Fleiri fréttir

Eldur í Hraunbergi í Breiðholti

Eldur kom upp í Hraunbergi í Breiðholti nú fyrir stundu. Slökkviliðið er nú að slökkva eldinn en litlar upplýsingar liggja fyrir að svo stöddu. Ekki er vitað hvort einhver var inni í íbúðinni þegar eldurinn kom upp.

Hjálparfé til Afganistan gufar upp

Rúmlega 780 milljarðar íslenskra króna sem lofað var til hjálparstarfa í Afganistan frá falli Talibana hefur enn ekki skilað sér. Þetta segir umboðsskrifstofan Afghan Relief (Acbar) sem hefur á sínum snærum 94 hjálparstofnanir. Fjörtíu prósent fjármuna sem safnast vegna ástandsins í Afganistan renna til ráðgjafa eða í ýmis gjöld í löndunum sem peningarnir koma frá.

Hannes og frú skipta glæsivillum á milli sín

Athafnamaðurinn Hannes Smárason og sambýliskona hans Unnur Sigurðardóttir hafa skipt á milli sín glæsivillum fjölskyldunnar á Fjölnisvegi 9 og 11. Húsin voru áður í eigu eignarhaldsfélagsins Fjölnisvegs 9 sem Hannes á.

Áfrýjun í Mýrarhúsaskólamáli óákveðin

Ekki hefur verið ákveðið hvort Mýrarhúsaskólamálinu svokallaða verði áfrýjað til hæstaréttar, að sögn Valgeirs Pálssonar, forstöðumanns lögfræðideildar Tryggingamiðstöðvarinnar.

Íraski herinn berst við uppreisnarmenn í Basra

Harðir bardagar hafa geisað í Basra milli íraska hersins og uppreisnarmanna Sjía eftir árás þúsunda íraskra hermanna í morgunsárið. Nouri Maliki forsætisráðherra Íraka er í Basra og stjórnar aðgerðunum, einungis degi eftir að hann kom þangað í heimsókn og hét þess að taka aftur upp lög. Á fréttavef BBC segir að vitni hafi greint frá miklum reyk, sprengingum, skriðdrekum og stórskotaliði.

Um 440 þúsund sóttu leikhús í fyrra

Áætlað er að um 440 þúsund manns hafi sótt sýningar leikhúsa, atvinnuleikhópa og áhugaleikfélaga hér á landi á leikárinu 2006-2007. Þessi fjöldi samsvarar því að hver landsmaður sæki leikhús 1,4 sinnum á ári.

Björgunarsveitarmenn kallaðir að Steingrímsfjarðarheiði

Björgunarsveitarmenn frá Hómavík voru kallaðir út seint í gærkvöldi til að aðstoða fólk, sem sat í föstum bíl á Steingrímsfjarðarheiði. Leiðangurinn gekk vel og amaði ekkert að fólkinu í bílnum, sem komið er til byggða.

Vilja að hugmyndum um loftlínur verði hafnað

Sól í Straumi skorar á bæjarstjórn Hafnarfjarðar að hafna hugmyndum Landsnets um að loftlínur frá Hellisheiðarvirkjun fyrir álver í Helguvík liggi um bæjarland Hafnarfjarðar.

Björguðu manni úr brennandi húsi

Eldur kviknaði í nótt í yfirgefnu húsi við Hverfisgötu, sem til stendur að rífa. Reykkafarar voru strax sendir inn í húsið til að kanna hvort það væri ekki örugglega mannlaust,

Bílvelta á Suðurlandsvegi

Bílvelta varð á Suðurlandsvegi við Hveradalabrekku um klukkan 19:00 í kvöld. Ein kona var í bílnum og hlaut hún minniháttar meiðsl, Veltan er rakin til hálkubletta sem eru á veginum.

Islamistar framlengja frest

Hópur Íslamista sem heldur til í Saharaeyðimörkinni og hefur þar tvo austurríska gísla í haldi hefur framlengt frest sem hópurinn gaf austurískum yfirvöldum til að verða við kröfum um lausnargjald. Hópurinn heimtar að 10 herskáir íslamistar sem í haldi eru í Alsír og Túnis verði látnir lausir gegn því að láta gíslana af hendi.

Sprengihnalli stolið

Lögreglunni á Seyðisfirði var í vikunni tilkynnt um að stolið hefði verið sprengihnalli við Ufsaveitu. Hnallurinn hefur ekki enn fundist en hann er notaður til að tendra sprenginu.

