Íhugar bann á tyrkneskum stjórnmálaflokki 31. mars 2008 11:42 Tyrkneskar konur mótmæla banni á höfuðklútum í Ankara 16. febrúar síðastliðinn. MYND/AFP
Stjórnlagadómstóll í Tyrklandi íhugar nú að taka fyrir mál sem miðar að því að banna stjórnarflokk landsins, AK flokkinn. Saksóknari hefur farið fram á að flokkurinn verði lagður af vegna afstöðu og aðgerða gegn verlaldlegum sjónarmiðum. Hann vill einnig að tugum meðlima flokksins, þar á meðal forsætisráðherranum og forsetanum, verði bannað að taka þátt í stjórnmálum. Málið vekur á ný upp átök milli AK flokksins sem fylgir viðhorfum trúrækinna múslima og þeirra sem aðhyllast veraldlegt stjórnkerfi. Á fréttavef BBC kemur fram að málið telji 162 blaðsíður. Þar sé að finna langan lista yfir það sem saksóknarinn kallar sönnun þess að ríkisstjórnin hafi íslamska dagskrá. Flokkurinn breytti stjórnarskrá landsins nýlega þannig að stúlkur geti hulið höfuð sín með slæðum í háskólum landsins. Veraldarsinnar óttast að það sé fyrsta skrefið í átt að íslömsku ríki, leitt af leiðtogum flokksins sem aðhylltust áður íslamska stjórnarhætti. AK flokkurinn segir að málið gegn honum sé árás á lýðræði. Flokkurinn vann sigur í kosningum á síðasta ári með 47 prósentum atkvæða og flestar skoðanakannanir sýna stuðning við að aflétta banni á höfuðklútum. Evrópusambandið hefur lýst yfir áhyggjum af málinu og segja að það gæti haft áhrif á metnað Tyrkja fyrir aðild að sambandinu.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fleiri fréttir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Sjá meira