Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hæstiréttur staðfestir nauðgunardóm Hæstiréttur Íslands hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir karlmanni sem sakfelldur var fyrir nauðgun í september á síðasta ári. Maðurinn var fundinn sekur um að hafa veist að konu á Austurvelli í Reykjavík er hún hafði þvaglát og stungið tveimur fingrum í endaþarm hennar. 16.5.2012 18:02
Skekkja í forsetakönnun - kjósendur eldri en 67 ára ekki með "Þetta er kerfisbundin skekkja, ég hefði haldið að aldursmarkið þyrfti að vera hærra," segir Hulda Þórisdóttir, lektor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Í nýlegri könnun sem MMR framkvæmdi á dögunum um fylgi við forsetaframbjóðendur var úrtakið einungis fólk á aldrinum 18 ára til 67 ára. 16.5.2012 17:04
Fingralangir nammigrísir handteknir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo nammigrísi en þeir stálu sælgæti úr verslun í miðborginni. 16.5.2012 17:00
Listaverk í snjónum á Seyðisfirði Þrátt fyrir að langt sé komið fram í maí snjóaði á Seyðisfirði í gær. Fréttastofu barst þessi skemmtilega mynd, sem sjá má hér til hliðar, sem listamaður við bryggjuna á Seyðisfirði gerði í snjónum í gær. Myndina tók Guðmundur Bjarnason. 16.5.2012 15:44
Á 60 kílómetra hraða í 30-götu Brot 89 ökumanna voru mynduð á Digranesvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Digranesveg í austurátt, gegnt MK. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 167 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 53%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Ellefu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 61. 16.5.2012 15:24
Yfir 10 stiga hiti víða um land um helgina - líka rigning Það fer að hlýna svo vorið er að koma, segir veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Á morgun, uppstigningardag, er spáð slyddu eða snjókomu fyrir norðan en skýjað verður hér í bænum. 16.5.2012 15:22
Michael Caine læstist inni í búningsherbergi í heila nótt Stórleikarinn Michael Caine lenti í því óláni á dögunum að læsast inni í búningsherbergi sínu. Caine var við tökur á kvikmynd í New Orleans í Bandaríkjunum og hafði honum verið úthlutað herbergi á hálofti gamals leikhúss sem löngu er hætt að nota. 16.5.2012 15:18
List án landamæra fékk mannréttindaverðlaunin Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, afhenti fulltrúum Listahátíðarinnar List án landamæra mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar við hátíðlega athöfn í Höfða í dag á mannréttindadegi Reykjavíkurborgar. 16.5.2012 15:06
Líkur aukast á brotthvarfi - fréttaskýring Undanfarna daga og vikur hafa bæði evrópskir stjórnmálaleiðtogar og evrópskir bankar verið að kortlegga afleiðingar þess, að Grikkland segði skilið við evruna, og hvaða skref þyrfti að taka bæði í aðdraganda og eftirleik útgöngu Grikkja. 16.5.2012 15:00
Kosið í Grikklandi 17. júní Þingkosningar í Grikklandi verða endurteknar þann 17. júní næstkomandi. Þetta var ákveðið á neyðarfundi sem forseti landsins boðaði til í dag með leiðtorgum stjórnmálaflokka landsins. Stjórnmálaflokkar sem eru andvígir niðurskurðaráætlun Evrópusambandsins hlutu meirihluta í þingkosningunum þann 6. maí síðastliðinn en þeim hefur hins vegar ekki tekist að mynda stjórn síðan þá. Því hefur verið ákveðið að ganga aftur til kosninga um miðjan júní. 16.5.2012 14:32
Frestur til að skila athugasemdum í Icesave-málinu rann út í gær Í gær rann út frestur til að skila skriflegum athugasemdum í Icesave-málinu. Fjögur ríki skiluðu athugasemdum til EFTA-dómstólsins, en það eru Bretland, Holland, Liechtenstein og Noregur. 16.5.2012 14:13
Blátt áfram lyklakippurnar geta verið hættulegar börnum Bláu hjartalöguðu lyklakippurnar sem seldar voru í landsöfnunni Blátt áfram í byrjun mánaðarins geta verið hættulegar ungum börnum. Auðvelt er að taka kippurnar í sundur og getur það skapað hættu fyrir börn á aldrinum 0 til 3 ára þar sem hún inniheldur smáhluti svo sem lítil batterí og ljós. Þetta kemur í tilkyningu frá Blátt áfram. 16.5.2012 14:01
