Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Minnismerki tekin niður Verkamenn hófu í gær að taka niður 1.067 krossa á mörkum Austur- og Vestur-Berlínar sem settir höfðu verið niður til minningar um þá sem féllu fyrir kúlum austur-þýskra landamæravarða á tímum kalda stríðsins. 5.7.2005 00:01
Siðferðisþrek Samfylkingar þrotið "Að mínu viti er þetta merki um að siðferðisþrek Samfylkingarinnar sé á þrotum og þeim sé nær að líta í eigin barm en reyna að klóra í bakkann með dylgjum á borð við þessar," segir Jónína Bjartmarz, þingmaður Framsóknarflokksins. 5.7.2005 00:01
Verðstríð enn í gangi Hægt er að ganga út með tvo fulla innkaupapoka á verði eins eftir því hvar fólk verslar í matinn. Verðmunur á einstökum vörutegundum milli matvöruverslana getur numið meira en þúsund prósentum. Þetta kemur fram í könnun sem verðlagseftirlits ASÍ gerði í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu síðastliðinn laugardag. 5.7.2005 00:01
Bretar æfir vegna ummæla Chiracs Það er ekki hægt að treysta fólki sem eldar óætan mat, segir Jacques Chirac, forseti Frakklands. Yfirlýsingar hans um breska matargerð hafa valdið úlfúð og uppnámi á Bretlandi - og raunar líka Finnlandi, því þar er maturinn ennþá verri að mati Chiracs. 5.7.2005 00:01
Niðurskurður hjá RÚV Um síðustu mánaðamót var ákveðið að skera niður kostnað hjá Ríkisútvarpinu til að ná jafnvægi í rekstri stofnunarinnar á árinu. Um er að ræða flatan tveggja prósenta niðurskurð sem leggst jafnt á bæði útvarp og sjónvarp og á að spara fimmtíu milljónir króna. 5.7.2005 00:01
Dráttur afsalsins ekki útskýrður Framkvæmd húsakaupa Framsóknarflokksins af Keri er óheppileg, en ekki óeðlileg, að mati framkvæmdastjóra flokksins. Fimm ár liðu frá því samið var um kaup á húsinu, sem nú hýsir höfuðstöðvar flokksins, og þar til afsal var gefið út, eða á sama tíma og Búnaðarbankinn var seldur. 5.7.2005 00:01
Kona fær réttargæslumann Hæstiréttur sneri í gær fyrri úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur og skipaði konu réttargæslumann vegna ætlaðs heimilisofbeldis. 5.7.2005 00:01
Svara spurningum í ágúst Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra, eru báðir í sumarfríi fram í ágúst. Hjá embættinu fengust þau svör að trúlega gætu þeir einir svarað spurningum tengdum rannsókninni á Baugsmálinu svokallaða, en komið hefur fram alvarleg gagnrýni á hana og eins á skipulag embættisins. 5.7.2005 00:01
Dæmdur fyrir húsbrot og hasssmygl Rúmlega tvítugur maður var dæmdur í níu mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í gær fyrir að hafa í apríl og maí í fyrra staðið að innflutningi á rúmlega 2,5 kílóum af hassi frá Danmörku. Hassið var falið í leikfangatraktor sem sendur var í pósti. 5.7.2005 00:01
Málsgögnum var skilað í gær Embætti Ríkislögreglustjóra lét í gær af hendi rannsóknargögn í Baugsmálinu svokallaða. Ákærur voru gefnar út á föstudag, en rannsókn lögreglu hefur staðið í tæp þrjú ár. Sex sæta ákæru, þar á meðal fyrrverandi og núverandi forstjóri Baugs, stjórnarmenn og tveir endurskoðendur. 5.7.2005 00:01
Efla þarf réttindagæslu Meintur fjárdráttur konu sem stýrði sambýli fyrir fatlaða í Reykjavík er litinn mjög alvarlegum augum hjá svæðisskrifstofu fatlaðra, ekki síst þar sem um stjórnanda var að ræða. Þar mun nú hugað að endurskipulagi verkferla. 5.7.2005 00:01
