Vatnsveður og umferð um helgina 4. júlí 2005 00:01
Ljóst er að tjón sem varð í vatnsveðrinu á Austfjörðum í gær nemur mörgum milljónum króna. Þó nokkuð af vegfarendum um Vesturland sluppu án meiriháttar meiðsla í slysum, sem rakin eru til óveðursins. Vegagerðarmönnum tókst seint í gærkvöldi að opna þjóðveginn um Fagradal á milli Reyðarfjarðar og Egilsstaða, sem rofnaði í vatnsveðrinu í gær, auk þess sem nokkrar aurskiriður féllu á veginn. Vegurinn er mikið skemmdur þannig að aka verður hann með gát, mun fullnaðar viðgerð taka langan tíma. Þá er verið að hreinsa tvær götur á Fáskrúðsfirði, en þær lokuðust í gær vegna framburðar og víða hefur skolað úr vegköntum.-Viðgerðarmenn símans eru byrjaðir að gera við ljósleiðarann, sem rofnaði á milli Reyðarfjarðar og Fáskúrðsfjarðar í gær vegna skriðufalla. Útsendingar ríkissjónvarpsins hafa legið niðri á sunnanverðum Austfjörðum vegna þessa auk þess sem bilunin hefur áhrif á gagnaflutninga á svæðinu og á GSM samband á einhverjum svæðum. Vonast er til að viðgerð ljúki i dag. Gríðarleg umferð var til höfuðborgarsvæðisins í gær í bálhvössu veðri víða á Vesturlandi. Mótorhjól fauk út af veginum í Kollafirði í gær, en ökumaður slapp ómeiddur. Húsbíll fauk útaf veginum í Staðarsveit og gjöreyðilagðist, en engin sem þar var um borð, slasaðist alvarlega. Það slasaðist heldur enginn alvarlega þegar jeppi fauk út af veginum á móts við Hvammsvík undir kvöld í gær og valt, og þeir sem voru í fólksbíl sem valt í Hvítársíðu í Borgarfirði í gærkvöldi sluppu lítið meiddir. Verulegt eignatjón varð í flestum þessara tilvika. Draga fór úr veðurofsanum í gærkvöldi og í nótt og í morgun var ekki lengur varað við ferðalögum vegna veðurs.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira