Fleiri
Heimshorn 5.8.2012 18:56 Skotárás í Wisconsin - einn látinn og börn í gíslingu Talið er að einn, hið minnsta, sé látnn eftir skotárás á trúarsöfnuð í bænum Oak Creek í Wisconsin í Bandaríkjunum nú fyrir stundu. Samkvæmt fréttastofunni CNN eru árásarmennirnir nokkrir og haldi nú hluta af söfnuðinum í gíslingu, þar á meðal nokkrum börnum. Málsatvik eru óljós en talið er að fjölmargir hafi verið skotnir. Fréttir benda til þess að árásarmennirnir hafi farið með börnin í kjallara trúarsafnaðirns þar sem þau eru í gíslingu. Nánari fréttir þegar þær berast. Um hundrað manns eru inni í húsnæðinu. 5.8.2012 17:42 Hollenskt Gay-Pride Hundruð þúsúndir manna komu saman við árbakka Amsterdam í dag. En þar var haldið upp á aðalhátíð Gay-pride vikunnar í borginni sem hefur það að markmiði að vekja athygli á réttindabaráttu samkynhneigðra. 4.8.2012 21:30 Íslendingar í skýjunum á Facebook og Twitter Íslendingar hafa heldur betur látið gleði sína í ljós á samskiptamiðlunum Facebook og Twitter eftir að Íslendingar unnu Frakka í hörkuspennandi leik á Ólympíuleikunum í kvöld. Ísland marði sigur 30 - 29 en með sigrinum er ljóst að Íslendingar unnu A-riðil á leikunum. Glæsileg frammistaða. 4.8.2012 20:30 Sendiherra Svíþjóðar rekinn Sendiherra Svíþjóðar í Hvíta-Rússlandi hefur verið rekinn úr landi. Að sögn Carl Bildts, utanríkisráðherra Svíþjóðar, er ástæðan sú að sendiherrann hafi sýnt mannréttindamálum of mikinn áhuga. 4.8.2012 22:30 Sjá næstu 50 fréttir
Myndir frá síðasta kvöldi Þjóðhátíðar Mikil stemming var á Þjóðhátíð í gær en þá var síðasta kvöld hátíðarinnar sem staðið hefur yfir síðan á föstudag. Fjölmargir listamenn komu fram þar á meðal stórstjarnan Ronan Keating, Botnleðja og Árni Johnsen söng brekkusönginn fyrir viðstadda. Að því loknu var kveikt á 138 rauðum blysum, eitt fyrir hvert ár sem Þjóðhátíð hefur verið haldin. Svo var sungið Lífið er yndislegt sem ómaði um alla eyjuna enda 15 þúsund manns sem tóku undir. Okkar maður í Eyjum, Óskar P. Friðriksson, var með myndavélina á lofti og myndaði það sem fyrir augu bar. Hægt er að skoða myndirnar hér til hliðar. 6.8.2012 17:40
Sextíu og sjö ár frá kjarnorkuárás Í dag eru sextíu og sjö ár liðin frá kjarnorkuárás Bandaríkjamanna á Hírósíma í Japan sem kostaði 140 þúsund manns lífið. Haldin var minningarathöfn í borginni í dag þar sem um 50 þúsund manns söfnuðust saman og minntust árásarinnar. 6.8.2012 17:07
Skotmaðurinn var fertugur Maðurinn sem skaut sex til bana í musteri síka í borginni Oak Creek í Wisconsins í Bandaríkjunum í gær heitir Wade Michael Page og er fertugur. 6.8.2012 16:40
105 þúsund viðskiptavinir keyptu 620 þúsund lítra Íslendingar keyptu 620 þúsund lítra af áfengi í vikunni fyrir Verslunarmannahelgi en það er um 9 prósent aukning frá sama tíma í fyrra. Á föstudaginn keyptu Íslendingar 225 þúsund lítra af áfengi en það er þó minni sala en árið áður þegar keyptir voru 250 þúsund lítrar á þessum degi. Fólk var heldur skynsamara í ár því fleiri keyptu áfengið á mánudegi fram á fimmtudag. Mesta aukning er í ávaxtavíni, eða 120 prósent. 6.8.2012 15:08