Vændi á Íslandi Menn frá Vestur-Afríku og Eystrasaltsríkjunum eru taldir hafa komið sér upp söluneti fíkniefna hér á landi. Í fíkniefnaheiminum er sagt að þeir svífist einskis og séu hluti af enn stærra neti sem teygi sig um allan heim. Óttast er að heróín berist hingað til lands innan tíðar. 5.7.2005 00:01
Lánastarfsemi Íbúðalánasjóðs Engin takmörk eru fyrir því hversu mikið Íbúðalánasjóður má lána íslenskum bönkum og sparisjóðum eftir að ný stefna um áhættustýringu tók gildi. Fyrri stefna var aðeins í gildi í nokkra mánuði þar sem höfundar hennar sáu ekki fyrir gríðarlegar uppgreiðslur íbúðalána vegna samkeppni frá bönkunum en sú upphæð nemur eitt hundrað og fimmtíu milljörðum. 5.7.2005 00:01
Baugur enn í Somerfield viðræðum Breskir fjölmiðlar telja að ákærur á hendur forsvarsmönnum Baugs þýði að félagið neyðist til að draga sig út úr hópi fjárfesta sem hyggjast festa kaup á stórverslanakeðjunni Somerfield. Forstjóri Baugs, Jón Ásgeir Jóhannesson, reynir nú að draga úr þeim skaða sem Baugsmálið gæti valdið félaginu. 5.7.2005 00:01
Uppstilling á R-lista Framsóknarmenn og Vinstri grænir í samráðshópi R-listans segja boltann vera hjá Samfylkingunni hvað varðar framhald viðræðna um uppstillingu á framboðslista. Tillögur sem framsóknarmenn lögðu fram í gær fóru ekki vel í samfylkingarmenn. 5.7.2005 00:01
Úttekt á peningaþvætti Innan skamms verður gerð úttekt á því hvernig Íslendingar séu í stakk búnir að takast á við alþjóðlegt peningaþvætti. Iðnaðarráðherra mun í samráði við dómsmálaráðherra móta hugmyndir um hvernig best sé að standa að málum. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra kynnti málið á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun 5.7.2005 00:01
Geitungar á sveimi Geitungar hafa verið á sveimi á höfuðborgarsvæðinu og er geitungabú víða að finna. Ástandið er þó aðeins svipur hjá þeirri sjón sem blasti við fyrir tveimur árum.Það er ekki fyrir hvern sem er að ráðast til atlögu þegar geitungabúin eru annars vegar. Þessi hvimleiðu skordýr geta verið árásargjörn og það er ekki gott að vera stunginn af þeim. 5.7.2005 00:01
Viðræður hefjast í dag Viðræður um kostnaðarskiptingu vegna framtíðarvarnarsamstarfs Íslands og Bandaríkjanna á Keflavíkurflugvelli hefjast í dag. Viðræðurnar fara fram í Washington. 5.7.2005 00:01
Uppreisnarmenn skotnir til bana Sex íslamskir uppreisnarmenn týndu lífi í umsátri eftir að hafa ráðist inn í hindúamusteri á Norður-Indlandi í gær . 5.7.2005 00:01
Dani hótaði Bush Þrítugur Dani hefur verið úrskurðaður í sex daga gæsluvarðhald fyrir að hafa sent George Bush Bandaríkjaforseta líflátshótun. 5.7.2005 00:01
Sænskt morðmál til lykta leitt Eitt óhugnanlegasta morðmál Svíþjóðar á síðari árum virðist nú hafa verið til lykta leitt. Um er að ræða tvö morð sem framin voru á Skáni í Suður-Svíþjóð árið 1989. Þá var hinni tíu ára gömlu Helén Nilsson rænt og nauðgað á hrottafenginn hátt áður en hún var myrt með barsmíðum. 5.7.2005 00:01
Líðan eftir atvikum góð Fólkið sem lenti í gassprengingunni í Reykhólasveit um helgina liggur á lýtalækningadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss og verður þar áfram um óákveðinn tíma. 5.7.2005 00:01
