Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Flutt á slysadeild eftir mótorhjólaslys Tvennt slasaðist í gærkvöldi þegar mótorhjól fór út af Biskupstungnabraut rétt eftir klukkan tíu. Ökumaður hjólsins missti stjórn á því sunnan við Geysi í Haukadal og lentu hann og farþegi hans utan vegar. Fólkið var flutt á slysadeild í Reykjavík en að sögn lögreglunnar á Selfossi voru meiðsli þeirra ekki alvarleg. 3.5.2010 08:30
Flestir vilja Guðríði sem bæjarstjóra Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar, nýtur mest stuðnings meðal Kópavogsbúa til að verða bæjarstjóri eftir kosningarnar síðar í mánuðinum. Rúmlega 45% vilja að Guðríður verði bæjarstjóri samkvæmt skoðanakönnunum sem unnin var fyrir Samfylkinguna. 3.5.2010 08:27
Hótar hefndaraðgerðum Varnarmálaráðherra Suður-Kóreu segir að þeir sem bera ábyrgð á því að eitt af herskipum landsins sprakk í tvennt og sökk í lok mars verði látnir gjalda fyrir það dýru verði. Skipið var 1200 tonn að stærð með 108 manna áhöfn og fórust 46 sjóliðar. Útför þeirra fór fram í síðustu viku. 3.5.2010 08:16
Aðvarar mótmælendur Abhisit Vejjajiva, forsætisráðherra Tælands, hvetur mótmælendur til að hætta aðgerðum sínum í Bangkok, höfuðborg landsins, annars geti farið illa fyrir þeim. Aðgerðir mótmælenda hafa staðið í meira en sex vikur í höfuðborginni en þeir krefjast þess að þing landsins verði leyst upp, boðað verði til kosninga og að forsætisráðherrann fari úr landi. Hann hafnaði nýverið sáttaboði þeirra sem fólst í því að mótmælum yrði hætt ef þing landsins yrði leyst upp. 3.5.2010 08:14
Al-Kaída ber ekki á ábyrgð á sprengjunni Borgarstjórinn í New York fullyrðir að al-Kaída hryðjuverkasamtökin beri ekki ábyrgð á bílsprengjunni sem sprengja átti á Times Square um helgina. 3.5.2010 07:52
Guðlaugur Þór: Hefur ekki hugleitt afsögn Guðlaugur Þór Þórðarson hefur ekki hugleitt að segja af sér þingmennsku þrátt fyrir háværa kröfu um að þeir sem þáðu hæstu prófkjörsstyrkina víki af Alþingi. Þetta segir hann í viðtali við Fréttablaðið í dag. 3.5.2010 06:30
Kim Jong Il hugsanlega á leiðinni til Kína Kim Jong Il, leiðtogi Norður-Kóreu, er sagður vera á leiðinni í heimsókn til Kína á allra næstu dögum samkvæmt Suður-kóresku fréttastofunni, Yonhap. Ekki hefur fengist staðfest hvort leiðtoginn sé á leiðinni til Kína samkvæmt AP fréttastofunni. 2.5.2010 23:00
Obama kominn til Lousiana vegna mengunarslyss Barack Obama er kominn til Lousiana vegna eins stærsta mengunarslyss í sögu Bandaríkjanna. Olía lekur óheft upp úr borholu í Mexíkóflóa eftir að sprenging varð í olíuborpalli í síðustu viku með þeim afleiðingum að fjöldi starfsmanna létust. 2.5.2010 21:00
Bíll og vélhjól lentu í árekstri Bifreið og vélhjól lentu í árekstri í Suðurhlíð í Reykjavík en lögreglan fékk tilkynningu um slysið um hálf sjö í kvöld. Lögreglan og sjúkraflutningamenn eru enn á vettvangi. Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir á þessari stundu. 2.5.2010 19:08
Pakistanskir Talibanar segjast bera ábyrgð á bílasprengju Herskár hryðjuverkahópur frá Pakistanmeð tengsl við Talibana hefur lýst yfir ábyrgð vegna bílasprengjunnar sem fannst á Times-torgi í gærkvöldi. 2.5.2010 17:30
Ekkert sjúkraflug í Vestmannaeyjum vegna leyfisleysis Flugvélar Flugfélags Vestmannaeyja sem sinna sjúkraflugi milli lands og eyja hafa ekki haft leyfi til þess að fljúga frá því á föstudag samkvæmt fréttavefnum suður.net. 2.5.2010 16:05
Eldsupptök á Hellissandi talin vera helluborð Talið er að það hafi kviknað í út frá helluborði í húsi á Hellissandi í nótt. Þrjú systkini voru á heimilinu þegar eldurinn kom upp rétt fyrir klukka þrjú í nótt. 2.5.2010 14:55
Þorvaldur Gylfason: Vill tryggja framhaldslíf rannsóknarnefndar Þorvaldur Gylfason vill festa rannsóknarnefnd Alþingis í stofnanamynd svo nefndin geti haldið starfi sínu áfram. Hann segir að það þurfi að rannsaka margt. 2.5.2010 13:08
