Fleiri fréttir

Krefast rannsóknar á námuslysinu

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, krefst þess að fram fari opinber rannsókn á orsökum kolanámuslyssins í Vestur-Virginíu fyrir tæpri viku þegar 29 starfsmenn létust í kjölfar sprengingar. Ekki er vitað hvað olli sprengingunni. Obama segir mikilvægt að fram fari ítarleg rannsókn svo að koma megi í veg fyrir samskonar slys í framtíðinni.

Árni Páll hótar lánafyrirtækjunum löggjöf

Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, segir að ef ekki næst samkomulag við eignaleigufyrirtækin um hvernig leysa eigi skuldavanda þeirra sem tóku bílalán í erlendri mynt þá verði löggjöf beitt til að leysa vandann. Árni Páll sagði þetta í þættinum Sprengisandur á Bylgjunni í morgun.

Lúpínu eingöngu beitt á takmörkuðu svæði

Stöðva á útbreiðslu lúpínu og skógarkerfils, samkvæmt ákvörðun umhverfisráðherra. Forstjóri Náttúrufræðistofnunar og landgræðslustjóri kynntu umhverfisráðherra tillögur sínar fyrir helgi.

Skiltaþjófurinn framseldur til Póllands

Sænskur karlmaður, sem grunaður er um að hafa skipulagt þjófnaðinn á Arbeit macht frei skiltinu í Auscwitz var framseldur til Póllands í vikunni.

Minnast fórnarlambanna - Lík forsetans flutt til Póllands

Pólverjar minntust forseta síns og þeirra tuga manna sem fórust með honum í flugslysinu í Rússlandi í gær, með tveggja mínútna þögn í morgun. Kennsl hafa verið borin á lík forsetans sem líklega verður flutt til Póllands í dag.

Ögmundur: Almenningur búinn að fá upp í kok

„Er þetta leikrit eftir Ibsen? Nei, þetta er Ísland í dag,“ segir Ögmundur Jónasson, þingmaður VG. Hann segir hópmúgsefjun ríkja í þjóðfélaginu í tengslum við útkomu skýrslunnar. Þá segir að hann að almenningur sé búinn að fá upp í kok á réttarkerfi sem byggi á öfugsnúningi.

Öflugur jarðskjálfti við Salómonseyjar

Öflugur jarðskjálfti reið yfir skammt frá Salómonseyjum í Kyrrahafi í morgun. Skjálftinn var að stærðinni 7,1. Upptök hans voru tæplega hundrað kílómetra suðvestan af eyjunum. Hann var á 52 kílómetra dýpi. Ekki er búist við því að fljóðbylgja fylgi í kjölfarið.

Föst í skála á Fimmvörðuhálsi

Erlent ferðafólk hefur verið veðurteppt í Baldvinsskála á Fimmvörðuhálsi í þrjá daga. Lögreglan á Hvolsvelli segir veður snælduvitlaust á svæðinu og varar fólk eindregið við því að vera á ferð.

Unnu til verðlauna í Blackpool

Dansararnir Höskuldur Þór Jónsson og Margrétar Hörn Jóhannsdóttir úr Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar vann fjögur silfurverðlaun í flokki 11 ára og yngri í danskeppni barna sem haldin var í Blackpool á Englandi í vikunni.

Trúleysingjar freista þess að fá páfa handtekinn

Tveir Bretar og þekktir trúleysingjar, Cristopher Hitchens og Richard Dawkins, ætla að freista þess að fá Benedikt 16. páfa handtekinn þegar hann kemur til Bretlands í haust. Þeir segja nægar forsendur fyrir handtökunni því Páfi hafi þaggað niður kynferðisbrot í kaþólsku kirkjunni og hylmt yfir með kynferðisbrotamönnum.

Vegir víðast hvar auðir

Það er hlýtt um allt land og vegir víðast hvar auðir. Ófært er bæði um Nesjavallaveg og Lyngdalsheiði vegna vatnavaxta. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Sjö stútar stöðvaðir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í nótt sex ökumenn sem grunaðir voru um akstur undir áhrifum áfengis. Nóttin var að öðru leyti róleg hjá lögreglumönnum á höfuðborgarsvæðinu.

Pútín vakir yfir rannsókninni

Vladímir Pútín, forsætisráðherra Rússlands, hefur lýst því yfir að hann muni persónulega fylgjast með rannsókn á flugslysinu þegar forseti Póllands og fylgdarlið hans fórst í flugslysi í vesturhluta Rússlands í gær. Flest bendir til að mistök flugmanna hafi orsakað slysið þegar Lech Kaczynski, forseti Póllands, eiginkona hans og tugir æðstu embættismanna landsins fórust við Smolensk í Rússlandi í gærmorgun.