Fleiri við gæslu en að mótmæla Um 200 mótmælendur gengu um götur Kaupmannahafnar í gær og mótmæltu komu George Bush til landsins. Mótmælendurnir voru svartklæddir og gengu um með skilti þar sem Bush var tjáð að hann væri óvelkominn. Einn var handtekinn fyrir að brenna bandaríska fánann. 5.7.2005 00:01
Býður hús fyrir störf að sunnan Viðræður eru hafnar milli Kaupfélags Eyfirðinga og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins um flutning opinberra verkefna til Akureyrar. Jafnframt á KEA í viðræðum við einkafyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu um opnun starfsstöðva á Akureyri. 5.7.2005 00:01
Þristinum flogið aftur til útlanda DC-3 flugvélin Páll Sveinsson heldur í dag af stað í hringflug til Bretlands og Norðurlanda þaðan sem hann snýr aftur til Íslands. Flugið er farið til að minnast þess að í ár eru sextíu ár liðin síðan farþegaflug hófst milli Íslands og annarra landa. 5.7.2005 00:01
Á forsíðu Berlingske Mynd af Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs Group, birtist á forsíðu Berlingske Tidende í Danmörku í gær með fyrirsögninni: "Eigandi Magasin ákærður fyrir blekkingar og skattsvik." 5.7.2005 00:01
Öflugt neðansjávareldgos Öflugt neðansjávareldgos virðist hafa orðið undan ströndum Japans um helgina. Rúmlega þúsund metra reykmökkur hefur undanfarna daga stígið upp úr kyrrahafinu nærri eyjunni Iwo Jima og telja sérfræðingar að eldgos undir sjávarmáli sé ástæða reyksins. 4.7.2005 00:01
Gefa lóðir og greiða styrk Gjaldfrjáls leikskóli frá næsta hausti, fríar byggingarlóðir og byggingarframlag að upphæð 17.500 krónur á fermetrann er lausn sveitarstjórnarinnar í Súðavík til að fjölga íbúum bæjarins um fjörutíu næstu fimm árin. 4.7.2005 00:01
Vatnsveður og umferð um helgina Ljóst er að tjón sem varð í vatnsveðrinu á Austfjörðum í gær nemur mörgum milljónum króna. Þó nokkuð af vegfarendum um Vesturland sluppu án meiriháttar meiðsla í slysum, sem rakin eru til óveðursins. 4.7.2005 00:01
Veikri fjölskyldu vísað úr landi Flóttamálaráðherra Danmerkur, Rikke Hvilshöj, ætlar sjálf að hlutast til um að geðsjúkri fjölskyldu verði vísað úr landi og send til síns heims, í Kosovo. Danskir fjölmiðlar greina frá þessu og vekja athygli á því að Danmörk sé samkvæmt reglum Sameinuðu þjóðanna skuldbundin til að vísa ekki geðsjúkum úr landi geti þeir ekki hlotið viðeigandi meðferð í heimalandi sínu. 4.7.2005 00:01
Nauðganir um helgina Beðið er eftir rannsóknargögnum í báðum nauðgunarmálunum sem komu upp um helgina. Maður er grunaður um nauðgun á Höfn í Hornafirði, en enginn hefur verið handtekinn vegna nauðgunar í Ólafsvík. 4.7.2005 00:01
Krefjast skattalækkunar á bensín Félag íslenskra bifreiðaeigenda ætlar að fara fram á við íslensk stjórnvöld að dregið verði úr skattlagningu á eldsneyti í ljósi síhækkandi heimsmarkaðsverðs. 4.7.2005 00:01
Ariel Sharon í hættu Hætta er á að öfgamenn úr röðum þjóðernissinna reyni að ráða Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, af dögum, að mati Moshe Katsavs, forseta Ísraels. Hann telur að hörð andstaða rabbína í landnemabyggðum gyðinga á svæðum Palestínumanna geti aukið hörkuna í þjóðernissinnum enn frekar. 4.7.2005 00:01
Brúðkaupi bjargað með farsímum Indverskir elskendur sem ætluðu að halda brúðkaup sitt í Bombei um helgina, létu það ekki aftra sér að brúðguminn komst ekki til athafnarinnar í tæka tíð vegna mikilla flóða og vegaskemmda á leiðinni til Bombei. 4.7.2005 00:01
