Fleiri fréttir

Mikill verðmunur á hreinlætisvörum

Allt að 100% munur var á verði á hreinlætisvörum milli stórmarkaða í verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í dag. Kannað var verð á sjampói, þvottaefnum, hreinsiefnum og barnavörum í 12 stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu. Bónus var oftast með hæsta verðið en ellefu-ellefu var oftast með hæsta verðið.

Óveður á fjallvegum

Óveður, hálka og éljagangur er á Hellisheiði og í Þrengslum, undir Hafnarfjalli, á Holtavörðuheiði og á norðanverðu Snæfellsnesi að sögn Vegagerðarinnar. Þungfært er um heiðar á Vestfjörðum og hálkublettir víða á Norðurlandi.

Tekur sæti á þingi í lok apríl

Guðjón Ólafur Jónsson sem tekur sæti Árna Magnússonar á þingi segist hafa orðið fyrir áfalli þegar honum varð ljóst að Árni Magnússon félagsmálaráðherra ætlaði að hætta á þingi og að hann sjálfur væri á leið á þing. Hann segir mikinn missi að Árna.

Gengi krónunnar í methæð

Raungengi krónunnar hefur ekki mælst hærra í 18 ár að því er fram kemur í hálffimmfréttum KBbanka. Krónan veiktist í síðustu viku og var raungengið einungis um 111 stig við lokun markaða á föstudaginn en hefur nú náð sér á strik og mældist 117 stig í dag.

Kippur í fasteignamarkaði

Gengið var frá 206 kaupsamningum á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku og þykja það óvenju mikil umsvif á fasteignamarkaðinum. Að jafnaði er skrifað undir um 197 kaupsamninga á viku samkvæmt tölum Fasteignamats ríkisins. Rólegt var á fasteignamörkuðum í janúar en ekki er vitað nákvæmlega hvers vegna þessi kippur kemur núna.

Mjólka kærir undirboð

Nýja mjólkurvörufyrirtækið Mjólka hefur kært Osta- og smjörsöluna til Samkeppnisráðs fyrir undirboð og óeðlilega viðskiptahætti. Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri Mjólku, segir Osta- og smjörsöluna nota ráðandi markaðsstöðu til að reyna að bola Mjólku út af markaðinum.

Elding laust vél Icelandair

Flugvél IcelandAir á leið til New York var snúið við eftir að hafa orðið fyrir eldingu. Vélin var búin að vera í loftinu í um 15 mínútur þegar atvikið átti sér stað. Að sögn farþega um borð í vélinni virtist sem sprunga hafi komið á bol vélarinnar að framanverðu en um borð voru 151 farþegi og sakaði engan þeirra. Vélin lenti á Keflavíkurflugvelli heilu og höldnu nú skömmu fyrir fréttir.

Ný lög í Rússlandi

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, undirritaði í dag lög sem heimila hernum að skjóta niður farþegaflugvélar og ráðast á skip sem eru á valdi ræningja. Árásir hersins á flugvélar eða skip verða leyfðar jafnvel þótt gíslar séu um borð. Báðar deildir rússneska þingsins höfðu samþykkt frumvarp til laganna. Lögin eru sett í kjölfar sífellt fjölgandi hryðjuverka í Rússlandi á undanförnum árum.

Niðurstaðna að vænta í vikunni

Íranar hafa aukið framleiðslu á eldflaugum sem geta borið kjarnaodda. Íransstjórn lofar að leggja meiri áherslu á auðgun úrans en áður, ákveði Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að beita refsiaðgerðum gegn Íran.

Ekkert tjón af völdum jarðskjálftans

Snarpur jarðskjálfti, 4,6 á Richter, varð austur af Krísuvík um klukkan hálf þrjú í dag. Jarðskjálftinn varð á mjög virku svæði, um 3 kílómetra austur af Kleifarvatni eða um 7,7 kílómetra austnorðaustur af Krísuvík, á rúmlega sjö kílómetra dýpi. Nokkuð af eftirskjálftum hefur fylgt í kjölfarið.

Óvissan slæm fyrir Framsókn

Staða Framsóknarflokksins veikist við þá ákvörðun Árna Magnússonar að hætta í pólitík að mati Önnu Kristinsdóttur, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins. Hún telur slæmt fyrir flokkinn að ekki liggi skýrt fyrir hver muni taka við formennsku af Halldóri Ásgrímssyni eftir fráhvarf Árna.

