Segir vitnum bæði mútað og hótað 18. maí 2012 06:00 Charles Taylor
Charles Taylor, fyrrverandi forseti Líberíu, lýsir samúð sinni með fólki í Síerra Leóne, sem orðið hefur fyrir þjáningum af völdum glæpa. Sjálfur segist hann hins vegar ekkert rangt hafa gert og biðst hvorki afsökunar né sýnir iðrun vegna þeirra stríðsglæpa, sem hann hefur verið dæmdur sekur um af stríðsglæpadómstól. Auk þess sakar hann sækjendur í málinu um að hafa mútað og hótað vitnum til þess að bera vitni gegn honum. Taylor var sakfelldur fyrir margvíslega stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni, þar á meðal morð, nauðganir og notkun barna í hernaði í tengslum við borgarastríðið í Síerra Leóne, nágrannaríki Líberíu. Þeirri styrjöld lauk árið 2002 og hafði þá kostað meira en 50 þúsund manns lífið. „Það sem ég gerði, var gert með sóma,“ sagði hann fyrir rétti á miðvikudag, þegar hann fékk tækifæri til að ávarpa dómstólinn í síðasta sinn áður en dómarar kveða upp úrskurð um refsingu í málinu. Það á að gera 30. þessa mánaðar. „Ég var sannfærður um að án friðar í Síerra Leóne gæti Líbería ekki þróast áfram,“ sagði hann, og fór fram á að úrskurður dómstólsins yrði ekki byggður á hefndarhug heldur sáttahug. - gb
Mest lesið Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Gufunesmálið: „Þetta átti aldrei að fara svona“ Innlent Finna áhugann dvína á meðan vinir berjast og deyja á vígvellinum Innlent Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Erlent „Það fer enginn lífvörður út í“ Innlent Gefur sig fram fimmtíu árum eftir bankarán í Kópavogi Innlent Reyndi að kaupa glás af nammi og kom upp um tíu ára bankaræningja Innlent Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Erlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Erlent Sálfræðingar rukka hátt í 26 þúsund krónur Innlent Fleiri fréttir Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Liðþjálfi skaut fimm aðra hermenn Fúlsaði við þriggja forseta fundi Segja enn og aftur brotið gegn Folbigg Gefa grænt ljós á lengstu hengibrú í heimi „Fordæmalausar hörmungar“ í Frakklandi Aðeins 1,5 prósent ræktarlands enn aðgengilegt og nýtanlegt Segist eiga fund með Pútín Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Fimm hermenn skotnir á herstöð Tvöfaldar tolla á Indland vegna kaupa á rússneskri olíu Stefnir í kjördæmastríð í Bandaríkjunum? Nýr forseti Póllands vill draga úr áhrifum ESB Stendur í vegi rannsóknar á milljarða svikamyllu Birtist óvænt á þaki Hvíta hússins Yfir 400.000 tilkynningar um kynferðisofbeldi Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Minntust fórnarlambanna í Hírósíma Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Sjá meira