Fleiri fréttir

Nýr framkvæmdastjóri

Almar Örn Hilmarsson, framkvæmdastjóri Tæknivals, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri flugfélagsins Iceland Express. Almar, sem er 31 árs lögfræðingur að mennt, tekur við af Sigurði I. Halldórssyni, fyrrum stjórnarformanni Iceland Express, sem gegnt hefur tímabundið starfi framkvæmdastjóra félagsins.

Buttigglione hættur við

Ítalski stjórnmálamaðurinn Rocco Buttiglione hefur lýst því yfir að hann sé hættur við að gefa kost á sér sem ráðherra dóms- og öryggismála hjá Evrópusambandinu. Buttiglione er kaþólikki og mikill trúmaður. Hann olli miklu uppnámi þegar hann lýsti því yfir að samkvæmt hans trúarbrögðum væri samkynhneigð synd.

Slapp ómeiddur er kviknaði í

Ökumaður á leið frá Suðureyri slapp ómeiddur þegar eldur kviknaði í bíl hans við bæinn Botn í Súgandafirði um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Bílinn var að nálgast munn Vestfjarðaganga þegar eldurinn kom upp í vélarrými. Ökumaður var einn í bílnum og tókst honum að forða sér. Slökkvilið og lögregla kæfðu eldinn en bíllinn er hins vegar talinn ónýtur.

Bíll út af í Önundarfirði

Tveir útlendingar meiddust lítillega í Önundafirði í nótt þegar þeir misstu bíl sinn út af. Slysið var tilkynnt lögreglu á Ísafirði laust fyrir klukkan eitt. Það varð á Flateyrarvegi á móts við Breiðadal.

Boðaði forstjóra á fundi

Þórólfur Árnason, borgarstjóri, sem var markaðsstjóri Olíufélagsins ESSO, á þeim tíma sem olíufélögin stunduðu ólögmætt samráð, tók meðal annars þátt í að boða forstjóra félaganna á fund, þar sem rætt var um sameiginlega stefnu í útboðsmálum. Hann segist hins vegar ekki hafa haft vitneskju um náið samstarf forstjóranna.

Innrás í Fallujah?

Her Bandaríkjamanna og þjóðvarnarlið Íraka undirbúa nú meiriháttar árásir á borgina Fallujah, þar sem mikil óöld ríkir. Yfir 5 þúsund hermenn eru í viðbragðsstöðu, en ákvörðun um að láta til skarar skríða er í höndum forsætisráðherra bráðabirgðarstjórnarinnar, Iyad Allawi.

Ólíklegt að mannvirki skemmist

Hlaup er hafið í Skeiðará. Búist er við að það nái hámarki á næstu tveimur sólarhringum og verði stærra en hlaupin sem komið hafa á undanförnum árum. Fyrstu merki um að hlaupið sáust í gær á jarðskjálftamælum sem sýndu óróa við Grímsvötn í Vatnajökli en þaðan kemur hlaupvatnið.

Tímamótasamningur

Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands, segir að góðir samningar hafi náðst við útvegsmenn sem tryggi sjómönnum verulegar kjarabætur. Þetta er í fyrsta skipti í tíu ár sem sjómenn og útvegsmenn komast að samkomulagi um kaup og kjör, án afskipta stjórnvalda.

Arafat líklega búinn að vera

Nánir samstarfsmenn Jassers Arafats segja að tíð hans sem leiðtoga Palestínumanna sé lokið vegna veikindanna sem nú hrjá hann. Fréttastofa CNN-sjónvarpsstöðvarinnar hefur það eftir hátt settum embættismönnum í Palestínu að Arafat sé ekki lengur andlega heill og sé því ekki í ástandi til þess að taka mikilvægar ákvarðanir.

Sjö létust

Hið minnsta sjö létust og sextán slösuðust í sprengjuárás á skrifstofur Al-Arabiya sjónvarpstöðvarinnar í miðborg Baghdad fyrir stundu. Sprengingin átti sér stað rétt utan við skrifstofur sjónvarpsstöðvarinnar og skemmdi þær verulega. Flestir þeirra sem fyrir árásinni urðu voru tæknimenn og bílstjórar sjónvarpsstöðvarinnar.