Umferð farin að þyngjast Umferð er farin að þyngjast á þjóðvegum landsins enda verslunarmannahelgin senn á enda. Varðstjóri hjá lögreglunni á Selfossi segir að fleiri bílar fari í gegnum bæinn með hverjum klukkutímanum og sömu sögu er að segja í Borgarnesi. 6.8.2012 14:57
Þrjár nauðganir, tvær alvarlegar líkamsárásir og aldrei fleiri fíkniefnamál Þrjár nauðganir eru til rannsóknar hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum eftir Þjóðhátíðina sem lauk í gærkvöldi. Konurnar sem hafa kært kynferðisbrotin eru 17 ára, 18 ára og 27 ára. Nauðganirnar áttu sér allar stað inni í Herjólfsdal. Aldrei hafa fleiri fíkniefnamál komið upp á Þjóðhátíð og tvær alvarlegar líkamsárásarkærur liggja á borði lögreglu eftir helgina. 6.8.2012 13:58
Árásarmaðurinn fyrrum hermaður og kynþáttarhatari Maðurinn sem skaut sex til bana í musteri síka í borginni Oak Creek í Wisconsins í Bandaríkjunum í gær var fyrrum hermaður og kynþáttarhatari. 6.8.2012 12:52
Ronan Keating sáttur eftir Þjóðhátíð Söngvarinn Ronan Keating tróð upp í Herjólfsdal í gærkvöldi við mikinn fögnuð viðstaddra en hann er sjálfur mjög sáttur með hvernig til tókst. Á Twitter-síðu sína skrifar hann að áhorfendur í Vestmannaeyjum hafi verið frábærir en söngvarinn steig á svið um klukkan 22 í gærkvöldi. "Kominn aftur til Reykjavíkur eftir ótrúlega tónleika. Frábærir áhorfendur. Nú ætla ég að sofa í fjóra klukkutíma. Góða nótt allir. ,“ skrifar hjartaknúsarinn. Mikil stemming var í Herjólfsdal í gær og er talið að um 15 þúsund manns hafi verið í Dalnum þegar mest lét. 6.8.2012 10:59
Fimmtán egypskir hermenn drepnir Ehud Barak, varnarmálaráðherra Ísraels, sagðist í vonast til þess að árás vígamanna á egypska hermenn á Sínaí-skaga um helgina hafi verið vakning fyrir Egyptaland, en forystumenn Ísraela hefur lengi gagnrýnt Egypta fyrir slakar varnir skammt frá landamærum við Ísraelsríki. 6.8.2012 12:55
Sprengja sprakk í höfuðstöðvum ríkissjónvarpsins Sprengja á þriðju hæð höfuðstöðva sýrlenska ríkissjónvarpsins í Damaskus í morgun. Stöðin birti í kjölfarið viðtal við upplýsingaráðherra sýrlensku stjórnarinnar, Omran al-Zoabi, sem sagði einhverja starfsmenn hafa særst en engan látist. Mikið tjón var hins vegar unnið á byggingunni með sprengingunni sem uppreisnarmenn í borginni eru taldir bera ábyrgð á. 6.8.2012 10:34
Forsætisráðherra Sýrlands flúinn til Jórdaníu Fréttaveitan Reuters greindi frá því, núna laust fyrir klukkan tíu að íslenskum tíma, að forsætisráðherra Sýrlands, Riyad Hijab, hafi verið leystur úr embætti og sé flúinn til Jórdaníu með fjölskyldu sinni. Honum og Assad Sýrlandsforseta mun hafa sinnast. 6.8.2012 10:06
Tvö kynferðisbrot kærð í Eyjum Tvö kynferðisbrot voru kærð til lögreglunnar í Vestmannaeyjum eftir nóttina, annað um miðnætti en hitt nú undir morgun. Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra áttu brotin sér stað inni í Herjólfsdal. Atvikin eru nú í rannsókn hjá lögreglu en nánari upplýsingar fást ekki þar sem rannsóknin er á viðkvæmu stigi. 6.8.2012 09:57