Fjögur lík fundust til viðbótar

Lík fjögurra manna fundust í gærkvöldi í kolanámu í Vestur-Virginíu. Þeirra hafði verið saknað frá því í byrjun vikunnar en eiturgufur torvelduðu björgunarstörfin. Lík 25 manna höfðu áður fundist.

Borgarholtsskóli vann Söngkeppni framhaldsskólanna

Borgarholtsskóli bar sigur úr býtum í Söngkeppni framhaldsskólanna sem fór fram á Akureyri í kvöld og var sýnd í beinni útsendingu hér á Vísi og á Stöð 2. Það voru félagarnir Kristmundur Axel og Júlí Heiðar sem sungu til sigurs með íslenskri rappaðri útgáfu af lagi Erics Clapton Tears in Heaven.

Blóðug átök í Bangkok

Að minnsta kosti ellefu féllu og yfir 500 særðust í hörðum átökum í Bangkok, höfuðborg Tælands, í dag. Undanfarnar vikur hafa stjórnarandstæðingar krafist þess að ríkisstjórnin fari frá völdum og að boðað verði til kosninga svo að milljarðamæringurinn Thaksin Shinawatra sem var steypt af stóli sem forsætisráðherra fyrir fjórum árum geti tekið aftur við völdum í landinu. Fyrr í vikunni lýsti forsætisráðherrann Abhisit Vejjajiva yfir neyðarástandi í höfuðborginni. Átökin í dag voru þau blóðugustu til þessa.

Hundruð milljóna horfnar

Hundruð milljóna króna hafa horfið út af reikningum Baldurs Guðnasonar, fyrrverandi forstjóra Eimskips, á síðustu misserum. Búið er að krefjast kyrrsetningar á eigum hans og Steingríms Péturssonar, viðskiptafélaga hans, en báðir sæta þeir skattrannsókn.

Varað við hvassviðri á Ólafsfjarðarvegi

Lögreglan á Dalvík vill vara vegfarendur sem eiga leið um Ólafsfjarðarveg við miklu hvassviðri, suðvestan strekkingur þvert á veginn. Þakplötur eru að fjúka af útihúsum og eins eru ökumenn með kerrur sérstaklega varaðir við að vera þar á ferðinni.

Einn með allar tölurnar réttar - fær 28 milljónir

Einn var með allar tölurnar í Lottóinu réttar í kvöld og hlýtur vinningshafinn 28.367.070 krónur. Vinningsmiðinn var keyptur í Hagkaup á Akureyri. Sjö voru með fjórar tölur réttar auk bónustölunnar og fá eigendur miðanna rúmlega 111 þúsund krónur í sinn hlut.

Össur um forseta Póllands: Hlýja hans gagnvart Íslandi var ótvíræð

„Þetta er ógurlega sorglegt og ég fyllist samúð með pólsku þjóðinni að missa forseta sinn með þessu hætti,“ segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, um Lech Kaczynski, forseta Póllands, sem fórst í flugslysi í vesturhluta Rússlands í morgun. Talið er að 96 manns hafi farist í slysinu, þar á meðal forsetafrúin, fjölmargir háttsettir embættismenn og æðstu ráðamenn pólska hersins.

Biskup kaþólikka sendir samúðarkveðjur

Pétur Bürcher, biskup kaþólikka hér á landi, sendir pólsku þjóðinni og Pólverjum á Íslandi samúðarkveðjur sínar flugslyssins í Rússlandi í morgun. Þar fórust forseti Póllands, forsetafrú, hópur þingmanna og margir af æðstu embættismönnum pólska hersins. Hann var ekki viðstaddur minningarathöfnina í Kristskirkju í dag en hann er á ferðalagi um Austurland vegna ferminga.

Eitt af stórvirkjum Brams flutt á tónleikum í Hallgrímskirkju

Um 120 manns taka þátt í flutningi á meistaraverki Brahms, Ein Deutsches Reguiem eða þýskri Sálumessu á lokatónleikum Kirkjulistahátíðar nú um helgina. Stjórnandinn segist hafa beðið eftir því að fá flytja það í 30 ár enda telji hann það eitt fegursta verk sem samið hefur verið.

