Innlent

Skipta þarf um legu í vél Þórs

Skipta þurfti um aðra vél Þórs í Noregi nýverið, og er skipið nýkomið aftur til landsins eftir viðgerðina.
Skipta þurfti um aðra vél Þórs í Noregi nýverið, og er skipið nýkomið aftur til landsins eftir viðgerðina.
Skipta þarf um legu í annarri af aðalvélum Varðskipsins Þórs vegna bilunar sem upp kom í vélinni. Önnur af aðalvélum skipsins er ónothæf vegna bilunarinnar, en hægt er að sigla skipinu á hinni vélinni, að því er fram kom í fréttum RÚV í gær.

Bilunin kom í ljós þegar skipið sigldi frá Noregi um síðustu mánaðamót. Framleiðandi vélbúnaðarins í skipinu, Rolls Royce, ber ábyrgð á vélinni og mun skipta um leguna á næstu dögum. Kostnaðurinn mun ekki falla á Landhelgisgæsluna. - bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×