Félag íslenskra bókaútgefenda óttast ólæsi Félag íslenskra bókaútgefenda úthlutaði í dag fyrstu styrkjunum úr nýstofnuðum Skólasafnasjóði til bókasafna grunnskólanna samkvæmt tilkynningu frá Félagi íslenskra bókaútgefenda. 2.5.2010 12:57
Sprengja aftengd á Times torgi Stórtjóni og mannfalli var forðað í miðborg New york í gærkvöldi þegar sprengjusérfræðingum tókst að aftengja sprengju sem fannst í bíl á Time Square. 2.5.2010 12:11
20 mótmælendur fóru að heimilum Guðlaugs og Steinunnar Um 20 mótmælendur tóku sér stöðu fyrir framan heimili Steinunnar Valdísar Óskardóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um matarleytið í gærkvöldi. 2.5.2010 11:49
Reykskynjari bjargaði lífi þriggja á Hellissandi Þrír íbúar komust með naumindum út úr brennandi húsi á Hellissandi í nótt en það var reykskynjari á heimilinu sem vakti þau í tæka tíð. Eldurinn kom upp um þrjú leytið í nótt. 2.5.2010 11:15
Íhaldsflokkurinn með yfirburðastöðu í kosningunum Íhaldsflokkurinn er með sjö til tíu prósentustiga forystu á Verkamannaflokkinn í skoðanakönnunum sem birtar eru í Bretlandi í dag. 2.5.2010 10:01
Olíuflekkur ógnar lífríki á gríðarlega stóru svæði Gríðarlega stór olíuflekkur nálgast austurströnd Bandaríkjanna allt frá Louisiana til Flórída og ógnar fiskimiðum, fjölbreyttu dýralífi við ströndina og stórum fenjasvæðum sem eru mikilvæg fyrir margar plöntur og fugla. 2.5.2010 09:57
Virkni gossins svipað og síðustu daga Ekkert bendir til gosloka. Virkni gossins er svipuð og síðustu átta daga. Hraun heldur áfram að skríða til norðurs og gígur hleðst upp í nyrðsta ískatlinum. 2.5.2010 09:41
Stal tertuhnífi og greiðslukortum Ungur síbrotamaður var handtekinn í Reykjanesbæ í gær en hann braust bæði inn í bíla og húsnæði. Pilturinn, sem er um tvítugt, virðist hafa stolið öllu sem á vegi hans varð en lögreglan lagði meðal annars hald á tertuhníf sem hann hafði tekið af einu heimilinu og geymdi í poka. 2.5.2010 09:32
Þreyttur brandari stöðvaði millilandaflug Flugvél sem var á leiðinni til Kína frá Taipei í Taívan lenti í Hangzhou, sem er í Austur-Kína, vegna þess að karlmaður um borð í flugvélinni sagðist vera með sprengju. 1.5.2010 23:00
Duffy ætlar ekki að kjósa í bresku þingkosningunum Gillian Duffy, sem Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, kallaði fordómafulla konu (e. bigoted), ætlar ekki að kjósa í þingkosningunum í næstu viku samkvæmt breska götublaðinu The Daily mail. 1.5.2010 21:00
Neyðarlög sett í fjórum ríkjum i Bandaríkjunum Neyðarlög hafa verið sett í fjórum ríkjum Bandaríkjanna vegna olíumengunar, í Alabama, Flórída, Missisippi og Lousiana. 1.5.2010 18:41
Dökkur gosmökkur yfir Eyjafjallajökli Eldgosið í Eyjafjallaljökli er enn í fullum gangi og liggur gosmökkurinn nú til suðausturs. Hann er nokkuð dökkur og sést vel á gervitunglamyndum samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Líkur eru á að flug gæti farið úr skorðum snúist vindátt. 1.5.2010 18:30
Þyrla gæslunnar flutti veikan mann frá Vestmannaeyjum Landhelgisgæslan þurfti að flytja veikan mann frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni þá barst henni tilkynning klukkan hálf fjögur í nótt. 1.5.2010 17:57
Kafarar losuðu portúgalskan togara Þremur köfurum frá varðskipi Landhelgisgæslunnar tókst í dag að skera veiðafæri úr skrúfu portúgalska togarans Coimbra sem staddur er á Reykjaneshrygg eða um 240 sjómílur frá Reykjanesi. 1.5.2010 17:55
Gluggar í Intrum einnig brotnir Starfsmenn Intrum Justitia voru að líma yfir gluggana á höfuðstöðvum fyrirtækisins á Laugaveginum nú fyrir stundu en rúður þar virðast hafa verið brotnar. 1.5.2010 17:49
60 Mínútur upp á Eyjafjallajökul Fréttateymi 60 mínútna verður fer upp á Eyjafjallajökul samkvæmt heimasíðu Suður.net. 1.5.2010 17:20
Brutu rúður í Landsbankanum í miðri kröfugöngu Nokkrir einstaklingar voru handteknir eftir að þeir brutu rúður í Landsbankanum. Um er að ræða hóp sem gekk ásamt fjölmenni niður Laugaveginn í kröfugöngu um klukkan hálf tvö í dag. 1.5.2010 16:58
