Atvinnurekstri skipt út fyrir atvinnulíf 18. maí 2012 03:15 Hulda Bjarnadóttir
Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) skipti um nafn á aðalfundi í vikunni og heitir nú Félag kvenna í atvinnulífinu. Á sama fundi var ákveðið að félagið LeiðtogaAuður yrði framvegis starfrækt sem fagdeild innan FKA. „Fyrstu árin var félagið eingöngu hugsað fyrir konur sem áttu fyrirtæki. Þessu var breytt árið 2008 og þá var opnað fyrir inngöngu þeirra kvenna sem gegna leiðtoga- og stjórnunarstöðum í atvinnurekstri,“ segir Hulda Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri FKA, um nýja nafnið, sem þykir lýsa tilgangi þess og starfsemi betur í dag. „Hér er því í raun um rökrétt framhald að ræða því með þessu náum við að sameina konur í rekstri hvort heldur sem þær eiga fyrirtækin eða reka þau fyrir aðra“ LeiðtogaAuður varð til í tengslum við verkefnið Auður í krafti kvenna sem stóð yfir á árunum 2000 til 2003. Félagskonur eru nú um 120 og langflestar þeirra í stjórnendastöðum hjá stórum og meðalstórum fyrirtækjum. FKA var stofnað árið 1999 og hefur markmið félagsins frá upphafi verið að gæta hagsmuna, efla samstöðu og samstarf kvenna í atvinnurekstri. Um 700 konur eru skráðar í félagið. Í stjórn FKA eru Hafdís Jónsdóttir, formaður, Bryndís Emilsdóttir Ingibjörg Gréta Gísladóttir Ingibjörg Guðmundsdóttir, Marín Magnúsdóttir, Rúna Magnúsdóttir og Svava Johansen.- sh
Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Sjá meira