Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sólarstundir í Reykjavík í júlí Sólarstundir í Reykjavík í júní voru 208 og er það 40 stundum meira en í meðalári. Þá var júnímánuður einni og hálfri gráðu hlýrri en í meðalári, en meðalhitinn var tíu og hálf gráða, að því er kemur fram í tíðarfarsyfirliti frá Veðurstofunni. 4.7.2005 00:01
Þorkell forstöðumaður Þorkell Ágústsson hefur verið skipaður forstöðumaður Rannsóknarnefndar flugslysa frá 1. september 2005. 4.7.2005 00:01
Sólheimakirkja vígð Sólheimakirkja var vígð á sunnudag en bygging hennar hófst í ágúst 2002. 4.7.2005 00:01
Sótt um lóðir í Þingahverfi Á milli tvö og þrjú þúsund manns sóttu um lóðir fyrir rúmlega 200 íbúðir í landi Kópavogs, svokölluðu Þingahverfi á Vatnsenda. Byrjað var að úthluta gögnum vegna lóðanna fyrir þremur vikum, en frestur til að skila inn gögnum rann út klukkan þrjú í dag. Að sögn fulltrúa á skrifstofu bæjarskipulags Kópavogs er gert ráð fyrir að niðurstða liggi fyrir í ágúst. 4.7.2005 00:01
Lyf og heilsa styrkir PSÍ Parkinsonssamtök Íslands, PSÍ, hafa gert tveggja ára samstarfssamning við Lyf og heilsu um að fyrirtækið verði aðalstyrktaraðili samtakanna. 4.7.2005 00:01
Settjarnir við Elliðaár "Þetta eru mengunargildrur, settjarnir sem sía yfirfallsvatn áður en það rennur í árnar," segir Stefán Jón Hafstein borgarfulltrúi um settjarnir sem búið er að gera við Elliðaárnar í Reykjavík. 4.7.2005 00:01
23 umsækjendur Landbúnaðarstofnun tekur til starfa samkvæmt nýjum lögum 1. janúar 2006, en hún sameinar stofnanir, embætti og verkefni á sviði stjórnsýslu og eftirlits innan landbúnaðarins í eina stofnun. Umsóknarfrestur um stöðu forstjóra Landbúnaðarstofnunar var til 21. júní og bárust 23 umsóknir, en forstjórinn tekur til starfa 1. ágúst 2005. 4.7.2005 00:01
Orka jarðar Landsmót skáta 2005 fer fram á Úlfljótsvatni 19. til 26. júlí næstkomandi en það er haldið þriðja hvert ár. Landsmótið er ein stærsta útisamkoma sem haldin er á Íslandi og búast skipuleggjendur mótsins við um 4-5000 manns alla vikuna. 4.7.2005 00:01
Framboð til nýrrar stjórnar í FL Framboð til nýrrar stjórnar FL group hafa borist Kauphöll Íslands og verður stjórnarkjörið haldið á hluthafafundi félagsins næstkomandi laugardag. 4.7.2005 00:01
Lík í sjónum við Gullinbrú? Lögregla og slökkvilið voru með mikinn viðbúnað við Gullinbrú í Grafarvogi síðdegis eftir að vegfarendur töldu sig hafa séð lík í sjónum við brúna. Lögreglumenn mættu á gúmmíbáti en þrátt fyrir ákafa leit hafði ekkert fundist skömmu fyrir fréttir. 4.7.2005 00:01
Langt í þingfestingu í Baugsmálinu Einn og hálfur mánuður líður frá því að sakborningum í Baugsmálinu eru birtar ákærur og málið er þingfest. Ríkislögreglustjóri og yfirmaður efnahagsbrotadeildar eru báðir komnir í frí og er það líkleg skýring á þessum langa tíma. Þegar Sindri Sindrason spurði dómsmálaráðherra hvort þetta teldust ásættanleg vinnubrögð lauk símtalinu skyndilega. 4.7.2005 00:01
Skera upp herör gegn skottusölum Grétar Jónasson framkvæmdastjóri Félags fasteignasala segir að nú verði skorin upp herör gegn skottusölum í landinu. Hann á við að farið verði í átak gegn mönnum sem komi fram sem fasteignasalar uppfylli ekki lagakröfur sem gerðar eru til fasteignasala. 4.7.2005 00:01
Viðgerðum ekki nærri lokið Viðgerðir eru í fullum gangi á vegum sem skemmdust í vatnsviðrinu á Austurlandi um helgina. Vegurinn um Fagradal milli Reyðarfjarðar og Egilsstaða fór í sundur eftir skriðu og að sögn starfsmanna Vegagerðarinnar á Reyðarfirði gengur viðgerðin sæmilega. 4.7.2005 00:01