Sex látnir á árinu

Sex hafa látist í umferðarslysum það sem af er árinu. Um tíu til fimmtán prósent ökumanna nota ekki bílbelti þrátt fyrir að margoft hafi verið sýnt fram á mikilvægi þeirra. Þessi hópur hefur mikil áhrif á slysatíðnina að sögn forstöðumanns rannsóknarnefndar umferðarslysa.

Ekkert tjón af völdum skjálftans

Snarpur jarðskjálfti, 4,6 á Richter, varð austur af Krísuvík um klukkan hálf þrjú í dag. Jarðskjálftinn varð á mjög virku svæði, um 3 kílómetra austur af Kleifarvatni eða um 7,7 kílómetra austnorðaustur af Krísuvík, á rúmlega sjö kílómetra dýpi. Nokkuð af eftirskjálftum hefur fylgt í kjölfarið. Jarðskjálftinn í dag fannst víða um suðvestanvert landið. Vel á öllu höfuðborgarsvæðinu, upp í Hvalfjörð og allt austur á Hvolsvöll. Hvorki er þó vitað um tjón á mannvirkjum né fólki.

Jónasi Garðarssyni birt ákæra á morgun

Jónasi Garðarssyni formanni Sjómannafélags Reykjavíkur verður birt ákæra á morgun. Mál Lögreglustjórans í Reykjavík gegn honum verður þingfest á morgun og þá gefst Jónasi tækifæri til að tjá sig um sakarefnið.

Tugir eftirskjálfta en ekkert tjón

Jarðskjálftinn í dag fannst víða um suðvestanvert landið. Vel á öllu höfuðborgarsvæðinu, upp í Hvalfjörð og allt austur á Hvolsvöll. Hvorki er þó vitað um tjón á mannvirkjum né fólki.

Brotthvarf Árna veikir Framsókn

Brotthvarf Árna Magnússonar af þingi og úr ráðherrastóli veikir Framsóknarflokkinn og Halldór Ásgrímsson, formann flokksins, segir Baldur Þórhallsson, dósent í stjórnmálafræði.

Skrifaði undir tvo samninga tendum sjúkraflutningum

Eitt síðasta embættisverk Jóns Kristjánssonar sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra var að undirrita tvo samninga tengdum sjúkraflutningum. Annar samningurinn var við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins um sjúkraflutninga á svæðinu og hinn samningurinn var við Rauða kross Íslands um útvegun og rekstur bifreiða og tækjabúnaðar til sjúkraflutninga.

Snjóþekja víða um land

Hálka og éljagangur er á Hellisheiði og í Þrengslum. Á Vestfjörðum er þæfingur á Dynjandisheiði. Þungfært er og skafrenningur er á Hrafnseyrarheiði og snjóþekja er á Eyrarfjalli. Hálkublettir eru víða á Norðausturlandi og snjóþekja er á Lágheiði. Þá er einnig snjóþekja víða á Suðausturlandi.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans eykst um 3,7 milljarða króna

Gjaldeyrisforði Seðlabanka Íslands jókst um 3,7 milljarða í febrúarmánuði og nam 72,1 milljarði í lok hans eða 1.104 milljónum Bandaríkjadala miðað við gengi í mánaðarlok. Aukninguna má rekja til reglubundinna kaupa Seðlabankans á gjaldeyri á innlendum markaði og gegnishagnaðar.

Bíll fauk útaf veginum undir Hafnarfjalli

Bíll með kerru á suðurleið fór hálfur útaf á þjóðvegi eitt undir Hafnarfjalli fyrr í dag. Nokkuð hvasst var á þessum slóðum en svo virðist sem vindhviða hafi feykt kerrunni út af veginum og með þeim afleiðingum að bíllinn snerist á veginum. Tvennt var í bílnum en engin slys urðu á fólki. Bíllinn er nokkuð skemmdur en kerran er óskemmd.

Norðurljósablús lukkaðist vel

Blúshátíðin Norðurljósablús var haldin á Höfn í Hornafirði um síðustu helgi. Þetta er í fyrsta sinn sem hátíðin er haldin og þótti hún lukkast vel. Aðalgestir hátíðarinnar voru Emil & the Ecstatics en alls komu 25 tónlistarmenn í sjö hljómsveitum fram á tíu blústónleikum um helgina.

Margir eftirskjálftar

Hátt á þriðja tug eftirskjálfta hafa mælst í nágrenni Krísuvíkur þar sem skjálfti að stærðinni 4,6 á Richterskala átti upptök sín um klukkan 14:30. Um litla skjálfta er að ræða en enginn þeirra hefur mælst yfir 2,7 á Richterskala.

