Fleiri fréttir

Útgönguleið fyrir unga afbrotamenn

Undanfarin ár hafa blóðug átök milli glæpagengja í Kaupmannahöfn og víðar í Danmörku hvort tveggja vakið ótta almennings og magnað spennu víða í hverfum innflytjenda.

Geta byrjað á álveri á Bakka árið 2013

Framkvæmdir geta hafist við álver á Bakka árið 2013, náist samningar og skilyrði umhverfismats verði uppfyllt, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Sameiginlegt mat virkjana við Þeistareyki og álvers á Bakka verður auglýst síðar í mánuðinum.

Vonir björgunarmanna dvína

„Þetta var löng og erfið nótt,“ sagði Joe Manchin, ríkisstjóri Vestur-Virginíu, sem hefur fylgst með björgunaraðgerðum við kolanámuna í Montcoal, þar sem fjórir kolanámumenn hafa verið innilokaðir síðan á mánudag.

Ný tæki komast ekki á Netið klárist IP-tölur

Innan við tíundi partur er eftir af auðkennum sem tölvum er úthlutað á internetinu, IPv4. Unnið er að því að taka upp næstu kynslóð auðkenna í netsamskiptum, IPv6. OECD hvetur til hraðari upptöku til að hægi ekki á framþróun Netsins.

Tóku sjónvarpshúsið á sitt vald

Stuðningsmenn Thaksins Shinawatra, fyrrverandi forsætisráðhera Taílands, halda ótrauðir áfram mótmælum gegn núverandi stjórn. Í gær lögðu þeir undir sig fjarskiptafyrirtæki, sem lagðar höfðu verið niður útsendingar sjónvarpsstöðvar sem notið hefur vinsælda stjórnarandstæðinga.

Fækka má slysum með nýjum búnaði

Væri bílafloti landsmanna allur búinn nýjasta öryggisbúnaði mætti mögulega fækka umferðarslysum um ríflega þúsund á ári hverju. Þetta er mat Bílgreinasambandsins og Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB).

Fráleitt að fresta viðræðum við ESB

Fráleitt er að halda því fram að fresta eigi ESB-viðræðum eins og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrum utanríkisráðherra hefur gert, að mati Össurar Skarphéðinssonar, núverandi utanríkisráðherra. „Menn mega ekki fara á taugum þótt blási aðeins á móti,“ sagði hann í gær við Stöð 2.

Hvetur Rússa til að birta skjöl

Pólska þingið hvetur Rússa til þess að gera öll skjöl opinber er varða fjöldamorðin í Katýnskógi árið 1940, þegar rússneskir leyniþjónustumenn myrtu 22 þúsund pólska hermenn.

Bakajev flúinn til Afganistans

Þúsundir manna söfnuðust saman á aðaltorgi Biskeks, höfuðborgar Kirgisistan, til að minnast þeirra sem féllu í átökum í vikunni þegar stjórn Kurmanbeks Bakijev forseta var steypt af stóli.

Ellefu kiðlingar komu í heiminn

Geitburði er nú lokið í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og mun það trú starfsmanna að nú sé vorið að koma.

Félag fréttamanna ætlar að funda um stefnu Pálma

„Ég geri ráð fyrir að við munum halda stjórnarfund fljótlega og fara í gegnum þetta," segir Aðalbjörn Sigurðsson, formaður í Félagi fréttamanna á RÚV, um stefnu Pálma Haraldssonar í Fons gegn Svavari Halldórssyni fréttamanni.

Vilhjálmur Bjarnason neitaði að taka við verðlaunum frá Iceland Express

Garðabær sigraði í spurningakeppninni Útsvar sem fram fór á Ríkisútvarpinu í kvöld. Vilhjálmur Bjarnason, lektor við Háskóla Íslands, var í sigurliðinu. Hann neitaði að taka við hluta verðlaunanna sem í boði voru fyrir sigurliðið. Um var að ræða ferðaávísun frá Iceland Express.

Kvikan að færast í átt að Kötlu?

Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur veltir upp þeim möguleika í grein á heimasíðu sinni að kvikan undir Eyjafjallajökli sé að færast til austurs í átt að Kötlu. Hann bendir á að jarðskjálftar hafi verið að færast undanfarna tvo daga í átt að Goðabungu í Mýrdalsjökli.

Vilhjálmur Bjarnason: Þetta útskýrir sig sjálft

„Ég þarf ekkert að útskýra þetta. Þetta útskýrir sig sjálft. Ég var hluthafi í Glitni,“ segir Vilhjálmur Bjarnason, lektor við Háskóla Íslands. Vilhjálmur var í sigurliði Garðabæjar í spurningakeppninni Útsvar sem fór fram á RÚV í kvöld.

