Innlent

Sjö stútar stöðvaðir

Mynd/Pjetur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í nótt sex ökumenn sem grunaðir voru um akstur undir áhrifum áfengis. Nóttin var að öðru leyti róleg hjá lögreglumönnum á höfuðborgarsvæðinu.

Lögreglan á Akureyri stöðvaði einn ökumann vegna gruns um ölvunarakstur í nótt. Fjöldi ungmenna var saman komin í bæjarfélaginu um helgina í tengslum við Söngkeppni framhaldsskólanna. Skemmtanahald virðist hafa farið vel fram, að sögn varðstjóra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×