Stefnir í bótakröfumál á báða bóga 7. ágúst 2012 03:00 Framkvæmdastjóri Bíla og fólks segist ekki ætla að láta hirða af sér afrakstur markaðssetningar á hringleiðinni sísvona. fréttablaðið/gva
Harðar deilur standa nú á milli sveitarfélaga á Suður- og Austurlandi og ferðaþjónustufyrirtækisins Bíla og fólks. Nú hefur Samband sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) látið setja lögbann á akstur fyrirtækisins milli Egilsstaða og Hafnar og í júlíbyrjun fóru Samtök sveitarfélaga á Suðurlandi (SASS) fram á lögbann á akstur fyrirtækisins þar. Það var samþykkt en þó ekki fylgt eftir. "Ástæðan er sú að farið var fram á svo háa tryggingu að við hefðum þurft að kalla saman til stjórnarfundar til að fá samþykki til slíks,? segir Elfa Dögg Þórðardóttir, formaður SASS. "Við tökum svo stöðuna aftur í haust og sjáum til með framhaldið," bætir hún við. Ástæðan fyrir þessum kröfum er sú að sveitarfélögin telja að akstur Bíla og fólks stangist á við sérleyfislög en fyrirtækið er ekki með sérleyfi á þessum leiðum. Í fyrra tóku sveitarfélögin við ábyrgð og eftirfylgni á sérleyfisakstri. Valdimar O. Hermannsson, stjórnarformaður SSA, segir að sambandið hafi orðið fyrir margra milljóna króna tekjumissi vegna ólöglegrar samkeppni frá Bílum og fólki. "Við viljum setjast niður að samningum við þá þar sem meðal annars yrði samið um einhverjar bætur vegna þessa en annars fer þetta fyrir dómstóla," segir hann. Óskar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Bíla og fólks, segir fráleitt að fyrirtækið borgi bætur vegna þessa. Hins vegar muni fyrirtækið kæra SSA fyrir það tap og álitshnekki sem aðgerðir þess hafa kostað það. "Ég byrjaði árið 2006 að markaðssetja hringferðirnar. Þá fóru um tvö til þrjúhundruð ferðamenn hringinn en nú gera það um fimmtán hundruð manns. Þetta er afraksturinn af okkar markaðssetningu og þeir fá ekkert að rífa hann af okkur sísvona. Þeir verða bara að róa og fiska eins og aðrir," segir Óskar. Valdimar er alls ósáttur við framgöngu fyrirtækisins í þessu máli. "Það sem okkur þykir sárast er að þeir gerðu ekki einu sinni tilboð í sérleyfin, sem hefði verið heppilegt því þeir voru með sérleyfin í fyrra og búa því að reynslunni, heldur halda þeir áfram að aka þarna algjörlega á sínum forsendum." Óskar segir að ekkert fyrirtæki hafi gert tilboð eftir að fyrstu útboðsgögnin lágu fyrir en síðan hafi verið haft samband við öll fyrirtækin sem hafi sótt umboðsgögn nema Bíla og fólk og þeim boðið að gera tilboð á nýjum forsendum. jse@frettabladid.is
Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Sjá meira