Golfklúbbur Reykjavíkur fær ekki styrkinn

Golfklúbbur Reykjavíkur fær ekki 230 milljóna króna styrkinn frá Reykjavíkurborg eins og ákveðið var fyrr en öðrum framkvæmdum er lokið segir borgarstjóri. Stjórn klúbbsins hefði átt að greina borginni frá því að styrkur borgarinnar frá síðasta ári hafi verið notaður til að niðurgreiða eldri framkvæmdalán.

Hönnun samgöngumiðstöðvar boðin út í næsta mánuði

Hönnun samgöngumiðstöðvar á Reykjavíkurflugvelli verður boðin út í næsta mánuði og smíði hafin fyrir áramót, eftir að ríki og borg náðu í gær samkomulagi um skipulagsmál. Samgönguráðherra vonast til að miðstöðin verði tilbúin innan tuttugu mánaða.

Hraunið ekkert nálgast Þórsmörk í tvær vikur

Hraunið frá eldstöðinni á Fimmvörðuhálsi hefur ekkert nálgast sléttlendið í Þórsmörk undanfarnar tvær vikur. Þess í stað hleðst það upp innst í Hvannárgili. Hraunrennslið úr gígunum er að meðaltali fimmtán rúmmetrar á hverri sekúndu, að mati jarðvísindamanna Háskóla Íslands, eða sem samsvarar þrjátíu til fjörutíu tonnum á sekúndu.

Ekkert ferðaveður á Mýrdalsjökli

Ekkert ferðaveður er á Mýrdalsjökli, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli. Á jöklinum er einnig mikill krapi og hann illfær. Þá eru miklir vatnavextir í ám í Þórsmörk bæði vegna úrkomu og bráðnunar frá eldgosinu á Fimmvörðuhálsi.

Tveir menn teknir með tugi kílóa af kannabisplöntum

Tveir menn voru handteknir í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í gær vegna gruns um kannabisræktun. Aðdragandi málsins var á þann veg að lögreglu bárust síðdegis á miðvikudag upplýsingar um að frá sumarbústað í Grímsnesi leggði megnan gróðurilm. Lögreglumen frá Selfossi fór að húsinu og leyndi sér ekki að lykt af kannabis barst út frá því. Farið var inn í húsið sem

Hreyfingin furðar sig á fyrirhugaðri dagskrá Alþingis

Þingmenn Hreyfingarinnar furða sig á fyrirhugaðri dagskrá Alþingis í næstu viku eftir útkomu skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Þetta kemur fram í tilkynningu sem þingmennirnir hafa sent fjölmiðlum. Skýrslan verður birt klukkan 10:15 á mánudag. Fyrirhugað er að umræðan um skýrsluna fari fram í þinginu n.k. mánudag, þriðjudag og miðvikudag í samtals 10½ klukkustund.

Fréttir Stöðvar 2 í nýju umhverfi

Útlit frétta Stöðvar 2 tekur stakkaskiptum í kvöld. Þá verður í fyrsta skipti sent út frá nýju fréttasetti með nýrri upphafskynningu. Allt útlit og umgjörð fréttatímans verður annað en verið hefur undanfarin fimm ár.

Eymundsson forselur rannsóknarskýrsluna

Bókabúðin Eymundsson hyggst forselja rannsóknarskýrsluna yfir helgina en hún verður ekki gerð opinber fyrr en á mánudaginn klukkan hálf ellefu.

Gylfi Magnússon: „Krossleggjum fingur og vonum það besta“

„Þetta eru afar góðar fréttir,“ segir Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, en Ísland er komið á dagskrá stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins varðandi endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands. Fundurinn verður haldinn föstudaginn 16. apríl.

Forsætisráðherra agndofa yfir póstum til Lárusar

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, furðuðu sig á því í morgun að mál tengt tölvupóstssendingum milli Lárusar Welding og stórra hluthafa Glitnis hafi ekki verið sent til embættis sérstaks saksóknara. Forsætisráðherra segist agndofa yfir tölvupóstunum.

Kaninn tekinn úr sambandi - sakar Lýðvarpið um árás á útvarpssendi

„Ég áttaði mig á því stuttu eftir hádegi að sendir á okkar vegum í Bláfjöllum var dottinn út,“ segir Einar Bárðarson, útvarpsstjóri Kanans, en óprúttnir aðilar virðast hafa brotist inn í hús þar sem sendirinn er og tekið hann úr sambandi með þeim afleiðingum að útsending útvarpsstöðvarinnar þagnaði.

