Fleiri fréttir

Hefur efasemdir um að Jóhanna átti sig á ábyrgð sinni

Björn Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að losaraleg túlkun á ýmsum grunnreglum stjórnskipunarinnar við myndun og síðan í störfum ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur veki efasemdir um að Jóhanna átti sig á ábyrgð sinni sem forsætisráðherra.

Loftrýmisgæsla í fullum gangi - myndband

Danir hafa verið við loftrýmiseftirlit á Íslandi á vegum NATO frá því á mánudaginn. Fjórar F16 þotur eru á Keflavíkurflugvelli og á fimmta tug Dana eru hér á landi vegna eftirlitsins sem stendur í þrjár vikur.

Harmar kæru Nova - vill samræma verðskrár

Sigmar Vilhjálmsson, forstöðumaður sölu- og markaðssviðs Tals, harmar að Nova ætli að kæra Tal vegna greinar sem hann skrifaði í Morgunblaðið. Gjaldskrár símafyrirtækjanna eru ógegnsæjar að mati Sigmars og hann kallar eftir því að þær verði samræmdar.

Sendinefnd AGS fer á morgun

Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem verið hefur hér á landi undanfarnar tvær vikur heldur af landi brott á morgun.

Vinstri grænir í Skandinavíu vilja róttækar breytingar

Stjórn Vinstri grænna í Kaupmannahöfn og suður Svíþjóð vill sjá róttækar breytingar í málefnum íslenskra námsmanna erlendis. Stjórnin hvetur Katrínu Jakobsdóttur, menntamálaráðherra, og stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna til að umbylta því kerfi sem námsmenn lifa við í dag.

Morðinginn greindi frá áformum sínum á netinu

Þýskur unglingsstrákur sem myrti fimmtán manns í bæ í Þýskalandi í gær varaði við árásinni á spjallrás á netinu kvöldið áður en hann lét til skarar skríða. Honum þótti sem hann væri misskilinn og afskiptur.

Samgöngumiðstöð að komast á skrið

Framkvæmdir við samgöngumiðstöð á Reykjavíkurflugvelli gætu hafist síðar á árinu, samkvæmt viljayfirlýsingu sem búist er við að samgönguráðherra og borgarstjóri undirriti á næstu dögum.

Ísland numið árið 720 en ekki 874?

Fornleifafræðingar, sem grafa nú á alþingisreitnum, eru komnir niður á járngerðarofna sem benda til að endurskrifa þurfi Íslandssöguna og einhverjir hafi verið sestir að á undan Ingólfi Arnarsyni. Vísindamenn við Háskóla Íslands vonast til að geta með nýju aldursgreiningartæki svarað því með óyggjandi hætti innan árs hvort Ísland hafi verið numið 150 árum fyrr en almennt hefur verið talið.

Loftrýmiseftirlitið mikilvægt fyrir Dani

Danska þingið mat loftrýmisgæslu yfir Íslandi sem mikilvægt verkefni að sögn yfirmanns danskrar flugsveitar sem nú sinnir henni. Formaður nefndar sem vann áhættumat fyrir Ísland segir það hins vegar aðeins táknrænt en engin hernaðarógn steðji að Íslandi.

Fullkomin óvissa um frestun þingfunda fyrir kosningar

Fullkomin óvissa ríkir um frestun þingfunda fyrir kosningar, eftir að leiðtogum stjórnarflokkanna mistókst í dag að ná samkomulagi við stjórnarandstöðuna um afgreiðslu þingmála. Samkomulag náðist hins vegar um að tilkynna kjördag með formlegum hætti á Alþingi á morgun, þannig að utankjörfundaratkvæðagreiðsla geti hafist.

Samfylkingin stærst - lítill stuðningur við grasrótarframboð

Grasrótarframboðin nýju fá engan fulltrúa inn á Alþingi Íslendinga samkvæmt nýrri könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins á fylgi flokkanna. Samfylkingin er stærsti stjórnmálaflokkur landsins og hefur fylgið lítið breyst eftir brotthvarf Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur úr stjórnmálum.

Raddir fólksins boða til útifundar

Samtökin Raddir fólksins, undir yfirskriftinni Breiðfylking gegn ástandinu, standa fyrir útifundi á Austurvelli laugardaginn 14. mars. Þetta er 23. vika útifundanna og 29. fundurinn á Austurvelli.

Fer ekki fram þátt fyrir áskoranir

Bryndís Hlöðversdóttir, fyrrverandi þingmaður, hefur fengið áskoranir um að hún bjóði sig fram sem formaður Samfylkingarinnar á komandi landsfundi. Hún segir þó í samtali við fréttastofu að hún hafi engin áform um að snúa aftur í stjórnmál og ætli því ekki að bjóða sig fram til formanns.

