Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lögreglan leitar Pólverja vegna Keilufellsárásar Lögreglan lýsir eftir Tomasz Krzysztof Jagiela. Tomasz er Pólverji, fæddur 1980. Hann er eftirlýstur grunaður um aðild að alvarlegri líkamsárás í Keilufelli 35, 22. mars síðastliðinn. 26.3.2008 10:21
Erill hjá lögreglu í Eyjum um páskahelgina Töluverður erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum um páskahelgina og voru meðal annars kærðar þrjár líkamsárásir. 26.3.2008 10:16
Huginn Heiðar látinn Huginn Heiðar Guðmundsson lést á gjörgæsludeild Landspítalans aðfararnótt mánudags. Huginn var þriggja ára og hafði háð hetjulega baráttu við alvarleg veikindi allt frá fæðingu í nóvember árið 2004. Hann var fluttur á sjúkrahús á sunnudagskvöld og lést þá um nóttina. 26.3.2008 09:56
Forsætisráðuneytið auglýsir eftir framboðum til forseta Forsætisráðuneytið birtir í dag auglýsingu um framboð og kjör forseta Íslands en samkvæmt ákvörðun fer forsetakjör fram 28. júní ef fleiri en einn bjóða sig fram. 26.3.2008 09:43
Laun tvöfaldast að meðaltali á átta árum Regluleg laun hér á landi tvöfölduðust á árabilinu 1998 til 2006 samkvæmt nýjum töflum sem finna má á heimasíðu Hagstofunnar. 26.3.2008 09:31
Lögreglan tók verkfæraþjófa Lögregla handtók þrjá menn undir morgun, eftir að hafa staðið þá að verki við að tína verkfæri út úr geymslugámi á athafnasvæði í Hafnarfirði. 26.3.2008 08:35
Sarkozy fer til Bretlands Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, mun hitta Elísabetu drottningu og ávarpa báðar deildir breska þingsins í tveggja daga heimsókn sinni til Bretlands. 26.3.2008 08:31
Clinton biðst afsökunar á „mismælum“ Hillary Clinton, sem berst um útnefningu demokrata fyrir forsetakjör í Bandaríkjunum, segir að hún hafi gert mistök þegar hún fullyrti að hún hafi orðið fyrir árás leyniskytta í Bosníu fyrir rúmum áratug. 26.3.2008 08:18
Enn meiri öryggiskröfur á Kennedy flugvelli Enn aukast öryggiskröfur á Kennedy flugvelli í New York. Farþegar sem ferðast með millilandaflugi um völlinn mega nú sætta sig við að þurfa að láta taka fingraför af öllu tíu fingrunum í stað tveggja áður. 26.3.2008 08:12
Tvisvar þurft að kyrrsetja Airbus A380 Flugfélagið Singapore Airlines hefur í tvígang þurft að kyrrsetja Airbus A380 þotu vegna bilunar í eldsneytisdælu. 26.3.2008 07:57
Þriðja íkveikjan á einum sólarhring Kveikt var í rusli við hús við Snorrabraut í Reykjavík seint í gærkvöldi og var slökkvilið kallað á vettvang. Það slökkti eldinn á svip stundu og hlaust ekki tjón af. Talið er full víst að kveikt hafi verið í af ásetningi. 26.3.2008 07:52
Fjórtán teknir vegna fíkniefnabrota Fjórtán karlmenn voru handteknir um páskana á höfuðborgarsvæðinu vegna fíkniefnabrota. Lítilræði af fíkniefnum fannst á þeim öllum, en engin er grunaður um sölumennsku. Sá yngsti var innan við tvítugt en sá elsti um sextugt. 26.3.2008 07:14
Danir banna reykingar á veitingastöðum Búast má við að reykingar verði bannaðar á öllum veitingastöðum í Danmörku innan fárra mánaða. 26.3.2008 07:02
Bannað að pissa á almannafæri Það er allt í lagi að pissa á almannafæri í Kópavogi, þótt það sé bannað í miðborg Reykjavíkur, staðhæfði karlmaður um tvítugt, sem lögregla stóð að verki í Kópavogi um helgina. 26.3.2008 06:53
Fjölbýlishús hrundi í Álasundi Fimmtán manns slösuðust og fimm er saknað eftir að fjölbýlishús hrundi í bænum Álasundi í Noregi í nótt. 26.3.2008 06:45
Einn til viðbótar handtekinn í Keilufellsmálinu Einn maður til viðbótar hefur verið handtekinn í Keilufellsmálinu svokallaða þegar hópur Pólverja réðst að samlöndum sínum í húsi í Keilufelli á skírdag. Lögreglan á Suðurnesjum handtók manninn í Röstinni í Reykjanesbæ og naut aðstoðar sérsveitar Ríkislögreglustjóra við handtökuna. 25.3.2008 20:12