Verkföll stór og smá

Þrjátíu og níu daga kennaraverkfalli er lokið og hjól samfélagsins snúast með eðlilegum hætti á ný á mánudag. Á síðustu hálfu öld hafa margar langvinnar vinnudeilur verið háðar og einstaka verkföll staðið í hundrað daga eða þaðan af meira. </font /></b />

Átta hermenn létust

Átta bandarískir hermenn létust og níu slösuðust í bardögum í vesturhluta Baghdad í dag. Þar með hafa 858 hermenn Bandaríkjahers látið lífið í átökum í Írak, síðan ráðist var inn í landið í fyrra. Þrjú hundruð til viðbótar hafa látist af öðrum orsökum og alls hafa því yfir 1100 bandarískir hermenn látist í Írak á tæpu einu og hálfu ári.

Samningurinn undirritaður

Sjómenn og útvegsmenn undirrita klukkan þrjú kjarasamning, sem samþykktur var í gær. Þetta er í fyrsta sinn í yfir áratug sem sjómenn og útvegsmenn komast að samkomulagi um kaup og kjör, án afskipta stjórnvalda.

Skeiðará er orðin mórauð

Skeiðará er orðin mórauð og farin að vaxa, að sögn Jóns Benediktssonar í Freysnesi í Öræfum, en hann fór upp á Skeiðarárbrú fyrir um klukkustund til að fylgjast með hlaupinu. Hins vegar fannst engin brennisteinsfnykur af ánni.

Gæti farið yfir mikið flatlendi

Eldgos í Kötlu gæti haft í för með sér jökulhlaup sem færi til vesturs niður Markafljótsgljúfur og flæddi yfir stóran hluta flatlendis milli Eyjafjalla og Þjórsár. Líkurnar á slíku hlaupi eru þó ekki taldar miklar miðað við reynsluna af þeim 20 gosum sem kunnugt er um að orðið hafi síðan á landnámsöld, en hættan er eigi að síður fyrir hendi.

Pútín vill byggja upp Tjéténíu

Pútín rússlandsforseti hvatti ríkisstjórn sína í gær til að hraða afgreiðslu bótagreiðslna til Tjéténa sem misst hafa heimili sín vegna óeirða.

Hlaup í Grímsvötnum

"Þetta er talsvert stærra hlaup en hefur verið. Meira vatn er í Grímsvötnum nú en árið 2002. Við vitum ekki hvort mikið eignatjón verður vegna hlaupsins en ég býst við að það eigi ekki eftir að valda miklum skaða."

Bílvelta í Breiðadal

Bílslys varð aðfaranótt laugardags í Breiðadal í Önundarfirði. Tvennt var í bílnum og kom það á lögreglustöðina á Ísafirði klukkan korter fyrir eitt aðfaranótt laugardags og tilkynnti um slysið.

Flutningabíll valt

Flutningabíll með tengivagn valt skammt frá bænum Skarð í Dalsmynni í Grýtubakkahrepp á ellefta tímanum í gær. Flutningabíllinn var á leið austur á firði með tuttugu tonn af ófrosnum fiski.

Innbrot í Reykjavík

Brotist var inní raftækjaverslun í vesturhluta borgarinnar í kringum miðnætti í fyrrinótt.

Sjö handteknir í Reykjavík

Sjö manns voru handteknir grunaðir um fíkniefnaneyslu í húsi í austurhluta borgarinnar um tíu-leytið á föstudagskvöldið.

Mikil óvissa

Óvissa er lykilorðið þessa síðustu daga kosningabaráttunnar í Bandaríkjunum. Ótryggur kosningabúnaður, kosningaþátttaka og afskipti hryðjuverkaleiðtoga eru meðal þátta sem gætu haft áhrif á úrslit kosninganna.

