Fleiri fréttir

Sýruleki hjá Mjöll-Frigg

Sýra virðist hafa lekið út í sápuverksmiðjunni Mjöll-Frigg í Hafnarfirði í morgun. Boð bárust til slökkviliðsins um klukkan sex og taldi starfsmaður Securitas sig finna torkennilega lykt í húsinu. Þegar eiturefnasérfræðingar mættu á vettvang kom í ljós að einhverskonar sýra hefur lekið út. Slökkviliðsmenn vinna nú að því að gera hana hlutlausa með öðrum efnum. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu stendur ekki til að rýma svæðið í kringum verksmiðjuna.

Jeppafólk í vandræðum við Þingvelli

Björgunarsveit Landsbjargar á Laugarvatni var kölluð út um miðnætti til að aðstoða fólk í föstum jeppa á vegslóða í grennd við Gjábakkaveg, austur af Þingvöllum. Þar var krapi og aurbleyta og ekki ætlast til að menn ækju þar um. Björgunarmenn náðu bílnum upp og fylgldu honum niður á þjóðveg

Segir vitnum bæði mútað og hótað

Charles Taylor, fyrrverandi forseti Líberíu, lýsir samúð sinni með fólki í Síerra Leóne, sem orðið hefur fyrir þjáningum af völdum glæpa.

Shell hefur ekkert viðurkennt

Olíufyrirtækið Shell ber ábyrgð á stórfelldri olíumengun á óseyrum Nígeríufljóts, sem staðið hefur yfir áratugum saman.

Sextán fornbílar í lúxusferð um Ísland

Í júníbyrjun getur fólk átt von á því að sjá á þjóðvegum landsins 16 lúxusfornbíla á leiðinni frá Egilsstöðum til Reykjavíkur, með viðkomu á mörgum helstu ferðamannastöðum. Þarna verður á ferð hópur ferðamanna á vegum franska fornbílaklúbbsins Imperial Rallye.

Pappírstunna við öll heimili

Í byrjun júní verður komin blá sorptunna fyrir pappír við öll heimili í Kópavogi. „Markmiðið er að hvetja til endurvinnslu og draga úr úrgangi sem fer til urðunar,“ segir í frétt á vef Kópavogsbæjar sem með þessu er sagður verða fyrsta sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu til að dreifa slíkum tunnum til allra íbúa. - gar

Folaldið var nefnt álfunum til heiðurs

„Við nefndum folaldið Álf sem smá virðingarvott við þessa nýju fjölskyldu sem sest er að hérna í Eyjum“, segir Gunnar Árnason, eigandi Hestaleigunnar Lukku í Vestmannaeyjum. Svo bar við að hryssan Gæfa frá Lágafelli kastaði fallegu folaldi í skjóli við álfasteininn í garði Árna Johnsen. Árni flutti steininn til Eyja á þriðjudag en steinninn var settur niður við íbúðarhús hans, Höfðaból.

Atvinnurekstri skipt út fyrir atvinnulíf

Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) skipti um nafn á aðalfundi í vikunni og heitir nú Félag kvenna í atvinnulífinu. Á sama fundi var ákveðið að félagið LeiðtogaAuður yrði framvegis starfrækt sem fagdeild innan FKA.

Hér má sjá hvernig heiðagæs vegnar við Kárahnjúka

Viðamiklar rannsóknir á áhrifum stórframkvæmdanna á Austurlandi á síðasta áratug þykja einstakar í heiminum en hartnær fimmtíu þættir eru til skoðunar. Þegar framkvæmdirnar hófust við Kárahnjúka og á Reyðarfirði settu Landsvirkjun og Alcoa í gang svokallað sjálfbærniverkefni til að fylgjast með áhrifunum en fjallað var um stöðu þess á fundi í Reykjavík í vikunni.

