Fleiri fréttir

Prósak slæmt fyrir börn

Prósaknotkun ungra barna getur leitt til geðrænna vandamála síðar í lífinu og óléttar konur ættu heldur ekki að nota þetta geðlyf. Þetta segja bandarískir vísindamenn sem hafa rannsakað áhrif lyfsins á mýs.

Íslandsbanki greiðir mest

Bankar, fjarskiptafyrirtæki og flugfélag, tróna á toppnum yfir hæstu greiðendur opinberra gjalda í Reykjavík. Álagningarskrá Reykjavíkur árið 2004, með gjöldum lögaðila verður lögð fram í lag og mun liggja frammi til og með 12. nóvember. Af fyrirtækjum í einarekstri trónar Íslandsbanki hæst, með tæplega 845 milljónir í heildargjöld.

Skeljungur sektaður um milljarð

Olíufélögin höfðu 6,6 milljarða króna af neytendum með ólöglegu samráði sín á milli frá 1. mars 1993 til 18. desember 2001. Samkeppnisráð ákvað í gær að sekta félögin öll um 1,1 milljarð króna. Esso og Olís fá þó afslátt fyrir samvinnu við Samkeppnisyfirvöld.

Allt púður í 10 ríki

Forsetaframbjóðendurnir í Bandaríkjunum beina nú allri athygli sinni að tíu ríkjum, þar sem fylgi þeirra er hnífjafnt. John Kerry hlaut í gær stuðning úr óvæntri átt. Dálkahöfundur tímaritsins Congressional Quarterly, þar sem fylgst er með stjórnmálunum í Washington, baðst í gær undan því að færa rök fyrir spám um gengi frambjóðendanna á þriðjudaginn kemur.

Arafat kominn til Parísar

Jasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, lenti nú fyrir stundu á herflugvelli í Frakklandi þar sem hann mun gangast undir læknismeðferð. Arafat, sem er sjötíu og fimm ára gamall, verður lagður inn á hersjúkrahús í útjaðri Parísar og öryggisgæsla þar hefur verið hert gríðarlega. Meðal annars hafa lögreglumenn tekið sér stöðu á þaki sjúkrahússins.

Gaflarinn seldur

Gaflarinn gengur kaupum og sölum í Hafnarfirði en hann er sérlegt merki Lionsklúbbs Hafnarfjarðar og er nú seldur til styrktar langveikum börnum. Í tilkynningu frá klúbbnum segir að söfnunarfénu verði varið til kaupa á öryggissímum fyrir langveik börn. Gaflaramerkið kostar fimm hundruð krónur og verður selt þar til verkefninu er lokið.

Umhverfisráðuneytið í Skuggasund

Skuggaleg framtíð blasir við umhverfisráðuneytinu, sem verður lokað og sambandslaust við það fram á þriðjudag. Umhverfisráðuneytið er að flytja og það er af þeim ástæðum sem þar verður allt lokað fram á þriðjudag. Síma- og tölvukerfi ráðuneytisins verða jafnframt óvirk fram á þriðjudag.

Kennslan hefst á mánudag

Kennsla hefst í grunnskólum landsins á mánudag, eftir að deilendur í kennaradeilunni samþykktu í nótt að fresta verkfallinu á meðan báðar fylkingar kynntu sér nýja miðlunartillögu ríkissáttasemjara og greiddu atkvæði um hana.

Fjölmiðlafrumvarpið úr sögunni?

Ritstjóri Frjálsrar verslunar segist líta svo á að fjölmiðlafrumvarpið sé endanlega dautt eftir að Norðurljós urðu dóttturfélag Og Vodafone í gær. Þó að forsendur frumvarpsins séu enn til staðar, myndi það nú kalla á slíkar uppstokkanir, að enginn leggi í slíkt.

Rannveig forseti Norðurlandaráðs

Rannveig Guðmundsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, verður forseti Norðurlandaráðs næsta árið. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra mun hinsvegar stjórna Íslandi einn í næstu viku.