Finni handtekinn á Páskaeyju fyrir skemmdarverk Marku Kulju, 26 ára gamall Finni, á yfir höfði sér sjö ára fangelsisdóm og milljóna sekt fyrir að valda skemmdarverkum á einni af styttunum á Páskaeyju í Kyrrahafinu. Stytturnar eru um alla eyjuna og voru höggnar í stein fyrir 400 til 1000 árum síðan. Marku braut eyrnasnepilinn af einni þeirra og ætlaði að taka brotið heim til Finnlands til minningar um ferðina. 25.3.2008 21:52
Risastór íshella á Suðurskautinu molnar Stór hluti Wilkins íshellunnar á Suðurskautslandinu hefur molnað á síðustu dögum. Um er að ræða íshellu sem er sjö sinnum stærri en Manhattan eyja í New York, eða um 414 ferkílómetrar. Vísindamenn segja að molnun íshellunnar megi rekja til hlýnunnar jarðar en íshellan hefur verið þarna í hundruðir ára. 25.3.2008 21:11
Mikilvægt að rannsaka hvað olli krónuhruni Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, krefst þess að það verði rannsakað hvað olli því að krónan féll eins og raunin varð fyrir páska. Þetta kom fram í þættinum Ísland í dag í kvöld. „Það er mikilvægt að rannsaka hvað gerðist fyrir páska sem olli því að krónan féll svona rosalega,“ sagði Gylfi. 25.3.2008 20:30
Myglusveppur skildi fjölskyldu eftir eignalausa Hjón í Hvalfjarðarsveit standa uppi slipp og snauð eftir að myglusveppur herjaði á hús þeirra og innbú. Tjónið nemur tæpum tuttugu milljónum króna en þau fá það ekki bætt þrátt fyrir að hafa talið sig vera tryggð. 25.3.2008 18:39
Neðanjarðareldgos undir Upptyppingum Jarðskjálftarnir við Upptyppinga og Álftadalsdyngju skýrast af neðanjarðareldgosi og litlar líkur er á að það brjóti sér leið upp á yfirborðið á næstu árum. Þetta er niðurstaða rannsóknarhóps Íslenskra orkurannsóka. 25.3.2008 18:35
Ingibjörg ræddi við sendiherra Kínverja um Tíbet Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, átti í dag samtal við sendiherra Kína á Íslandi, Zhang Keyuan, þar sem hún lýsti þungum áhyggjum yfir ástandinu í Tíbet. 25.3.2008 18:28
Rafmagn komið á í Kópavogi Grafið var í háspennustreng á Rjúpnahæð í Kópavogi fyrir stundu. Vegna þess var rafmagnslaust í Hvörfum, Kórum og Vöðum í nokkra stund. Í tilkynningu frá Orkuveitunni segir að nú sé allt komið í samt lag á ný. 25.3.2008 17:42
Segist ekki hafa ætlað að myrða Westergaard Annar Túnismannanna, sem grunaðir eru um að lagt á ráðin um að myrða danska teiknarann Kurt Westergaard vegna Múhameðsteikningar hans, segir að danska leyniþjónustan hafi aldrei yfirheyrt hann vegna málsins. 25.3.2008 16:27
Rússar endurvekja rannsókn á láti blaðamanns MOSKVA (AP) Rússnesk yfirvöld segjast hafa endurvakið rannsókn á dauða þing- og blaðamannsins Yuri Shchekochikhin sem lést voveiflega árið 2003, að því er talið var vegna lyfja- og matarofnæmis. 25.3.2008 16:19
Tvö leyniherbergi til viðbótar fundin í Jersey Tvö refsingarherbergi hafa fundist á upptökuheimili í Jersey til viðbótar við þau tvö sem fundust við rannsókn lögreglu í febrúar. Réttarrannsóknarmenn fundu leyniherbergin á heimilinu sem nefnist Haut de la Garenne á Ermasundseynni. Um 100 manns halda því fram að þeir hafi verið líkamlega og kynferðislega misnotaðir á heimilinu frá sjöunda áratugnum. 25.3.2008 15:50
Vilja sektir fyrir þá sem ekki láta skoða bíla á réttum tíma Þeir sem vanrækja að fara með bílinn sinn í skoðun á tilsettum tíma gætu átt yfir höfði sér 30 þúsund krónur í sekt verði frumvarp um breytingar á umferðarlögum samþykkt. 25.3.2008 15:48
Tveggja mánaða fangelsi fyrir að tvíkjálkabrjóta mann Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í tveggja mánaða fangelsi fyrir alvarlega líkamsárás inni á bensínsafgreiðslustöð N1 við Ártúnsbrekku í Reykjavík í maí í fyrra. 25.3.2008 15:20
Sjö teknir fyrir fíkniefnaakstur í og við Akranes í síðustu viku Lögreglan á Akranesi hefur handtekið 26 menn vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna það sem af er þessu ári, þar af voru sjö teknir í síðustu viku. 25.3.2008 15:12