Bubbi spilaði Stál og hnífur á árshátíð Bónus - Jóhannes tók ekki undir Tónlistamaðurinn Bubbi Morthens spilaði lagið Stál og hnífur fyrir starfsmenn Bónus í gærkvöldi en árshátíð verslunarinnar fór fram í samkomusal í Valsheimilinu. 1.5.2010 15:48
Styður upptöku eigna auðmanna Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, segir eignaupptöku á eignum auðmanna ekki vafamál í huga félaga stéttafélagsins í ræðu sinni á Austurvelli sem hún hélt þriðja tímanum í dag. Hún segir ennfremur að það sé nauðsynlegt að gera ráðstafanir til þess að búa slíkri eignaupptöku, sem hluta af sáttargjörð í samfélaginu, viðeigandi lagagrundvöll. 1.5.2010 15:05
Enn haldið sofandi á gjörgæslu Líðan stúlku sem lenti í umferðaslysi í Reykjanesbæ síðustu helgi er óbreytt. Tvær aðrar stúlkur sem voru með henni í bílnum eru látnar en bifreiðin valt á hringtorgi fyrir viku síðan. Ökumaðurinn er grunaður um að hafa verið ölvaður þegar hann ók bílnum. 1.5.2010 13:56
EXPO skálinn opnaður formlega í dag Íslenski skálinn á heimsýningunni EXPO 2010 í Shanghai opnaður formlega í dag en biðraðir hafa myndast fyrir utan skálann í þau fjögur skipti sem hann hefur verið opnaður óformlega. Alls hafa 22 þúsund gestir lagt leið sína í skálann. 1.5.2010 12:05
Beittu táragasi gegn mótmælendum Gríska óeirðalögreglan beitti táragasi á ungmenni í Aþenu í Grikklandi í morgun þegar fyrsta maí gangan þar fór framhjá fjármálaráðuneyti landsins. Þúsundir manna streymdu út á götur Aþenu í morgun og ástandið er sagt viðsjárvert. 1.5.2010 11:56
Fréttateymi frá 60 Mínútum á Íslandi Teymi frá fréttaskýringaþættinum heimsfræga, 60 mínútum er statt hér á landi. Fréttamaðurinn heimsfrægi, Scott Pelley, er með teyminu sem er að gera þátt um gosið í Eyjafjallajökli og hefur verið statt hér á landi síðan um miðja síðustu viku. 1.5.2010 11:39
Eldgosið hafði áhrif á 43 milljónir Bandaríkjamanna Eldgosið í Eyjafjallajökli hafði með einum eða öðrum hætti áhrif á líf 14 prósent Bandaríkjamanna, eða 43 milljónir manna, samkvæmt nýrri könnun Gallup og má finna á heimasíðu Capacent gallup. 1.5.2010 11:15
Eldgosið í Eyjafjallajökli reiði guðs Nokkuð framboð er af trúarlegum útskýringum á eldgosinu í Eyjafjallajökli. Þannig greinir rússneska fréttastofan Interfax frá því að Samband sérfræðinga í rétttrúnaðarkirkjunni segi að gosið og askan sem eldfjallið spúði yfir Evrópu sé vegna reiði guðs yfir réttindum samkynhneigðra í Evrópu og umburðarlyndis Íslendinga gagnvart heiðinni trú. 1.5.2010 10:15
Verkalýðsdeginum fagnað Alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins, fyrsti maí, er í dag og verður hans minnst með kröfugöngum víða um land í dag. 1.5.2010 09:25
Gosórói stöðugur í Eyjafjallajökli Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er staðan á Eldgosinu í Eyjafjallajökli nokkuð óbreytt frá því sem var í gær. 1.5.2010 09:23
Flestir vilja Hönnu Birnu Flestir vilja að Hanna Birna Kristjánsdóttir núverandi borgarstjóri og oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík, gegni borgarstjóraembættinu að loknum kosningum, samkvæmt könnun Fréttablaðsins og Stöðvar tvö. 1.5.2010 09:19
Dópaður ökumaður á Akranesi Ökumaður var stöðvaður á Akranesi í nótt grunaður um fíkniefnaakstur. Maðurinn að auki vera með lítilræði af kannabisefnum á sér. 1.5.2010 09:16
Íhaldsmenn leiða kosningabaráttuna í Bretlandi Íhaldsmenn leiða kosningabaráttuna í Bretlandi en of snemmt er fyrir David cameron leiðtoga þeirra að fagna sigri. 1.5.2010 11:59
Yfir tíu þúsund í kröfugöngu Þúsundir manna gengu fylktu liði niður Laugaveginn í kröfugöngu klukkan hálf tvö í dag. Gengið var niður á Austurvöll þar sem formenn stéttarfélaganna héldu ræðu. 1.5.2010 15:16
Breyttur útivistartími Útivistartími barna og unglinga tekur breytingum í dag, 1. maí. Frá þeim tíma mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 22.00. 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til miðnættis. 1.5.2010 10:39