Bush varar Blair við væntingum Tony Blair ætti ekki að búast við neinum greiðum á fundi leiðtoga stærstu iðnríkja heims. Þetta segir George Bush og segir stuðning Blairs við Íraksstríðið alls ekki þýða að hann fái eitthvað í staðinn. 4.7.2005 00:01
KPMG ver endurskoðanda Baugs Það er mat KPMG endurskoðunar, að endurskoðandi félagsins, sem áritaði ársreikninga Baugs fyrir árin 2000 og 2001 hafi sinnt starfsskyldum í samræmi við lög, en hann hefur verið ákærður fyrir lögbrot. 4.7.2005 00:01
Fólk veit lítið um ráðherra Um það bil helmingur landsmanna hefur ekki hugmynd um hvaða ráðherra gegnir hvaða ráðherraembætti, samkvæmt könnun, sem Morgunblaðið greinir frá. Vitneskja fólks er greinilega mismunandi eftir aldri og menntun. Þannig veit fleira roskið fólk og menntað fólk hvaða ráðherra gegnir hvaða embætti og fleiri karlar hafa það á hreinu en konur. 4.7.2005 00:01
Hlutabréf greidd í dag Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, og aðrir lykilstjórnendur sem keyptu nýverið hlutabréf í bankanum fyrir þrjá komma tvo milljarða króna eiga að greiða fyrir kaupin í dag. 4.7.2005 00:01
Kortafyrirtæki styrkir sendiráð Bandaríkjamenn halda upp á þjóðhátíðardag sinn, fjórða júlí, í dag, og af því tilefni bjóða sendiherrar Bandaríkjanna um allan heim, völdum mönnum úr hópi innfæddra til teitis í sendiráðum sínum síðdegis. 4.7.2005 00:01
Stálpípuverksmiðja í Helguvík? Forsvarsmönnum Stálpípuverksmiðjunnar í Helguvík hefur verið gefinn lokafrestur út mánuðinn til að klára fjármögnun verksmiðjunnar. Liðin eru rúm þrjú ár frá því forsvarsmenn International Pipe and Tube og Ellert Eiríksson þáverandi bæjarstjóri skrifuðu undir samninga um byggingu verksmiðjunnar í Helguvík. 4.7.2005 00:01
Óheimilt að gera verðkönnun Fréttablaðinu er óheimilt að framkvæma verðkönnun í fríhafnarverslunum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og ganga þannig úr skugga um að yfirlýsingar forsvarsmanna hennar um verðlag og samkeppnishæfi stöðvarinnar séu réttar. 4.7.2005 00:01
Allt fyrir Clint Tugir ungra manna fylgdu eftir ameríska draumnum og mættu í áheyrnarprurfur í Keflavík í gærkvöldi fyrir stórmynd Clint Eastwood, Flags of our fathers. Leitað var að aukaleikurum í myndina og þeir sem verða valdir munu leika hermenn í myndinni. 4.7.2005 00:01
Mikil spenna í Edinborg Mikil spenna ríkir í Edinborg þar sem þúsundir mótmælenda hafa komið saman til að mótmæla fundi leiðtoga G-8 ríkjanna, átta helstu iðnríkja heims. 4.7.2005 00:01
Fjármálaeftirlitið samþykkir kaup Fjármálaeftirlitið hefur samþykkt kaup eignarhaldsfélagsins Milestone á 66,6 prósenta hlut í Sjóvá af Íslandsbanka. Samkeppnisstofnun hefur einnig samþykkt kaupin og verður Sjóvá því ekki hluti af samstæðureikningi Íslandsbanka á öðrum ársfjórðungi heldur bókað sem hlutdeildarfélag. 4.7.2005 00:01
Íslenska vinsæl hjá útlendingum Í dag, mánudaginn 4. júlí hefst fjögurra vikna alþjóðlegt sumarnámskeið í íslensku í Háskóla Íslands. Námskeiðið er einkum ætlað erlendum háskólastúdentum. Stofnun Sigurðar Nordals gengst fyrir námskeiðinu í samvinnu við hugvísindadeild Háskóla Íslands og annast skipulagningu þess. 4.7.2005 00:01