Óvíst að stjórnarskráin taki gildi

Stjórnarskrá Evrópusambandsins var undirrituð við hátíðlega athöfn í Róm í morgun. Óvíst er að hún taki nokkurn tíma gildi því aðildaríkin þurfa að samþykkja hana í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Olíufélög sektuð um 2,6 milljarða

Samkeppnisráð hefur sektað þrjú olíufélög um samtals 2,6 milljarða króna fyrir ólögmætt samráð. Skeljungur hlaut hæstu sektina, 1,1 milljarð króna, OLÍS var sektað um 880 milljónir króna og ESSO um 605 milljónir króna. ESSO og Olís fengu lægri sektargreiðslu vegna samstarfs við samkeppnisyfirvöld við að upplýsa málið.

Verkfall í Danmörku

Starfsmenn fréttastofu danska Ríkisútvarpsins lögðu niður vinnu í gær til að mótmæla því að störf verði flutt frá Kaupmannahöfn til Árósa. Þaðan voru störfin flutt til Kaupmannahafnar fyrir aðeins fjórum mánuðum.

13 handteknir á Spáni

Lögreglan á Spáni hefur handtekið 13 menn, grunaða um að hafa ætlað að sprengja upp hæstarétt landsins. Að sögn lögregluyfirvalda stóð til að keyra trukk með 500 kílóum af sprengiefni að hæstaréttinum og sprengja hann í loft upp þar. Lögreglan hefur þó ekki enn fundið hið meinta sprengiefni.

100 þúsund borgarar hafa látist

Um 100 þúsund óbreyttir borgarar hafa látist í Írak síðan Bandaríkin réðust inn í landið í fyrra. Þetta kemur fram í mati heilbrigðissérfræðinga í Írak og Bandaríkjunum. Eftir innrásina hafa líkur óbreyttra borgara á að láta lífið aukist um meira en helming.

Lok, lok og læs utan Bandaríkjanna

Heimasíða George W. Bush Bandaríkjaforseta hefur verið lokuð netnotendum utan Bandaríkjanna frá því á mánudag. Þeir sem hafa áhuga á því að kynna sér stefnumál forsetans, en búa utan Bandaríkjanna verða því að leita á önnur mið. 

Náið og mikið samráð

Samráð olíufélaganna var bæði mikið og náið, að því er fram kemur í rökstuðningi samkeppnisstofnunar við sektir sem hafa verið lagðar á félögin.

Skæður vírus kominn á kreik

Nýr og mjög skæður tölvuvírus er kominn á kreik og hefur hann þegar borist til Íslands. Sagt er frá þessu í danska blaðinu Politiken og sagt að þetta sé nýtt afbrigði af hinum skæða Bagle. Ef vírusinn er ræstur reynir hann að dreifa sér um tölvuna og opna bakdyr þannig að þessir óprúttnu aðilar geti misnotað hana síðar.

Stuðst við skriflegan samning

Í samráði olíufélagnna þriggja var meðal annars stuðst við skriflegan samning um að þau skuli „ekki stuðla að né koma á viðbótar sölustöðum né smásöludælum til einkaafnota á framangreindum stöðum nema að fengnu samþykki hinna félaganna, enda falli sú sala einnig inn í skiptin."

þrír handteknir vegna mannráns

Yfirvöld í Afganistan hafa handtekið þrjá menn og telja sig hafa fundið jeppa, sem var notaður til þess að ræna fjórum starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna í Kabúl í gær. Ekkert er hinsvegar vitað um örlög fólksins sem var rænt.

Íranir þráast við

Alþjóða kjarnrkumálastofnunin hefur boðist til þess að tryggja Írönum eldsneyti fyrir kjarnorkuver sín, til þess að Íranar þurfi ekki sjálfir að standa í því að auðga sitt eigið úraníum. Tilboðið er lagt fram til þess að reyna að fá Írana ofan af tilraunum sínum til þess að auðga úraníum sem hægt verði að nota í kjarnorkusprengjur.

Fjölgaði um 93%

93% fleiri farþegar hafa flogið með Iceland Express á árinu 2004 en á sama tíma í fyrra. Frá febrúarlokum árið 2003, til loka október sama ár flutti félagið 111.700 farþega. Á sama tíma á þessu ári, alls átta mánuðum, hefur félagið flutt 215.500 farþega, eða 93% fleiri.