Segir hauskúpuna koma frá lækni

Vísir ræddi við konu í kvöld sem segist vera eigandi hauskúpunar sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum síðan í gærkvöld. Konan, sem ekki vildi láta nafns síns getið, þvertók fyrir að eitthvað gruggugt væri við hauskúpuna eða við það hvernig hún komst í hennar hendur.

Sáu yfir í Héðinsfjörð úr gangamunnanum

Bormenn Héðinsfjarðarganga slógu í gegn á föstudag og gátu þá horft Siglufjarðarmegin úr göngunum yfir í Héðinsfjörð. Fögnuður þeirra var mikill þegar þeir sáu glitta í fjörðinn.

Umbætur í landbúnaði á Kúbu

Raul Castro hinn nýi leiðtogi Kúbu virðist vera að fikra sig í átt til umbóta. Á fundum þvers og kruss um landið er bændum sagt að þeir fái sjálfir að ráða því hvað þeir rækta á sínu landi og hvert og hvernig þeir selji það.

Bjóst ekki við að drengurinn myndi lifa

Vitni að því þegar snjósleði rann stjórnlaust á fjórtán ára gamlan dreng í Bláfjöllum í gær segist ekki hafa búist við því að hann myndi lifa af. Sleðinn hafi skollið á piltinum á miklum hraða og þeir svo oltið áfram.

Hauskúpumálið upplýst?

Heimamenn í Kjósarhrepp eru langt komnir með að leysa hauskúpumálið sem upp kom þegar hlutar úr hauskúpu fundust á víðavangi í hreppnum í fyrrakvöld.

Árásarmennirnir ófundnir

Lögreglan leitar enn að sex til átta manns sem grunaðir eru um að hafa brotist inn á heimili í Keilufelli í gær og ráðist með kylfum á sjö karlmenn sem þar bjuggu. Rannsóknin beinist meðal annars að því að fá staðfestan framburð fórnarlambanna um að um pólskt glæpagengi hafi verið að ræða.

Leitað að lettneskum auðjöfri

Lettneska lögreglan leitar nú að Leonid Rozhetskin rússnesk-ættuðum auðjöfri sem hvarf á dularfullan hátt úr glæsihúsi sínu á Balkanskaga fyrir einni viku.

Einn á gjörgæslu eftir bílveltu

Einn er á gjörgæslu og fjórir voru fluttir á slysadeild eftir umferðarslys vestan við Vogaveg á Reykjanesbraut um klukkan eitt í nótt.

Höfuðkúpan notuð sem öskubakki

Höfuðkúpan sem fannst á leiksvæði við Meðalfellsvatn í gærdag er rakin til hjólhýsis sem þar stóð síðasta sumar. Niðurstöður bráðabirgðarannsóknar sína að höfuðkúpan er líklega úr konu eða barni sem lést fyrir tíu til þrjátíu árum.

Umferðarmannvirki skapa hættu

Ætla mætti að gleymst hafi að taka tillit til vöruflutningabifreiða við hönnun umferðarmannvirkja á höfuðborgarsvæðinu.

Forsætisráðherra Pakistan krefst lausnar dómara

Yusuf Raza Gillani nýskipaður forsætisráðherra Pakistan hefur fyrirskipað að öllum dómurum sem verið hafa í haldi frá setningu neyðarlaga í landinu verði sleppt. Þetta tilkynnti Gillani nokkrum mínútum eftir að vera kosinn til embættisins af þingmönnum í dag.

Skarst á hálsi á dansleik á Höfn

Karlmaður var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur eftir að hann skarst á háls eftir dansleik á Höfn í Hornafirði aðfararnótt laugardags. Lögreglan á Höfn verst allra frétta af málinu en segir málið í rannsókn.

Drengur alvarlega slasaður eftir snjósleða í Bláfjöllum

Alvarlegt slys varð á skíðasvæðinu í Bláfjöllum í gærmorgun. Starfsmaður missti stjórn á vélsleða rétt ofan við Kóngslyftu þannig að hann féll af honum. Vélsleðinn rann stjórnlaus niður skíðabrekku og hafnaði á ungum dreng sem varð undir sleðanum. Drengurinn var fluttur alvarlega slasaður á Landsspítalann í Fossvogi. Hann mun vera margbrotinn á vinstri fæti og viðbeinsbrotinn auk þess sem hann hlaut bólgur í andliti og á hnakka.