Fullkomið brúðkaup tekið til sýninga í Reykjavík

Leikritið Fullkomið brúðkaup, sem sýnt hefur við miklar vinsældir hjá Leikfélagi Akureyrar, verður tekið til sýninga í Borgarleikhúsinu en gengið var nýlega frá samning um sýningar. Leiksýningin er aðsóknamesta sýning í sögu Leikfélags Akureyrar en sýningum lauk í febrúar.

Markmið að bæta möguleika þroskaheftra

Norræna samstarfsnefndin um málefni fatlaðra er að fara af stað með verkefni sem fjallar um lífskjör og lífsgæði þroskraheftra einstaklinga. Í frétt á heimasíðu Norðurlandaráðs segir að markmið verkefnisins sé að auka gæði þeirra möguleika sem standa þroskaheftum einstaklingum til boða.

Alþjóðleg skákhátíð: Skákin brúar bil

Skáksamband Íslands stendur fyrir alþjóðlegri skákhátíð í Reykjavík dagana 6.-18. mars. Skákhátíðin ber heitið Skákin brúar bil og er ætlað að brúa bil milli kynslóða, trúarbragða, þjóðarbrota, kynþátta og kynja. Fjölmargir skáksnillingar koma til landsins gagngert vegna hátíðarinnar sem er ekki síður hátíð fjölbreytileika og fjölmenningar. Skáksnillingarnir koma frá hinum ýmsu löndum meðal annars Egyptalandi, Líbanon, Færeyjum, Bandaríkjunum, Ísrael Rúmerníu og fleiri löndum.

Allt nötraði við Krísuvíkurskóla

Jarðskjálftinn sem varð um 7,7 kílómetra aust-norð-austur af Krísuvík um hálf þrjú í dag fannst vel í Krísuvíkurskóla. Að sögn Ernu Hauksdóttur, ráðgjafa við skólann, fundu allir þar vel fyrir skjálftanum. Hún sagði þó engar sjáanlegar skemmdir á húsinu og hlutir hafi ekki færst úr stað.

Jarðskjálfti í nágrenni Krísuvíkur

Jarðskjálfti upp á 4,6 á Richterskala varð klukkan 14:30 í dag. Upptök skjálftana eru um 7,7 kílómetra aust-norð-austur af Krísuvík samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Veðurstofunnar. Skjáfltinn fannst mjög víða á höfuðborgarsvæðinu og allt austur á Selfoss. Nokkur vegsummerki eru víða vegna skjálftans en rúða brotnaði í heimahúsi í Garðabæ.

Fuglaflensa í Póllandi

Grunur leikur á að hið hættulega H5N1 afbrigði fuglaflensu hefur greinst í Póllandi í fyrsta sinn. Milljónum fugla hefur verið slátrað í Írak til að hefta útbreiðslu veirunnar.

Nýr framkvæmdarstjóri hjá Vensy

Jorge Eugui hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra hjá Vensy, dótturfélagi Alfesca á Spáni. Vensy er markaðsleiðandi í sölu á reyktum laxi á Spáni, bæði í eigin vörumerki, Skandia, og í vörumerkjum stórmarkaða með um 20% markaðshlutdeild, þar af 13% í eigin vörumerki, Skandia. Hjá fyrirtækinu starfa tæplega 300 starfsmenn.

Segir stjórnvöld fela niðurstöður

Það er engu líkara en stjórnvöld vilji fela niðurstöður rammaáætlunar um samanburð á virkjanakostum og líklegum umhverfisáhrifum þeirra. Þetta sagði Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi forsætisráðherra í Silfri Egils í gær.

Fatah-liðar gengu á dyr

Þingmenn Fatah-hreyfingar Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, gengu útaf fyrsta þingfundi nýrrar heimastjórnar Palestínumanna í dag. Þingið er nú undir stjórn Hamas-samtakanna og á fundinum ætluðu Hamas-liðar að breyta nýrri löggjöf sem sett var síðasta dag fyrra þings þar sem völd forsetans voru aukin.

Íraksþing kemur saman síðar í mánuðinum

Nýkjörið þing Íraks verður kallað saman til síns fyrsta fundar þann 12. mars næstkomandi. Illa hefur gengið að mynda þjóðstjórn í landinu og hafa átök sjía- og súnní-múslima síðustu vikur ekki hjálpað til í þeim efnum. Að minnsta kosti níu féllu í röð sprengjuárása í Bagdad og næsta nágrenni í morgun.