Curiosity lenti heilu og höldnu á Mars Ein flóknasta tilraun í sögu geimvísindanna heppnaðist í morgun þegar vísindamönnum bandarísku geimrannsóknarstöðvarinnar NASA tókst að lenda tækinu Curiosity á plánetunni Mars. Curiosity er eins konar vitbíll eða ómönnuð rannsóknarstöð sem hlaðin er háþróuðum tækjabúnaði og gertu ferðast um plánetinua. 6.8.2012 09:54
Innbrotsþjófur gripinn glóðvolgur Hann var óheppinn þjófurinn sem var stöðvaður í miðju innbroti á Akureyri klukkan sex í morgun. Að sögn varðstjóra hjá lögreglu tilkynntu nágrannar um að verið væri að brjótast inn íbúðarhús í bænum og fóru lögreglumenn strax á vettvang. Þar var þjófurinn að athafna sig en að sögn lögreglu er maðurinn góðkunningi lögreglunnar í bænum eftir helgina en hann hefur alloft komið við sögu lögreglu síðustu daga. Hann var mjög ölvaður og verður tekin skýrsla af honum síðar í dag þegar áfengisvíman er runnin af honum. 6.8.2012 09:30
Kýldi annan á Ráðhústorginu Karlmaður gisti fangageymslu á Akureyri í nótt eftir að hafa ráðist á annan mann á Ráðuhústorgi bæjarins rétt fyrir miðnætti. Sá sem varð fyrir árásinni er ekki alvarlega slasaður en tekin verður skýrsla af árásarmanninum í dag. Nokkur erill var hjá lögreglu, mikið um hávaða og ölvunarútköll en engin alvarleg mál sem komu upp. Einn var tekinn fyrir ölvunarakstur og þá fylgdust lögreglumenn með opnunartíma skemmtistaða bæjarins. 6.8.2012 09:27
Mesta tækniafrek mannkyns í nánd Vitbíllinn Curiosity nálgast nú Mars óðfluga. Farið mun brjóta sér leið í gegnum gufuhvolf rauðu plánetunnar í nótt. Komist farið á leiðarenda er um mesta tækniafrek mannkynssögunnar að ræða. 5.8.2012 23:00
Ronan Keating söng fyrir þjóðhátíðargesti Ronan Keating steig á svið í Vestmannaeyjum á ellefta tímanum í kvöld. Hátt í fimmtán þúsund manns buðu írska söngvarann velkominn. 5.8.2012 23:17
"Ég er hrædd um börnin mín" Fjöldi kom saman í belgíska smábænum Malonne í morgun til að mótmæla væntanlegri komu Michelle Martin þangað, en hún er fyrrverandi eiginkona hins alræmda Marc Dutroux sem fékk lífstíðardóm árið 2004 fyrir misnotkun og morð á ungum stúlkum. Martin var fundin samsek og hlaut 30 ára fangelsisdóm en á þriðjudag, var ákveðið að láta hana lausa eftir 16 ára afplánun og voru það nunnur í nágrenni við þennan litla bæ sem samþykktu að taka við henni. "Ég er hrædd um börnin mín, sem eru átta mánaða og þriggja ára. Þegar ég sá að henni yrði sleppt varð ég hrædd um að hún gerði þetta aftur. Hún sat ekki allan dóminn í fangelsi og mér finnst skrýtið að henni skuli vera sleppt núna,“ segir Sophie Vigneron, íbúi í Malonne. 5.8.2012 22:30
Ekkert sem toppar Hvíta húsið Fjölmiðlamaðurinn og stjórnsýslufræðingurinn Gunnar Sigurðsson lítur á söngkonuna Helgu Möller sem súperstjörnu. Hvorugt þeirra er fyrir útihátíðir en þeim mun hrifnari af golfíþróttinni göfugu. Kjartan Guðmundsson hitti rökstólapar vikunnar. 5.8.2012 21:00
Ronan Keating: Frábært partí í kvöld Írska poppstjarnan Ronan Keating mætti til Eyja síðdegis en hann segist hlakka til að spila þar í kvöld þrátt fyrir lítinn svefn. Við hittum á hann á Reykjavíkurflugvelli í dag. 5.8.2012 19:23