Gutenberg ekki fyrstur?

Ítalskur fræðimaður hefur valdið miklu uppnámi með því að halda því fram vel geti verið að Jóhannes Gutenberg eigi ekki heiðurinn af því að hafa prentað fyrstu bók í Evrópu. Bruno Fabbiani, sem er fyrirlesari við tækniskólann í Torino, segir að Gutenberg hafi notað stimpla við prentun sína, en ekki lausa stafi.

Íslandsmiðill með lággjalda áskriftarsjónvarp

Fjarskiptafyrirtækið Íslandsmiðill ehf. gangsetti formlega í dag fyrsta þráðlausa stafræna sjónvarpsdreifikerfið á Íslandi. Íslandsmiðill býður upp á lággjalda áskriftarsjónvarp, VAL+ og er hægt að velja á annan tug erlendra og innlendra sjónvarpsstöðva. Útsendingasvæðið er í fyrstu einskorðað við suðvesturhorn landsins.

Nýr ritstjóri hefur störf

Kári Jónasson hefur hafið störf sem ritstjóri Fréttablaðsins. Tekur hann við af Gunnari Smára Egilssyni sem orðinn er framkvæmdastjóri Norðurljósa.

Ákvörðun samkeppnisráðs styðst ekki við lög

"Við teljum að það séu engar lagalegar forsendur fyrir þessari niðurstöðu samkeppnisráðs eins og málið lá fyrir ráðinu," segir Hörður Felix Harðarson lögmaður Skeljungs um ákvörðun samkeppnisráðs um meint samráð olíufélaganna sem birt var í morgun.  Hörður segir að máli félagsins verði skotið til áfrýjunarnefndar samkeppnismála.

Söfn, hótel og kartöfluhátíð

Tillögur um sókn Suðurfjarða Vestfjarða í ferðaþjónustu og atvinnulífi hafa verið kynntar. Heimamenn binda miklar vonir við að þær bæti byggðaskilyrðin á svæðinu og komi því aftur á kortið. Árni Johnsen stýrði verkinu. </font /></b />

Mat á meintum ávinningi órökstutt

Mat Samkeppnisstofnunar á ávinningi af meintu samráði olíufélaganna á árunum 1998-2001 er órökstutt að mati Skeljungs. Á vef félagsins segir að yfirgnæfandi líkur séu á að hækkun framlegðar, sem stofnunin lagði til grundvallar þessu mati, eigi sér aðrar og eðlilegri skýringar. 

Þarf frekari rannsóknir

Franskir læknar segja að þeir þurfi að rannsaka Yasser Arafat, í nokkra daga, til þess að komast að því hvaða sjúkdómur hrjái hann. Arafat var lagður inn á hersjúkrahús í París í dag. Talsmaður leiðtogans segir að hann hafi þjáðst af iðrakveisu, í að minnsta kosti þrjár vikur, en ljóst sé að eitthvað sé meira að honum en það.

Hjálp þar sem neyðin er mest

Aðbúnaður fatlaðra í þróunarlöndunum er afar bágborinn en fæstir þeirra fá meðferð eða menntun við sitt hæfi. Fordómar og bábiljur hafa víða gert hag þeirra ömurlegri en orð fá lýst.

Farið í fyrstu kílómetrana

Jónas Snæbjörnsson, svæðisstjóri hjá Vegagerðinni í Reykjavík, segir að verið sé að leggja lokahönd á samninga við landeigendur í Hrauni í Grindavík um lagningu Suðurstrandarvegar.

Dagbjört Þýri ráðin

Nýr hjúkrunarforstjóri Hrafnistuheimilanna, var ráðinn í dag og er það Dagbjört Þyrí Þorvarðardóttir. Hún tekur við starfinu af Ragnheiði Stephensen, sem óskaði eftir að láta af störfum nú um áramótin. Dagbjört Þyrí hefur verið verkefnastjóri gæðamála á lyflækningasviði I á Landsspítala - háskólasjúkrahúsi frá september 2003.