Frekara tjóni afstýrt Slökkviliðið var kallað í íþróttahúsið á Seltjarnarnesi eftir að vart varð um vatnsleka í fyrradag. Fimm sentímetra vatnslag lá þá yfir um tvö hundruð fermetrum í sal á efri hæð og í andyri. 4.7.2005 00:01
Íbúðalánasjóður lánar stofnunum Íbúðalánasjóður hefur lánað Sparisjóðunum og öðrum lánastofnunum rúma áttatíu milljarða króna, til að endurlána viðskiptavinum sínum. Lán Íbúðalánasjóðs eru ríkistryggð og upphæðin nemur allt að því helmingi allra skulda ríkissjóðs. 4.7.2005 00:01
Margir um hituna í Kópavogi Miklar annir voru hjá bæjarskipulagi Kópavogs í gær en þá rann út frestur til að skila inn umsóknum vegna úthlutunar byggingaréttar fyrir íbúðir í fyrirhuguðu Þingahverfi við Elliðavatn. 4.7.2005 00:01
Dísilolía dýrari en bensín Dísilolía er nú orðin dýrari en bensín eftir síðustu hækkanir olíufélaganna Olís, Esso, og Skeljungs í gær en þá hækkuðu öll verð á dísilolíu um eina krónu á hvern lítra. 4.7.2005 00:01
Bush um væntanleg fundarefni Tony Blair græddi ekkert á því að styðja Bush Bandaríkjaforseta í Íraksstríðinu. Nú, þegar Blair vill innheimta greiðann, segir Bush ekkert slíkt koma til greina. 4.7.2005 00:01
Maður lést í umferðarslysi Eldri maður lést í árekstri pallbíls og rútu við Minni-Borg í Grímsnesi laust eftir klukkan hálf tvö í gærdag. Þrír farþegar rútunnar meiddust og voru fluttir á slysadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss í Reykavík til skoðunar. Maðurinn sem lést ók pallbílnum og var einn á ferð. Talið er að hann hafi látist samstundis. 4.7.2005 00:01
Fundu eiturlyf, umbúðir og búnað Lögregla fann þrjú kíló af hassi og 400 grömm af amfetamíni við húsleit á lögheimili manns í Reykjavík síðasta þriðjudag. Þá fundust fyrr um morguninn ætluð íblöndunarefni, umbúðir og búnaður sem lögregla ætlar að notaður hafi verið til að pakka fíkniefnum á dvalarstað mannsins. 4.7.2005 00:01
Tvíkjálkabrotinn fær bætur Ungir bræður voru fyrir helgi dæmdir í hálfsársfangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir að berja mann og sparka ítrekað í höfuð hans þar sem hann lá þannig að hann tvíkjálkabrotnaði og hlaut önnur meiðsl. Árásin átti sér stað á tjaldstæðinu við Þórunnarstræti á Akureyri, aðfararnótt 17. júní í fyrra. 4.7.2005 00:01
Barði niður bílstjóra 22 ára gamall maður var í gær dæmdur í mánaðarfangelsi fyrir líkamsárás sem átti sér stað snemma á laugardagsmorgni í febrúar í fyrra. 4.7.2005 00:01
Störfuðu lögum samkvæmt KPMG Endurskoðun sendi í gær frá sér yfirlýsingu vegna ákæru Ríkislögreglustjóra á hendur starfsmanni fyrirtækisins í Baugsmálinu. Fram kemur að starfsmanninum sé gefið að sök að hafa áritað ársreikninga Baugs hf. fyrir árin 2000 og 2001 án fyrirvara, en Ríkislögreglustjóri telji tilteknar upplýsingar ekki hafa verið settar fram í samræmi við lög. 4.7.2005 00:01
Stjórnandi sambýlis stal frá íbúum Lögregla rannsakar meintan fjárdrátt konu sem stýrði sambýli fyrir fatlaða í Reykjavík. Konan tók út vörur til eigin nota á reikning sambýlisins. Þetta er annað málið sem kemur upp á skömmum tíma þar sem stolið er frá íbúum sambýlis. 4.7.2005 00:01
Segir fjárfesta ekki hafa áhyggjur Stjórnarformaður Baugs segir fjárfesta og samstarfsmenn fyrirtækisins erlendir hafa traust á fyrirtækinu og stjórnendum þess, þrátt fyrir útgáfu ákæra í Baugsmálinu hér heima. Forsvarsmenn Baugs funduðu með viðskiptafélögum í London í gær. 4.7.2005 00:01
Veiða má 39 hrefnur Veiða má allt að 39 hrefnur í ár samkvæmt ákvörðun sjávarútvegsráðuneytisins. Náist það verður búið að veiða hundrað af tvö hundruð hrefnum sem veiða á samkvæmt hvalarannsóknaáætlun Hafrannsóknastofnunar. 4.7.2005 00:01