Sjö látnir - þar á meðal árásarmaður Að minnsta kosti sjö eru látnir, þar á meðal einn árásarmaður, í bænahúsi trúarsafnaðar í bænum Oak Creek í Wisconsin í Bandaríkjunum nú síðdegis. Tugir eru særðir eftir að maðurinn réðist þangað inn. Þetta staðfestir lögreglustjórinn í bænum. Sumar fréttir benda til þess að börn séu í gíslingu í kjallara trúarsafnaðarins en það hefur ekki fengið staðfest. Þá eru einhverjir fjölmiðlar sem halda því fram að aðeins einn árásarmaður hafi ráðist inn í bænahúsið en aðrir segja árásarmennina vera nokkra. Fregnir af málinu eru enn óljósar en fylgst verður með gangi mála hér á Vísi í kvöld. 5.8.2012 19:11
Laus úr haldi og neitar sök Tuttugu og tveggja ára karlmaður, sem kærður var fyrir nauðgun í Herjólfsdal aðfaranótt laugardags, hefur verið látinn laus úr haldi lögreglu. Hann var yfirheyrður síðdegis í dag og samkvæmt upplýsingum frá lögreglu neitar hann sök. 5.8.2012 17:52
Enn í gæsluvarðhaldi vegna kókaínsmygls Rannsókn lögreglu á smygli á kókaíni hingað til lands í lok maí síðastliðnum er lokið og samkvæmt upplýsingum fréttastofu er búist við að málið verði sent til ríkissaksóknara á næstu vikum. Maður á fertugsaldri, og kona á þrítugsaldri, sitja enn í gæsluvarðhaldi vegna málsins. 5.8.2012 16:52
Hitabeltisstormur við Jamaíka Hitabeltisstormurinn Ernesto gekk nærri landi við eyjuna Jamaíku í morgun en vindhraði stormsins er um hundrað kílómetra hraði á klukkustund. Mikil rigning fylgdi storminum á eyjunni í morgun og flyktust íbúar út í verslanir og keyptu vatn, brauð og niðursoðinn mat ef vera skildi að rafmagn færi af eyjunni. Veðurathugunarstöð bandaríkjanna fylgist grannt með gangi mál. Samkvæmt veðurspám er talið að stormurinn verði flokkaður sem fellibylur annað kvöld haldi hann áfram að stækka og eflast. Búist er við að stormurinn gangi yfir Cayman-eyjar á morgun, norðurhluta Hondúras á þriðjudag og Mexíkó á miðvikudag. 5.8.2012 15:11
Bráðkvaddur í Herjólfsdal Rétt fyrir miðnætti barst lögreglunni í Vestmannaeyjum tilkynning um mann sem misst hafði meðvitund í brekkunni í Herjólfsdal. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru læknir, hjúkrunarfræðingur, bráðatæknir og lögreglumenn nærstaddir og hófust lífgunartilraunir þegar í stað og var þeim haldið áfram á sjúkrahúsi en báru ekki árangur. Um er að ræða heimamann og í tilkynningu frá lögreglu segir að hugur allra bæjarbúa sé hjá aðstandendum hans. 5.8.2012 14:36
Fyrsta Gay-Pride í Víetnam Yfir hundrað reiðhjólamenn tóku þátt í fyrstu gay-pride hátíð Víetnama í dag og fóru þeir um höfuðborgina til að vekja athygli á réttindum samkynhneigðra. 5.8.2012 21:45
Útskrifaður í hádeginu Maðurinn sem fluttur var með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Fossvogi í nótt var útskrifaður af slysadeild á hádegi í dag en hann reyndist minna slasaður en talið var í fyrstu. Maðurinn var ökumaður bifreiðar sem hafnaði utan vegar og fór bílveltu á Skeiða- og Hrunamannavegi til móts við bæinn Auðsholt. Hann var meðvitundarlaus þegar sjúkraflutningamenn komu á vettvang og því var ákveðið að kalla til þyrlu. Þrír aðrir voru í bílnum en meiðsli þeirra voru minniháttar. 5.8.2012 19:56
