Bíða eftir því að FARC láti Betancourt lausa 31. mars 2008 12:24
Flugvél og læknar eru í viðbragðsstöðu ákveði FARC-skæruliðar að láta fransk-kólumbíska forsetaframbjóðandann Ingrid Betancourt lausa úr sex ára gíslingu. Hún er sögð alvarlega veik. Eiginmaður óttast að hún sé við dauðans dyr eða jafnvel látin. FARC-skæruliðahreyfingin aðhyllist marxíska hugmyndafræði og er samtökunum enn stjórnað af þeim sem stofnaði þau árið 1964. Stjórnvöld í Kólumbíu hafa háð harða baráttu við hana síðan þá. Betancourt er fransk-kólumbísk og var í framboði til forseta Kólumbíu þegar henni og aðstoðarkonu hennar, Clöru Rojas, var rænt í febrúar 2002. Þær voru þá á kosningaferðalagi um landið. Myndir sýna að Betancourt er ekki við góða heilsu. Hún er sögð vera með lifrarbólgu B og húðsjúkdómi. Rojas og níu aðrir gíslar voru látnir lausir í janúar fyrir milligöngu Hugo Chavez, forseta Venesúela. Ekkert varð af frekari viðræðum þegar stjórnvöld í Kólumbíu gerður loftárásir á bækistöðvar FARC skæruliða í Ekvador án þess að ráðfæra sig við ráðamenn Quito. Ekvadorar og Venesúelamenn urðu æfareiðir en sættir tókust áður en til átaka kom. Alþjóðasamfélagið hefur krafist þess að Betancourt - sem og aðrir gíslar - verði þegar látnir lausir. Alvaro Uribe, forseti Kólumbíu, skrifaði um helgina undir fyrirmæli um að hundrað FARC-skæruliðar skyldu látnir lausir gegn því að Betancourt og öðrum yrði sleppt. FARC-liðar hafa enn ekki svarað tilboðinu. Frönsk flugvél er tilbúin ef grænt ljós er gefið á að sækja Betancourt og læknar í viðbragðsstöðu. Juan Carlos Lecopmt, eiginmaður Betancourt, óttast að eitthvað farið úrskeiðis. Hann er hræddur um að kona sé við dauðans dyr eða jafnvel að hún sé látin og skæruliðarnir vilji ekki upplýsa um það.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fleiri fréttir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Sjá meira