Fleiri fréttir

Flytja inn sement í stað þess að framleiða

Sementsverksmiðjan á Akranesi mun brátt hætta eigin framleiðslu breytist aðstæður á markaði fyrirtækisins ekki verulega á næstunni. Það hefði óhjákvæmilega í för með sér fækkun starfa hjá fyrirtækinu, að því er segir í fréttatilkynningu frá verksmiðjunni.

Mikill sandur í hafnarmynni Landeyjahafnar

Mikill sandur hefur safnast fyrir framan hafnarmynni Landeyjahafnar og er dýpið þar aðeins þrír metrar, en þarf að vera sex metrar svo höfnin nýtist Herjólfi.

Vill fresta þingkosningum í Egyptalandi

Mótmæli og götubardagar stóðu yfir langt fram á nótt á Friðartorginu í Kaíró og nú er óttast að borgarastyrjöld brjótist út í landinu.

Norðmenn vilja sameina neyðarnúmerin

Fulltrúar öryggismála og frá neyðarþjónustu í Noregi eru nú staddir hér á landi til að kynna sér fyrirkomulag fjarskiptaleiða Neyðarlínunnar.

Verkfall lamar Portúgal

Öll flugumferð í Portúgal liggur niðri sem og flestar opinberar samgöngur í landinu eftir að sólarhringslangt allsherjarverkfall hófst í landinu í gærkvöldi.

Örykjar mótmæla skerðingu á kjörum sínum

Aðalstjórn Öryrkjabandalagsins mótmælir harðlega þeim alvarlegu skerðingum á kjörum öryrkja, sem fyrirhugaðar eru af hálfu stjórnvalda og birtast meðal annars í frumvarpsdrögum Velferðarráðuneytisins.

Enn einn neyðarfundur um skuldakreppuna

Leiðtogar þriggja stærstu hagkerfa evrusvæðisins halda enn einn neyðarfundinn í Strassburg í dag til að ræða aðgerðir gegn skuldakreppunni.

Brotist inn í heimahús

Brotist var inn í heimahús í Reykjavík um miðnætti og þaðan stolið leikjatölvu. Þjófurinn komst undan. Þjófar sem brutust inn í tölvuverslun í fyrrinótt og stálu þaðan átta tölvuskjám, eru ófundnir.

Gígjökulslón er þornað upp

Hálft annað ár er nú frá gosinu í Eyjafjallajökli sem lamaði samgöngur um heim allan. Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari brá sér upp að Gígjökli, þaðan sem mestu hlaupin urðu í fyrra.

Merkel hafnar hugmyndinni

Angela Merkel Þýskalandskanslari hafnar hugmyndum sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnti í gær til lausnar á skuldavanda evruríkjanna.

Tæplega 1.100 bíða eftir félagslegri íbúð

Nær 1.100 manns bíða eftir félagslegu leiguhúsnæði í Reykjavík, Hafnarfirði og Kópavogi. Um síðustu mánaðamót biðu 706 eftir félagsíbúð í Reykjavík en af þeim uppfylla 412 skilyrði um að gerast leigutakar hjá Félagsbústöðum. Langflestir þessara 412 umsækjenda, eða 349 manns, bíða eftir eins til tveggja herbergja íbúð.

Herforingjastjórnin sögð hafa brugðist byltingunni

Sameinuðu þjóðirnar krefjast óháðrar rannsóknar á atburðunum í Egyptalandi. Amnesty International sakar herforingjana um alvarleg mannréttindabrot. Tugir mótmælenda hafa látið lífið síðustu daga.

Lofað refsileysi í stað afsagnar

Ali Abdullah Saleh, forseti Jemen, afsalaði sér í gær völdum og féllst á að varaforseti sinn, Abed Rabbo Mansor Hadi, tæki við af sér.

Björgunaráætlun Apollo 13 fer á uppboð

Gátlisti James Lovell sjóliðsforingja og stjórnanda Apollo 13 geimfarsins fer á uppboð í næstu viku. Listinn er einn merkilegasti minnisgripur geimferðaáætlunar NASA.

ÍR og Leiknir mætast í minningarleik um Hlyn Þór

"Ég var hugsi um síðustu helgi og var að pæla hvað ég gæti gert til þess að heiðra minningu hans og fékk þessa hugmynd,“ segir Brynjar Ingi Erluson, vinur og fyrrum liðsfélagi Hlyns Þórs Sigurðssonar, sem lést á fóboltaæfingu á ÍR-vellinum fyrir tveimur árum.

