Innlent

Ræðir um loftlagsmál og öryggisógnir í New York

MYND/Hrönn

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flytur á morgun fyrirlestur um loftslagsbreytingar og nýjar öryggisógnir á vegum Carnegie Council í New York. Þá mun forsetinn einnig funda með fjölmörgum sendiherrum hjá Sameinuðu þjóðunum þar sem fjallað verður um framboð Íslands til Öryggisráðsins.

Fram kemur í tilkynningu frá forsetaembættinu að Carnegie Council sé ein af virtustu stofnunum í Bandaríkjunum á vettvangi alþjóðamála og verður fyrirlestri forseta útvarpað á WPKN-útvarpstöðinni. Jafnframt verður hægt að hlusta á fyrirlesturinn og samræður sem fylgja munu í kjölfarið gegnum netsíðu Carnegie Council, www.cceia.org, en einnig verður tenging á hana á heimasíðu forsetaembættisins, forseti.is. Fyrirlesturinn hefst á morgun kl. 12 að íslenskum tíma og að honum loknum mun forseti svara fyrirspurnum.

„Í fyrirlestrinum verður fjallað um þau öryggisvandamál sem birtast munu mannkyni á næstu áratugum ef ekki tekst að koma í veg fyrir varanlegar loftslagsbreytingar. Hinar nýju öryggisógnir munu m.a. stafa af kreppu í vatnsbúskap jarðarinnar, stórfelldri eyðingu ræktaðs lands og fæðuskorti, flóðum og langvarandi þurrkum, fellibyljum og straumi flóttafólks frá þeim löndum og heimshlutum sem verða verst úti," segir í tilkynningu forsetaembættisins.

Þar segir einnig að Ólafur Ragnar muni fjalla um nauðsyn þess að koma í veg fyrir frekari hlýnun loftslags svo forða megi mannkyni frá þessum nýju öryggisógnum. Því verði alþjóðastofnanir eins og Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að taka þær til umfjöllunar.

Forseti Íslands fundar á morgun á og miðvikudag með sendiherrum ríkja í Suður-Ameríku og með sendiherrum Norðurlanda og Eystrasaltsríkja hjá Sameinuðu þjóðunum. Á þessum fundum verður fjallað um framboð Íslands til Öryggisráðsins. Forseti var nýlega í opinberri heimsókn í Mexíkó en þá lýsti forseti Mexíkós, Felipe Calderón, yfir eindregnum stuðningi við framboð Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×