Mannabein fundust í Kjósarhreppi

Hlutar úr hauskúpu fundust á víðavangi í Kjósarhreppi í gærkvöldi. Frumrannsókn á hlutunum leiddi í ljós að beinin eru um tíu til þrjátíu ára gömul. Rannsókn lögreglu er á frumstigi en talið er að beinin séu úr konu eða barni.

Hamas eyðileggur friðarferli Mið-Austurlanda

Dick Cheney varaforseti Bandaríkjanna segir að herskáir Hamasliðar í Palestínu ásamt Íran og Sýrlandi reyni að sundra friðarumleitunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Cheney lét ummælin falla eftir morgunverð með Ehud Olmert forsætisráðherra Ísraels sem markaði enda ferðar hans til Mið-Austurlanda.

Kveikt á ólympíueldinum þrátt fyrir mótmæli

Kveikt var á ólympíueldinum við hátíðlega athöfn í Grikklandi í morgun þrátt fyrir truflun mótmælenda. Tveir aðgerðarsinnar sem eru á móti yfirráðum Kína í Tíbet brutu sér leið í gegnum þúsund manna varðhring lögreglu í Ólympíu og reyndu að setja upp fána þegar sendifulltrúi Kínverja talaði. Aðgerðarsinnar höfðu boðað mótmæli vegna ástandsins í Tíbet.

Fyrrverandi kona Sarkozy giftir sig á ný

Cecilia, fyrrverandi eiginkona Nicolasar Sarkozy, forseta Frakklands er búin að gifta sig á ný. Nýi eiginmaðurinn er marókkoskur auðmaður sem heitir Richard Attias. Cecilia og franski forsetinn skildu í október síðastliðnum eftir ellefu ára brokkgegnt hjónaband.

Búist við þungri umferð

Búast má við þungri umferð á þjóðvegum í dag, einkum til Reykjavíkur, þegar tugþúsundir landsmanna snúa heim úr páskafríi. Mestur verður umferðarþunginn að líkum á Norðurlandsvegi og Vesturlandsvegi enda meðal annars margt skíðafólk af höfuðborgarsvæðinu sem lagði leið sína á helstu skíðasvæði Norðurlands.

Fjögurþúsund Bandaríkjamenn hafa fallið í Írak

Fjórir bandarískir hermenn féllu í Írak í gær. Þar með hafa fjögur þúsund bandarískir hermenn fallið síðan innrás var gerð í landið fyrir fimm árum. Bandamenn unnu stríðið gegn herjum Saddams Hussein næsta auðveldlega. Eftirleikurinn hefur hinsvegar verið erfiðari.

Aukaflug hjá FÍ vegna páskahelgarinnar

Flugfélag Íslands hefur sett upp alls átta aukaflug í dag til að flytja fólk aðallega utan af landi til Reykjavíkur á lokadegi páskahelgarinnar. Aukaflugin eru frá Ísafirði, Akureyri og Egilsstöðum en alls eiga sextánhundruð manns bókað flugfar í dag með vélum Flugfélagsins. Ágætlega viðrar til flugs og er fært á alla staði.

250 landflótta Tíbetar handteknir

Tvöhundruð og fimmtíu landflótta Tíbetar voru handteknir í mótmælagöngu í Katmandu, höfuðborg Nepals í dag. Göngufólkið var að reyna að komast að höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í Katmandu. Mótmælafundir hafa verið haldnir daglega í Nepal undanfarnar vikur. Þar búa um 20 þúsund Tíbetar sem flúðu land sitt eftir misheppnaða uppreisn gegn Kínverjum árið 1959.

Einn á slysadeild eftir árekstur á Bústaðavegi

Einn var fluttur á slysadeild eftir árekstur tveggja bíla á Bústaðavegi við Kringlumýrarbraut um klukkan átta í morgun þegar fólksbíll og jeppi skullu saman. Ökumaður jeppans er grunaður um ölvun við akstur og var fluttur til yfirheyrslu á lögreglustöð.

Eldur í rusli og bílum á höfuðborgarsvæðinu

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna íkveikju í rusli við hús á Mýrargötu í nótt. Þá voru þrjú útköll vegna elds í jafnmörgum bílum á höfuðborgarsvæðinu.

Sprautunálarán eru hluti af fíkniefnavandanum

Gróf ofbeldisverk og hótun um ofbeldi hljóta alltaf að vera með alvarlegustu málum sem upp koma í okkar samfélagi, segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður borgarráðs og íbúi í Breiðholti.

Sjá næstu 50 fréttir