Donna Summer látin

Diskósöngkonan Donna Summer lést á heimili sínu í dag eftir langa baráttu við brjóstakrabbamein. Summer naut mikilla vinsælda á áttunda áratug síðustu aldar. Hún vann til fimm Grammy verðlauna á ferli sínum. Donna Summer var 64 ára þegar hún lést.

Ólafur Ragnar fundaði með forseta Tékklands

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Václav Klaus, forseti Tékklands, funduðu í morgun um þróun mála í Evrópu, afleiðingar fjármálakreppunnar fyrir efnahagslíf álfunnar og hvort stöðugleiki kunni að skapist á evrusvæðinu. Fundurinn, sem haldinn var í Pragkastala, var upphaf opinberrar heimsóknar forseta Íslands til Tékklands. Að loknum viðræðum forsetanna var fundur hinnar íslensku sendinefndar og tékkneskra ráðamanna; sátu hann, auk Össurar Skarphéðinssoar utanríkisráðherra, embættismenn utanríkisráðuneytisins og forsetaskrifstofunnar.

Bráðabirgðastjórn tekin við völdum

Bráðabirgðaríkisstjórn tók til starfa í Grikklandi í dag. Ekki hefur tekist að mynda ríkisstjórn eftir að kosið var í byrjun maí. Búist er við því að kosið verði að nýju um miðjan júní.

Réttarhöldum yfir Mladic frestað

Dómari frestaði í dag réttarhöldum yfir Ratko Mladic ótímabundið vegna mistaka saksóknara. Þeir höfðu látið fyrirfarast að afhenda verjendum Mladic málskjöl. Mladic er fyrrverandi yfirmaður serbneska hersins. Hann er sakaður um þjóðarhreinsanir í stíðinu á Balkansskaga. Ekki er neitt vitað um hversu langt hlé verður gert á réttarhöldunum en verjendur fóru fram á sex mánuði, eftir því sem fram kemur í frétt AP fréttastofunnar.

Fatasöfnunardagur Rauða krossins er í dag

Rauði kross Íslands stendur fyrir fatasöfnun um allt land í dag, uppstigningardag. Á höfuðborgarsvæðinu verða fatagámar við allar sundlaugar ÍTR í Reykjavík og við sundstaði í Kópavogi, Hafnarfirði, á Álftanesi, í Garðabæ og Mosfellsbæ. Á landsbyggðinni verður tekið á móti fötum, skóm og vefnaðarvöru á móttökustöðvum Eimskips Flytjanda, en fatasöfnunin er unnin í samstarfi við Eimskip. Í tilkynningu frá Rauða krossinum segir að fataverkefnið sé orðið eitt af mikilvægustu fjáröflunarverkefnum Rauða krossins og skilaði 84 milljónum á síðasta ári.

Bjarni fundaði með utanríkisráðherra Breta

William Hague utanríkisráðherra Bretlands segir það almennt sjónarmið ríkjanna innan Evrópusambandsins að færeyingar og íslendingar séu of stífir þegar kemur að samningaviðræðum um makríldeiluna svokölluðu. Þetta segir Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins sem fundaði með ráðherranum í London í gær. Þeir ræddu einnig evrukrísuna og stöðuna sem komin er upp vegna erfiðleika grikkja.

Fljótandi lúxushótel við Skarfabakkann

Skemmtiferðaskipið Crystal Serenity lagði að höfn við Skarfabakka við Reykjavíkur um klukkan hálfátta í morgun með rúmlega eitt þúsund farþega. Þeir sem standa að komu skipsins segja að það sé fyrsta skemmtiferðaskipið sem heimsækir Ísland í sumar en skipið. Crystal Serenity er fljótandi 5 stjörnu lúxushótel og með glæsilegustu skemmtiferðaskipum sem siglir um höfin. Skipið er 68 þúsund tonn að stærð og tekur alls 1080 farþega. Áhöfn telur 635 manns. Crystal Serenity kemur hingað frá St. John's á Nýfundnalandi en skipið er í heimsreisu.

