Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bensínverði líka mótmælt á Höfn Umferðatöf varð við Lónsvegamót á Höfn í Hornafirði frá kl 16.45 til 17.10 í dag en lokuðu nokkri ökumenn veginum ökutækjum sínum. 31.3.2008 21:50
Alþingi kjósi ríkisendurskoðanda í stað forsætisnefndar Tíu þingmenn úr öllum flokkum nema Sjálfstæðisflokknum hafa lagt fram frumvarp til breytinga á lögum um Ríkisendurskoðun sem felur í sér að Alþingi kjósi ríkisendurskoðanda til sex ára í senn í stað þess að forsætisnefnd ráði hann. 31.3.2008 21:08
Lögreglan leitar að 16 ára stúlku Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Regínu Sif Björnsdóttur. Hún er 16 ára, um 170 cm. á hæð og frekar þéttvaxin. Hún er með svart stutt hár, tekið í tagl yfirleitt. Klædd í svartar buxur, hvítan hlýrabol og svartan langermabol yfir. Svört úlpa með skinn hettu og hvíta Rebook skó með marglitum reimum. 31.3.2008 21:01
Vilja aukna fjármuni til lögreglunnar á Suðurnesjum Þrír þingmenn vinstri – grænna hafa lagt fram frumvarp til fjáraukalaga þar sem gert er ráð fyrir að 600 milljónir króna til viðbótar verði veittar til löggæslumála á þessu ári. 31.3.2008 21:31
Mynduðu hraðakstur í Hafnarfirði og Hvalfjarðargöngum Brot 97 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum frá föstudegi til mánudags eða á 72 klukkustundum. Vöktuð voru 7.771 ökutæki og því ók lítill hluti ökumanna, eða 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sjö óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 109. 31.3.2008 20:34
Löggan í World Class Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og World Class hafa gert með sér samning sem hefur yfirskriftina Ókeypis í ræktina. Í honum felst aðgangur fyrir alla starfsmenn embættisins að líkamsræktarstöðvum World Class á höfuðborgarsvæðinu. Starfsmenn LRH geta nú æft endurgjaldslaust í World Class að uppfylltu því skilyrði að þeir mæti minnst vikulega í ræktina. Þeir sem það ekki gera verða þá sjálfir að greiða fyrir líkamsræktina. Hér er um tilraunaverkefni að ræða en embættið leggur mikla áherslu á öfluga heilsustefnu sem hvetur starfsmenn til að huga að eigin heilsu og vellíðan. 31.3.2008 19:47
Sjálfstætt starfandi bæklunarlæknar án samnings við ríkið Samningar hafa ekki tekist milli samninganefndar heilbrigðisráðherra og sjálfstætt starfandi bæklunarlækna en þeir renna út í dag. 31.3.2008 19:47
Bilun í ljósleiðarahring Mílu Vegna bilunar í ljósleiðarhring Mílu er landshringur IPnets rofinn milli Blönduós og Sauðárkróks. Áhrif vegna þessa eru þau að verulega skerðing er á flutningsgetu Internetumferðar til útlanda. Enn er verið að greina bilun og því ekki fyrirséð hvenær bilun verður afstaðin. 31.3.2008 19:32
Samgöngumiðstöð innsigluð Samgöngumiðstöð verður reist á Reykjavíkurflugvelli og hún komin í notkun fyrir lok næsta árs, samkvæmt samkomulagi sem Ólafur F. Magnússon borgarstjóri og Kristján L. Möller samgönguráðherra innsigluðu í dag. 31.3.2008 18:45
Forsætisráðherra telur botninum náð Myndarleg styrking krónunnar í dag og hækkun hlutabréfa benda til þess að botninum sé náð, sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra í umræðum um efnahagsmál á Alþingi. 31.3.2008 18:28
