Innlent

Þjófur dvaldi í sumarbústað í tvo daga

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í átta mánaða fangelsi, þar af fimm skilorðsbundna, fyrir þjófnað og húsbrot.

Manninum var gefið að sök að hafa í félagi við annan mann brotist inn í tvö sumarhús í landi Öndverðarness og landi Miðengis og stolið þaðan meðal ananrs áfengi, höttum af Stetson-gerð, útvarpstækjum og verkfærum. Þá var honum gefið að sök að hafa dvalist í öðru húsinu í tvo sólarhringa og á þeim tíma hagnýtt sér heimilismuni og sængurfatnað.

Maðurinn játaði brot sín fyrir dómi en honum hafði tvisvar áður verið gerð þung refsing fyrir þjófnað og var hann nú að rjúfa skilroð í þriðja sinn. Var tekið tillit til þess við ákvörðun refsingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×