Úttekt á peningamálastefnunni þegar um hægist 31. mars 2008 15:53
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að tímabært verði að ráðast í úttekt á virkni peningamálastefnunnar þegar um hægist í því ölduróti sem verið hefur á fjármálalífinu. Þetta kom fram í máli hans í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, vakti athygli á orðum forsætisráðherra á aðalfundi Seðlabankans á föstudag. Þar sagði Geir að til skoðunar ætti að koma að gera óháða úttekt á virkni peningamálastefnunar og þeim tækjum sem Seðlabankinn hefði. Meta þyrfti reynsluna af Seðlabankalögunum frá árinu 2001 og til slíks verks þyrfti að fá hæfustu sérfræðinga innan lands og utan. Spurði Steingrímur hvenær stæði til að ráðast í slíka úttekt og spurði jafnframt hvers vegna úttektin væri skilgreind svo þröngt. Spurði hann hvort ekki ætti að taka út hagstjórnina þannig að aðgerðir og aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar yrði einnig til skoðunar. Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði í svari sínu að á undanförnum misserum hefðu verið háværar raddir um það hvort peningamástefnan væri í réttum farvegi eða í öngstræti og hvort Seðlabankinn hefði öll tæki sem hann þyrfti í vopnabúri sínu til þess að takast á við ástandið. Sagðist Geir ekki sammála allri gagnrýni á Seðlabankann en hann teldi rétt að fræðileg úttekt yrði gerð á peningamálastefnunni. Slíkt hefði verið gert víða, þar á meðal í Svíþjóð og Nýja-Sjálandi. Sagðist hann telja að það væri í senn tímabært að ráðast í slíka úttekt en Íslendingar ættu að taka höndum saman um að koma sér út úr því ölduróti sem nú gengi yfir. Þegar um hægðist væri tímabært að ráðast í úttekt á peningamálastefnunni.
Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Innlent Fleiri fréttir Ógnandi, vopnaður hníf og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli Sjá meira