Ríkið sýknað af fjögurra milljóna króna bótakröfu

Íslenska ríkið var sýknað af bótakröfu frá manni sem sat í gæsluvarðhaldi árið 2006 í Hæstarétti í dag. Maðurinn var handtekinn í tengslum við svokallað BMW-mál þar sem 15 kíló af amfetamíni og 10 kíló af kannabisefnum voru haldlögð í BMW bifreið sem kom hingað til lands. Maðurinn fór fram á fjórar milljónir í skaðabætur.

Dæmdur til vistunar á Sogni

Hæstiréttur staðfesti dóm yfir manni á þrítugsaldri sem var dæmdur fyrir þjófnað, fjársvik, nytjastuldur, rán, fíkniefnalagabrot og svo umferðarlagabrot. Maðurinn áfrýjaði dómum til Hæstarréttar þar sem hann var dæmdur til þess að afplána sjö mánaða dóm á viðeigandi stofnun þar sem hann er haldinn alvarlegum geðkvillum.

Verslun dróst saman um tugi prósenta í febrúar

Velta í raftækjaverslun dróst saman um 52,9% á föstu verðlagi í febrúar miðað við sama mánuð í fyrra og um 28,9% á breytilegu verðlagi. Á síðasta ári minnkaði velta raftækjaverslana töluvert að raunvirði. Veltan í janúar síðastliðnum var þannig 45,2% minni en í janúar í fyrra, eftir því sem fram kemur í tölu Rannsóknarseturs verslunarinnar.

Þingrof líklega tilkynnt á morgun

Afgreiðsla mála hefur gengið hratt fyrir sig á Alþingi í dag, enda mikil áhersla lögð á að afgreiða sem flest mál áður en þing lætur af störfum fyrir kosningar. Þannig hafa þingmenn lokið fyrstu umræðu um þrettán mál og umræður standa nú yfir um hið fjórtánda. Annarri umræðu er lokið í tveimur málum og þingið hefur afgreitt eina þingsályktunartillögu. Að auki hafa ráðherrar svarað fyrirspurnum þingmanna og ein utandagskrárumræða hefur farið fram. Líklegt er talið að þingrof verði tilkynnt á morgun.

Mikill verðmunur á fiski

Mikill munur er á fiskverði á milli verslana og eru dæmi um að hægt sé að spara sér yfir helming þegar fiskur er keyptur í soðið. Í nýrri könnun ASÍ sést að kílóið af þorski getur kostað allt frá 690 krónum upp í 1.490 krónur.

Meintir kannabisræktendur lausir úr haldi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði mjög umfangsmikla kannabisræktun í húsi í Skipasundi í gærkvöld, eftir því fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni.

Endurreisn efnahagslífsins hafin

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra telur að stjórnvöld séu komin með miklu víðtækara hlutverk í efnahagslífinu en staðið hafði til og miklu stærra hlutverk en ríkissjóður ætti að hafa. Þetta sagði ráðherrann á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs Íslands sem haldið var um helgina. Hún gerði líka ábyrgð á bankahruninu að viðfangsefni.

VG leigja af Kristjáni í hvalnum

„Við leigjum þarna á annarri hæðinni," segir Gestur Svavarsson formaður kjördæmisráðs Vinstri grænna í suðvesturkjördæmi. Vinstri Grænir leigja skrifstofuhúsnæði á Strandgötu 11 í Hafnarfirði.

Samningur við Cayman-eyjar til að stöðva skattaflótta

Eftir umfangsmikla undirbúningsvinnu var í síðustu viku gengið frá samkomulagi milli aðildarríkja Norrænu ráðherranefndarinnar og Cayman-eyja um undirritun upplýsingaskiptasamnings. Samningurinn er liður í sameiginlegri viðleitni samningsaðilanna til að stöðva skattaflótta.

Vísa reiknikúnstum Samfylkingarinnar á bug

Fulltrúar meirihlutans í borgarráði vísa fullyrðingum og reiknikúnstum Samfylkingarinnar, sem koma fram í bókun Samfylkingarinnar um fjármagnskostnað vegna Laugavegar 4 og 6 á bug. Líkt og fram kom í frétt á Vísi fyrr í dag segir Samfylkingin að tap á uppkaupum á húsunum við Laugaveg 4 og 6 verði rúmur hálfur milljarður. Þetta kom fram í bókun Samfylkingarinnar eftir svar borgarstjóra við fyrirspurn vegna húsanna.

Borginni tókst að skera niður um 2,3 milljarða

Tillaga að endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrir árið 2009 var lögð fram í borgarráði í dag. Endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrir árið 2009 hófst strax í byrjun janúar með það að markmiði að mæta 2,3 milljarða króna hagræðingarkröfu.

Yfir hálfur milljarður tapast vegna Laugavegs 4 og 6

Tap Reykjavíkurborgar vegna uppkaupa húsanna við Laugaveg 4 og 6 fyrir ári síðan verður meira en 500 milljónir króna. Kostnaðurinn við uppkaupin er orðinn hátt í 700 milljónir en þetta kemur fram í bókun Samfylkingarinnar í borgarráði í dag.