Fólksfækkun ógnar framtíðarrekstri Orkubús Vestjarða

Fækkun íbúa á Vestfjörðum er stærsta ógnin við framtíðarrekstur Orkubús Vestfjarða. Þetta sagði Kristján Haraldsson orkubússtjóri í aðalfundi fyrirtækisins. Á Reykhólavefnum er fjallað um þessa fækkun, og að með áframhaldandi þróun í þessa átt verði enginn íbúi eftir á Vestfjörðum að 50 árum liðnum. Kristján segir að stjórnvöld verði tafarlaust að grípa til aðgerða til að hindra frekari eyðingu byggðar, og nefnir þar fyrst bættar samgöngur og jöfnun búsetukostnaðar.

Mladic segist enga glæpi hafa framið

Sækjandi við stríðsglæpadómstól í Haag segir að Ratko Mladic herforingi og sveitir hans hafi verið orðnar vel þjálfaðar í morðum þegar kom að fjöldamorðunum í Srebrenica sumarið 1995. Aðalmeðferð í réttarhöldum hans er hafin.

Sigur Rós með hlustunarpartý í kvöld

Alþjóðlegt hlustunarpartý hefst á netinu í dag á nýjustu plötu Sigur Rósar, Valtari. Klukkan sjö í öllum tímabeltum heimsins geta aðdáendur sveitarinnar farið inn á heimasíðu sveitarinnar: <http://www.sigur-ros.co.uk/> og hlustað á plötuna í heild sinni. Aðdáendur sveitarinnar eru hvattir til að tísta og pósta myndum á Instagram frá hlustunarpartýunum sínum með #valtarihour auðkenninu.

17 stiga hiti í veðurkortunum eftir helgi

Kuldakastið sem verið hefur á landinu undanfarna daga er á undanhaldi og hefur hitastig á landinu komist yfir tíu gráður á nokkrum stöðum suðaustanlands í dag. Hlýjast hefur verið á svæðinu milli Mýrdalsjökuls og Öræfajökuls.

Leiguverð hækkað um 10% á einu ári

Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 10% síðastliðna tólf mánuði. Þetta kemur fram í upplýsingum á vef Þjóðskrár. Hækkun síðasta mánuðinn nemur hins vegar einungis 0,6% og hækkunin síðustu þrjá mánuði nemur 1,8%. Hækkunina má sjá með því að skoða vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu, sem var 113 stig i síðasta mánuði. Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma.

Of Monsters and Men mæta til Jay Leno

Íslenska hljómsveitin Of Monsters and Men mun verða í Tonight Show, spjallþætti Jays Leno, þann 29. júní næstkomandi. Á fésbókarvegg hljómsveitarinnar segjast hljómsveitarmeðlimir vera mjög spenntir fyrir þessu.

Enn eitt áfallið fyrir Kennedyfjölskylduna

Kennedyfjölskyldan varð fyrir enn einu áfallinu í nótt þegar Mary Richardson, fyrrverandi eiginkona Roberts F. Kennedy yngri, fannst látin á heimili sínu í New York fylki. Engar upplýsingar hafa verið gefnar út um dánarorsök en bandarískir fjölmiðlar fullyrða að hún hafi fundist hangandi með snöru um hálsinn. Robert Kennedy yngri er lögfræðingur og útvarpsmaður. Hann er bróðursonur Johns F. Kennedy, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, og sonur Roberts Kennedy fyrrverandi dómsmálaráðherra. Bræðurnir voru báðir myrtir á sjöunda áratug síðustu aldar.

Fimmtán teknir fyrir að pissa á almannafæri

Fimmtán manns voru kærðir fyrir brot gegn lögreglusamþykkt Reykjavíkur í nótt, það er að hafa kastað af sér vatni á almannafæri í miðborginni. Nóttin var annars nokkuð annasöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Brotist var inn í heimahús í austurborginni og munum stolið. Unglingspiltar eru grunaðir um innbrotið og eru þeir í haldi lögreglu. Til stendur að yfirheyra þá núna.