Síðasta verk Magnúsar á Landspítalanum Í dag var undirritaður samningur milli Landspítala og Þjóðkirkjunnar um klínískt sálgæslunám guðfræði- og djáknanema á Landspítala. Þjóðkirkjan mun leggja til árlega jafngildi 50% launa prests við spítalann til kennslu í klínískri sálgæslu. Landspítali tekur að sér að skapa tilhlýðilegar aðstæður fyrir verklega kennslu í klínískri sálgæslu. 31.3.2008 18:07
Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald í Keilufellsmáli Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að tveir menn sem grunaðir eru um að hafa tekið þátt í alvarlegri árás að íbúum í Keilufelli fyrir skömmu skyldu sæta gæsluvarðhaldi til 14. apríl. Mennirnir kærðu úrskurð héraðsdóms og kröfðust þess að þeir yrðu látnir lausir eða látnir sæta farbanni. Hæstiréttur féllst ekki á þessa kröfu þar sem grunur leikur á einhverjir árásarmannana gangi enn lausir. Því sé nauðsynlegt að þeir sem nú séu í haldi verði ekki látnir lausir. 31.3.2008 17:44
Þýskur prestur býður stressuðum að hvílast í gröf Séra Thorsten Nolting, prestur í Düsseldorf í Þýskalandi, býður sóknarbörnum sínum að eyða 20 mínútum í opinni gröf til að létta áhyggjum hversdagsins af lotnum herðum þeirra. „Þetta er hugsað sem æfing í hugleiðslu,“ sagði Nolting er brást ókvæða við þegar blaðamenn þustu að gröf hans og trufluðu æfinguna. 31.3.2008 17:11
Steingrímur J. er engin Soffía frænka Guðni Ágústson, formaður Framsóknarflokksins, vill setja á fót sérstaka þjóðarsáttarnefnd til þess takast á við þann vanda sem blasir við í efnahagslífinu. Formaður Vinstri - grænna segir enga sársaukalausa leið út úr vandanum en forsætisráðherra hvetur þá sem stjórna verðlagi að halda aftur af sér með hækkanir. Utanríkisráðherra sagði formann Vinstri - grænna skorta trúverðugleika til þess að takast á við efnahagsmálin. 31.3.2008 17:00
Rafmagn komið á að nýju Rafmagn er nú loks komið á í Mosfellsbæ, Kjalarnesi, hluta Grafarvogs og í Grafarholti eftir rúmlega fjögurra klukkustunda rafmagnsleysi á þessum stöðum. Þetta staðfesti Helgi Pétursson hjá Orkuveitu Reykjavíkur. 31.3.2008 16:47
Sinubruni á Kjalarnesi Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er nú á vettvangi á Kjalarnesi þar sem kveikt hefur verið í sinu. Fyrr í dag var slökkvilið sent að Gvendargeisla í Grafarholti vegna tilkynningar um reyk í stigagangi en það reyndist ekki alvarlegt. 31.3.2008 16:34
Yfirheyra vini McCann hjónanna Portúgalska lögreglan fer til Bretlands í næstu viku til að tala aftur við vini foreldra Madeleine McCann. Kate og Gerry verða ekki yfirheyrð þrátt fyrir að vera enn með réttarstöðu grunaðra í málinu hjá portúgölskum yfirvöldum. 31.3.2008 16:32
Erfitt að gefa nákvæmar tölur um matvælahækkun Skúli J. Björnsson, formaður Félags íslenskra stórkaupmanna, telur erfitt að kasta fram ákveðnum prósentutölum um hækkun innfluttra matvæla, of margir þættir spili inn í hækkanirnar. 31.3.2008 16:19
Úttekt á peningamálastefnunni þegar um hægist Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að tímabært verði að ráðast í úttekt á virkni peningamálastefnunnar þegar um hægist í því ölduróti sem verið hefur á fjármálalífinu. Þetta kom fram í máli hans í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. 31.3.2008 15:53
Reykur í stigagangi Gvendargeisla Slökkviliðið fékk tilkynningu um reyk á stigagangi í fjölbýslishúsi í Gvendargeisla í Grafarholti nú fyrir stundu. Slökkviliðsbílar eru á leið á staðinn. Ekki er vitað hvort um bruna er að ræða á þessari stundu. 31.3.2008 15:52
