt, en þó var heldur minni kraftur í strandveiðibátum en oft áður. Nú má aðeins veiða á þremur svæðum af fjórum, þar sem búið er að stöðva veiðar á svæðinu frá Snæfellsnesi inn í Ísafjarðardjúp þar sem kvótinn er búinn. 7.8.2012 07:30
Þjóðhátíðargestir komnir í land Herjólfur sigldi með þjóðhátíðargesti til lands langt fram á nótt, eða þar til hann var bundinn við bryggju í Eyjum klukkan fjögur. 7.8.2012 07:00
Afsláttur í takt við stórsigur Atlantsolía ætlar að fara að fordæmi Olís, og dótturfélagsins ÓB og veita 17 króna afslátt af bensínverði í dag, eftir 17 marka stórsigur íslenska handboltaliðsins á því breska í gær. 7.8.2012 06:49
Landinn hélt rólegur heim úr fríinu Ekki er vitað um nein slys eða óhöpp þrátt fyrir mikla umferð víða um land í gær og fram á kvöld. Umferðin dreifðist óvenju vel að sögn lögreglu, því margir lögðu snemma af stað heimleiðis, og þó nokkrir voru ekki á ferðinni fyrr en eftir að umferðarþunginn er að jafnaði mestur, enda blíðviðri um allt land. 7.8.2012 06:43
Ferðamenn bíða í röð við leiði Fischers Það er ekki hægt að segja annað en að það sé töluverð umferð. Það eru alltaf þó nokkrir bílar og ein til tvær rútur á dag sem koma við,? segir Halldór Þórarinsson, sem býr að Laugardælum. Leiði Bobby Fischers er orðinn vinsæll áfangastaður ferðamanna. 7.8.2012 07:00
Skotmaður líklega tengdur hvítum öfgamönnum Svo virðist sem maðurinn sem myrti 6 og særði 4 í skotárás í Wisconsin í Bandaríkjunum á sunnudag hafi verið tengdur hreyfingu hægri öfgamanna. CNN hefur eftir upplýsingum frá lögreglunni að Wade Michael Page gæti hafa verið tengdur samtökum sem berjast fyrir yfirburðum hvíta kynstofnsins. 7.8.2012 07:00
Madonna vill frelsun Pussy Riot Poppstjarnan Madonna hvetur yfirvöld í Rússlandi til þess að fella niður kærur á hendur meðlimum pönkhljómsveitarinnar Pussy Riot. 7.8.2012 06:45
Vilja að sinfónían og óperan greiði tvöfalt hærri húsaleigu Stjórnendur Hörpu vilja að greiðslur frá Sinfóníuhljómsveit Íslands og Íslensku óperunni vegna nýtingar þeirra á aðstöðu í húsinu verði hækkaðar úr 170 milljónum króna á ári í 341 milljón króna. Með því á að bæta rekstur hússins. 7.8.2012 06:00
Kastaði flösku að hlaupurunum Maður kastaði flösku inn á Ólympíuvöllinn í London á sunnudag, í þann mund sem keppendur í úrslitum 100 metra hlaups karla voru að taka af stað. Um bjórflösku úr plasti var að ræða og sakaði hún engan. 7.8.2012 06:00
Stefnir í bótakröfumál á báða bóga Harðar deilur standa nú á milli sveitarfélaga á Suður- og Austurlandi og ferðaþjónustufyrirtækisins Bíla og fólks. Nú hefur Samband sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) látið setja lögbann á akstur fyrirtækisins milli Egilsstaða og Hafnar og í júlíbyrjun fóru Samtök sveitarfélaga á Suðurlandi (SASS) fram á lögbann á akstur fyrirtækisins þar. Það var samþykkt en þó ekki fylgt eftir. 7.8.2012 03:00
Páll og Tryggvi hætta í Þjóðhátíðarnefnd Þeir Páll Scheving Ingvarsson, formaður Þjóðhátíðarnefndar ÍBV, og Tryggvi Már Sæmundsson, framkvæmdastjóri ÍBV, hyggjast ekki gefa kost á sér til áframhaldandi setu í nefndinni. Var þetta tilkynnt eftir brekkusönginn í Herjólfsdal á sunnudag sem er hápunktur Þjóðhátíðar hvert ár. Greindi RÚV frá því í gær að þeir Páll og Tryggvi efuðust um að þeir nytu fulls trausts og velvildar samfélagsins í Eyjum til að stýra hátíðinni áfram. 7.8.2012 02:00
Bæjarfulltrúi ekki aðili að skuldamáli Mosfellsbæjar StjórnsýslaInnanríkisráðuneytið hefur vísað frá kæru Jóns Jósefs Bjarnasonar, fulltrúa minnihluta Íbúahreyfingarinnar í bæjarstjórn Mosfellsbæjar, vegna afgreiðslu bæjarráðs á skuldamáli. Ráðuneytið segir bæjarfulltrúa ekki hafa kærurétt þar sem hann eigi ekki aðild að málinu. "Mér finnst þetta út í hött. Ráðuneytið á að verja lýðræðið og með þessu eru þeir að standa gegn því. Þeir eru að taka af bæjarfulltrúunum réttinn til að setja fram formlega skoðun á málinu," segir Jón. 7.8.2012 01:00
Alþjóðleg leit að norskri stúlku Ítarleg leit var gerð að 16 ára stúlku í Ósló um helgina. Stúlkan hefur enn ekki fundist og er hennar nú einnig leitað á alþjóðlegum vettvangi. Um 500 sjálfboðaliðar leituðu á landi í gær, ásamt lögregluliði og leitarhundum. Kafarar hafa leitað í vatni í nágrenninu og þyrlur leitað stúlkunnar úr lofti. Þetta kemur fram á vef norska ríkisútvarpsins. 7.8.2012 00:00