Verður á launum til febrúar 2015

Bæjarstjórinn í Sveitarfélaginu Garði las um það á netinu að til stæði að segja honum upp störfum. Uppsögn bæjarstjóra var einn af fjórum dagskrárliðum sem auglýstir voru á aukafundi bæjarstjórnar Garðs sem fram fór í gærkvöldi.

Þriðja besta kerfið í Evrópu

lHeilbrigðisþjónusta á Íslandi er sú þriðja besta í Evrópu samkvæmt könnun fyrirtækisins Health Consumer Powerhouse sem vinnur meðal annars með framkvæmdastjórn ESB. Könnunin byggir á ýmsum breytum, meðal annars aðgengi og fjölbreytni þjónustu.

Við erum enn þá á byrjunarreit

Einar K. Guðfinnsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í atvinnuveganefnd, segir að athugasemdir sjávarútvegsráðuneytisins sýni „að við erum í rauninni á algjörum byrjunarreit í vinnu okkar. Það hafa verið haldnir 16 fundir í atvinnuveganefnd Alþingis og kallaðir til okkar fjölmargir gestir. Þessir fundir hafa verið mjög gagnlegir. En þrátt fyrir það er enn þá verið að deila um forsendur og þess háttar varðandi fiskveiðilagafrumvörpin sem hafa verið lögð fyrir Alþingi.“

Grikkir tæma bankareikninga

Grikkir hafa undanfarna daga og vikur flykkst í hraðbanka til að taka út peninga, af ótta við að Grikkland yfirgefi evrusvæðið og gamla drakman verði tekin upp í staðinn.

Umræðan bjöguð ef satt reynist

Björn Valur Gíslason, fulltrúi Vinstri grænna í atvinnuveganefnd, segir að greinargerð sjávarútvegsráðuneytisins um útreikninga Deloitte á áhrifum frumvarpa um stjórn fiskveiða eigi fullan rétt á sér og það sé sitt mat að útreikningar endurskoðunarfyrirtækisins séu settir fram með villandi hætti af ráðnum hug.

Stórar vatnsaflsvirkjanir endurnýjanlegar?

Sameinuðu þjóðirnar hafa útnefnt 2012 ár endurnýjanlegrar orku fyrir alla. Á meðal þeirra stofnana og fyrirtækja sem vinna að útbreiðslu hennar er IRENA, en það stendur fyrir The International Renewable Energy Agency, eða Alþjóðastofnun um endurnýjanlega orku. Aðalstöðvar hennar eru í Abu Dhabi, en í Bonn er að finna Nýsköpunar- og tæknimiðstöð stofnunarinnar sem er undir stjórn Dolfs Gieden.

Skipta þarf um legu í vél Þórs

Skipta þarf um legu í annarri af aðalvélum Varðskipsins Þórs vegna bilunar sem upp kom í vélinni. Önnur af aðalvélum skipsins er ónothæf vegna bilunarinnar, en hægt er að sigla skipinu á hinni vélinni, að því er fram kom í fréttum RÚV í gær.

Sameinast þarf um afnámsáætlun hafta

Stjórnmálaflokkarnir auk aðila vinnumarkaðarins verða að ná breiðri samstöðu um afnám gjaldeyrishafta. Eftir þessu kölluðu bæði Árni Páll Árnason og Ólöf Nordal, þingmenn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks, á fundi Samtaka atvinnulífsins um afnám hafta undir yfirskriftinni Brýnasta hagsmunamál Íslendinga, á Hilton Reykjavik Nordica í gær.

Mýrarnar álitlegar til að reisa vindorkuver

Vinnuhópur í Borgarfirði segir þróun í verði orkugjafa og í umhverfismálum fullt tilefni til að kanna nýtingu vindorku. Þrír staðir í Borgarbyggð eru sagðir koma til greina. Landsvirkjun segir Suðurland þó álitlegast fyrir vindorkuver.