Rafmagnið á innan klukkustundar Vonast er til að hægt verði að koma rafmagni á að nýju í Mosfellsbæ, Kjalarnesi, hluta Grafarvogs og í Grafarholti innan klukkustundar. Bilun varð í 132 kv aðalæð háspennu við Spöngina um hádegisbil í dag. 31.3.2008 15:46
Hefur efasemdir um aðskilnað tolls og lögreglu á Suðurnesjum Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, hefur efasemdir um að það sé til góðs að greina milli tolls og lögreglu á Suðurnesjum eins og til stendur. Þetta kom fram í máli hans í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. 31.3.2008 15:38
Simbabve í lausu lofti eftir kosningar Stjórnarandstaðan í Simbabve segir að landið sé í lausu lofti eftir að opinberar tölur kosninganna á laugardag fóru að berast. Samkvæmt þeim er hnífjafnt á milli stjórnarflokks Robert Mugabe og Lýðræðisflokks stjórnarandstöðunnar, báðir flokkar hafa unnið 19 þingsæti. 31.3.2008 15:09
Tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn ungum stúlkum Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann á áttræðisaldri í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart tveimur stúlkum þegar þær voru á aldrinum 10-12 ára. 31.3.2008 14:54
Neydd til að fjarlægja geirvörtuhringi með töng Kona, sem neydd var til að fjarlægja skrauthringi úr geirvörtum sínum með töng við vopnaleitarhlið í Texas, krefst afsökunarbeiðni frá Samgönguöryggismiðstöð Bandaríkjanna. 31.3.2008 14:32
Mótmælafundur á Austurvelli á morgun gegn háu olíuverði Boðað hefur verið til mótmæla á Austurvelli á morgun klukkan 16 þar sem allir eru hvattir til þess að mótmæla háum álögum á eldsneytisverð. 31.3.2008 14:24
Nýir flugrekendur fá aðstöðu í jaðri lóðar undir samgöngumiðstöð Reykjavíkurborg hyggst heimila að jaðar þeirrar lóðar sem ætluð er undir samgöngumiðstöð í Vatnsmýrinni geti nýst þeim sem ekki hafa aðstöðu á flugvellinum enda verði sú starfsemi síðar hluti af samöngumiðstöð. 31.3.2008 14:01
Gæti þurft að færa kælivörur „Frystarnir eru kaldir hjá okkur svo við erum ekki í vandræðum enn þá en ef þetta verður einhver tími þurfum við að gera ráðstafanir til að keyra kælivörur milli búða,“ segir Úlfar Eggertsson, verslunarstjóri í Krónunni í Mosfellsbæ. 31.3.2008 13:46
Rafmagnslaust til hálffjögur Reikna má með að rafmagnslaust verði í Mosfellsbæ, Kjalarnesi og hluta Grafarvogs í Reykjavík til klukkan hálffjögur en rafmagn fór þar af um hálfeittleytið. 31.3.2008 13:41
Sautján ára dæmdur fyrir tölvu- og bílstuld Sautján ára piltur var í Héraðsdómi Suðurlands dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa stolið bæði tölvum og bíl. 31.3.2008 13:34
Slasaðist illa við jarðboranavinnu Maður slasaðit illa á andliti er hann var við vinnu sína við jarðboranir á Hellisheiði síðastliðinn miðvikudag. 31.3.2008 12:52
Kappaksturshetjur létust í flugslysi Bresku kappaksturshetjurnar David Leslis og Richard Lloyd eru meðal þeirra sem létust þegar einkaflugvél fórst í íbúðarhverfi í Kent í gær. Vélin sendi út neyðarkall skömmu eftir flugtak frá Farnborough flugvelli og hrapaði á íbúðarhús í þéttri byggð. Þriðji maðurinn sem nafngreindur hefur verið er flugmaðurinn Mike Roberts. 31.3.2008 12:47
Fangi stunginn með útskurðarsporjárni í rassinn Lögreglan á Selfossi rannsakar nú hver stakk fanga á Litla-Hrauni í rasskinnina með útskurðarsporjárni á föstudag. 31.3.2008 12:44