Myndasyrpa frá Þjóðhátíð Mikið stuð var í Vestmannaeyjum í gær enda var flugeldasýning í Herjólfsdal og fjölmargir tónlistarmenn tóku lagið. Okkar maður Óskar P. Friðriksson var að sjálfsögðu með myndavélina á lofti allan daginn og kvöldið og tók myndir af því sem fyrir augu bar. Í myndaalbúminu má sjá enga aðra en Björgvin Halldórsson og Helga Björns taka lagið. Það gerist ekki mikið svalara. 5.8.2012 15:06
Brekkusöngurinn í beinni á Bylgjunni "Þetta verður í fyrsta skiptið í sögu Bylgjunnar sem við sendum beint úr frá brekkusöngnum,“ segir útvarpsmaðurinn Ívar Guðmundsson sem kom til Vestmannaeyja í morgun. Brekkusöngurinn hefst á slaginu 23:20 og verður hægt að hlusta á allt í beinni á Bylgjunni. 5.8.2012 13:37
Lognið kom í veg fyrir að varðeldurinn breiddi úr sér Tilkynnt var um eld í skógi, rétt ofan við tjaldsvæði í Tungudal á Ísafirði í morgun. Þegar lögreglumenn komu á vettvang var töluverður eldur í trjám á um 25 fermetra svæði og eftir að þeir höfðu barist við eldinn með slökkvitækjum var ákveðið að kalla út slökkvilið sem náði tökum á eldinum fljótt. 5.8.2012 11:10
Fékk gat á hausinn og tennur brotnuðu eftir hnefahögg Karlmaður var sleginn hnefahöggi í andlitið fyrir utan skemmtistað á Ísafirði í morgun með þeim afleiðingum að hann fékk gat á höfuðið og tennur brotnuðu í honum. Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni var árásin kærð en vitað er hver árásarmaðurinn er og verður tekinn skýrsla af honum síðar í dag. 5.8.2012 11:01
Ölvuð grýtti hús á Fiskislóð Ölvuð kona var handtekin við Fiskislóð í Reykjavík um klukkan hálf tíu í morgun þar sem hún stóð fyrir utan hús og var að grýta það. Að sögn lögreglu braut konan rúðu í því. Rætt verður við hana þegar runnið verður af henni. 5.8.2012 10:51
Reykti jónu á Amtmannstíg Um klukkan fimm í morgun sást til gangandi manns á Amtmannsstíg í miðborg Reykjavíkur þar sem hann var að reykja jónu. Að sögn lögreglu var hann stöðvaður, vímuefnið tekið af honum og málið afgreitt með vettvangsskýrslu. 5.8.2012 10:47
Tugir fórust í sprengjuárás Minnst 35 eru látnir eftir sprengjuárás í borginni Jaar í Jemen, og hafa þar með tíu látist á sjúkrahúsi síðasta sólarhringinn af sárum sínum. 5.8.2012 10:45
50 ár frá dauða Monroe Hálf öld er í dag liðin frá því að bandaríska leikkonan Marilyn Monroe lést og er fjöldi dyggra aðdáenda þokkagyðjunnar nú samankominn í heimabæ hennar. 5.8.2012 10:36
Handtekinn grunaður um nauðgun Tuttugu og tveggja ára gamall karlmaður er í haldi lögreglunnar í Vestmannaeyjum grunaður um að hafa nauðgað stúlku aðfaranótt laugardags í Herjólfsdal. 5.8.2012 09:39
Sprengjum rigndi í Aleppo í nótt Sprengjum stjórnarhersins í Sýrlandi hefur ringt yfir borgina Aleppo í nótt og í morgun. Fjöldi uppreisnarmanna hefur hörfað úr borginni en þeir sem eftir eru búa sig undir stórbardaga. 5.8.2012 09:30