Skipulögð glæpastarfsemi á Íslandi Ísland hefur ánetjast; það er flækt í net alþjóðlegra glæpamanna. Íslenski fíkniefnamarkaðurinn stækkar og erlend glæpasamtök renna hýru auga til hans. 4.7.2005 00:01
Mótmæli í Gleneagle Það eru ekki einungis þjóðarleiðtogar sem mættir eru í Gleneagles í Skotlandi: Þar eru þúsundir mótmælenda einnig á ferð. Lögreglu lenti saman við fylgifiska þeirra, stjórnleysingja og andstæðinga hnattvæðingar. 4.7.2005 00:01
Ástandið í Angóla Niðurfelling skulda er eitt umræðuefnið á fundinum í Gleneagles. Eitt þeirra ríkja sem græða myndu á niðurfellingu skulda er Angóla. Í Lúanda búa fjórar milljónir, en borgin var bara byggð fyrir fjögur hundruð þúsund. 4.7.2005 00:01
Viðurlög við kaupum á vélaolíu Ef þú kaupir notaðan fólksbíl sem einhvern tíma hefur verið tekin vélaolía á, ert það þú sem færð sektina ef upp kemst um málið en ekki fyrri eigandi. Sektin getur numið tugum þúsunda króna. Sindri Sindrason veit meira um málið. 4.7.2005 00:01
Foo Fighters á Íslandi Ísland er uppáhaldsstaðurinn okkar að spila á í heiminum, segir Dave Grohl, söngvari Foo Fighters. Tónleikar með hljómsveitinni verða haldnir í Egilshöllinni annað kvöld. 4.7.2005 00:01
Eldur í eldhúsi við Rauðarárstíg Á áttunda tímanum í kvöld varð eldur laus í eldhúsi íbúðar sem stendur við Rauðarárstíg. Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra hjá Slökkviliði Reykjavíkur voru tveir slökkvibílar sendir á staðinn. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og engin slys urðu á fólki. 4.7.2005 00:01
Mikill munur á matarverði Mikill munur var á hæsta og lægsta verði margra vörutegunda í verðkönnun sem Alþýðusamband Íslands framkvæmdi í byrjun mánaðarins. 4.7.2005 00:01
Samfylking fær bestu bitana Ný tillaga framsóknarmanna vegna áframhaldandi samstarfs R-listans í Reykjavík gerir ráð fyrir að Samfylkingin fái fyrsta val um borgarstjóra, formann borgarráðs og forseta borgarstjórnar samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. 4.7.2005 00:01
Líks leitað í Grafarvogi Lögreglumenn og slökkviliðsmenn leituðu í gærkvöld að líki við Gullinbrú í Reykjavík. Leitin hófst eftir að barn sagði frá því að það hefði séð lík á floti þar sem það var á ferð. Að sögn lögreglu var lýsing barnsins þannig að ekki var annað hægt en að hefja leit af fullri alvöru. 4.7.2005 00:01
Fundu 40.000 ára gömul fótspor Breskir vísindamenn telja sig hafa fundið sönnun þess að fyrstu mennirnir hafi verið komnir til Ameríku fyrir 40 þúsund árum, það er 26.500 árum fyrr en hingað til hefur verið talið. 4.7.2005 00:01
Grundvallarmálin í Gleneagles Upptakturinn að leiðtogafundi sjö helstu iðnríkja heims og Rússlands hefur verið í lengra lagi og vakið nánast meiri athygli en sjálfur fundurinn. Á morgun koma leiðtogarnir loks saman í Gleneagles og taka ákvarðanir sem gætu haft veruleg áhrif á líf stórs hluta heimsbyggðarinnar. Málin í brennidepli eru aðstoð við fátækustu ríki og hlýnun jarðar. 4.7.2005 00:01
Hjón slasast í gassprengingu Maður og kona fengu annars og þriðja stigs bruna eftir gassprengingu á tjaldstæðinu í Bjarkarlundi í fyrrakvöld. Maðurinn var inni í hjólhýsi sínu ásamt konunni að skipta um gaskút þegar upp kom gasleki. Sprengingin varð þegar gasið komst í snertingu við loga sem var á gashellu inni í hjólhýsinu. 4.7.2005 00:01
Segir fleiri spurningar vakna Helgi Hjörvar segir það vekja upp spurningar að Ker hafi skrifað undir afsal að flokksskrifstofum Framsóknar um það leyti sem Búnaðarbanki var seldur árið 2002. Aðdróttanir úr lausu lofti gripnar segja framsóknarmenn sem keyptu húsið 1997.</font /></b /> 4.7.2005 00:01