Kynna og kanna undraheima vísindanna

Ísprinsessa, vatnshrútur og eldorgel er á meðal þess sem börn á öllum aldri geta kynnt sér í Norræna húsinu næstu vikur, en Tilraunalandið opnaði þar í gær. Það er sýning sem hefur það að markmiði að kynna og kanna undraheima vísindanna.

Fullt út úr dyrum í minningarathöfn

Minningarathöfn í Kristskirkju á Landakoti um forsetann og alla þá sem fórust í flugslysinu í Rússlandi í morgun er nýlokið. Í slysinu fórust forseti landsins og fjölmargir háttsettir embættismenn. Fullt vart út úr dyrum í Kristskirkju en meðal þeirra sem sóttu athöfnina voru Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis.

Fyrirskipar viku þjóðarsorg í Póllandi

Forseti pólska þingsins hefur tekið við embætti forseta landsins til bráðabirgða eins og stjórnarskrá Póllands gerir ráð fyrir. Hann hefur fyrirskipað viku þjóðarsorg í landinu vegna flugslyssins skammt frá Smolensk í vesturhluta Rússlands, þar sem Lech Kaczynski forseti landsins og margir æðstu embættismenn landsins fórust.

Söngkeppni framhaldsskólanna í beinni á Vísi

Söngkeppni framhaldsskólanna sem fer fram í íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld verður sýnd í beinni útsendingu á Vísi. Einnig verður sýnt frá keppninni í opinni dagskrá Stöðvar 2. Í þessari vinsælustu og fjölmennustu söngvarakeppni landsins mæta til keppni allir framhaldsskólar landsins og er þetta í 20. sinn sem keppnin er haldin.

Hannes Hlífar Íslandsmeistari í skák í ellefta skipti

Hannes Hlífar Stefánsson sigraði Guðmund Gíslason í elleftu og síðustu umferð Íslandsmótsins í skák í dag. Hannes hefur því tryggt sér sigur á mótinu og það í ellefta sinn á 13 árum en Hannes tók ekki þátt í mótinu árin 2000 og 2009 og hefur ávallt sigrað á Íslandsmótinu síðan 1998 hafi hann á annað borð tekið þátt í mótinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skáksambandi Íslands. Hannes hlaut 8,5 vinning í 10 skákum.

Komin fram

Konan sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í dag er komin fram. Hún fór frá Landsspítalanum í gærdag og er síðast vitað um ferðir hennar við Hlemm eftir miðnætti í nótt.

Jóhanna sendi samúðarkveðjur

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sendi í dag forsætisráðherra Póllands, Donald Tusk, samúðarkveðju. Í bréfi til ráðherrans lýsir hún yfir dýpstu samúð ríkisstjórnarinnar og íslensku þjóðarinnar vegna hins hörmulega flugslyss í morgun þar sem forseti Póllands, eiginkona hans og fylgdarlið létust.

Fjöldi háttsettra embættismanna voru í flugvél forsetans

Nú er talið að 96 manns hafi farist þegar flugvél Lech Kaczynski forseta Póllands fórst í vesturhluta Rússlands í morgun. En áður hafði verið talið að allt að 132 hefðu verið um borð í flugvélinni. Með forsetanum fórust María eiginkona hans og margir æðstu ráðamenn pólska hersins ásamt seðlabankastjóra landsins.

Minningarathöfn vegna flugslyssins

Aðalræðismannsskrifstofa Póllands hér á landi stendur fyrir minningarathöfn í Landakotskirkju síðar í dag vegna flugslyssins í vesturhluta Rússlands í morgun þar sem forseti Póllands, eiginkona hans og sendinefnd fórust.

Lýst eftir þrítugri konu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ragnheiði Þórdísi Stefánsdóttur. Hún fór frá Landsspítalanum í gærdag og er síðast vitað um ferðir hennar við Hlemm í Reykjavík, um klukkan þrjú aðfaranótt laugardags.

Forseti Alþingis undrast gagnrýni Hreyfingarinnar

Hvorki Þór Saari né Birgitta Jónsdóttir gerðu athugasemdir þegar fyrirhuguð dagskrá Alþingis í næstu viku vegna útkomu skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis var samþykkt. Þetta segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis. Hún undrast gagnrýni þingmanna Hreyfingarinnar sem sendu frá sér yfirlýsingu í gær vegna málsins. Þeir segja að ómögulegt sé fyrir þingmenn að kynna sér innihald skýrslunnar almennilega áður en gengið er til umræðu.