Byltingarmenn þakka Rússum

Hin nýja byltingarstjórn í Kyrgistan hefur þakkað Rússum fyrir hjálpina við að steypa Kyrmanbek Bakiev forseta af stóli.

Kostar sex milljónir vikulega að gæta eldstöðvanna

Áætlað er að ríkið muni greiða um 6 milljónir á viku vegna lágmarksgæslu í kringum eldstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi en dómsmálaráðherra kynnti ríkisstjórninni í morgun erindi þess eðlis. Það er lögreglan á Hvolsvelli og björgunarsveitir sem munu gæta öryggis á svæðinu samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu.

Vill að Sjálfstæðismenn taki skýrsluna alvarlega

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins vill að flokksmenn sínir taki niðurstöðum í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis alvarlega og dragi lærdóm af þeim. Þetta kemur fram í ávarpi Bjarna á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins.

Söfnuðu 55 þúsund fyrir bágstadda á Haítí

Í vetur hafa yngri börnin í ungmennastarfi Stöðvarfjarðardeildar Rauða kross Íslands safnað peningum fyrir börn á Haiti sem urðu hart úti í jarðskjálftunum þar í vetur.

Svavar Halldórsson: Auðmenn reyna að hræða blaðamenn

„Tilgangurinn er augljóslega sá að hræða blaðamenn frá því að fjalla um aðdraganda hrunsins. Það er alveg augljóst í mínum huga,“ segir Svavar Halldórsson, fréttamaður fréttastofu Ríkisútvarpsins en Pálmi Haraldsson hefur stefnt honum vegna fréttar sem hann flutti í kvöldfréttunum í lok mars.

Norskir nazistar vildu nýlendur í Rússlandi

Leppstjórn nazista í Noregi í síðari heimsstyrjöldinni hafði í hyggju að biðja Adolf Hitler um að gefa Norðmönnum nýlendur í Rússlandi eftir að búið væri að sigra það.

Alþjóðahúsið flytur í nýtt húsnæði

Alþjóðahúsið hefur flutt starfsemi sína af Laugavegi 37 að Ofanleiti 2 þar sem áður var aðalbygging Háskólans í Reykjavík fyrir flutning skólans í Nauthólsvík.

Ísland á dagskrá stjórnar AGS

Tilkynnt verður síðar í dag um að endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) verði tekin fyrir í stjórn sjóðsins á næstunni. Unnið hefur verið að því í íslenska stjórnkerfinu að koma þeirri endurskoðun á dagskrá, en hún átti að fara fram í febrúar.

Skilaði barninu með bréfmiða

Utanríkisráðherra Rússlands hefur hvatt til þess að hætt verði að leyfa ættleiðingar barna til Bandaríkjanna.

Reykjavík vill verða græn borg

Reykjavík keppir við spænsku borgirnar Barcelónu og Vitoria-Gasteiz, sænsku borgina Málmey, Nantes í Frakkalandi og Núrnberg í bæjaralandi í Þýskalandi um að vera Græna borgin í Evrópu árið 2012 eða 2013. Tvær af þessum sex verða valdar.

Sjúkratryggingar Íslands endurgreiða 63 milljónir

Um 15.000 sjúkratryggðum einstaklingum hafa verið endurgreiddar 63 milljónir króna af Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) vegna afsláttar sem ekki var hægt að borga út þegar heilbrigðisþjónusta var veitt á síðasta ári samkvæmt tilkynningu frá Sjúkratryggingum Íslands.

Jarðskjálftar í Goðabungu í Mýrdalsjökli

Gosórói í eldstöðinni í Eyjafjallajökli fer nú hægt minnkandi. Jarðskjálftar urðu í Goðabungu í Mýrdalsjökli í nótt og í morgun. Almannavarnir funda eftir hádegi með vísindamönnum þar sem meta á stöðu gossins og þörf fyrir gæslu á svæðinu.

Leyfislausir ferja fólk að gosstöðvunum

Nokkur fyrirtæki, sem bjóða ferðafólki í jeppa- eða fjórhjólaferðir að gosstöðvunum á Fimmvörðuhálsi, hafa ekki tilskilin leyfi til þess. Þá hefur Ríkisskattstjóri fundið matarholu við gosstöðvarnar.

Dönsk fermingarbörn sólþyrst

Danska Krabbameinsfélagið hefur miklar áhyggjur af sókn væntanlegra fermingarbarna í sólbekki fyrir stóra daginn.

Sjá næstu 50 fréttir