Truflanir á símasambandi hjá Vodafone

Bilun er í ljósleiðarasambandi sem orsakar miklar truflanir á GSM símasambandi Vodafone notenda á stórum svæðum á Norður- og Austurlandi. Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Vodafone, segist telja að þetta ástand geti varað fram eftir degi.

Fé aldrei lagt inn á barnlandsreikning

Anna Hermína Gunnarsdóttir, sem er ein þriggja kvenna sem hafa verið kærðar af Félagi ábyrgra foreldra á Akureyri, segist ekkki hafa notið persónulegs ávinnings af söfnun sem hún kom af stað á Barnalandi í mars á síðasta ári.

Grunaður um að hafa keyrt á mann

Jón Kristinn Ásgeirsson, er grunaður um að hafa ekið á mann á Laugaveginum um miðjan janúar samkvæmt DV. Hann er sakaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis þegar hann ók bílnum. Hann á að hafa keyrt á ungan mann á þrítugsaldri með þeim afleiðingum að hann stórslasaðist. Maðurinn var á gjörgæslu en hann hefur verið færður á heila- og taugadeild. Hann hefur ekki komist til meðvitundar.

Jóhanna bað Breiðavíkurdrengi afsökunar

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, bað Breiðavíkurdrengi og aðra sem sætt hafa illri meðferð á heimilum ríkisins, afsökunar, fyrir hönd ríkisins, á Alþingi nú fyrir stundu. Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, spurði hana hvort þetta stæði til af hálfu ríkisins, og sagði Jóhanna sjálfsagt að verða við því. Þó væri ekki sjálfgefið að þeir sem bjuggu við vondar aðstæður á þessum meðferðarheimilum veittu fyrirgefninguna.

Olíufélögin lækkuðu öll verð á eldsneyti í morgun

Olíufélögin hafa lækkað verð á bensíni í dag. Bensínorkan lækkaði verð á bensíni um tvær krónur og dísel um 2,6 krónur. Almennt verð á bensíni hjá Orkunni verður þá 139,70 og almennt verð á díeselolíu 149,90.

Rýmingu aflétt í Bolungarvík

Þeir Bolvíkingar sem þurftu að yfirgefa heimili sín í gær vegna snjóflóðahættu geta nú snúið heim á ný. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni verður ástandið kannað í dag og metið í framhaldinu þar sem veðurspáin fyrir helgina er nokkuð óviss.

Tilkynnir mögulega um þingrof

Forsætisráðherra tilkynnir mögulega um þingrof í dag eða á morgun. Ríkisstjórnin kom saman til aukafundar í stjórnarráðinu klukkan átta í morgun, til að afgreiða frá sér síðustu málin sem hún ætlar að leggja fyrir Alþingi.

Fíkniefnaaðgerð í Skipasundi í gærkvöld

Tvennt var handtekið í fíkniefnaaðgerð lögreglunnar í Skipasundi í gærkvöld. Samkvæmt heimildum fréttastofu var gífurlegt magn af kannabisplöntum í rætkun þar. Fólkið sem var handtekið er enn í haldi lögreglunnar. Sjónvarvottur sem fréttastofa talaði við sagðist hafa séð lögreglumenn fylla sendiferðabíl af plöntum í gær.

Rösklega helmingur vill Jóhönnu

Rúm 55 prósent þeirra, sem spurðir voru í skoðanakönnun Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis segjast vilja að Jóhanna Sigurðardóttir verði næsti formaður Samfylkingarinnar.

Pennafærir flugmenn óskast

Flugfélagið Air-Asia leitar nú að flugmönnum, sem ekki er í frásögur færandi nema hvað þeir þurfa ekki að kunna að fljúga.

Bill Gates nær toppsæti Forbes á ný

Bill Gates, stofnandi Microsoft, hefur endurheimt toppsætið á listanum yfir auðugustu menn heimsins samkvæmt Forbes Magazine. Hann velti þar með fjárfestinum Warren Buffett úr sessi en margt hefur breyst á lista Forbes eftir að efnahagshrun heimsins þurrkaði út tvö þúsund milljarða dollara af bankareikningum auðmanna heimsins.

Orrustuþota nánast straukst við fis

Það virðist nánast kraftaverk að ekki varð stórslys þegar Tornado-orrustuþota Konunglega breska flughersins þaut fram hjá svokölluðu fisi, eins konar vélknúnum svifdreka, í aðeins tíu metra fjarlægð.

Kretschmer myrti einkum kvenmenn

Kvenkyns nemendur og kennarar skólans í Winnenden í Þýskaland virðast einkum hafa verið skotmörk hins 17 ára gamla Tim Kretschmer sem gekk berserksgang í gær og myrti 15 manns.

Sjá næstu 50 fréttir