Ótrúlegt myndband af þjófum að ræna tölvuverslun

Það tók þrjá þjófa einungis tuttugu sekúndur að stela átta tölvuskjám úr verslun í Kópavogi í nótt. Eigandinn segir þetta tuttugustu ránstilraunina á tveimur árum og ránsfengurinn sé líklegast kominn í hendur kaupenda nú þegar.

Öryrkjar mótmæla skerðingu á kjörum

Öryrkjabandalag Íslands mótmælir harðlega þeim alvarlegu skerðingum á kjörum öryrkja sem fyrirhugaðar eru af hálfu Ríkisstjórnar Íslands. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á fundi aðalstjórnar ÖBÍ í dag.

Vonir um risaolíulindir á Drekasvæðinu

Niðurstöður sem Olíustofnun Noregs kynnti í gær sýna að berglögin á Jan Mayen-hryggnum eru þau sömu og á olíusvæðunum í Noregshafi. Norskir sérfræðingar telja líkur á risaolíulindum á Drekasvæðinu sem geymi stjarnfræðileg verðmæti.

17 milljóna króna lán í 140 milljónum árið 2047?

„Ég er búinn að tapa öllum mínum peningum,“ segir Frosti Logason, útvarpsmaður í þættinum Harmageddon á Xinu 977. Hann segir að, ef það verði fimm prósent verðbólga hér á landi út lánstímann á 17 milljón króna láni sínu, sem hann tók árið 2006, verði hann búinn að borga bankanum 140 milljónir króna árið 2047.

Fílarnir að deyja úr hita í Zimbabve

Mikil hitabylgja hefur nú varað samfleytt í þrjá mánuði í Zimbabve í Afríku og segja náttúruverndarsamtök að 77 fílar hið minnsta hafi drepist úr hita á tímabilinu. Hitinn er svo mikill að vatnsból hafa þurrkast upp en viðvarandi fjörutíu gráða hiti hefur verið á svæðinu undanfarna mánuði. Þá er óttast að mun fleiri dýr hafi drepist í landinu en litlum peningum er varið til náttúruverndar í landinu og því erfitt að fylgjast náið með ástandinu.

Finna flug með öðrum

Finna á leiðir til að það fólk sem átti pantað flug með Iceland Express til Bandaríkjanna á morgun geti flogið með öðrum flugfélögum. Iceland Express ákvað á dögunum að hætta flugi til Bandaríkjanna. Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi Iceland Express, vill ekki gefa upp um hversu marga farþega er að ræða. "Við gefum það ekkert upp. Það er bara viðskiptamál," segir Heimir Már.

Fleiri fórnarlömb stíga fram - lokaði sárum með lími

Fleiri fórnarlömb konunnar sem stundaði lýtalækningar án leyfis í Miami í Bandaríkjunum hafa stigið fram. Konan er sögð hafa lofað lögulegum afturenda með því að fylla rasskinnar sjúklinga sinna með sementi og kítti. Í sumun tilfellum lokaði hún sárunum með lími.

Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald yfir meintum skotmanni

Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem grunaður er um að hafa átt aðild að skotárás í Bryggjuhverfi þann átjánda nóvember síðastliðinn. Tveir menn eru í haldi lögreglu vegna málsins en hinum þriðja hefur þegar verið sleppt. Lögregla segist hafa rökstuddan grun um að sá sem um ræðir tengist árásinni. Hann skal sæta varðhalds fram til næstkomandi föstudags.

ESB leggst ekki gegn ríkissölu áfengis

Evrópusambandið mun ekki leggjast gegn einkasölu ríkisins á áfengi og tóbaki eins og hún er stunduð á Íslandi. Þetta kom fram í máli Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra á opnum fundi utanríkismálanefndar Alþingis í dag.

Kveikt á Oslóar-trénu á sunnudaginn

Ljósin verða tendruð á Oslóar-jólatrénu á Austurvelli á sunnudaginn kemur. Nú eru sextíu ár liðin frá því íbúar Oslóar færðu Reykvíkingum fyrsta tréð en það hefur ævinlega verið sett upp á Austurvelli og kveikt á því við hátíðlega athöfn fyrsta sunnudag í aðventu. Engin undantekning verður á því í ár og kemur Gunnar Halle trompetleikari frá Noregi fram sem sérstakur gestur Aðventuhátíðar og leikur hann undir jólasöng Dómkirkjukórsins klukkan 16:00, að undangengnum jólatónlistarflutningi Lúðrasveitar Reykjavíkur sem hefst kl. 15.30.