Frístundaheimilin verða opin

Fyrirhuguðu vetrarfríi starfsfólks frístundaheimila Reykjavíkurborgar sem átti að vera í næstu viku verður að öllum líkindum frestað og skóladagheimilin verða opin, að sögn Önnu Kristjánsdóttur, borgarfulltrúa R-listans.

Pólitísk handsprengja

Sérfræðingar víða um heim hafa lýst því yfir að myndbandsupptakan af Osama bin Laden sem send var út á Al Jazeera sjónvarpsstöðinni á föstudagskvöld væri til þess ætluð að hafa áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum. Því hefur verið líkt við pólitíska handsprengju.

Skeiðará að vaxa

Hlaup er hafið í Skeiðará. Áin hefur vaxið hægt og rólega í dag en engin jöklafýla hefur fundist, að sögn Jóns Benediktssonar í Freysnesi. Fyrstu merki hlaups sáust á jarðskjálftamælum í gær en þá kom fram órói við Grímsvötn í Vatnajökli þaðan sem hlaupin koma.

Páfagarður ósáttur við höfnun ESB

Páfagarður sakar Evrópusambandið um hræsni og nornaveiðar, fyrir að hafna Rocco Buttiglione í embætti dóms- og öryggismálastjóra sambandsins.

Áhættumat um eldgos í Mýrdalsjökli

Gerð áhættumats og áhættugreiningar vegna eldgosa og hlaupa til norður, vesturs og suðurs frá Eyjafjallajökli og vesturhluta Mýrdalsjökuls er lokið.

Forsetakosningar í Úkraínu

Í dag ganga íbúar Úkraínu á kjörstaði og kjósa sér nýjan forseta. Forsetaframbjóðendurnir sem líklegastir eru til sigurs eru forsætisráðherrann Viktor Yanukovych og fyrrum forsætisráðherra Viktor Yushchenko.

Hylmt yfir samráð og gögnum eytt

Olíufélögin reyndu skipulega að hylma yfir ólöglegt samráð sitt og eyða mikilvægum gögnum, samkvæmt Samkeppnisráði. Þau áttu í tíðum og skipulögðum samskiptum og lykilmenn í félögunum skiptust á skoðunum og upplýsingum og sendu athugasemdir og tillögur sín á milli.

Falin sprengiefni í Írak

Peter Bouckaert, Starfsmaður mannréttindasamtakanna Human Rights Watch sagði frá því í gær í samtali við fréttastofu AP að hann hafi tilkynnt bandarískum hermönnum um falinn geymslustað í borginni Baqouba, 55 kílómetrum norðaustur af Baghdad, í maí á síðasta ári.

Kristinn markaði stefnuna

Kristinn Björnsson, fyrrverandi forstjóri Skeljungs, markaði, að mati Samkeppnisráðs, þá stefnu sem einkenndi alla samkeppni á olíumarkaði í heilan áratug, en hann hóf störf hjá Skeljungi árið 1990. Kristinn taldi ekki æskilegt að samkeppnin yrði of hörð á markaðnum.

Bandaríkjamenn kjósa snemma

Tvæpar tvær milljónir Flórídabúa hafa þegar greitt atkvæði utan kjörstaðar vegna forsetakosninganna sem haldnar verða á þriðjudag.

Segist ekki hafa verið með

Þórólfur Árnason, borgarstjóri og fyrrverandi markaðsstjóri Olíufélagsins ESSO, var með í samráði olíufélaganna vegna útboðs á olíusölu. Þórólfur segist ekki hafa vitað um náið samstarf forstjóra olíufélaganna.

Gæti náð láglendi á hálftíma

Stór hluti láglendis á milli Eyjafjalla og Þjórsár færi undir vatn ef þar yrði jökulhlaup í líkingu við það sem varð fyrir tólf hundruð árum í Markarfljóti. Hættumat vegna eldgosa í Eyjafjallajökli og Mýrdalsjökli sýnir að hlaup úr hlíðum jöklanna gæti náð láglendi á innan við hálftíma.

