Ákveðið í dag hvort Öryggisráð SÞ tekur á málinu 6. mars 2006 12:00 Ali Asghar Soltanieh, fulltrúi Írana á fundi Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar í dag. MYND/AP
Alþjóða kjarnorkumálastofnunin ákveður í dag hvort kjarnorkuþróun Írana verður vísað fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Ríkisstjórn Írans hótar enn frekari auðgun úrans ef ákveðið verður að vísa málinu fyrir öryggisráðið. Mohamed El Baradei, yfirmaður Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar, segist gera sér vonir um að hægt verði að semja við Írana um kjarnorkuáætlun þeirra áður en vikan er úti. Telur hann viðræður fulltrúa Rússa og Evrópusambandsins vísbendingu í þá átt. Aðalsamningamaður Íransstjórnar sagði í gær að Íranar myndu ekki láta vestræn stórveldi vaða yfir sig og ef eitthvað væri myndu þeir leggja enn meira púður en áður í auðgun úrans ef ákveðið yrði að vísa malefnum landsins fyrir öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna. Kjarnorkuþróun væri Írönum nauðsynleg, auk þess að væri væri sjálfsagður réttur þeirra að þróa kjarnorku. Svoleiðis líta þær þjóðir sem eiga fast sæti í öryggisráðinu ekki á málið og þar ríkir nú samstaða um að gera eitthvað í málunum. Rússar og Kínverjar fóru fram á það í byrjun febrúar að Írönum yrði gefinn frestur til að gera hreint fyrir sínum dyrum. Nú er sá frestur liðinn, án þess að neitt hafi þokast í samningsátt. Skilaboðin frá stjórnvöldum í Íran hafa verið skýr og það kom berlega í ljós á fundi þeirra með fulltrúum stórvelda Evrópu fyrir helgina, þar sem samningamaður þeirra sagði það ekkert annað en yfirgang að ætla að vísa málinu fyrir öryggisráðið. Fæst bendir til að það komi til greina að fara með hervaldi gegn Íran í bráð, en stjórnmálaskýrendur segja allt benda til að samþykkt verði að beita landið efnahagslegum þvingunum til að byrja með í því augnamiði að reyna að fá Íransstjórn ofan af auðgun úrans og þróun kjarnorku.
Erlent Fréttir Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Sjá meira