Segir netárásir á lítið varin fyrirtæki ógnvænlega þróun Mörg dæmi eru um netárásir á fyrirtæki á síðustu tveimur árum, árásir sem voru mögulegar vegna þess að fyrirtækin stóðu ekki nægilega vel að öryggismálum, segir Csaba Barta, sérfræðingur í netöryggismálum hjá Deloitte í Þýskalandi. 16.5.2012 14:00
Handtekinn með hálft kíló af maríjúana og hálfa milljón Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann hálft kíló af marijúana við húsleit í íbúð í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði í gær. Að sögn lögreglu var á sama stað einnig lagt halt á um 500 þúsund krónur en það er mat lögreglu að peningarnir hafi verið tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Karl á þrítugsaldri var handtekinn í vegna málsins sem er í rannsókn. 16.5.2012 12:43
Besta tillagan að stofnun Vigdísar verðlaunuð í dag Verðlaun verða afhent í hönnunarsamkeppni um byggingu fyrir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands í dag klukkan þrjú. Athöfnin verður á Háskólatorgi. Byggingin, sem verður þrjú þúsund fermetrar, mun rísa við Suðurgötu næst gömlu Loftskeytastöðinni að því er fram kemur í tilkynningu frá Háskóla Íslands. 16.5.2012 12:30
Villti ökumaðurinn var próflaus Björgunarsveitarmenn frá Kópaskeri og síðan Mývatni eyddu miklum tíma og fyrirhöfn í nótt við að leita að ramvilltum íslenskum ferðamanni, sem fannst loks í föstum bíl sínum á lokuðum hálendisvegi í morgun. Hann reyndist vera próflaus. 16.5.2012 12:15
Skylt að afhenda gögnin Lögmanni tuga kvenna sem ætla í mál við Jens Kjartansson lýtalækni, er skylt að afhenda skattrannsóknastjóra nöfn kvennanna. Þetta kemur fram í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur frá í morgun. 16.5.2012 12:15
Gras í Garðabæ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Garðabæ um miðjan dag í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald nokkra tugi kannabisplantna auk lítilræðis af öðrum fíkniefnum. Ræktunin var vel falin í kjallara hússins í rými sem var sérstaklega útbúið fyrir þessa starfsemi, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. 16.5.2012 11:55
Kattafár í Svarfaðardal veldur lambadauða "Þetta er auðvitað gríðarlegt tjón fyrir mig sem að öllum líkindum fæst ekki bætt," segir Sigurður Bjarni Sigurðsson, bóndi á bænum Brautarhóli í Svarfaðardal. Á annað hundrað lömb hafa drepist eða fæðst andvana á bænum á síðustu mánuðum vegna einfrumungar sem borist hefur í fóður frá villiköttum sem leika lausum hala í sveitinni. Dýralæknir segir að fleiri bændur á svæðinu hafi lent í því sama. 16.5.2012 10:55
Danskur prestur neitaði að jarða lesbíu Prestur í Álaborg í Danmörku neitaði að jarða konu sem lést dögunum á þeim grundvelli að konan var samkynhneigð. 16.5.2012 09:23
14 ára með fíkniefni Lögreglan hafði afskipti af nokkrum mönnum í borginni í gær í tengslum við fíkniefnaeftirlit hennar. Lagt var hald á bæði amfetamín og marijúana en sá yngsti sem kom við sögu í þessum málum er aðeins 14 ára, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. 16.5.2012 11:35
Réttað yfir Mladic Aðalmeðferð hefst í dag yfir Ratko Mladic sem stýrði herjum Serba í Bosníustríðinu á tíunda áratugi síðustu aldar. Réttarhöldin fara fram í Haag hjá alþjóðaglæpadómstólnum en Mladic er ákærður fyrir stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyninu. 16.5.2012 10:38