Stýrivextir hækka

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 0,5 prósentur í 7,25% frá 1. nóvember n.k. Vaxtahækkunin er hin fimmta á þessu ári og er liður í viðbrögðum bankans við miklum vexti innlendrar eftirspurnar og áhrifum stórframkvæmda næstu árin á verðbólguhorfur og þjóðarbúskapinn.

Eindreginn vilji til sameiningar

Meirihluti íbúa á Vesturlandi er hlynntur sameiningu sveitarfélaga í einhverri mynd, að því er fram kemur í nýrri könnun Rannsóknarstofnunar Háskólans á Akureyri. Spurt var hvaða sameiningarkostir þættu vænlegastir og vekur athygli að 16 prósent aðspurðra nefndu Reykjavík.

Vilja línuívilnun burt

Aðalfundur LÍÚ, sem haldinn er í Reykjavík og lýkur í dag. skorar á sjávarútvegsráðherra að beita sér fyrir því að línuívilnun verði afnumin. Í samþykktinni segir að Línuívilnun feli í sér grófa mismunun þar sem einum útgerðarflokki séu veittar auknar veiðiheimildir á kostnað annarra.

Alvarlega slasaður eftir árekstur

Ökumaður lítillar jeppabifreiðar slasaðist alvarlega eftir að hafa ekið utan í fólksbíl sem kom úr gagnstæðri átt og skollið framan á fóðurflutningabíl á Suðurlandsvegi í brekkunni fyrir ofan litlu Kaffistofuna í Svínahrauni skömmu fyrir klukkan hálf níu í gærmorgun.

Hlutabréfin áfram niður

Hlutabréf héldu enn áfram að lækka í Kauphöll Íslands í dag og lækkaði úrvalsvísitalan um þrjú prósent í viðskiptum dagsins. Mest lækkuðu bréf í Kaldbaki, um níu prósent. Þá lækkuðu Bakkavör og Actavis um fimm prósent.

Jarðskjálftamælum komið fyrir

Veðurstofa Íslands er að beiðni Landsvirkjunar að setja upp þrjá nýja jarðskjálftamæla við Kárahnjúka og er það gert til að fylgjast með virkni áður en og á meðan fyllt er í lón virkjunarinnar.

Blikur á lofti vegna verðbólgu

ASÍ segir blikur á lofti í efnahagshorfum og spáir aukinni verðbólgu á næsta og þarnæsta ári. Grétar Þorsteinsson var endurkörinn forseti ASÍ á ársfundi Alþýðusambandsins sem lauk í gær.

Sorpflutningur spennandi kostur

Alfreð Þorsteinsson stjórnarformaður Sorpu segir það spennandi kost að allt sorp af höfuðborgarsvæðinu verði flutt austur fyrir fjall og því fargað á svæði vestan við Þorlákshöfn.

Einn alvarlega slasaður

Ökumenn tveggja bíla slösuðust þegar fólksbíll, jeppi og fóðurflutningabíll rákust saman skammt ofan við Litlu Kaffistofuna í morgun. Hinir slösuðu voru fluttir á slysadeild Landsspítalans og er annar þeirra alvarlega slasaður. Fóðurbíllinn var með fullfermi og lokaði hann veginum.

Arafat skoðaður í París næstu daga

Jasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, var í morgun fluttur á hersjúkrahús í útjaðri Parísar þar sem hann mun gangast undir ítarlega læknisskoðun. Arafat virtist veikburða í morgun, en hann hefur að undanförnu legið sárþjáður af einhvers konar iðrakveisu. Óttast er að hann gæti verið með hvítblæði.

Samkomulag náðist ekki

Ekki náðist samkomulag meðal fulltrúa aðildarsveitarfélaga Sorpstöðvar Suðurlands um lausn á ágreiningi varðandi starfsemi stöðvarinnar.

Á góðum batavegi

Sr. Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur hafði fyrir nokkrum dögum ákveðið að taka að þátt í stjórn landssöfnunar til styrktar hjartalækninga, þegar hann þurfti sjálfur í bráða hjartaþræðingu og aðgerð vegna alvarlegra stíflna í hjartaæðum.

Sjá næstu 50 fréttir