Sarkozy opinn fyrir því að sniðganga Ólympíuleikana Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, hefur sagt að „allir möguleikar séu opnir” um þá spurning hvort sniðganga eigi sumarólympíuleikana í Kína í ár vegna átakanna í Tíbet. Aðstoðarmenn hans segja að Frakkland sé enn andvígt því að leikarnir verði sniðgengnir að fullu en yfirvöld gætu íhugað að halda sig fjarri opnunarhátíðinni. 25.3.2008 15:04
Fornfrægt vændishús lokar leggöngunum Eigandi elsta starfrækta vændishúss Hamborgar, Waltraud Mehrer, hefur ákveðið að loka dyrum sínum og hætta rekstri en henni þykir sem hið nafntogaða rauðljósahverfi borgarinnar, St. Pauli, hafi munað sinn fífil fegurri. 25.3.2008 14:56
Opnað fyrir fréttavef BBC í Kína Almenningur í Kína hefur nú frjálsan aðgang að fréttavef BBC á netinu. Nú er hægt að nálgast þar fréttir á ensku eftir áralanga og stranga ritskoðun af hálfu yfirvalda. 25.3.2008 14:47
Birgjar dragi úr hækkunum ef krónan styrkist „Það er von á hækkunum á næstu dögum en ef krónan styrkist frekar reiknum við fastlega með að birgjar dragi hækkanir að einhverju leyti til baka sem skilar sér svo auðvitað út í verslanirnar,“ sagði Eysteinn Helgason, framkvæmdastjóri Kaupáss hf. sem rekur verslanir Nóatúns, 11-11 og Krónunnar. 25.3.2008 14:27
Þarf að virkja forsendunefnd kjarasamninga Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, segir Íslendinga standa frammi fyrir efnahagslegri vá og telur að virkja þurfi forsendunefnd kjarasamninga og samráðsvettvang stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins til þess að ræða þá stöðu sem upp er komin í íslensku efnahagslífi. 25.3.2008 14:25
Einn látinn í 100 bíla árekstri í Austurríki Einn er látinn og 30 slasaðir eftir að tæplega 100 bílar lentu í árekstri á A1 hraðbrautinni í vesturhluta Austurríkis í hádeginu í dag. Áreksturinn varð við bæinn Seewalchen á hraðbrautinni milli Vínarborgar og Salzborgar. 25.3.2008 14:22
Fundu fíkniefni á flugfarþega við komuna á Ísafjörð Þrjú fíkniefnamál komu upp hjá lögreglunni á Ísafirði um helgina en þar var talsverður erill vegna hátíðahalda í bænum. 25.3.2008 13:45
Enn í öndunarvél eftir bílveltu á Reykjanesbraut Konan sem lenti í bílveltu á Reykjanesbraut í liggur enn á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi og er henni haldið sofandi í öndunarvél. 25.3.2008 13:40
Sjálfsagt að skoða starfsemi Kópavogsbrautar „Ef það eru einstaklingar að koma fram núna sem tjá sig um reynslu sem er erfið vegna einhverskonar ofbeldis finnst mér sjálfsagt að athuga það, rétt eins og gert var með Breiðavík,“ segir Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu. 25.3.2008 13:27
Endeavour losar festar við geimstöðina Geimferjan Endeavour hefur verið fimmtán daga í geimnum. Þar af hefur hún verið tengd við Alþjóðlegu geimstöðina í tólf daga. 25.3.2008 13:15
Heimilislausir reknir úr tjaldbúðum Yfirvöld í bænum Ontario í Kaliforníu í Bandaríkjunum byrjuðu í gær að taka niður 400 manna tjaldborg heimilislausra, sem höfðu hreiðrað um sig í grennd við flugvöll bæjarins. 25.3.2008 13:05
Fundu amfetamín og hass í bíl við umferðareftirlit Lögreglan á Selfossi lagði hald á um tíu grömm af amfetamíni og tóbaksblandað hass í bifreið sem stöðvuð var í umferðareftirliti á páskadag. 25.3.2008 13:02
Ekkert þokast í rannsókn á Keilufellsárás Ekkert hefur þokast í rannsókn lögreglu á árás á sjö karlmenn í Keilufelli á laugardag. Fjórir menn eru í gæsluvarðhaldi vegna málsins en yfirheyrslur yfir þeim hafa engan árangur borið. 25.3.2008 13:00
Kínverjar fordæma mótmælaaðgerðir BEIJING (Reuters) Kínversk stjórnvöld fordæmdu í dag mótmælaaðgerðir stuðningsmanna Tíbets sem trufluðu kyndilkveikjuathöfn Ólympíuleikanna sem fram fór í Grikklandi í gær. 25.3.2008 12:54
Viðbeinsbraut mann í líkamsárás Lögreglan á Selfossi fékk þrjár tilkynningar um líkamsárásir um páskahelgina eftir því sem segir í dagbók hennar. 25.3.2008 12:46
Höfuðkúpa að líkindum erlend Höfuðkúpan sem fannst við Meðalfellsvatn á páskadag er að öllum líkindum erlend og var eitt sinn í eigu læknis sem lést fyrir nokkrum árum. Lögreglan telur málið að mestu upplýst. 25.3.2008 12:36