Reyna að mynda bráðabirgðastjórn Forseti Grikklands hefur boðað stjórnmálaleiðtoga landsins á sinn fund í dag þar sem stendur til að mynda bráðabirgðastjórn uns hægt verður að ganga til kosninga að nýju í landinu í næsta mánuði. Hvorki hefur gengið né rekið við myndun ríkisstjórnar eftir þingkosningarnar á dögunum og því þurfa Grikkir að ganga aftur að kjörborðinu. Ráðamenn í Evrópusambandinu óttast að flokkarnir sem voru andsnúnir björgunarpakka sambandsins til handa Grikkjum bæti enn meira fylgi við sig í kosningunum sem framundan eru. Það myndi væntanlega leiða til þess að Grikkir hætti í evrusamstarfinu. 16.5.2012 10:34
Situr í varðhaldi og vill milljón frá ríkinu Einar ‚Boom‘ Marteinsson, fyrrverandi leiðtogi íslenskra Vítisengla, hefur höfðað mál gegn íslenska ríkinu og krefur það um eina milljón króna í miskabætur vegna símhlerunar lögreglu árið 2009. Einar er í fimm manna hópi sem hefur verið ákærður fyrir hrottalega líkamsárás og nauðgun og hefur setið í gæsluvarðhaldi í hálft ár. 16.5.2012 10:30
Eftirlýstur í tólf ár í Kosta Ríka Paul Watson, hinn umdeildi stofnandi Sea Shepherd samtakanna sem berjast gegn hvalveiðum, hefur verið handtekinn í Þýskalandi. Svo gæti farið að hann verði framseldur til Kosta Ríka en þar hefur hann verið eftirlýstur frá 2002 þegar samtökin stöðvuðu ólöglegar hákarlaveiðar. Hann gæti átt yfir höfði sér kæru fyrir morðtilraun. 16.5.2012 10:00
Engar konur á Cannes Kvikmyndahátíðin fræga í Cannes í Frakklandi hefst í dag en hátíðin í ár hefur verið gagnrýnd fyrir skort á myndum eftir konur. Opnunarmynd hátíðarinnar að þessu sinni er Monnrise Kingdom eftir bandaríska leikstjórann Wes Anderson og með stórleikarann Bill Murrey í aðalhlutverki. 16.5.2012 09:19
Kvótinn að klárast í strandveiðunum Strandveiðibátar á svæði A, eða frá Snæfellsnesi inn í Ísafjarðardjúp eru búnir með maíkvóta sinn og mega ekki róa aftur fyrr en um mánaðamótinn, þegar júníkvótinn kemur til skiptanna. 16.5.2012 09:13
Ók á staur - var að teygja sig eftir gemsanum 17 ára piltur missti stjórn á bíl sínum á Akureyri í nótt með þeim afleiðingum að bíllinn hafnaði á ljósastaur. Pilturinn var fluttur á sjúkrahúsið til aðhlynningar en reyndist ekki mikið meiddur en bíllinn var óökufær eftir. 16.5.2012 09:00
Borgar bara undir tvo álfa af sjö „Steinninn er 24 tonn!“ kallaði Arnar Kristjánsson úr krana sínum þegar búið var að hífa á loft bjarg allmikið við Litlu-kaffistofuna um klukkan hálftíu í gærmorgun. Eftir nokkuð baks við að koma klettinum fyrir á tengivagni vörubíls, var lagt af stað með hann í Landeyjahöfn rétt upp úr klukkan tíu. Þaðan fór steinninn og fylgdarlið með Herjólfi til Vestmannaeyja. Seinni partinn var steinninn kominn upp í garðinum hjá Árna Johnsen alþingismanni. 16.5.2012 09:00
Ráðuneytið segir Deloitte falsa tölur Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið segir endurskoðunarfyrirtækið Deloitte falsa tölur í greinargerð sinni um afleiðingar veiðigjalds. Niðurstöður fyrirtækisins séu ekki marktækar og ekki hægt að byggja á þeim. 16.5.2012 09:00
Tenging milli matarvenja og sykursýki Fólk sem borðar hratt er líklegra til að þróa með sér tegund 2 af sykursýki en þeir er snæða hægt og rólega. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem gerð var við Háskólann í Litháen og kynnt á ráðstefnunni International Congress of Endocrinology. 16.5.2012 09:00
Norðmenn taka undir með Íslandi Norsk stjórnvöld taka undir mörg sjónarmið Íslands í Icesave-málinu fyrir EFTA-dómstólnum, í skriflegum athugasemdum til dómsins. 16.5.2012 08:30
Svörtu kassarnir fundnir Björgunarlið í Indónesíu hefur fundið svörtu kassana úr rússnesku Sukhoi þotunni sem hrapaði í landinu á dögunum með þeim afleiðingum að allir um borð, fimmtíu talsins, fórust. Vélin, sem var af nýrri tegund farþegavéla sem Rússar voru að reyna að selja Indónesum, hrapaði í hlíðum eldfjalls tæpri klukkustund eftir að hafa lagt af stað í kynningarflug frá höfuðborginni Jakarta. Vonast er til að kassarnir geti varpað ljósi á hvað varð til þess að vélin hrapaði en rannsókn á kössunum ætti að taka tvær til þrjár vikur. 16.5.2012 08:08