Laupur stöðvar skólabjölluna

Það er ekki lengur hringt inn úr frímínútum með rafknúinni bjöllu í Austurbæjarskóla. Bjallan var aftengd þegar í ljós kom laupur, sem er hreiður hrafns, nálægt henni yfir aðalinnganginum.

Ísland mátti ekki verða stjórnlaust

Ólafur Ragnar Grímsson taldi sér skylt að hugleiða hvernig hægt yrði að tryggja að landið yrði ekki stjórnlaust á hættutímum í kringum stjórnarslitin í janúar 2009 með því að huga að myndun utanþingsstjórnar.

Enginn annar seðlabanki safnar viðlíka upplýsingum

Persónuvernd segir fyrirhugaðar breytingar á lögum um gjaldeyrismál ekki samrýmast sjónarmiðum um einkalífsrétt í lýðræðisríki. Óbreytt eykur frumvarpið mjög heimildir Seðlabankans til upplýsingasöfnunar.

Hafnar ávirðingum ráðuneytisins alfarið

Þorvarður Gunnarsson, forstjóri Deloitte, hafnar gagnrýni sjávarútvegsráðuneytisins á útreikninga um áhrif kvótafrumvarpa. Hann segir orð ráðuneytisins um fjárfestingar í óskyldum rekstri „bábilju“ og „orðaleppa“ með ólíkindum.

Aðeins Hollendingar og Bretar styðja ESA

EFTA-réttinum bárust aðeins fjórar athugasemdir frá EES-ríkjum. Bretar og Hollendingar styðja ESA, en Noregur og Liechtenstein styðja sjónarmið Íslands. Utanríkisráðherra telur málflutning Íslands hafa skilað sér til annarra EES-ríkja.

Ásmundur: "Hreinlega skil ekki hvað gerðist"

Ásmundur Friðriksson, sem rekinn var úr stóli bæjarstjóra í Garði í kvöld, segir að uppsögn sín hafi ekkert að gera með hótanir sem bárust Kolfinnu Magnúsdóttur, bæjarfulltrúa í Garði. Kolfinna sleit meirihlutasamstarfi D-listans og gekk til liðs við N-listann um síðustu helgi. Stuttu eftir það var Kolfinnu hótað líkamsmeiðingum

"Ástsjúk" stúlka lést úr berklum

Réttarrannsókn í Bretlandi hefur leitt í ljós að læknar hinnar fimmtán ára gömlu Alinu Sarag töldu hana vera ástsjúka. Alina lést úr berklum og nú krefjast foreldrar hennar réttlætis.

Miðar á Landsmót hestamanna rjúka út

Met var slegið í forsölu vegna Landsmóts Hestamanna sem haldið verður í Reykjavík í sumar. Haraldur Örn Gunnarsson, framkvæmdastjóri mótsins, segir að Landsmótið sé ekki aðeins hátíð hestafólks heldur einnig mannlífsviðburður.

Bæjarstjóri í Garði rekinn

Ásmundur Friðriksson hefur formlega verið rekinn úr starfi bæjarstjóra í Garði. Aukafundi bæjarstjórnar er nýlokið en uppsögn bæjarstjórans var samþykkt þar.

Nýdönsk fagnar 25 ára afmæli í Eldborg

Hjómsveitin Nýdönsk heldur upp á 25 ára starfsafmæli sitt á þessu ári. Af því tilefni mun hljómsveitin standa fyrir afmælistónleikum í Eldborgarsal Hörpu, 22. september, og í Hofi á Akureyri viku síðar.

Tunnusláttur á Austurvelli

Hópur fólks slær nú tunnur og ljósastaura fyrir utan Alþingi á Austurvelli en þau mótmæla aðgerðarleysi stjórnvalda vegna skuldavanda heimila í landinu.

Sjá næstu 50 fréttir