Alþingi kemur saman í dag eftir páskafrí Alþingi kemur saman í dag að loknu páskaleyfi. Á dagskrá er meðal annars utandagskrárumræða um ástand efnahagsmála að beiðni Guðna Ágústssonar formanns Framsóknarflokksins. 31.3.2008 12:39
Rafmagnslaust í allt að fjórar klukkustundir í Mosfellsbæ og víðar Rafmagnslaust varð í öllum Mosfellsbæ, Kjalarnesi og hluta Grafarvogs í Reykjavík um hálfeittleytið. Í tilkynningu frá Orkuveitunni kemur fram að verið sé að leita orsakanna, en þrjár aðveitustöðvar eru spennulausar. 31.3.2008 12:36
Bíða eftir því að FARC láti Betancourt lausa Flugvél og læknar eru í viðbragðsstöðu ákveði FARC-skæruliðar að láta fransk-kólumbíska forsetaframbjóðandann Ingrid Betancourt lausa úr sex ára gíslingu. Hún er sögð alvarlega veik. Eiginmaður óttast að hún sé við dauðans dyr eða jafnvel látin. 31.3.2008 12:24
Gríðarlegar umferðartafir í mótmælum vörubílstjóra í morgun Gríðarlegar umferðartafir urðu í morgun þegar vörubílstjórar lokuðu Ártúnsbrekku í báðar áttir og sömuleiðis Reykjanesbraut í Kúagerði til að mótmæla mikilli gjaldtöku ríkissjóðs af olíu og bensíni. 31.3.2008 12:14
Fyrsti áfangi samgöngumiðstöðvar verði tilbúinn í lok næsta árs Ólafur F. Magnússon borgarstjóri vonast til þess að fyrsti hluti samgöngumiðstöðvar á Reykjavíkurflugvelli verði tilbúinn í lok næsta árs. Hann situr nú á fundi með Kristjáni Möller samgönguráðherra um málið. 31.3.2008 12:07
Þjófur dvaldi í sumarbústað í tvo daga Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í átta mánaða fangelsi, þar af fimm skilorðsbundna, fyrir þjófnað og húsbrot. 31.3.2008 11:55
Íhugar bann á tyrkneskum stjórnmálaflokki Stjórnlagadómstóll í Tyrklandi íhugar nú að taka fyrir mál sem miðar að því að banna stjórnarflokk landsins, AK flokkinn. Saksóknari hefur farið fram á að flokkurinn verði lagður af vegna afstöðu og aðgerða gegn verlaldlegum sjónarmiðum. Hann vill einnig að tugum meðlima flokksins, þar á meðal forsætisráðherranum og forsetanum, verði bannað að taka þátt í stjórnmálum. 31.3.2008 11:42
Blóðbankann þyrstir eftir páskafrí Blóðbankinn óskar nú eftir gjöfulum Íslendingum til að láta blóð sitt af hendi eftir páskafríið en löng frí segja strax til sín í blóðbúskap þjóðarinnar. 31.3.2008 11:27
Ræðir um loftlagsmál og öryggisógnir í New York Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flytur á morgun fyrirlestur um loftslagsbreytingar og nýjar öryggisógnir á vegum Carnegie Council í New York. Þá mun forsetinn einnig funda með fjölmörgum sendiherrum hjá Sameinuðu þjóðunum þar sem fjallað verður um framboð Íslands til Öryggisráðsins. 31.3.2008 11:14
Philip prins lét ekki myrða Díönu Engin sönnunargögn benda til þess að Philip drottningarmaður hafi fyrirskipað að Díana prinsessa og Dodi Fayed ástmaður hennar yrðu myrt. Þetta kom fram í samantekt Scott Baker lávarðs sem fer fyrir réttarrannsókninni á dauða prinsessunnar í London. 31.3.2008 11:04
Mynd Wilders mótmælt í hinum íslamska heimi Nokkrir tugir manna komu saman við hollenska sendiráðið í Djakarta í Indónesíu í morgun til þess að mótmæla nýbirtri stuttmynd hollenska stjórnmálamannsins Geerts Wilders um Kóraninn. 31.3.2008 10:49
Kúbverjar mega dvelja á ferðamannahótelum á Kúbu Stjórnvöld á Kúbu hafa ákveðið að heimila Kúbverjum að dvelja á hótelum á eyjunni sem ferðamenn hafa eingöngu fengið að dvelja á hingað til. 31.3.2008 10:29