Hótuðu ökumanninum með hnífi Þrír einstaklingar voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í gær eftir að þeir höfðu í hótunum við ökumann bifreiðar sem þeir voru farþegar í, meðal annars ógnuðu þeir honum með hnífi. Ekki kom til átaka og enginn slasaðist en allir gistu fangageymslur. Málið er í rannsókn hjá lögreglu. Þá komu upp fjögur minniháttar fíkniefnamál í borginni í nótt, sjö ökumenn voru teknir grunaðir um ölvun við akstur og tveir ökumenn vegna gruns um fíkniefnaakstur. Tíu gistu fangageymslur fyrir hinar ýmsu sakir. 5.8.2012 09:29
Meðvitundarlaus eftir bílveltu - fluttur með þyrlu til Reykjavíkur Ökumaður bifreiðar var fluttur til Reykjavíkur með þyrlu landhelgisgæslunnar eftir bifreiðin valt á Skeiða- og Hrunamannavegi við afleggjarann að Auðsholti á fjórða tímanum í nótt. Þrír aðrir sem voru í bílnum voru fluttir með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Suðurlands með minniháttar áverka. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var ökumaðurinn meðvitundarlaus þegar komið var að en rankaði við sér síðar. Þyrlan lenti um klukkan fimm með manninn. Ekki er vitað um líðan hans að svo stöddu. Að sögn lögreglu voru allir einstaklingarnir í bílnum um tvítugt. 5.8.2012 09:26
Yfirbugaður með piparúða og kylfu Tveir lögreglumenn voru fluttir á slysadeild eftir að hafa sinnt útkalli á skemmtistað í miðbæ Akureyrar í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu fóru lögreglumennirnir á skemmistaðinn til þess að loka honum þar sem hann var opinn umfram það sem skemmtanaleyfið tilgreindi. 5.8.2012 09:09
Skotárás í Wisconsin - einn látinn og börn í gíslingu Talið er að einn, hið minnsta, sé látnn eftir skotárás á trúarsöfnuð í bænum Oak Creek í Wisconsin í Bandaríkjunum nú fyrir stundu. Samkvæmt fréttastofunni CNN eru árásarmennirnir nokkrir og haldi nú hluta af söfnuðinum í gíslingu, þar á meðal nokkrum börnum. Málsatvik eru óljós en talið er að fjölmargir hafi verið skotnir. Fréttir benda til þess að árásarmennirnir hafi farið með börnin í kjallara trúarsafnaðirns þar sem þau eru í gíslingu. Nánari fréttir þegar þær berast. Um hundrað manns eru inni í húsnæðinu. 5.8.2012 17:42
Hollenskt Gay-Pride Hundruð þúsúndir manna komu saman við árbakka Amsterdam í dag. En þar var haldið upp á aðalhátíð Gay-pride vikunnar í borginni sem hefur það að markmiði að vekja athygli á réttindabaráttu samkynhneigðra. 4.8.2012 21:30
Íslendingar í skýjunum á Facebook og Twitter Íslendingar hafa heldur betur látið gleði sína í ljós á samskiptamiðlunum Facebook og Twitter eftir að Íslendingar unnu Frakka í hörkuspennandi leik á Ólympíuleikunum í kvöld. Ísland marði sigur 30 - 29 en með sigrinum er ljóst að Íslendingar unnu A-riðil á leikunum. Glæsileg frammistaða. 4.8.2012 20:30
Sendiherra Svíþjóðar rekinn Sendiherra Svíþjóðar í Hvíta-Rússlandi hefur verið rekinn úr landi. Að sögn Carl Bildts, utanríkisráðherra Svíþjóðar, er ástæðan sú að sendiherrann hafi sýnt mannréttindamálum of mikinn áhuga. 4.8.2012 22:30
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent
Vísað úr landi eftir ólöglega dvöl: Togaði í hár konunnar, sparkaði í hana og mölvaði síma hennar Innlent