Bakkaði á kyrrstæðan bíl

Síðastliðin vika var róleg í umdæmi lögreglunnar í Vík í Mýrdal en fimm ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók var á 123 km hraða. Eitt umferðaróhapp varð í Vík en ökumaður ók aftur á bak á kyrrstæðan bíl.

Þróun hagkerfisins vekur athygli erlendis

Birgir Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og þriðji varaforseti Alþingis, og Jón Gunnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sóttu fund þingforseta smærri ríkja í Evrópu sem haldinn var í Mónakó í lok febrúar.

Höfðu afskipti af 80 ökumönnum

Lögreglumenn í umdæmi lögreglunnar á Álftanesi, í Garðabæ og Hafnarfirði höfðu afskipti af 80 ökumönnum vegna umferðarlagabrota í liðinni viku. Þar af voru 62 vegna hraðaksturs og fjögur vegna gruns um ölvun við akstur.

1.500 búnir að skila inn framtölum

Skattframtöl landsmanna eru þegar tekin að skila sér til skattstjóra landsins. Um 1.500 manns hafa talið fram á netinu en búast má við að áður en yfir lýkur skili rúmlega 200 þúsund manns framtölum sínum á netinu.

Loðnuvertíðinni að ljúka

Loðnuvertíðinni er að ljúka og eru nú aðeins þrjú skip eftir á miðunum út af Snæfellsnesi, þar sem loðnan hrygnir og drepst. Lang flest loðnuskipin eru búin með kvóta sína og því hætt veiðum og skipin þrjú, sem enn eru úti, eiga aðeins eftir að veiða smá slatta.

Babic svipti sig lífi

Milan Babic, fyrrverandi leiðtogi Króatíu-Serba, svipti sig lífi í morgun. Babic var í fangelsi í Haag í Hollandi en stríðsglæpadómstóllinn þar í borg hafði sakfellt hann fyrir glæpi gegn mannkyninu og dæmt hann í 13 ára fangelsi.

Ökumaður fékk aðsvif og velti bíl sínum

Lögreglan á Selfossi fékk tilkynningu um útafakstur og bílveltu á Hellisheiði um klukkan átta í morgun. Talið er að ökumaður bílsins hafi fengið aðsvif en bíll hans hafnaði utan vegar á Hellisheiði austan við Smiðjulaut.

Hverfagæsla áfram á Seltjarnarnsei

Hverfagæsla mun halda áfram á Seltjarnarnesi en samningur þess efnis hefur verið endurnýjaður milli bæjarins og öryggisgælsyfyrirtækisins Securitas. Verkefnið hófst í október síðastliðinn en markmið þess er að sporna gegn innbrotum og skemmdarverkum í bænum.

Helst illa á ráðherrum

Það þarf að leita allt aftur til áttunda áratugar síðustu aldar til að finna ríkisstjórn sem situr í fjögur ár án þess að einn eða fleiri ráðherrar láti af embætti. Árni Magnússon er fjórði ráðherrann til að láta af embætti á þessu kjörtímabili.

Ákveðið í dag hvort Öryggisráð SÞ tekur á málinu

Alþjóða kjarnorkumálastofnunin ákveður í dag hvort kjarnorkuþróun Írana verður vísað fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Ríkisstjórn Írans hótar enn frekari auðgun úrans ef ákveðið verður að vísa málinu fyrir ráðið. Mohamed El Baradei, yfirmaður stofnunarinnar, segist gera sér vonir um að hægt verði að semja við Írana um kjarnorkuáætlun þeirra áður en vikan er úti.

Ungur drengur brenndist á fæti á Nesjavöllum

Tólf ára drengur brenndist á fæti þegar hann steig í hver við Nesjavelli á laugardaginn. Drengurinn var á göngu með föður sínum er fótur hans fót niðurúr gróðurþekju og heitan hver sem var þar undir og hlaut hann brunasár upp að ökla. Sjúkralið og lögregla komu til móts við feðgana að Nesbúð þar sem drengurinn hlaut aðhlynningu. Enn er ekki vitað hversu alvarlegur bruninn var.

Lítill þorskstofn í Barentshafi

Allt bendir til að þorskstofninn í Barentshafi sé minni en vonir stóðu til. Í frétt á heimasíðu Inter seafood kemur fram að rússneskir og norskir leiðangrar í haust og vetur bendi til að svo sé. Norski leiðangursstjórinn Asgeir Aglen telur að það vanti sterkan nýliðunarárgang þorsks til að bera uppi stofninn á komandi árum.

Sjá næstu 50 fréttir