Jón Ásgeir biðlar til Steingríms

Jón Ásgeir Jóhannesson biður Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra, að gæta orða sinna þegar alvarlegar ávirðingar eru bornar á almenning í landinu. Öll mál eiga sér fleiri en eina hlið. Þetta kemur fram í bréfi sem Jón Ásgeir sendi fjármálaráðherra í dag og er birt á Pressunni.

Svandís: Hegðun þáttagerðarmanna Top Gear verði rannsökuð

Gæta þarf betur að umgengni ferðafólks upp að gosstöðvunum á Fimmvörðuhálsi. Einkum nú þegar frost er að fara úr jörðu og jarðvegur verður viðkvæmur fyrir ágangi. Þetta segir Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra. Hún vonast til þess að meintur utanvegaakstur þáttagerðamanna Top Gear verði rannsakaður.

Vilhjálmur: Ekki við hæfi að fyrirtæki Pálma dreifi gjöfum

Vilhjálmur Bjarnason, lektor, segist ekki vilja þiggja gjafir frá fyrirtæki í eigu manns sem hafi sennilega orðið uppvís að því að tæma banka. En hann neitaði að taka við flugmiða frá Iceland Express í gærkvöldi eftir sigur með liði sínu í spurningakeppninni Útsvar á Ríkissjónvarpinu. Hann segir ekki við hæfi að slíkt fyrirtæki dreifi gjöfum með þessum hætti.

Ógerlegt fyrir þingmenn að kynna sér efni skýrslunnar

Þingmenn Hreyfingarinnar lýsa furðu sinni á fyrirhugaðri dagskrá Alþingis í næstu viku þar sem taka á fyrir skýrslu rannsóknarnefndar þingsins. Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Hreyfingarinnar, segir nær ógerlegt fyrir þingmenn að kynna sér innihalds skýrslunnar nægilega vel áður en hún er tekin til umræðu á Alþingi.

Forseti Íslands sendir Pólverjum samúðarkveðjur

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi í morgun Bronisław Komorowski, forseta pólska þingsins og starfandi forseta landsins, samúðarkveðjur Íslendinga til pólsku þjóðarinnar vegna hins hörmulega flugslyss þar sem Lech Kaczyński forseti Póllands, Maria Kaczyński eiginkona hans og fjölmargir aðrir forystumenn landsins og nánir samverkamenn forsetans létu lífið.

Þjófar í annarlegu ástandi handteknir

Karl og kona voru handtekin um níuleytið í morgun í verslun við Skúlagötu í Reykjavík. Þau höfðu brotist inn í verslunina og voru komin með töluvert magn af þýfi þegar lögregla kom á staðinn. Fólkið var í annarlegu ástandi, að sögn varðstjóra. Þau verða yfirheyrð síðar í dag en bæði eru þau góðkunningjar lögreglu.

Um þriðjungur Dana vill drottninguna burt

Um þriðjungur Dana vill að Margrét Þórhildur Danadrottning afsali sér krúnunni og Friðrik sonur hennar taki við Þetta sýnir ný könnun sem Capacent gerði á meðal 2000 svarenda fyrir Rizau fréttastofuna. Um 17% eru í vafa um hvort drottningin eigi að sitja áfram í sæti sínu eða ekki.

Fjöldaútför í Kirgistan

Þúsundir manna mættu í jarðarför margra þeirra sem féllu í mótmælum í Bishkek höfuðborg Kirgistan á miðvikudag. 76 manns féllu í átökum við lögreglu og um 1400 manns særðust. Fjöldaútförin fór fram í útjaðri höfuðborgarinnar þar sem kistur hinna látnu voru bornar til grafar sveipaðar fána Kirgistans. Margir syrgjendur báru myndir af hinum látnu. Flestir hinna látnu féllu þegar lögregla skaut á mannfjölda sem réðst inn í opinberar byggingar í miðborginni.

Líkklæði Krists til sýnis í Torínó

Líkklæðið frá Turin sem margir telja að sé líkklæði Krists, verður til sýnis í borginni Torínó á Ítalíu frá og með deginum í dag. Raðir mynduðust við sýningarstaðinn strax í morgun en klæðið hefur ekki verið til sýnis frá því árið 2000.

Ekkert ferðaveður í grennd við gosstöðvarnar

Ekkert ferðaveður er í grennd við gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli. Lögregla varar ferðamenn við að vera á svæðinu í dag. Mikill krapi er á Mýrdalsjökli sem er illfær. Þá hafa verið miklir vatnavextir í ám í Þórsmörk bæði vegna úrkomu og bráðnunar frá eldgosinu.

Sjá næstu 50 fréttir