180 kindum fargað vegna vanfóðrunar Þrír sauðfjárbændur hafa verið kærðir til lögreglu í vetur vegna brota á lögum um dýravelferð. Tvö önnur mál bíða sömu meðferðar. Farga hefur þurft sauðfé af fimm sauðfjárbúum vegna vanfóðrunar. Undirliggjandi félagslegur vandi eigendanna reynist vera ástæða vanrækslunnar í verstu málunum. 16.5.2012 08:00
Björgunarsveitir aðstoða fasta ferðamenn Björgunarsveitarmenn frá Kirkjubæjarklaustri voru kallaðir út í gærkvöldi til að aðstoða erlenda ferðamenn sem sátu fastir í bíl sínum við Lakagíga. Leiðangurinn gekk vel og sama er að segja um leiðangur björgunarsveitarmanna úr Borgarfirði, sem fóru í gærkvöldi að aðstoða erlenda ferðamenn í föstum bíl á Hraunhreppsvegi. 16.5.2012 07:19
Búist við stýrivaxtahækkun í dag Búist er við því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynni um stýrivaxtahækkun í dag. Verðbólga það sem af er ári hefur reynst meiri en spár bankans sögðu til um þrátt fyrir að bankinn hafi tvisvar hækkað vexti síðasta hálfa árið. 16.5.2012 07:00
Heimaey sigldi í höfn í Vestmannaeyjum í gær Heimaey VE 1, glæsilegt uppsjávarveiðiskip Ísfélagsins í Vestmanneyjum, kom til heimahafnar í gær. Skipið hefur verið í smíðum í fimm ár, en smíði þess tafðist vegna náttúruhamfara í smíðalandinu Síle. Fjölmenni safnaðist saman í Friðarhöfn í Eyjum til að taka á móti hinu glæsilega skipi og áhöfn þess en það var Guðbjörg Matthíasdóttir, aðaleigandi Ísfélagsins, sem tók á móti landfestum þegar til hafnar var komið. 16.5.2012 05:30
Fólkið frætt í matjurtagarði Grasagarðurinn í Laugardal býður nú í maí áhugafólki um matjurtarækt að líta við og fræðast um sáningu, útplöntun og umhirðu matjurta. Þar er að mestu búið að stinga upp og jarðvegsbæta garðinn eftir því sem þörf krefur. 16.5.2012 05:00
Ríkiskaup semja um flugferðir Ríkiskaup hafa gert nýjan samning við Flugfélag Íslands um afsláttarkjör á flugsætum innanlands. Allar opinberar stofnanir munu njóta að lágmarki 20 prósenta afsláttar af fullu verði sé greitt með svokölluðu Flugkorti Flugfélags Íslands. Þær stofnanir sem ekki eru með Flugkort þurfa að sækja um slíkt. 16.5.2012 04:15
Útlendingastofnun fái fjármagn Innanríkisráðuneytið leggur til að fjárframlög til Útlendingastofnunar verði aukin svo hægt verði að flýta málsmeðferð hælisleitenda hér á landi. Þetta kemur fram í minnisblaði sem Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra lagði fram á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun. 16.5.2012 04:00
Tvöfalt fleiri stunda vændi Fjöldi erlendra vændiskvenna í Kaupmannahöfn tvöfaldaðist frá 2009 til 2011. þetta er mat lögreglunnar og hjálparsamtakanna Reden International, að því er metroXpress greinir frá. Flestar konurnar eru frá Rúmeníu og Nígeríu og er talið að flestar þeirra hafi verið blekktar til vændis. 16.5.2012 04:00
Sprengdu búðir sjóræningjanna Þyrlusveitir undir merkjum Evrópusambandsins gerðu árás á bækistöðvar sjóræningja í Sómalíu í gær og eyðilögðu meðal annars birgðageymslu. 16.5.2012 03:00
Hélt strax á fund við Merkel Aðeins fáeinum klukkustundum eftir að François Hollande tók við forsetaembættinu í Frakklandi hélt hann til Þýskalands á fund við Angelu Merkel kanslara. 16.5.2012 02:00
Fjórtán teknir fyrir slagsmál Fjórtán félagar í dönskum vélhjólaklíkunum voru í gær dæmdir í fangelsi fyrir hópslagsmál í Esbjerg í fyrra. Mennirnir eru annars vegar meðlimir Bandidos og stuðningshópsins Guardias Diablos og hins vegar í AK81, sem er stuðningshópur Vítisengla. Meðal hinna dæmdu er foringi Bandidos í Esbjerg og dómarnir eru frá fjórum upp í fjórtán mánuði. 16.5.2012 01:00
Brooks vísar ákærum á bug Rebekah Brooks, fyrrverandi framkvæmdastjóri vikublaðsins News of the World, hefur verið ákærð fyrir að hafa reynt að halda leyndum upplýsingum um símhleranir, sem stundaðar voru af blaðamönnum blaðsins. 16.5.2012 00:00