Hafnfirskir unglingar gátu keypt tóbak á fjórum stöðum

Ný könnun sem gerð var á tóbakssölustöðum í Hafnarfirði leiddi í ljós að unglingar gátu keypt sér tóbak á fjórum stöðum af þeim nítján sem kannaðir voru eða á um 20 prósent staðanna. Forvarnafulltrúi Hafnarfjarðar stendur reglulega fyrir könnun af þessu tagi og nú fóru tveir unglingar úr 10. bekk á sölustaði undir eftirliti starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar og reyndu að kaupa sígarettur.

Peningaeiganda enn leitað

Eigandi veskisins sem lögreglan auglýsti eftir í gær hafði enn ekki gefið sig fram fyrir hádegi í dag, samkvæmt upplýsingum Vísis. Fram kom á Vísi í gær að skilvís maður hefði komið með veskið á stöðina.

Medvedev óánægður með áætlanir Bandaríkjanna

Dmítry Medvedev, forseti Rússlands, hefur gefið til kynna að flugskeytum verði beint að ríkjum Evrópusambandsins ef yfirvöld í Bandaríkjunum láti ekki af áætlunum sínum varðandi flugskeytavarnir.

Árni Johnsen: Byggingu Þorláksbúðar haldið áfram

Haldið verður áfram við byggingu Þorláksbúðar í Skálholti en skyndifriðun húsafriðunarnefndar á Skálholti var synjað af menntamálaráðherra í gær. Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingamála hefur borist kæra vegna byggingaleyfis Þorláksbúðarfélagsins.

Ljóðskáld gagnrýnir rafbókavæðingu

Ljóðskáldið Simon Armitage gagnrýndi rafvæðingu bókmennta í gær. Hann sagði að rétt eins og tónlist og kvikmyndum sé nú dreift ólöglega um internetið þá sé það óumflýjanlegt að bækur mæti sömu örlögum.

Mikill meirihluti á móti lögleiðingu kannabisefna

Rösklega 87% Íslendinga eru frekar eða mjög andvíg því að neysla kannabisefna verði gerð lögleg á Íslandi. Um 12,7% eru frekar eða mjög fylgjandi. Samkvæmt könuninni fjölgar þeim sem eru andvígir lögleiðingu á neyslu kannabisefna á Íslandi frá fyrri könnun MMR. Í nóvember í fyrra voru 83% andvígir lögleiðingu. Um þrefalt fleiri karlar eru hlynntir lögleiðingu fíkniefna en konur, eða 18% á móti 6%.

Ólöglega staðið að ráðningu læknanema

Heilbrigðisstofnun Suðurlands var óheimilt að ráða læknanema í sumarstarf fyrir milligöngu Félags læknanema. Læknanemi, sem ekki var í félaginu, kvartaði til Umboðsmanns eftir að ráðning hans var dregin til baka árið 2009 á þeirri forsendu að nemar yrðu einungis ráðnir fyrir milligöngu félagsins.

Tuttugu ára fangelsi fyrir dónalegt SMS

Dómstóll í Tælandi hefur dæmt sextugan mann til tuttugu ára fangelsisvistar fyrir að senda SMS skeyti sem þóttu móðgandi í garð drottningar landsins.

Fordæmir ofbeldið á Tahrir torgi

Mannréttindafulltrúi Sameinuðu Þjóðanna, Navanethem Pillay, hefur fordæmt meðhöndlun öryggissveita Egyptalands á mótmælunum sem hófust á Tharir torgi um helgina.

Veðrið gengið niður á Hellisheiði

Veður hefur nú gengið niður á Hellisheiði en öngþveiti skapaðist þar í morgun vegna óveðurs. Björgunarsveit var björgunarsveit kölluð út til að aðstoða ökumenn, sem lent höfðu í vandræðum, því lögreglumenn höfðu ekki undan.

Jónas Jónasson látinn

Jónas Jónasson útvarpsmaður lést í gær á líknadeild Landspítalans í Kópavogi. Hann var í faðmi allrar fjölskyldu sinnar þegar hann lést. Jónas starfaði hjá Ríkisútvarpinu um áratugaskeið og síðustu ár naut þáttur hans Kvöldgestir mikilla vinsælda.

Sjá næstu 50 fréttir