Fá ríflega 16% hækkun

Sjómenn fá ríflega sextán prósenta launahækkun samkvæmt nýjum kjarasamningi sem var undirritaður í dag. Það tók samninganefndir sjómanna og útvegsmanna tíu mánuði að komast að samkomulagi um nýjan kjarasamning og voru fulltrúar sjómanna, farmanna og fiskimanna og útvegsmanna því í hátíðarskapi þegar þeir mættu til að skrifa undir.

Breiðþota yfirfarin hér á landi

Tækniþjónustan á Keflavíkurflugvelli yfirfer nú í fyrsta sinn breiðþotu en þeim hefur hingað til verið flogið út til skoðunar. Þetta er vél af gerðinni 767 200 sem Loftleiðir hafa á leigu ,en hún flaug á milli Ísraels og New York, en mun næst verða staðsett í Portugal.

Samskiptin komin í eðlilegt horf

Sjómenn og útvegsmenn skrifuðu undir nýjan kjarasamning í gær en ekki hefur verið samið án verkfalls síðan 1992. Laun sjómanna hækka um 16,5 prósent. Samið var um lífeyrisgreiðslur, uppsagnafrest og fækkun í áhöfnum. Forysta sjómanna hefur loforð fyrir því að ekki verði hreyft við sjómannaafslætti á samningstímanum.

Kaupmáttarrýrnun hjá kennurum

Kennari í stjórn Kennarafélags Reykjavíkur segir að laun sumra kennara muni lækka þegar launaflokkar í potti verða festir í launatöflu. Eiríkur Jónsson segir breytinguna eina af forgangskröfum grunnskólakennara.

Útiloka að Arafat þjáist af hvítblæði

Læknar á hersjúkrahúsi í París hafa útilokað að Yasser Arafat, forseti heimastjórnar Palestínumanna þjáist af hvítblæði. Arafat var fluttur til Parísar í gær vegna alvarlegra veikinda. "Arafat er ekki með hvítblæði", sagði Mohammed Rashid, einn helsti ráðgjafi Arafats í kvöld. "Læknar hafa útilokað það, útilokið það einnig," sagði Rashid á blaðamannafundi. Niðurstöður frekari rannsókna á veikindum Arafats er að vænta á miðvikudag.

Verkfallinu frestað

Kennsla hefst í grunnskólum landsins á mánudag, eftir að deilendur í kennaradeilunni samþykktu í nótt að fresta kennaraverkfallinu á meðan báðar fylkingar kynntu sér nýja miðlunartillögu sáttasemjara og greiddu atkvæði um hana.

Arafat á leið til Parísar

Arafat, leiðtogi Palestínumanna, er nú á leið til Parísar að leita læknishjálpar. Þetta er í fyrsta skipti í tvö og hálft ár sem Arafat, sem er 75 ára að aldri, yfirgefur Vesturbakkann. Stuðningsmenn hans fjölmenntu fyrir utan heimili hans þegar verið var að flytja hann af stað.

Sprengiefnin voru til staðar

Nú er komið í ljós að 377 tonn af mjög hættulegu sprengiefni, sem meðal annars nýtist við gerð kjarnavopna, voru í vopnageymslunum í Al Kvaka í Írak, þegar fyrstu bandarísku hermennirnir komu þangað skömmu eftir að Bagdad féll fyrir innrásarhernum.

Viðræður kynntar í dag

Aðal samninganefndir sjómannasamtakanna hafa verið kallaðar til fundar í dag þar sem nefndunum verða kynntar þær samningaviðræður sem sjómenn hafa átti við útvegsmenn upp á síðkastið, en aðalnefndirnar hafa ekki verið kallaðar saman síðan í vor.

50 árekstrar í gær

Tæplega fimmtíu árekstrar urðu í hálkunni á höfuðborgarsvæðinu í gærmorgun, svo lögreglunni sé kunnugt um. Gera má ráð fyrir að árekstrarnir hafi verið talsvert fleiri, því nokkuð er um það að ökumenn geri sjálfir skýrslu á staðnum án afskipta lögreglu. Eignatjón er mikið, en engin slasaðist alvarlega.

Sjá næstu 50 fréttir