Verðstríð enn í gangi 5. júlí 2005 00:01
Hægt er að ganga út með tvo fulla innkaupapoka á verði eins eftir því hvar fólk verslar í matinn. Verðmunur á einstökum vörutegundum milli matvöruverslana getur numið meira en þúsund prósentum. Þetta kemur fram í könnun sem verðlagseftirlits ASÍ gerði í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu síðastliðinn laugardag. Yfir 100 prósetna munur var hæsta og lægsta verði á 25 af þeim 43 vörutegundum sem kannaðar voru. Minnsti verðmunurinn var tæp 30 prósent. Í könnuninni var Bónus í Holtagörðum oftast með lægsta verðið og næst kom Krónan Bíldshöfða. Hæsta verðið var hinsvegar oftast í verslun 10-11 í Grímsbæ og næst oftast var hæsta verðið í Ellefu-ellefu á Laugavegi. Af einstökum vörutegundum má taka dæmi um 750 gramma pakkningu af Kelloggs Special morgunkorni. Hún kostaði 489 krónur í versluninni Gripið og greitt í Skútuvogi, en 73 krónur í Bónus í Holtagörðum. Í Bónus var því hægt að kaupa sex pakka fyrir minni upphæð en greitt var fyrir einn pakka í Gripið og greitt. Mest sláandi munurinn var þó á pylsubrauðum frá Myllunni. Pakkinn kostaði 12 krónur í Krónunni á Bíldshöfða, en 139 krónur í 10-11 í Grímsbæ. Það mátti því fá ellefu pylsubrauðapakka í Krónunni á sama verði og einn í 10-11. Þeir kaupmenn sem fréttastofa ræddi við í dag sögðu slíkan verðmun sýna glögglega hversu óeðlielgt ástand sé á matvörumarkaði vegna verðstríðs lágvöruverslana, sem víluðu ekki fyrir sér að greiða með einstaka vörutegundum og seldu þær langt undir heildsöluverði.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira